Morgunblaðið - 20.10.2007, Side 8

Morgunblaðið - 20.10.2007, Side 8
8 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ASÍ og SA spá auknum hagvexti í ár og 2008 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is BÆÐI Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa lagt fram nýjar spár um þróun efnahagsmála. Hvortveggja samtök- in spá auknum hagvexti. Spáir ASÍ því að hagvöxtur verði 2,3% á næsta og þarnæsta ári. Samtök atvinnulífs- ins telja í nýrri greinargerð um horf- ur í efnahagsmálum að líkur séu á að hagvöxtur á yfirstandandi ári mælist yfir 5% en ekki 1% eins og fjármála- ráðuneytið hefur gert ráð fyrir. „Meginverkefni komandi kjara- samninga er að í stað almennra launahækkana verði svigrúmið notað til þess að koma launahækkunum til þeirra sem hafa af einhverjum ástæðum setið eftir í launaþróuninni undanfarið,“ segir í greinargerð SA. Hagdeild ASÍ kynnti haustskýrslu sína á nýafstöðnum ársfundi sam- bandsins. Í stað hagvaxtar sem byggist á miklum fjárfestingum og einkaneyslu muni taka við viðunandi hagvöxtur sem byggist á útflutningi. Spáir ASÍ þó áfram mikilli verðbólgu á næsta ári eða 4,7%. Búast megi við verðbólguskoti í kjölfar veikingar krónunnar á seinnihluta næsta árs. Verðbólga muni síðan hjaðna hratt og líkur séu á að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist um mitt ár 2009. Í umfjöllun SA kemur fram að mikil hækkun á fasteignaverði und- anfarin ár hafi gert það ómögulegt að ná 2,5% verðbólgumarkmiði Seðla- bankans en stefna bankans hafi vald- ið skaða. „Verðlag ætti að geta verið tiltölulega stöðugt á næsta og þar- næsta ári ef vel er á spilum haldið. Ef kjarasamningar setja ekki strik í reikninginn má reikna með að verð- hækkanir án breytinga fasteigna- verðs verði í kringum 2,5% áfram eins og reyndin hefur verið síðustu fjögur árin,“ segir í greinargerð SA. SA vilja nota svigrúm til að bæta kjör þeirra sem setið hafa eftir Í HNOTSKURN »ASÍ spáir því að atvinnu-leysi á næsta ári verði 1,5%. »SA halda því fram aðvaxtastefna Seðlabankans sé vanmáttugt tæki til að vinna gegn verðbólgu. »ASÍ telur mikla óvissuríkja um gengi krónunnar á næstu misserum. »ASÍ spáir að stýrivextirSeðlabanka lækki seint á árinu 2008. STÓRIR hópar launafólks hafa ekki fengið neina kaupmáttaraukningu á seinustu árum og mátt þola kaup- máttarrýrnun vegna verðbólgu, skv. útreikningum hagdeildar ASÍ á launaþróun. Sundurliðun þessara út- reikninga eftir starfsgreinum leiðir í ljós að mismunandi stórir hópar launþega hafa mátt þola kaupmátt- arskerðingu. Fram kemur að á árunum 2004- 2005 nutu 78% verkafólks kaupmátt- araukningar en 22% urðu fyrir skerðingu kaupmáttar reglulegra launa. Hlutfall þeirra sem urðu fyrir kaupmáttarskerðingu í þessum hópi jókst í 28% á árunum 2006-2007. Í ljós kemur einnig að einungis helm- ingur iðnaðarmanna fékk kaupmátt- araukningu á árunum 2006-2007 og á sama tímabili naut 61% versl- unarfólks kaupmáttaraukningar en 39% urðu fyrir kaupmáttarskerð- ingu. Verulegar breytingar urðu einnig á kaupmáttarþróun meðal skrifstofu- fólks á tímabilinu frá 2004. Frá 2004- 2005 fengu 85% skrifstofufólks kaup- máttaraukningu en 15% máttu þola rýrnun kaupmáttar launa. Sé aftur á móti litið til áranna 2006-2007 kemur í ljós að rétt rúmur helmingur skrif- stofufólks eða 51% naut þess að kaupmáttur hans jókst en 49% urðu fyrir kaupmáttarskerðingu. Í samantekt ASÍ um meðallauna- breytingar 2004-2007 segir m.a.: „Laun verkamanna og afgreiðslu- fólks hækkuðu mest, eða um tæp 34%. Sérstök ákvæði kjarasamninga um hækkun lægstu launa vógu þungt hjá þeim hópum, sérstaklega áhrif 15.000 kr. taxtaviðaukans sem kom inn í kjarasamningana árið 2006.