Morgunblaðið - 20.10.2007, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 21
SUÐURNES
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Stórheimili Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra múrar hornstein
í vegg þjónustumiðstöðvar fyrir eldri borgara í Vogum.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Vogar | Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra lagði í gær horn-
stein að svonefndu stórheimili Bú-
manna í Vogum. Verkefnið hefur
það markmið að skapa nýjan val-
kost fyrir eldra fólk, þar sem boðið
verður upp á ýmiss konar þjónustu.
Húsnæðissamvinnufélagið Bú-
menn byggir íbúðir fyrir fimmtuga
og eldri og selur og leigir búsetu-
rétt. Búmenn eiga nú á fimmta
hundrað íbúðir í þrettán sveitar-
félögum. Stjórn Búmanna hefur á
undanförnum árum unnið að því að
útvíkka starfsemina og koma upp
þjónustu við eldri félagsmenn. Að
sögn Daníels Hafsteinssonar fram-
kvæmdastjóra hefur verið leitað
leiða til að sinna fólki sem vill búa í
eigin íbúð en hefur þörf fyrir visst
öryggi og nánd við þjónustu. Hefur
hugmyndin fengið vinnuheitið
„heimilisvernd“ í umræðu meðal
Búmanna, og húsin verið nefnd
„stórheimili“.
Stórheimilið í Vogum er það
fyrsta sem byggt er samkvæmt
þessari hugmyndafræði en Daníel
segir að gerðir hafi verið samningar
um að skoða hliðstæð verkefni í
Grindavík, á Álftanesi og Hvolsvelli.
Þjónustumiðstöð fyrir alla
Framkvæmdir á vegum Bú-
manna hófust í Vogum á árinu 2006
og verður stórheimilið tekið í notk-
un undir lok þessa árs. Í húsinu eru
13 litlar íbúðir, 1-2 herbergja, sem
tengjast þjónustumiðstöðinni með
glergöngum. Væntanlegir íbúar
kaupa sér búseturétt og greiða síð-
an allan rekstrarkostnað íbúðanna.
Sveitarfélagið Vogar kaupir sams-
konar afnotarétt af þjónustumið-
stöðinni og greiðir rekstrarkostnað
við hana.
Fram kom við athöfnin í gær að
efnt verður til hugmyndasamkeppni
um nafn á heimilið. Teiknistofa
Guðrúnar Jónsdóttur hannaði bygg-
inguna.
Allir eldri íbúar sveitarfélagsins
munu geta sótt þjónustumiðstöðina.
Birgir Örn Ólafsson, forseti bæj-
arstjórnar, segir að þar verði að-
staða til tómstunda- og félagsstarfs
og hægt að kaupa heitan mat í há-
deginu. Hann segir að stofnað verði
ráð notenda þjónustunnar, svonefnt
öldungaráð, sem muni vinna að
mótun stefnunnar um það hvaða
þjónusta verði þarna í framtíðinni.
Sex íbúðir afhentar
Á lóðinni hafa Búmenn einnig
byggt sex íbúðir í parhúsum og hef-
ur þeim öllum verið úthlutað. Íbú-
arnar taka við lyklavöldunum í dag.
Fyrir áttu Búmenn 10 íbúðir í Vog-
um þannig að þeir verða með 29
íbúðir í sveitarfélaginu undir lok
ársins, þegar framkvæmdum lýkur.
Lagður hornsteinn að
stórheimili fyrir aldraða
Í HNOTSKURN
»Stórheimili er samstarfs-verkefni Búmanna og
Sveitarfélagsins Voga.
»Þar eru 13 litlar íbúðirsem leigðar verða með bú-
seturétti ásamt þjónustu-
miðstöð sem sveitarfélagið
mun reka.
» Í gær afhentu Búmenn sexstærri íbúðir á lóðinni. Fé-
lagið mun eiga alls 29 íbúðir í
Vogum þegar framkvæmdum
lýkur.
Reykjanesbær | Opnaður hefur
verið nytjamarkaðurinn Kompan í
Reykjanesbæ. Suðurnesjadeild
Rauða krossins rekur markaðinn,
samkvæmt samningi við Sorpeyð-
ingarstöð Suðurnesja.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, opnaði nytjamarkaðinn
formlega við athöfn í gær. Forset-
inn leggur Rauða krossinum lið síð-
ustu tvo daga í átaki til að kynna
innanlandsverkefni félagsins. Hann
kynnti sér öfluga starfsemi Suður-
nesjadeildar og ræddi við sjálf-
boðaliða og eftir það var hann með
sjálfboðaliðum Rauða krossins í
Grindavík í versluninni Nettó og
aðstoðaði þá við að afla nýrra liðs-
manna. Hann tekur síðan þátt í
lokadegi kynningarátaksins sem er
í dag en þá verða þrjár deildir RKÍ
á höfuðborgarsvæðinu með opið
hús í sjálfboðamiðstöðvum.
Hugmyndin að stofnun nytja-
markaðar í anda Góða hirðisins í
Reykjavík kom upp í stjórn Sorp-
eyðingarstöðvar Suðurnesja. Aron
Jóhannesson umhverfisfulltrúi
sagði við athöfnina í gær að mikið
af nytjamunum hefði verið fargað á
Suðurnesjum, munum sem ættu
skilið annað tækifæri í lífinu en
bara hjá öðrum eiganda. Rauða-
krossdeildin leggur til húsnæðið á
Smiðjuvöllum 8 í Keflavík og Sorp-
eyðingarstöðin sér um söfnun, mót-
töku og flutning nytjamuna frá
gámasvæðum fyrirtækisins. Hagn-
aður af starfseminni rennur til
mannúðarmála.
