Morgunblaðið - 21.09.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 49
Þegar ég var barn að aldrivoru líkamsskiptakvikmynd-ir nokkuð vinsælar og al-
geng Hollívúdd-afurð. Slíkar mynd-
ir hafa snúið aftur á seinustu árum,
nýlegt dæmi unglingaræma þar
sem gelgja hleypur í skrokk móður
sinni og öfugt. Algengustu líkams-
skiptin eru þau að barn fari í
skrokk fullorðnum eða stelpa í
strák. Óþarft er að taka fram að
þetta eru gamanmyndir en þó er í
þeim hrollvekjuþráður, nefnilega
sá að vera skyndilega kominn í
hlutverk annars og þurfa að leysa
störf hans og skyldur af hendi líkt
og ekkert hafi í skorist.
Sem barn fékk ég oft martraðir,
skilst að þær fylgi barnæsku jafnt
og sætir draumar. Hver kannast
ekki við martröðina að vera kominn
í skólann en uppgötva sér til skelf-
ingar að maður er nakinn? Slíkar
martraðir hljóta að tengjast því að
upp um mann komist að einhverju
leyti, að maður sé berskjaldaður og
varnarlaus. Það merkilega við
þessa gerð martraðar er þó það
(a.m.k. í minni útgáfu af martröð-
inni) að þó maður viti sjálfur að
maður er nakinn vita það ekki endi-
lega aðrir í kringum mann, taka
ekki eftir því. Öfug útgáfa af Nýju
fötunum keisarans, svo að segja.
Þessi algenga martröð rifjaðistupp fyrir mér og varð að vissu
leyti að veruleika um daginn. Til
varð eins konar blanda af líkams-
skiptihrollvekju og nektarmartröð.
Þannig var að vinkona mín hvatti
mig til þess að mæta á æfingu hjá
virtum kór og reyndum, að prófa að
syngja með. Ég kann ekki að syngja
eftir nótum og hef enga reynslu af
kórsöng, ekki kórvanur eins og það
heitir. Engar áhyggjur, sagði vin-
konan, það væri nú ekki skilyrði þó
svo á heimasíðu kórsins væri það
skilyrði fyrir inngöngu. Karlraddir
vantaði og því mætti beygja regl-
urnar.
„Ertu tenór eða bassi?“ var
fyrsta spurningin sem ég fékk þeg-
ar á æfingarstað var komið. „Ég
held að ég sé barítón... og þá nær
því að vera bassi“, svaraði ég. Fékk
þvínæst tvær bækur í hendur. Opn-
aði bækurnar og sá fullt af alls kon-
ar nótum, allt rann saman í eitt. Að
vísu hef ég örlitla tilfinningu fyrir
þeim, lærði til skamms tíma á fiðlu
sem barn. Öll sú kunnátta hvarf
eins og dögg fyrir sólu á nokkrum
árum, merkilegt nokk. Nóturnar í
bókunum fóru upp og niður og út
og suður. „Þetta reddast“, hugsaði
ég með mér og ákvað að stressa
mig ekkert yfir þessu. Kórstjórinn
mætti á svæðið og heilsaði með
ákveðnu handabandi, líkt og allir
aðrir höfðu gert, ákaflega almenni-
legt og vingjarnlegt fólk í kórnum.
„Tenór eða bassi“? var aftur spurt.
„Bassi“, svaraði ég dimmri röddu,
líkt og ég væri sprenglærður
söngvari.
Við tók upphitun og tókst mérnokkuð skammlaust að fylgja
mönnum eftir þar, barkakýlið bif-
aðist upp og niður og hljóðin virtust
nokkuð svipuð þeim og komu út úr
öðrum bassahálsum. Bara slaka á
kjálkanum og láta hljóðið streyma
út eins áreynslulaust og hægt er og
„Aaaaaaaaooooooooooooooo-
oooo...“ kom út úr munni mér í
stríðum straumum. Ekkert mál.
Hélt ég.
Kórnum var þá skipt í tvennt,
karlar héldu til einnar stofu og kon-
ur til annarrar. Menn slógu á létta
kórstrengi. Nótnabækur voru opn-
aðar og nótnasúpan blasti við. Sem
betur fer voru bassar mér til beggja
hliða og tókst mér að fela nekt mína
með því að herma eins vel eftir
þeim og hægt var og fletta á sama
tíma og þeir. „Ætli við séum ekki
hérna,“ hugsaði ég með mér og
horfði á flóknar nóturnar, alveg úti
að aka. Menn ræddu um verkið inn
á milli söngkafla og átti ég ansi erf-
itt með að fylgja því eftir um hvað
menn voru að tala. Kinkaði bara
kolli. Svo virtist sem undirleikur á
píanó væri tvöfalt hraðari en söng-
urinn á köflum og ég tók eftir því
að nokkrir karlanna grettu sig yfir
nótunum. Af því dró ég þá ályktun
að verkið væri nokkuð snúið og lét
enn minna í mér heyrast.
Gamanið kárnaði svo heldur bet-ur þegar bössum var skipt í
fyrsta og annan bassa og sá sem ég
hafði hermt eftir til þessa fór í ann-
an enda stofunnar. Nú heyrði ég í
tenórum með vinstra eyra og böss-
um með því hægra. Ekki veit ég
hvaða hljóð komu út úr mér en þyk-
ist nokkuð viss um að ég hafi ekki
gert mönnum greiða með þeim ten-
ór-bassa hrærigraut. Nú var ég
sannarlega nakinn og sjálfsagt tóku
allir eftir því. Sveittur á efri vör-
inni, hálsinn þurr. En mér tókst í
það minnsta að vera á sömu blað-
síðu og hinir og fletta á sama tíma.
Það er þó eitthvað.
