Morgunblaðið - 20.10.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 20.10.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis- ráðherra ræðir um stöðu og horfur í heilbrigðismálum á laugardagsfundi í Valhöll 20. október klukkan 10:30. Kaffi og meðlæti í boði. Fundarstjóri er Drífa Hjartardóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna Landssamband sjálfstæðiskvenna og Sjálfstæðisflokkurinn standa fyrir fundinum. Tölum saman Laugardagsfundur í Valhöll kl. 10:30 Allir velkomnir! Heilbrigðismál - staða og horfur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is VIÐ setjum tvennt ofar öllu öðru í áætlunum okkar: Í fyrsta lagi vernd- un umhverfis og að öllum stífustu umhverfisreglum verði fylgt. For- dæmið að þeim sækjum við til Norð- manna sjálfra. Í öðru lagi er það vernd þeirra manna sem þarna munu starfa við erfiðar aðstæður. Þar verð- ur fylgt öllum ströngustu reglum og aftur sækjum við þær að verulegu leyti í hina miklu reynslu Norðmanna af olíuvinnslu við erfiðar aðstæður,“ sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðar- ráðherra þegar hann var inntur álits á áhyggjum norskra stjórnvalda af áformum Íslendinga um að hefja olíu- rannsóknir á Drekasvæði við mörk efnahagslögsögu Íslands og Noregs. Norska ríkisútvarpið NRK sagði nýlega frá því að norska umhverfis- ráðuneytið hefði áhyggjur af því að verið væri að undirbúa hugsanlega olíuvinnslu svo norðarlega og það á svæði þar sem nú væri engin olíu- vinnsla. Eins því að skipulögð björgunarstarf- semi yrði ekki fyr- ir hendi á svæð- inu. Össur sagði að norsku ríkis- stjórninni hefði verið gefinn kost- ur á að gefa álit sitt á skýrslu um framkvæmdaáætlun umhverfismats á þessu svæði. „Það gerðu þeir á tilsettum tíma en lýstu engum umhverfisáhyggjum, enda bjóst ég ekki við því þar sem Norðmenn sjálfir eru að vinna olíu við erfiðari aðstæður langt norður í höfum.“ Össur kvaðst fagna því að menn hefðu áhyggjur af umhverfinu. Því gæti stafað hætta af hvers konar mannlegri starfsemi. Hann sagði norsk stjórnvöld hafa í umsögn sinni m.a. lagt áherslu á að hafstraumar á svæðinu yrðu kannaðir betur. Rannsaka þarf lífríki betur „Þær rannsóknir standa nú yfir og eru kostaðar með sérstakri fjárveit- ingu ríkisstjórnarinnar sem ég fékk samþykkta fyrr á árinu,“ sagði Öss- ur. Niðurstöður munu liggja fyrir eft- ir haustið. Einnig töldu Norðmenn þörf á að rannsaka betur lífríki hafs- botnsins. Össur kvaðst sammála því og sagði íslensk stjórnvöld hafa lagt drög að því að niðurstöður þeirra rannsókna lægju fyrir áður en mögu- legar boranir gætu hafist. Össur sagði mikla undirbúnings- vinnu vegna mögulegrar olíuvinnslu þegar hafa verið unna, en enn væri mikið verk óunnið, ekki síst á sviði stjórnsýslu og löggjafar. Hann kvaðst hafa ákveðið að ráðast ekki í útgáfu leyfa fyrr en búið væri að móta nákvæmlega reglur og kröfur. Ströngustu reglur munu gilda á Drekasvæði Össur Skarphéðinsson MEÐBYRINN sem var á hlutabréfa- og fjármálamörkuðum á fyrri helm- ingi ársins hefur snúist upp í andbyr á þriðja fjórðungi ársins. Þetta kemur meðal annars skýrt fram í nýrri spá greiningardeildar Kaupþings banka um afkomu fjárfestinga- og rekstrar- félaganna Existu og FL Group á þriðja fjórðungi ársins. Greiningar- deildin spáir því að verulegt tap verði af rekstri félaganna eða um 9,6 millj- arðar hjá Existu og 27 milljarðar hjá FL Group. Til marks um þau miklu umskipti sem hafa orðið skömmum tíma má nefna að á fyrri helmingi ársins var Exista rekið með um 71,2 milljarða króna hagnaði og FL Group með 23,1 milljarðs króna hagnaði. Tap vegna lækkunar bréfa Exista mun birta fjórðungsuppgjör sitt í næstu viku en greiningardeild Kaupþings banka spáir því að tap fé- lagsins eftir skatta á þriðja fjórðungi ársins muni nema 112,3 milljónum evra eða um 9,6 milljörðum íslenskra króna og segir að tapið megi rekja til þess að verð skráðra hlutabréfa hafi lækkað mikið á fjórðungnum, þ.á m. bréf Bakkavör Group og norska tryggingafélagsins Storebrand en Exista er stór hluthafi í félögunum. Sem kunnugt er notar Exista hlut- deildaraðferð á eign sína í Kaupþingi banka og Sampo, þ.e. reiknar sér ekki til tekna eða gjalda hækkun eða lækk- un á gengi bréfa í þeim félögum held- ur hluta af hagnaði þeirra í takt við eign sína í þeim en Exista á 20% í Sampo og 23% í Kaupþingi banka. Töluverð óvissa í spánni FL Group reiknar sér til tekna eða gjalda breytingar á markaðsvirði hlutabréfa í sinni eigu og færir sem óinnleystan gengishagnað eða geng- istap. Sérfræðingar Kaupþings banka segja verðmæti eignasafns FL Group hafa minnkað mikið á þriðja fjórðungi ársins og þeir spá því að tap