Morgunblaðið - 20.10.2007, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Stundum er pólitík betri en bestu sápu-óperur. Það hefur sannast í borg-armálunum undanfarnar vikur. Þaðvantaði bara eins og eitt ástarævintýri
inn í söguþráðinn og þá hefði allt sem einkennir
góðar sápuóperur verið til staðar. Leynimakk,
svik, gífuryrði. Eins dauði, annars brauð.
Einhvern veginn hélt ég að ráðhúsfjörið
mynda hafi einhver áhrif í þinghúsinu. Það
svakalegasta sem hefur gerst var að Alfreð Þor-
steinsson kom í hádegismat og heilsaði bæði
Ingibjörgu Sólrúnu og Össuri Skarphéðinssyni.
Samsærisbjöllur hringdu í öllum hornum, en
ekkert gerðist.
Sjálfstæðismenn hafa verið misupplitsdjarfir
frá því að borgardramatíkin byrjaði. Sápuóper-
an var kannski meira eins og hryllingsmynd í
þeirra augum, og einhverjir vilja finna söku-
dólginn.
Sumir benda á Vilhjálm, aðrir á Björn Inga
og enn aðrir á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins. Öllu lágværari eru raddirnar sem vilja kalla
flokksforystuna til ábyrgðar fyrir að hafa ekki
gripið í taumana þegar ljóst var í hvað stefndi.
Geir H. Haarde steig loks fram í vikunni og
gerði það sem góðir leiðtogar eiga að gera á
svona stundum; hvatti flokksmenn til að snúa
bökum saman og horfa fram á veginn.
Engar hrakspár
Ráðhúsdramað hefur styrkt stöðu Samfylk-
ingarinnar í ríkisstjórn enn frekar, þó ekki
nema bara með því að sá nokkrum óttafræjum í
brjóst sumra sjálfstæðismanna. Vinstri stjórn í
borginni gerði möguleikann á vinstri stjórn á
landsvísu nálægari. En hægri menn geta þó
huggað sig við að forsætisráðherra er með þing-
rofsvald, og getur beitt því ef í hart stefnir.
Stjórnarandstöðuflokkunum hefur þó ekki
enn tekist að reka fleyg milli ríkisstjórnarflokk-
anna og utan frá séð virðist samstarfið ganga
ágætlega.
Samfylkingin á mikið undir því að halda trú-
verðugleika sínum og því má ætla að forystan
myndi hugsa sig tvisvar um áður en hún gerðist
þátttakandi í einhverri byltingu. Þess vegna
ætla ég ekki að skipa mér í hóp þeirra sem spá
samstarfsslitum, a.m.k. ekki á næstunni.
Máttlítill minnihluti
Alþingi er í raun allt öðruvísi núna en það var
á vordögum. Nýir þingmenn koma inn með nýj-
ar áherslur en að sama skapi er ásýnd þing-
heims önnur. Síðasta vetur stillti stjórnarand-
staðan saman strengi sína en núna eru
flokkarnir þrír svo ólíkir, og svo langt frá því að
geta myndað raunhæfan valkost við núverandi
stjórnvöld, að það eru litlar líkur á samhæfðum
aðgerðum.
Þrátt fyrir að þingmenn stjórnarandstöð-
unnar séu flestir vinnusamir og reyni að halda
stjórnarflokkunum við efnið þá er minnihlutinn
máttlítill, einkum og sér í lagi vegna fámennis.
Það er umhugsunarefni hvort ekki þurfi að
búa betur að stjórnarandstöðuflokkum á Al-
þingi. Sú hugmynd hefur komið fram að for-
menn allra flokka fái aðstoðarmenn, líkt og ráð-
herrar, og hún er nógu góð til að henni megi
hrinda í framkvæmd sem fyrst. Það má líka
velta því upp hvort það væri hægt að setja lög
um að ef meirihlutinn er mjög öflugur þá megi
fjölga starfsmönnum þingflokka stjórnarand-
stöðunnar.
Rígnegldir við ræðustólinn
Annað sem er umhugsunarefni í lýðræðisríki
er hversu áberandi karlar hafa verið í ræðustól
Alþingis það sem af er þingvetri.
