Morgunblaðið - 20.10.2007, Side 16
16 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
GORDON Brown, forsætisráðherra Bretlands,
telur að með nýju samkomulagi um endurbætur á
Evrópusambandinu geti aðildarríkin breytt for-
gangsröðinni, horfið frá því að einbeita sér að deil-
um um innra skipulag „og tekist á við alla þætti
þeirrar hnattvæðingar sem nú blasir við okkur“.
Sagði Brown að ekki ætti að þurfa að gera breyt-
ingar á stjórnskipun ESB næstu 10 árin.
Samkomulagið var undirritað í Lissabon í
Portúgal skömmu eftir miðnætti á fimmtudags-
kvöld þegar búið var að finna lausn á kröfum Ítala
og Pólverja. Með nýja samkomulaginu er mark-
miðið að laga starf sambandsins að nýjum veru-
leika, gera ákvarðanaferlið straumlínulagaðra.
Þar sem 27 ríki eiga nú aðild að sambandinu var
ljóst að gera yrði breytingar, m.a. á reglum um
ákvarðanir og atkvæðavægi aðildarþjóðanna.
Sum aðildarríkin og þá ekki síst Pólland mót-
mæltu ákaft tillögum sem þau töldu draga úr
áhrifum þeirra innan sambandsins.
Samningnum er ætlað að taka við af Evrópu-
stjórnarskránni sem franskir og hollenskir kjós-
endur höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslum árið
2005. Harðir andstæðingar aukins samruna aðild-
arríkjanna í eina ríkisheild fullyrða að með nýja
samkomulaginu sé í reynd verið að hundsa vilja
kjósenda í umræddum löndum og smygla stjórn-
arskrárhugmyndunum gömlu inn í sambandið.
Megnið af ákvæðum tillagnanna sem voru felldar
sé í nýja samkomulaginu.
Nýja samkomulagið verður formlega undirrit-
aður 13. desember en síðan verða öll aðildarríkin
að staðfesta það formlega áður en það tekur gildi í
janúar 2009 ef ekkert kemur upp á. Í samningum,
sem er um 250 blaðsíður, kemur m.a. fram að kjör-
tímabil forseta ráðherraráðs ESB, valdamestu
stofnunarinnar í sambandinu, verður lengt og
sama á við um embættistíma æðsta fulltrúa fram-
kvæmdastjórnar ESB í utanríkismálum.
Frekari kerfisbreytingar
óþarfar næstu tíu ár
Reuters
Kátir Jose Socrates (t.h.), forsætisráðherra
Portúgals, ræðir við Gordon Brown.
Brown segir að nú geti ESB einbeitt sér að viðfangsefnum hnattvæðingarinnar
DONALD Tusk, leiðtogi helsta stjórnarandstöðuflokks-
ins í Póllandi, Borgaravettvangs [PO], reynir hér að
heilla verðandi kjósendur. Þingkosningar verða í land-
inu á sunnudag og ef marka má kannanir er Tusk sig-
urstranglegur, flokkur hans er með 43% stuðning. Lög
og réttlæti [PiS], flokkur tvíburanna Lechs og Jar-
oslaws Kaczynski, hinna hægrisinnuðu forseta og for-
sætisráðherra Póllands, er með aðeins 34%. Margir líta
á kosningarnar sem eins konar þjóðaratkvæðagreiðslu
um árangur tvíburanna sem nú hafa stýrt landinu í tvö
og hálft ár. Boðað var til kosninga fyrir tímann vegna
klofnings í samsteypustjórninni.
Reuters
„Hvern ætlið þið að kjósa?“
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
CECILIA Sarkozy, eig-
inkona Nicolas Sarkozys, for-
seta Frakklands, segir í
blaðaviðtali, að hún hafi orðið
ástfangin af öðrum manni og
búið með honum um skeið en
síðan hafi þau hjónin þó
reynt hvað þau gátu til að
bjarga hjónabandinu. Það
hefði ekki tekist og þess
vegna hafi þau gert alvöru úr
því að skilja.
Skilnaðarmál þeirra hjóna
er mál málanna í Frakklandi
um þessar mundir. Í viðtal-
inu við Ceciliu, sem birtist í
dagblaðinu L’Est Republ-
icain, segir hún, að hún hafi
orðið ástfangin af öðrum
manni 2005 og búið með hon-
um um tíma í New York en
síðan hafi hún snúið heim,
staðráðin í að gera hvað hún
gæti til að bjarga hjónaband-
inu.
„Við reyndum að byggja
allt upp frá grunni, láta fjöl-
skylduna hafa forgang, en
það gekk ekki,“ segir Cecilia
og bætir við: „Maðurinn
minn var á kafi í stjórn-
málum og hinu opinbera lífi í
þessi 20 ár, sem við bjuggum
saman. Mér líkaði það aldr-
ei.“ Cecilia sagði einnig í við-
tali fyrir forsetakosning-
arnar, að hún sæi ekki sjálfa
sig í hlutverki forsetafrúar.
„Ég vil geta gengið um í kú-
rekastígvélum og gallabux-
um. Hitt á bara ekki við
mig.“
Þau Cecilia og Nicolas
Sarkozy eiga eitt barn sam-
an, Louis, 10 ára, en hvort
þeirra á síðan tvö börn frá
fyrra hjónabandi.
Skoðanakannanir í Frakk-
landi gefa til kynna, að skiln-
aðurinn muni ekki hafa nein-
ar pólitískar afleiðingar í för
með sér fyrir Sarkozy enda
var löngu vitað, að hjóna-
bandið var ekki upp á marga
fiska. Þegar Cecilia stökk að
heiman 2005 var Nicolas
sagður vera í tygjum við aðra
konu. Hafa þau varla sést
saman frá því Nicolas var
kjörinn forseti Frakklands í
maí og Cecilia kom fyrst
fram opinberlega í síðasta
mánuði þegar hún var við-
stödd útför fyrri eiginmanns
síns.