“ Kaupmáttur 50% iðnaðarmanna rýrnaði 2006-7 FJÖLMARGAR ábendingar hafa að undanförnu borist Morgunblaðinu vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar, nærri Vogaafleggj- ara. Hafa lesendur bent á að merkingum sé áfátt og hafi þetta raunar orsakað slys. Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri Vegagerð- arinnar á suðvestursvæði, kannast við að hafa fengið kvartanir vegna merkinga á svæðinu. „Við höfum, í samvinnu við verktakana, verið að vinna að úrbótum undanfarna daga. Það hafa verið breytingar á svæðinu þarna og búið að taka í notkun hluta af nýja kaflanum. Þá var merk- ingum breytt,“ segir Jónas, sem kannast við að óhöpp hafi orðið. „Það verður bætt við ljósum og sett meira af steyptum steinum. Þetta er í ferli hjá okkur, enda nú kominn vetrartími, svarta- myrkur, og því aðrar áherslur.“ Vegagerðin held- ur úti nær stöðugu eftirliti á svæðinu, að sögn Jónasar. Aðrar áherslur á vetrartíma Telja að merkingum sé áfátt við Vogaafleggjara Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Slysahætta Merkingar á beygjum á milli akreinanna þykja misvísandi og ófullnægjandi. Ráðinn til for- varnarstarfa HÉÐINN Unn- steinsson hefur verið ráðinn til að vinna að mótun for- varnastefnu í geðheilbrigð- ismálum, að því er kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá heil- brigðisráðuneyt- inu. Það var Guðlaugur Þór Þórð- arson heilbrigðisráðherra sem tók þá ákvörðun að ráða Héðin til tímabundinna starfa til að vinna að mótun heilbrigðisstefnu með sérstaka áherslu á forvarnir í geðheilbrigðismálum. Héðinn Unnsteinsson er 37 ára gamall og hefur hann lokið meist- aragráðu í alþjóðlegri stefnumót- un og stefnugreiningu með sér- stakri áherslu á geðheilbrigðis- mál frá Háskólanum í Bath á Englandi. Héðinn hefur und- anfarin fjögur ár starfað sem sér- fræðingur í geðheilbrigðismálum hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofn- uninni (WHO). Héðinn Unnsteinsson EIGANDI rottweiler-hunds, sem lögreglan á Suðurnesjum fjarlægði á miðvikudag vegna meintrar illrar meðferðar, hefur kært lögreglu fyrir aðgerðina og segir engan fót fyrir þeim fullyrðingum að hund- urinn hafi verið skilinn eftir mat- arlaus heima. Eigandinn, Bergþór Rúnar Bragason, segist hafa skilið eftir fóður á meðan hann brá sér í burtu en hann er nýfluttur í húsið. Hins vegar munu aðrir hafa haldið að hann væri fluttur í burtu sem sé misskilningur. Bergþór hefur feng- ið hæstaréttarlögmann til að annast kæru sína á lögregluna og jafn- framt hefur hann reynt að finna hundinn aftur án þess að hafa ár- angur sem erfiði. „Lögreglan vill ekki gefa upp hvar hundurinn er,“ segir hann. Hundurinn er þriggja ára gamall og með alvarlega gigtveiki að sögn Bergþórs og af þeim sökum lítur hann illa út og er horaður. Vegna sjúkdómsins er hundurinn lystarlít- ill. Spurður hvort hundurinn hefði fengið viðeigandi meðferð hjá dýralækni vegna sjúkdómsins segir Bergþór að varla sé nokkuð hægt að gera við sjúkdómnum. Hins veg- ar mun hundurinn ekki þjást, að sögn Bergþórs, þrátt fyrir veik- indin. Hundurinn með gigt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.