FL Group á þriðja fjórðungi ársins muni nema 27 milljörðum króna. Þeir taka þó fram að töluverð óvissa sé í spánni þar sem takmarkaðar upplýsingar liggi fyrir um hluta af eignasafni FL Group, fjármögnun þess og hvort FL Group muni uppfæra óskráðar eignir sínar. Úr gríðarmiklum hagnaði í taprekstur Greiningardeild Kaupþings spáir FL Group 27 milljarða tapi Í HNOTSKURN »Samanlagður hagnaðurExistu og FL Group á fyrri helmingi ársins nam 94,3 millj- örðum króna, þar af voru 71,2 milljarðar hjá Existu. »Kaupþing spáir því að tapþeirra á þriðja fjórðungi verði 36,6 milljarðar, þar af 27 milljarðar hjá FL Group. ALDARFJÓRÐUNGUR er nú liðinn frá því að sérsveit ríkislögreglustjórans, víkingasveitin, var stofnuð. Af því tilefni heimsóttu Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri og fleiri æfingaaðstöðu sveitarinnar í hinni gömlu olíustöð Nató í Hvalfirði í gær. Þar voru gest- unum sýnd ýmis þau tæki sem sveitin beitir í starfi sínu. Morgunblaðið/Júlíus Sérsveit ríkislögreglustjóra 25 ára KAUPTILBOÐ vegna lóða sunnan Sléttuvegar í Fossvogi voru opnuð í gær, föstudag, að viðstöddum áhuga- sömum bjóðendum og bárust sam- tals 1.609 tilboð frá 167 bjóðendum. Hæsta tilboð í byggingarrétt á lóð fyrir fjölbýlishús með 28 íbúðum var kr. 369,6 milljónir króna og hæsta tilboð í byggingarrétt tvíbýlishúss var kr. 42,3 milljónir. Hæsta tilboð í byggingarrétt keðjuhúss nam rúm- um 34 milljónum á íbúð. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdasviði Reykjavíkurborg- ar verður byggingarréttur á lóðun- um seldur hæstbjóðanda. Þeir sem eiga hæsta tilboð í fleiri en eina lóð eru aðeins bundnir af einu slíku til- boði og því getur endanleg röð hæst- bjóðenda breyst við úrvinnslu. Á næstu dögum verður síðan haft samband við þá sem eiga hæst tilboð í hverja lóð og fari svo að sami bjóð- andi eigi hæsta tilboð í fleiri en eina lóð skal hann innan þriggja virkra daga skýra frá því hvort hann vill falla frá einhverju af tilboðum sínum, en hann er ekki bundinn nema af einu tilboði. Ef hæstbjóðandi fellur frá slíku tilboði verður strax haft samband við þann sem á næsta til- boð þar fyrir neðan og svo koll af kolli. Skili inn gögnum um fjárhagsstöðu Hæstbjóðendur verða síðan að skila inn gögnum um fjárhagsstöðu sína og fjármögnun framkvæmda, eins og nánar segir frá í útboðsskil- málum. Ef tveir bjóðendur eiga jafnhá til- boð í sömu lóð verður skorið úr með hlutkesti. Samkvæmt upplýsingum frá Ágústi Jónssyni, skrifstofustjóra framkvæmdasviðs, verður lögð til- laga fyrir borgarráð um sölu bygg- ingarréttarins eftir að farið hefur verið yfir þau gögn sem hæstbjóð- endur þurfa að skila. Þess má geta að um þessar mund- ir er einnig tekið á móti umsóknum vegna Reynisvatnsáss í Úlfarsárdal, en frestur til að skila inn umsóknum þar er til loka októbermánaðar sam- kvæmt upplýsingum framkvæmda- sviðs. 1.609 tilboð bárust í lóðir í Fossvogi SKRIFSTOFUSTJÓRI fram- kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar hefur lagt til að borgarráð rifti sölu byggingarréttar og afturkalli úthlut- un tveggja lóða við Lambasel. Enn- fremur að borgarráð beini því til byggingarfulltrúa að huga að beit- ingu þvingunarúrræða gagnvart þremur lóðarhöfum við sömu götu. Í bréfi skrifstofustjóra kemur fram að í maí 2005 hafi borgarráð sam- þykkt að úthluta 30 einbýlishúsalóð- um við Lambasel. Lóðirnar hafi verið byggingarhæfar í október sama ár og samkvæmt úthlutunarskilmálum skyldu hús vera orðin fokheld innan tveggja ára. Framkvæmdir ekki hafnar Framkvæmdir eru ekki hafnar eða mjög skammt á veg komnar á fimm þessara lóða. Sökklar hafa verið tekn- ir út á þremur þeirra en engar úttekt- ir hafa farið fram á tveimur lóðanna. Fram kemur að óheimilt sé að ráð- stafa lóðunum eða byggingarrétti á þeim áður en lóðarleigusamningur hafi verið gerður, en skilyrði lóðar- leigusamnings sé meðal annars að fram hafi farið lokaúttekt eða sérstök stöðuúttekt byggingarfulltrúa. Engu að síður hafi ein umræddra lóða verið auglýst til sölu. „Í 11. gr. úthlutunar- skilmála vegna lóða við Lambasel er m.a. kveðið svo á, að ef framkvæmda- frestir samkvæmt almennum úthlut- unarskilmálum eru ekki virtir geti borgarráð rift sölu byggingarréttar- ins og afturkallað úthlutun lóðanna. Einnig segir í skilmálunum, að ef framkvæmdir stöðvist og lóðarhafi sinni ekki tilmælum eða áskorunum byggingarfulltrúa um að halda þeim áfram geti skipulagsráð beitt þving- unarúrræðum VI. kafla skipulags- og byggingarlaga,“ segir í bréfinu. Málið var rætt á síðasta fundi borgarráðs en svo frestað. Úthlutunarskil- málar ekki virtir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.