Konur eru nú þriðjungur þingmanna sem er
talsvert undir meðaltali á Norðurlöndunum en
vel yfir meðaltali á heimsvísu, sem er í kringum
17%. Hlutfall kvenna á þingi hefur hins vegar
ekki endurspeglast í þátttöku þeirra á þing-
fundum, og stundum hafa umræður um heilu
málaflokkana farið fram án þess að konur taki
til máls.
Þegar tæpar þrjár vikur voru liðnar af þing-
vetri höfðu karlar haldið 657 ræður en konur
aðeins 153. Ræður karla hafa einnig verið tals-
vert lengri og þeir hafa verið í ræðustóli í 84% af
þingfundartíma en konur aðeins 16%. Þessi
mikli munur verður því sannarlega ekki skýrð-
ur með því að konur séu helmingi færri en karl-
ar á þingi. Þá hlýtur fólk að spyrja sig: Hvað
veldur?
Klisjukenndasta skýringin væri að konur séu
ragari við að taka til máls á þingi. Önnur skýr-
ing gæti verið að karlar sjái sig alltaf knúna til
að tala og það lengi. Ræðurnar séu á köflum
innihaldslitlar og jafnvel stundum fluttar til að
koma þeim sjálfum á framfæri, en ekki sjón-
armiðunum.
Enn ein skýring gæti verið að fólk treysti
frekar körlum en konum til þess að tala. Þeir fái
því meiri hvatningu og þeim sé frekar teflt fram
af þingflokkunum. Þá er líka mögulegt að skýr-
inganna sé að leita í þeim málum sem hafa verið
rædd, þau séu einfaldlega karllægari. Í um-
ræðum um mögulega einkavæðingu Lands-
virkjunar tóku t.d. bara karlar til máls en í um-
ræðum um stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum
var kynjahlutfallið jafnt.
Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að það
sé um blöndu af þessum skýringum að ræða
þegar kemur að hlut karla í ræðustól á Alþingi
en hafna því um leið að hægt sé að kalla konur
einar til ábyrgðar. Hitt er þó víst að lýðræðisins
vegna er mikilvægt að leiðrétta þennan mikla
mun.
Dramatísk sápuópera og fyrirferð karla á þingi
ÞINGBRÉF
Halla Gunnarsdóttir
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
LÖND sem ekki reyna að koma í veg
fyrir ólöglegar fiskveiðar geta lent í
viðskiptahindrunum af hálfu Evrópu-
sambandsins, verði tillaga þess efnis
samþykkt. Samkvæmt henni geta
lönd og skip sem ekki geta tilgreint
uppruna fiskafurða, sem frá þeim
koma, lent á svörtum lista.
850 milljarða velta
Tillagan nær aðeins til veiða á hin-
um gráu alþjóðlegu fiskimiðum og
miðar einnig að því að takmarka veið-
ar með botntrolli, þar sem þær geta
skaðað viðkvæmt lífríkið. ESB telur
að veltan í ólöglegum fiskveiðum um
víða veröld sé um 850 milljarðar
króna. Með því að loka Evrópusam-
bandinu fyrir innflutningi á ólöglega
veiddum fiski, er gert ráð fyrir að það
muni draga verulega úr sjóræningja-
veiðunum. Árlega flytur ESB inn fisk
fyrir 1.200 milljarða króna, sem eru
um 60% heimsviðskipta með fisk.
Joe Borg, framkvæmdastjóri sjáv-
arútvegsmála ESB, segir að ólögleg-
ar veiðar leiði til ofveiði og dragi úr
ábata af fiskveiðum. Með því að loka
ESB muni þegar komið í veg fyrir
innflutning að verðmæti 85 milljarð-
ar króna.
Ætlunin er að loka smugum inn í
aðildarlöndin og auka eftirlit með því
sem kemur inn til ESB frá löndum
utan sambandsins. Skip sem heyra til
aðildarlands ESB verða að fara eftir
ákveðnum reglum um veiðar og upp-
lýsingaskyldu. Hins vegar eru ekki
skýrar reglur um innflutning sjávar-
afurða.
Lendi land á svarta listanum leiðir
það beint til viðskiptabanns og jafn-
framt er hægt að meina skipum frá
því að koma til hafnar innan ESB.
Umskipun á hafi úti
Nú þegar eru til listar yfir lög-
brjóta á svæðisbundnum miðum eins
og vegna karfaveiða á Reykjanes-
hrygg. Þar er að finna skip frá lönd-
um eins og Georgíu, Panama og
Togo.
