Morgunblaðið - 20.10.2007, Page 25
tekið við af blómakössum sem stóðu
við stofugluggana. „Amma var mikil
blómakona og því var gert ráð fyrir
sérstökum blómakössum undir
gluggunum. Við vildum hins vegar
frekar hafa þar bekk sem hægt væri
að sitja eða liggja á.“
Lýsingin í stofunni hefur sömu-
leiðis tekið stakkaskiptum. Raufar
milli veggjar og lofts, sem Gísli
hafði upphaflega hugsað undir loft-
ræstingu, geyma nú ljós sem gera
viðarloftið lifandi.
Endurbætur þeirra Margrétar og
Þorsteins miðast í flestu við að upp-
runalega hönnunin njóti sín sem
best þó að nútímalegar endurbætur
veiti húsinu vissulega líka skemmti-
legt yfirbragð. Þannig er eldhús-
innréttingin til að mynda hvít, utan
rauðra efri skápa sem taka lit sinn
frá gömlu innréttingunni. Liturinn
er svo endurtekinn í borðstofu-
stólunum, dimmrauðum sjöum frá
Arne Jacobsen, sem óneitanlega
krydda upp á ljóst umhverfið.
Fjörugrjót af erfðafestujörð
Gísli byggði húsið handa konu
sinni og syni og gerði auk þess ráð
fyrir íbúð fyrir móður sína á neðri
hæðinni. Hún lést þó áður en bygg-
ingu hússins var lokið og bjó systir
Gísla þess í stað í íbúðinni um langt
skeið. „Þetta hús er byggt á tímum
fjárhagsráðs og þá var bygging-
arefni skammtað. Afi vildi til dæmis
hafa það einum metra breiðara, en
fékk ekki leyfi fyrir því. Það þótti
ekki við hæfi fyrir þriggja manna
fjölskyldu, þó að hæðirnar mættu
vel vera tvær.“ Það var því til að ná
sem bestu útsýni yfir æskuslóðir
sínar í Skerjafirðinum sem að Gísli
ákvað að lyfta aðalhæð hússins á
súlum.
Fjörugrjót með sögu prýðir síðan
einn útveggjanna sem og arin í for-
stofunni á neðri hæðinni. Grjótið er
úr fjörunni við Austurkot, erfða-
festujörð sem faðir Gísla átti í
Skerjafirðinum, og þar sem hann
bjó sjálfur um fimmtán ára skeið.
Húsið er nú í friðunarferli og ljóst
að engu verður breytt að utan.
Einnig hefur verið rætt um það
hvort þörf sé á að friða líka loftin og
stigann, en Margrét segir þó líklega
litla þörf á að hefja slíkt ferli á með-
an að þau búi í húsinu – ekki standi
til að breyta neinu í þeim efnum.
„Við erum að vinna í því að endur-
nýja gestabaðherbergið og eins er
verið að hækka svalahandrið en all-
ar aðrar endurbætur verða bara
hluti af eðlilegu viðhaldi,“ segir
Margrét
Og Gísli er að hennar sögn
ánægður með að húsið sé enn í fjöl-
skyldunni og ekki virðast honum
falla endurbæturnar síður vel í geð.
annaei@mbl.is
Kryddað Rauði litur stólanna og efri skápa í eldhúsinnréttingunni kallast á
við litinn sem prýddi gömlu eldhúsinnréttinguna.
Opið og bjart Upprunalega parketið er eins og nýtt eftir að hafa verið
pússað upp. Það var ætlað í skipsgólf, en Gísli hafði aðrar hugmyndir.
Arininn Hlýleg stofa með rætur í fjölskyldusögunni, en grjótið í arninum
kemur úr fjörunni við Austurkot í Skerjafirðinum þar sem að Gísli ólst upp.
Milli hæða Voldugur stigi gefur
húsinu skemmtilegan blæ.
Morgunblaðið/Kristinn
Í tíð Gísla Þykk tjöld stúkuðu af stofuna er Gísli Halldórsson bjó þar.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 25