Var tímasetningin
bara tilviljun?
Svo vill til, að skilnaðurinn
kemur upp á sama tíma og
efnt er til verkfalla til að
mótmæla skertum lífeyr-
isréttindum nokkurra starfs-
stétta. Telja sósíalistar, að
hér sé ekki un neina tilviljun
að ræða. Tilgangurinn hafi
verið að leiða huga almenn-
ings frá verkföllunum.
Sé þetta rétt til getið hjá
sósíalistum, hefur Sarkozy
líklega tekist ætlunarverkið
að sumu leyti. Í fjölmiðlunum
hefur skilnaður þeirra hjóna
alveg skyggt á fréttir af
verkfallinu, sem starfsmenn
járnbrautanna efndu til í
fyrradag, og síðan bætist við,
að í skoðanakönnun í Le Fig-
aro var mikill meirihluti kjós-
enda andvígur verkföllunum.
Fyrstur til að
skilja í embætti
Nicolas Sarkozy er fyrsti
franski forsetinn, sem skilur í
embætti, en á ýmsu hefur
gengið í ástalífinu hjá sumum
fyrirrennara hans. Sem dæmi
má nefna, að einn þeirra, Fé-
lix Faure, lést í örmum hjá-
konu sinnar 1899 og Francois
Mitterrand átti dóttur með
hjákonu sinni.
Cecilia, fyrrv. forsetafrú í Frakklandi, segir að hjónaband hennar og Sarkozy hafi verið dauðadæmt
Kunni aldrei við opinbera lífið
Reuters
Allt búið Nicolas Sarkozy og Cecilia í eitt af þeim fáu skipt-
um, sem þau sáust opinberlega saman á síðasta sumri.
Bangkok. AP, AFP. | Lögreglan í Taí-
landi handtók í gær kanadískan
barnaníðing, sem Alþjóðalögregl-
an, Interpol, hafði leitað um hríð.
Christopher Paul Neil, 32 ára
gamall barnakennari, var handtek-
inn í borginni Nakhon Ratchasima,
þriðju stærstu borg landsins, en
vegna mörg hundruð ábendinga frá
fólki víða um lönd tókst að rekja
ferðir hans og komast að því, að
hann var staddur í Taílandi.
Reyndi að dyljast á
bak við brenglaða mynd
Neil setti um 200 myndir af sér á
netið, sem sýndu hann nauðga ung-
um drengjum, en brenglaði andlit
sitt til að gera það óþekkjanlegt.
Tæknimönnum Interpol tókst hins
vegar að vinda ofan af brenglun-
inni og birtu síðan myndina af hon-
um opinberlega. Er það í fyrsta
sinn, sem Interpol leitar með þeim
hætti til almennings í leit sinni að
afbrotamönnum. Vegna þess hve
góðan árangur það ber þykir lík-
legt, að það verði endurtekið.
Neil verður ákærður í Taílandi
en talið er, að hann hafi einnig
framið glæpi sína í Víetnam og
Kambódíu.
Barna-
níðingur
handtekinn
Washington. AP. |
Einn helsti kosn-
ingaráðgjafi
Hillary Clinton
spáði því í gær,
að hún myndi fá
mikið fylgi frá
konum í Repúbl-
ikanaflokknum
yrði hún fram-
bjóðandi demó-
krata í forsetakosningunum að ári.
Mark Penn, ráðgjafi Clinton,
sagði á fundi með fréttamönnum, að
kannanir, sem hann hefði látið gera,
sýndu, að hún gæti gert sér vonir
um stuðning fjórðungs þeirra
kvenna, sem annars eru vanar að
kjósa repúblikana. Væri ástæðan
fyrst og fremst sú, að nú væri
möguleiki á, að kona yrði forseti
Bandaríkjanna.
Joel Benenson, kosningastjóri
Baracks Obama, keppinautar Clint-
on í forkosningabaráttu demókrata,
vísaði þessari spá Penn á bug og
sagði, að kannanir gæfu einnig til
kynna, að margar konur í Demó-
krataflokknum myndu snúa sér
annað, ef Clinton yrði í framboði.
Það væri nefnilega alveg ljóst, að
mjög skipti í tvö horn um afstöðu
fólks til hennar.
Talsmenn Rudys Giuliani, sem er
hvað líklegastur til að verða fram-
bjóðandi repúblikana, gerðu einnig
lítið úr yfirlýsingum Penn um vænt-
anlegt fylgi við Clinton.
Styðja
konurnar
Clinton?
Hillary Clinton
Skiptir mjög í tvö horn
um afstöðu til hennar
ALGENGT er, að réttir á breskum
skyndibitastöðum innihaldi „skelfi-
lega“ mikið af salti. Var það niður-
staða könnunar, sem bresku samtök-
in Cash stóðu fyrir, en þau berjast
gegn óhóflegri saltneyslu.
Cash skoðaði 346 rétti og drykki
hjá Burger King, KFC, McDonald’s
og Pizza Hut og kom McDonald’s
einna best út. Í engum rétti var salt-
ið meira en ráðlegur dagskammtur
fyrir fullorðna, 6 g. Sumir réttir frá
Burger King, KFC og Pizza Hut
voru hins vegar mjög saltir. Einn
Pizza Hut-rétturinn var t.d. með tvö-
faldan dagskammt af salti. Mikil
saltneysla á stóran þátt í ýmsum
hjarta- og æðasjúkdómum.
Sumir réttir
allt of saltir
♦♦♦