Talið er að ólöglegur karfaafli á
Hryggnum hafi numið tugþúsundum
tonna síðastliðin ár. Algengt er við
ólöglegar veiðar að afla skipanna sé
skipað um borð í flutningaskip á mið-
unum, sem kemur með aflann að
landi. Verði slíkt athæfi upplýst er
flutningaskipinu meinað að koma til
hafnar í þeim löndum, sem hafa tekið
höndum saman um að stöðva sjóræn-
ingjaveiðarnar.
Fiskveiðar Erlend skip á karfaveiðum á Reykjaneshrygg. Mörg þeirra eru grunuð um ólöglegar veiðar.
ESB þrengir að ólög-
legum fiskveiðum
Í HNOTSKURN
»ESB telur að veltan í ólög-legum fiskveiðum um víða
veröld sé um 850 milljarðar
króna.
»Lendi land á svarta listan-um leiðir það beint til við-
skiptabanns og jafnframt er
hægt meina skipum frá því að
koma til hafnar innan ESB.
»Talið er að ólöglegurkarfaafli á Hryggnum hafi
numið þugþúsundum tonna
síðastliðin ár.
Getur dregið úr sjóræningjaveiðum á Reykjaneshrygg
ÚTGERÐ íslenska fiskiskipsins Kap
VE hefur verið gert að greiða 135
þúsund norskar krónur, jafnvirði
rúmlega 1.500 þúsund íslenskra
króna, í sekt og málskostnað fyrir að
gefa ekki upp allan afla, sem var um
borð í skipinu. Strandgæslan hafi af-
skipti af Kap utan við Lofoten í Nor-
egi fyrr í vikunni.
Norska blaðið Nordlys hefur eftir
talsmanni norsku lögreglunnar að
síldar- og kolmunnaafli hafi verið
meiri en gefið var upp. Þá voru afla-
dagbækur ekki færðar með full-
nægjandi hætti.
Skipstjóra Kap var einnig gert að
greiða 15 þúsund norskar krónur í
sekt. Það eru tæpar 170 þúsund ís-
lenskar krónur. Nordlys segir, að út-
gerð skipsins hafi ekki fallist á þessa
niðurstöðu og muni málið því koma
fyrir rétt í janúar.
Gert að greiða
1,5 milljónir
Skipið Norska strandgæslan færði
Kap VE til hafnar í vikunni.
VARÐSKIPIÐ Óðinn verður á
næstunni flutt að Bótarbryggju þar
sem því hefur verið fundið var-
anlegt heimili, ef svo má að orði
komast. Bótarbryggja er beint fyrir
neðan Kaffivagninn, við hlið Sjó-
minjasafnsins í Reykjavík, en til
stendur að skipið verði safn um
sögu þorskastríðanna.
Óðinn er nú við Faxagarð, á sama
stað og Ægir og Týr liggja þegar
þeir eru ekki að störfum á mið-
unum, og ekki er hægt að færa
hann að Bótarbryggju fyrr en end-
urbótum á henni lýkur, væntanlega
í nóvember, að sögn Gísla Gísla-
sonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna.
Guðmundur Hallvarðsson, fyrr-
verandi alþingismaður og formað-
ur Hollvinasamtaka varðskipsins
Óðins, sagði að góður gangur hefði
verið á vinnu með lögfræðingum
dómsmálaráðuneytis og fjár-
málaráðuneytis sem miðast að því
að samtökin fái skipið afhent. Rætt
hefði verið um að formleg afhend-
ing færi fram 1. desember, á full-
veldisdag Íslands, að því gefnu að
endurbótum á bryggjunni yrði lok-
ið. Guðmundur sagði að sjálf-
boðaliðar hefðu þegar látið til sín
taka við endurbætur á Óðni og einn
hefði t.d. skafið upp allar tekk-
hurðir í skipinu og fægt koparinn.
„Þetta eru líklega um 200 manns í
þessum hollvinasamtökum og það
stendur einmitt til að boða til fund-
ar og skýra frá stöðu mála.“
Morgunblaðið/Sverrir
Tæpra 48 ára Óðinn kom nýr til landsins í janúar 1960.
Óðinn að Bótarbryggju