Morgunblaðið - 20.10.2007, Page 26
tíska
26 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
EF VINUM ÞÍNUM FINNST EKKI GOTT
AÐ KOMA Í HEIMSÓKN TIL ÞÍN
EKKI KENNA OKKUR UM
X
E
IN
N
IX
07
10
00
2
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
Í heimi tískunnar er nánastallt breytingum undirorpið,tískan þrífst á því. Hún villvera ófyrirsjáanleg skepna,
vinaleg samt en koma engu að
síður alltaf á óvart, bæði vor og
haust. Mörgum finnst erfitt að um-
gangast þessa skepnu, sem þeim finnst
bara dyntótt í meira lagi og eiga erfitt
með að fylgja þessum öru breytingum sem hún vill
viðhafa í sínu lífi. Sumir eru einfaldlega jarðbundn-
ari, ekki jafnmikið fyrir breytingar og tískan, ekki
eins mikil fiðrildi. Það er líka gott og blessað – en
tískuskepnan gefur þessum sömu samt líka svigrúm.
Það er nefnilega sumt alveg sígilt, hvað sem öllum
árstíðabundnum tískustraumum líður – og svona
næstum því á milli áratuga.
Sem dæmi mætti nefna nokkra liti sem tísku-
skepnan hefur aldrei gefið upp á bátinn, sama
hversu litaglöð hún annars hefur verið. Þeir eru sí-
gildir en hins vegar alltaf svalir. Man
einhver eftir ári þar sem svart sást ekki,
eða hvítt og rautt? Af þessum þremur litum
telst aðeins einn til grunnlitanna en það er
rauði liturinn, svartur og hvítur teljast litlausir.
Kostur þeirra litlausu er sennilega hlutleysi
þeirra, þá er gott að nota með öðrum litum en
einnig eru þeir áhrifaríkir einir og sér. Rauði lit-
urinn er sá áhrifaríkasti, sá sem klæðist rauðu
dregur ósjálfrátt að sér athygli, hvort sem það er
peysa, pils, yfirhöfn eða fylgihlutur eins og veski.
Við sérstök tilefni slær engin tískusveifla rauða lit-
inn út.
Sú sem ekki nennir að eltast við tískuskepnuna
vor og haust ætti því að fá sér í fataskápinn nokkr-
ar sígildar grunnflíkur í þessum litum, í sniðum
sem henta hennar líkamsvexti. Þá er hún örugg
um að vera alltaf í takt við tískuna og svo að sjálf-
sögðu þegar eitthvað í sumar- og vetrartískunni
freistar þá er sjálfsagt að kanna hvort það fari
við eitthvað af grunnflíkunum og kaupa það ef svo
er. Þannig byggir kona upp fataskápinn í samræmi
við sinn eigin stíl og vöxt – án þess að láta tísku-
skepnuna stjórna sér um of.
Sígildir en alltaf svalir
Áberandi
Rauði liturinn
er áberandi og
skemmtilegur
íveru.
Mynstur
Samsetn-
ingar og
mynstur eru
endalausar á
svarta og
hvíta litnum.
Fagurrauðir Glæsileg
stígvél á fæti, 7.990
kr. GS Skór.
Áberandi Falleg,
glansandi handtaska,
4.990 kr. Debenhams.
Rauð Falleg peysa
með fellingum,
8.990 kr. Company.