Morgunblaðið - 20.10.2007, Side 24
lifun
24 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Golli
Stofan Lýsingin gefur viðarloftinu líf og gömlu hægindastólarnir og standlamparnir hans Gísla falla vel að nútíma naumhyggju.
A
fi minn, Gísli Halldórs-
son arkitekt, byggði
húsið fyrir fjölskyldu
sína sem flutti hingað
inn 1953. Við keyptum
húsið síðan af honum í janúar á
þessu ári,“ segir Margrét Leifs-
dóttir arkitekt hjá Skipulagssviði
Reykjavíkurborgar og vísar blaða-
manni og ljósmyndara upp veglegan
viðarstiga, sem líkt og svo margt
annað á þessu skemmtilega heimili
á Tómasarhaganum er hluti
upprunalegu innréttingarinnar.
„Við vorum ekkert á leið að kaupa
húsið, enda sá ég aldrei fyrir mér að
við gætum flutt hingað með þrjú
frekar lítil börn þar sem aðeins tvö
svefnherbergi eru á efri hæðinni,“
útskýrir Margrét. Húsið hlaut við-
urkenningu frá Fegrunarfélagi
Reykjavíkur sem fallegasta hús
borgarinnar árið sem það var byggt.
Efri hæðin geymir eldhús, borðstofu
og stofu sem renna saman í alrými,
baðherbergi og svo áðurnefnd
svefnherbergi og á þeirri neðri eru
síðan tvö herbergi, arinstofa og kló-
sett.
„Mér fannst þau Svava [5 ára] og
Leifur [9 ára] vera of lítil til að vera
svona langt frá okkur. Því var upp-
runalega hugmyndin að hafa þau öll
saman í öðru herberginu á efri hæð-
inni til að byrja með og hafa leik-
herbergi á þeirri neðri. Svava hafði
hins vegar aðrar hugmyndir. Hún
sagði einfaldlega: „Ég ætla að sofa í
mínu herbergi“ og þannig hefur það
verið frá fyrsta degi.“
„Vildi nánast engu breyta“
Virðing fyrir sögu og hefðum set-
ur sterkan svip á heimilið, þó að
húsið hafi vissulega verið tekið í
gegn er fjölskyldan flutti inn. Til að
mynda voru gerðar gagngerar
breytingar á bæði eldhúsi og baði.
Samtvinnun gamla og nýja tímans
hefur tekist einkar vel enda ljóst að
vandað var til verka er húsið var
innréttað í upphafi. Þannig hefur
oregon pine-viðarklæðning í háu
lofti fengið að halda sér, gamall við-
arskápur, sem smíðaður var sér-
staklega inn í húsið, hefur nú fengið
nýja staðsetningu og gegnheilt
parket, sem ætlað var í skipaplanka,
er eins og nýtt eftir að hafa verið
pússað upp. Standlampar og hæg-
indastólar úr búi Gísla sjálfs veita
heimilinu þá hlýlegan blæ og falla
vel að naumhyggju samtímans.
Það var heldur ekki anað út í
neitt við endurbæturnar og segir
Margrét að hún hafi verið af-
skaplega íhaldssöm.
„Ég vildi nánast engu breyta. Ég
vissi að við yrðum að taka eldhúsið
og baðið í gegn, en var annars mjög
föst í því að breyta sem minnstu
enda ber ég mikla virðingu fyrir afa
og þessu húsi. Þorsteinn Stefáns-
son, maðurinn minn, sakaði mig um
að ég sýndi ekki nógu mikla sköpun-
argleði á eigin heimili.“ Hún hlær og
segir það óneitanlega fyndið að hafa
orðið að sitja undir slíkri gagnrýni.
„Við unnum þetta síðan mikið sam-
an og lentum þessu vel. Hann tók
hlutina nefnilega aðeins lengra en
ég hefði leyft mér að hugsa þá.“
Parket úr Slippnum
Eins og áður sagði var parketið
ætlað í skipsgólf. „Afi fór á sínum
tíma niður í Slipp þar sem að hann
fékk blauta skipaplanka sem áttu að
fara að setja í þilfar á skipi og fór
með þá niður í Völund þar sem hann
fékk þá sagaða í parket,“ segir Mar-
grét. Ekkert hafði verið gert við
parketið síðan, en nú lítur það út
eins og nýtt eftir að hafa verið slíp-
að upp. Sams konar parket var síð-
an sett á eldhúsgólfið í framkvæmd-
unum nú þar sem að opnað var inn í
stofu og borðstofu. „Ómar í Parket
og gólf bjargaði mér algjörlega
þar,“ segir Margrét og vísar til þess
hve vel hafi tekist að finna sömu við-
artegund.
Voldugir gluggabekkir hafa þá
Fjölskyldan Margrét Leifsdóttir og Þorsteinn Stefánsson með börn sín þau Leif, Þórdísi og Svövu.
Vinnuaðstaða Skápar úr eldhúsinnréttingu liggja meðfram öllum veggn-
um og skapa gott vinnrými fyrir fjölskylduna.
Hús með sál og sögu
Nýjungar og naum-
hyggja setja svip sinn á
æði mörg heimili um
þessar mundir. Þau eru
þó einnig mörg húsin
sem eiga sér sögu og
ekki eru allir tilbúnir að
henda henni á haugana.
Anna Sigríður Einars-
dóttir heimsótti fjöl-
skyldu sem ber virð-
ingu fyrir fortíðinni.
Ég vildi nánast engu
breyta. Ég vissi að við yrð-
um að taka eldhúsið og
baðið í gegn en var annars
mjög föst í því að breyta
sem minnstu enda ber ég
mikla virðingu fyrir afa og
þessu húsi.
Ljósmynd/Jón Svavarsson