Á Smiðjuvöllum er starfrækt
fataflokkunarstöð. Þar úthluta
sjálfboðaliðar Rauða krossins föt-
um til þeirra sem á þurfa að halda
alla föstudaga, frá klukkan 13 til
16.30.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kompan Ólafur Ragnar Grímsson, Rúnar Helgason, formaður Suður-
nesjadeildar, og Sigríður Jóna Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi fagna opnun.
Forsetinn opnar
nytjamarkað
Reykjanesbær | Krabbameinsfélag
Suðurnesja og Sunnan 5, sem er
stuðningshópur krabbameins-
greindra og aðstandenda, verðurmeð
opið hús að Smiðjuvöllum 8 í Keflavík,
húsi Rauða krossins, næstkomandi
þriðjudag kl. 20.
Gestur kvöldsins verður Magnea S.
Ingimundardóttir sem mun ræða um
líf og viðhorf þeirra sem greinast með
krabbamein og það líf sem tekur við
að lokinni meðferð. Einnig mun hún
segja frá eigin upplifun síðastliðin
þrjú ár, frá því meðferð lauk, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Magnea segir einnig frá Avon-
göngunni í New York 2006 og sýna
myndir.
Ræðir um líf þeirra sem
greinast með krabbamein
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Völlurinn | Þjóðkirkjan á í viðræðum
við Þróunarfélag Keflavíkurflugvall-
ar um kaup á Kapellu ljóssins á fyrr-
um varnarliðssvæði á Vallarheiði.
Kirkjan vill með þessu tryggja sér
starfsaðstöðu á þessu nýja íbúðar-
og þjónustusvæði sem og aðstöðu
fyrir hugsanlega alþjóðlega Trúar-
bragðastofnun.
Húsnæði Kapellu ljóssins er um
1.000 fermetrar að stærð og þar eru
rúmgóðir salir og skrifstofuaðstaða.
Keilir, miðstöð vísinda, fræða og at-
vinnulífs fékk húsnæðið leigt og er
nú með alla sína starfsemi þar. Eftir
því sem næst verður komist er gert
ráð fyrir því að Keilir muni leigja
áfram aðstöðu í Kapellu ljóssins,
þótt Þjóðkirkjan kaupi húsnæðið, en
Keilir hefur keypt menntaskólann
sem verður aðal kennsluhúsnæði
hans í framtíðinni.
Kostar 155 milljónir kr.
Þjóðkirkjan leitaði eftir því við
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
að fá kapelluna til afnota, samkvæmt
upplýsingum Biskupsstofu. Nú ligg-
ur fyrir samþykkt kauptilboð í eign-
ina sem biskup mun undirrita með
fyrirvara um samþykki kirkjuþings.
Kapellunni fylgja tvær til þrjár íbúð-
ir í raðhúsi þar skammt frá sem hug-
myndin er að nýta fyrir starfsfólk og
gesti í framtíðinni. Kaupverð eign-
anna er 155 milljónir króna. Tillaga
um staðfestingu á þessum kaupum
verður lögð fyrir kirkjuþing sem
hefst í dag.
Þegar hafa um 700 íbúar, aðallega
háskólanemar, sest að í háskóla-
hverfinu sem nefnt er Vallarheiði og
þar er húsnæði fyrir nokkur þúsund
manns. Ýmis starfsemi er að byggj-
ast upp og er fyrirhuguð, svo sem
menntastofnunin Keilir. Fram kem-
ur í greinargerð með tillögunni að
tilgangur kaupanna á Kapellu ljóss-
ins er að tryggja Þjóðkirkjunni
starfsaðstöðu á þessu nýja íbúðar-
og þjónustusvæði og veita íbúum og
öðrum kirkjulega þjónustu þar.
Friðarrannsóknir í herstöð
Einnig er tilgangurinn að tryggja
aðstöðu fyrir Trúarbragðastofnun,
einhvers konar rannsóknar- og
kennslustofnun, sem biskup Íslands
er með hugmyndir um að koma upp í
tengslum við alþjóðaháskólann sem
áform eru um að koma upp á svæð-
inu. Slíkri stofnun mun vera ætlað að
einbeita sér að samræðu trúar-
bragða, friðarrannsóknum og sam-
kirkjulegu starfi.
Ef þetta gengur eftir gæti orðið til
friðarstofnun í fyrrverandi herstöð.
Margir mismunandi hópar innan
varnarliðsins höfðu aðstöðu í Kap-
ellu ljóssins og hefur Þjóðkirkjan í
huga að halda því á lofti og nota að-
stöðuna meðal annars til að minna á
sátt og skilning milli trúarbragða.
Kirkjan kaupir Kap-
ellu ljóssins á Vellinum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kapella ljóssins Keilir hefur nú starfsaðstöðu í húsi sem áður hýsti Kap-
ellu ljóssins á Keflavíkurflugvelli. Kirkjan er að kaupa húsið.
Hugmyndir um
Trúarbragðastofnun
Í HNOTSKURN
»Varnarliðið lét byggjaKapellu ljóssins árið 1985.
Þar var aðstaða fyrir mörg og
ólík trúarbrögð.
»Kirkjulegir munir vorufjarlægðir þegar varnar-
liðið fór af landinu og kapellan
afhelguð.
Keflavíkurflugvöllur | Árni Sigfús-
son bæjarstjóri og Runólfur Ágústs-
son, framkvæmdastjóri háskólans
Keilis, heimsóttu ungt par á háskóla-
svæðinu, Kristínu Magnúsdóttur og
Gústaf Adolf B. Sigurbjörnsson, og
færðu þeim hálfs árs leikskólavist og
fleiri gjafir í tilefni þess að nýfædd
dóttir þeirri telst þrettánþúsundasti
íbúi Reykjanesbæjar.
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Nýr íbúi fær góðar gjafir