Kórstjóri tók mig tali að æfingulokinni og komst að því að ég
var nakinn. Ég bar mig þó vel í
nektinni og þótti stjóranum nokkuð
gott að ég hefði sungið með þrátt
fyrir að vita ekkert hvað ég væri að
gera. Þetta ætti allt eftir að koma,
ekki væri ráðist á garðinn þar sem
hann væri lægstur þennan vet-
urinn. Líkt og í líkamsskiptamynd-
unum fékk ævintýrið farsælan endi.
Ég fór heim í fötunum, ekki nakinn
eins og í martröðinni. Ég komst að
því að það er ekkert grín að syngja
í kór. Það er erfitt, flókið og
heillandi að standa í tónaflóðinu
miðju. Nú er bara að „gúggla“ það
hvort einhver hafi lært að synda af
því að vera hent út í djúpu laugina.
Að synda eða sökkva
»Ekki veit ég hvaðahljóð komu út úr mér
en þykist nokkuð viss
um að ég hafi ekki gert
mönnum greiða með
þeim tenór-bassa hræri-
graut. Nú var ég sann-
arlega nakinn og sjálf-
sagt tóku allir eftir því.
AP
Fjölmennur kór „Ég komst að því að það er ekkert grín að syngja í kór. Það er erfitt, flókið og heillandi að standa
í tónaflóðinu miðju,“ segir Helgi Snær Sigurðsson eftir að hafa mætt á eina kóræfingu.
helgisnaer@mbl.is
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
LEIKARAPARIÐ Tom Cruise og
Katie Holmes vill eignast aðra dótt-
ur. Þau vinna nú að því að eignast
annað barn og
vilja gjarnan að
það verði lítil
systir fyrir
frumburð
þeirra, hina 18
mánaða Suri.
Heimild-
armaður sem
vinnur við nýj-
ustu mynd
Cruise, Valky-
rie, sagði að
parið vildi eignast annað barn fyrr
en seinna.
Katie var spurð að því nýlega
hvort hún vildi verða ólétt bráðlega
og svaraði hún játandi hiklaust
enda hefur Suri verið mikill gleði-
gjafi þeirra hjóna.
Vilja aðra
dóttur
Á morgun. kl. 17.00
Kristallinn – kammertónleikaröð SÍ í
Þjóðmenningarhúsinu
Brassbotninn – tónlist eftir Haydn, Wagner,
Bruckner og Bítlana.
■ Fö. 28. september kl. 19.30 – uppselt
Tónlist eftir Elgar, Jón Leifs og Rakmaninoff
Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELWW AG.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Óvitar! Aukasýningar í sölu núna!
Kortasala í fullum gangi!
Fös 21/9 kl. 20 4.kortas. UPPSELT
Lau 22/9 kl. 20 5.kortas. UPPSELT
Sun 23/9 kl. 16 AUKASÝN UPPSELT
Fim 27/9 kl. 20 6.kortas. UPPSELT
Fös 28/9 kl. 20 7.kortas. UPPSELT
Lau 29/9 kl.16 AUKASÝN UPPSELT
Lau 29/9 kl. 20 8.kortas. UPPSELT
Sun 30/9 kl. 20 AUKASÝN UPPSELT
Fim 4/10 kl. 20 9.kortas. UPPSELT
Fös 5/10 kl. 20 10.kortas. UPPSELT
Lau 6/10 kl. 20 11.kortas. UPPSELT
Sun 7/10 kl. 20 AUKASÝN örfá sæti laus
Fim 11/10 kl. 20 AUKASÝN örfá sæti laus
Fös 12/10 kl. 20 12.kortas. UPPSELT
Fös 19/10 kl. 20 12.kortas. örfá sæti laus
Lau 20/10 kl. 20 12.kortas. UPPSELT
Næstu sýn: 19., 20., 26., 27. október
Sörlaskjól 94
Glæsileg neðri sérhæð
ásamt bílskúr
Opið hús í dag frá kl. 18 - 20
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Glæsileg 109 fm neðri sérhæð í þríbýlishúsi ásamt 25 fm bílskúr á
þessum eftirsótta stað í Vesturbænum. Hæðin er mikið endurnýjuð
á vandaðan og smekklegan hátt og skiptist m.a. í tvær rúmgóðar
stofur, 2 herbergi og vandað eldhús. Svalir til suðvesturs. Fallegt
útsýni til sjávar. Laus til afh. við kaupsamning. Verð 49,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, föstudag, frá kl. 18 - 20.
Verið velkomin.
M
bl
9
09
81
9
Salurinn
AÐAL ST YRK TAR AÐIL I SAL ARINS
SÍMI 5 700 400 · www.SalurInn.IS
lauGardaG 22. SEPT. Kl. 17
TÍBrÁ: PÍanÓTÓnlEIKar – fyrrI hl.
dÉSIrÉ n´KaOua flyTur Öll
PÍanÓVErK MaurICE raVEl
Miðaverð 2000/1600 kr.
SunnudaG 23. SEPT. Kl. 17
TÍBrÁ: PÍanÓTÓnlEIKar – SÍðarI hl.
dÉSIrÉ n´KaOua flyTur Öll
PÍanÓVErK MaurICE raVEl
Miðaverð 2000/1600 kr.
ÞrIðjudaG 25. SEPT. Kl. 20
frISEll PrOjEKT
Sunna GunnlauGS, rÓBErT
ÞÓrhallS, SChOTT MClEMOrE
Miðaverð 1500/1200 kr.
MIðVIKudaG 26. SEPT. Kl. 20
TÍBrÁ: KlarInETT OG PÍanÓ
GuðnI franZSOn OG
GEOffrEy dOuGlaS MadGE
Miðaverð 2000/1600 kr.