Morgunblaðið - 20.10.2007, Side 38
38 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
AKUREYRARKIRKJA: | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Söfnuðurinn tekur við
nýrri útgáfu Biblíunnar. Barnakórar Ak-
ureyrarkirkju syngja undir stjórn Eyþórs
Inga Jónssonar, prestur er sr. Svavar Al-
freð Jónsson. Regnbogamessa kl. 20.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir flytur hug-
vekju og Páll Óskar Hjálmtýsson syngur.
Fulltrúar frá nýstofnuðum hópi Samtak-
anna 78 á Norðurlandi flytja ávörp og at-
riði. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur.
Prestur sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: | Tónlistarguðsþjón-
usta kl. 11. Kátir karlar, kór eldri borgara
syngur undir stjórn Árna Ísleifssonar og
kirkjukór Árbæjarkirkju undir stjórn Kriszt-
ina Kalló Szklenár organista. Sverri
Sveinsson leikur á kornett. Sr. Þór
Hauksson þjónar fyrir altari. Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimilinu á sama tíma.
Kaffimeðlæti á eftir.
ÁSTJARNARSÓKN: | Messað kl. 11.
Biblían í nýrri þýðingu verður tekin í notk-
un við hátíðlega athöfn. Tónlist annast
Helga Þórdís Guðmundsdóttir en séra
Bára Friðriksdóttir predikar. Sunnudaga-
skóli á sama tíma. Molasopi og ávextir í
messukaffinu.
BESSASTAÐASÓKN: | Sunnudagaskóli í
sal Álftanesskóla kl. 11. Leiðtogarnir
Matthildur, Sunna Dóra, Snædís og Bolli
Már leiða sunnudagaskólann. Brúðurnar
Hans og Gréta koma í heimsókn. Biblíu-
fræðsla og tónlist. Hressing eftir stund-
ina.
BORGARNESKIRKJA: | Taize-guðsþjón-
usta kl. 14. Séra Flóki Kristinsson leiðir
helgihaldið og predikar, organisti er
Steinunn Árnadóttir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: | Útvarpsmessa kl.
11. Ný þýðing Biblíunnar borin í kirkju.
Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir og sr.
Sigurður Pálsson predikar. Sunnudaga-
skóli á sama tíma. Kaffisopi eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA: | Barnamessa kl. 11,
flutt verður leikritið Eldfærin eftir H.C.
Andersen í flutningi Stoppleikhópsins.
Guðsþjónusta kl. 14. Þar verður afhent
ný þýðing Biblíunnar. Kór Bústaðakirkju
syngur undir stjórn Renötu Ivan. Mola-
sopi eftir messu. Pálmi Matthíasson
messar.
DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11,
prestur sr. Yrsa Þórðardóttir, organisti
Bjarni Þ. Jónatansson, kór Digraneskirkju
B-hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á
sama tíma. Veitingar að messu lokinni.
(www.digraneskirkja.is)
DÓMKIRKJAN: | Messa kl. 11, sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir prédikar, sr Hjálmar
Jónsson þjónar fyrir altari, Dómkórinn
syngur, organisti Marteinn Friðriksson.
Ástbjörn Haraldsson, Túngötu 16, verður
fermdur. Barnastarfið fer fram í Safn-
aðarheimilinu. Æðruleysismessa kl. 20,
sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar, sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Karl V.
Matthíasson þjóna. Bræðrabandið og
Anna S. Helgadóttir sjá um tónlistina.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Guðsþjónusta
kl. 11. Athöfnin verður helguð móttöku á
nýju Biblíuþýðingunni. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson, djákni Ragnhild-
ur Ásgeirsdóttir, organisti Guðný Ein-
arsdóttir. Börn og fullorðnir lesa
ritningarlestra. Sigríður Tryggvadóttir sér
um sunnudagaskólann. Boðið upp á
kaffi.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Kvöldguðsþjónusta í Hall-
grímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Kórar kirknanna sameina söngkrafta
undir stjórn Arnar Arnarsonar tónlistar-
stjóra. Skarphéðinn Hjartarson leikur á
orgel og Guðmundur Pálsson á bassa.
Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir þjónar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Biblíulestur
kl. 13. Almenn guðsþjónusta og barna-
starf kl. 14, Hjörtur Magni þjónar í guðs-
þjónustunni, tvö börn verða borin til
skírnar. Carl Möller og Anna Sigga leiða
tónlistina. Ása Björk og Móeiður fara
með börnunum í barnastarfið þar sem
helgisagan er lesin, sungið og brúður
heimsækja.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl.
11, kennsla, söngur, leikir o.fl. fyrir alla
krakka. Almenn samkoma kl. 14 þar
sem Helga R. Ármannsdóttir prédikar. Á
samkomunni verður lofgjörð, barnastarf
og brauðsbrotning. Að lokinni samkomu
verður kaffi og samvera.
GLERÁRKIRKJA: | Barnastarf og messa
21. okt. kl. 11, sr. Gunnlaugur Garð-
arsson þjónar. Félagar úr kór Glerárkirkju
leiða söng, organisti Hjörtur Steinbergs-
son.
GRAFARHOLTSSÓKN | Sunnudagaskóli í
Ingunnarskóla kl. 11, Þorgeir, María og
Anna. Messa í Þórðarsveig 3 kl. 14, Þor-
valdur Halldórsson annast tónlistina,
prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir.
Fyrsta altarisganga fermingarbarna í
bekkjum 8. AH. Kirkjukaffi.
GRAFARVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta
kl. 11. Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur
prédikar, sr. Vigfús Þór Árnason þjónar
fyrir altari. Kirkjukórinn syngur, organisti
Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Opnuð verður
myndlistarsýning á verkum Magnúsar
heitins Kjartanssonar. Ný Biblía afhent
skólastjórum í Grafarvogi. Kaffiveitingar.
GRENSÁSKIRKJA: | Morgunverður kl.
10, bænastund kl. 10.15, fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Messuhópur þjón-
ar, Baldvin Oddsson leikur á trompet. Ný
útgáfa Biblíunnar formlega tekin í notk-
un. Samskot til Hins íslenska Biblíu-
félags. Organisti Árni Arinbjarnarson,
prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi
eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: |
Guðsþjónusta kl. 14, sr. Ágúst Sigurðs-
son messar, organisti Kjartan Ólafsson.
Félag fyrrum þjónandi presta.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: | Guðsþjón-
usta í Hásölum Strandbergs kl. 11. Bibl-
íu í nýrri þýðingu verður komið fyrir á alt-
ari í upphafi guðsþjónustunnar. Prestur
sr. Gunnþór Þ. Ingason. Kantor Guð-
mundur Sigurðsson, Kammerkórinn A
Cappella syngur. Sunnudagaskólar í
Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama
tíma.
HALLGRÍMSKIRKJA: | Fræðslumorgunn
kl. 10. Dr. Guðrún Kvaran fjallar um út-
gáfu nýju Biblíunnar. Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Jón D. Hróbjartsson pré-
dikar og þjónar ásamt sr. Guðna Má
Harðarsyni og messuþjónum. Hópur úr
Mótettukór syngur, organisti Hörður Ás-
kelsson. Tónleikar Jóns Þorsteinssonar
tenórs eru kl. 17.
HÁTEIGSKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta
og messa kl. 11. Umsjón með barna-
guðsþjónustu hafa Erla Guðrún og Páll
Ágúst. Organisti Douglas A. Brotchie.
Prestur Tómas Sveinsson.
HJALLAKIRKJA: | Messa kl. 11, sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar. Stúlka fermd. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða
safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sig-
urðsson. Sunnudagaskóli kl. 13. Bæna-
og kyrrðarstund þriðjudag kl. 18 og opið
hús á fimmtudögum kl. 12. (sjá
www.hjallakirkja.is).
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Krakkarnir
taka þátt með tónlist, dans og leikriti.
Gestur er Anne Marie Reinholdtsen.
HJÁLPRÆÐISHERINN í Reykjavík: |
Samkoma sunnudag kl. 20. Umsjón hef-
ur Ester Daníelsdóttir og Wouter van Go-
oswilligen. Heimilasamband fyrir konur
mánudag kl. 15. Opið hús daglega kl.
16-18, nema mánudaga. Nytjamarkaður í
Eyjarslóð 7 og fatabúð í Garðastræti 6,
opið alla virka daga kl. 13-18.
Hjúkrunarheimilið Ás | Guðsþjónusta kl.
15.
HVERAGERÐISKIRKJA: | Guðsþjónusta
og sunnudagskóli kl. 11. Söfnuðinum af-
hent nýja Biblíuþýðingin.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FÍLADELFÍA: |
Brauðsbrotning kl. 11, ræðum. Jón Þór
Eyjólfsson. Bibly studies at 12.30. Al-
menn samkoma kl. 16.30, ræðum. Dögg
Harðardóttir, Gospelkór Fíladelfíu leiðir
lofgjörð. Barnakirkja fyrir 1-13 ára. Bein
úts. á Lindinni og www.gospel.is Sam-
koma á Omega frá Fíladelfíu kl. 20. fila-
delfia@gospel.is
ÍSLENSKA KIRKJAN Í SVÍÞJÓÐ: | Gauta-
borg. Guðsþjónusta í V-Frölundakirkju
21. október kl. 14. Íslenski kórinn í
Gautaborg syngur undir stjórn Kristins
Jóhannessonar. Orgelleik annast Tuula
Jóhannesson. Nýrri Biblíuútgáfu veitt við-
taka. Altarisganga, barnastund og kirkju-
kaffi. Sr. Ágúst Einarsson.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Barnastarf
kl. 11, með fræðslu, leikjum og söngv-
um. Kennsla fyrir fullorðna á sama tíma.
Kent Langworth kennir um lækningar
Guðs í dag. Samkoma kl. 20 með lof-
gjörð og fyrirbænum. Mark Erikson leið-
togi Youth With A Mission í Finnlandi pre-
dikar. Samkoma á Eyjólfsstöðum á
Héraði kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA: | Nýja Biblían kem-
ur í Keflavíkurkirkju 21. október kl. 11.
Gídeonmenn koma í heimsókn og Leifur
Ísaksson félagi í samtökunum predikar.
Báðir prestarnir þjóna við guðsþjón-
ustuna. Barnastarfið verður á sínum
stað undir stjórn Erlu Guðmundsdóttur
æskulýðsfulltrúa.
KFUM og KFUK: | Lofgjörðarvaka verður
á Holtavegi 28, 21. október kl. 20. Hug-
leiðingu hefur Ragnar Schram. Lofgjörð
og fyrirbæn.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Söfnuðinum afhent nýja Biblíuþýð-
ingin.
KÓPAVOGSKIRKJA: | Barnastarf kl.
12.30, umsjón Sigríður, Þorkell Helgi og
Örn Ýmir. Guðsþjónusta kl. 14, prestur
sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, félagar úr
kór kirkjunnar syngja og leiða safn-
aðarsöng, organisti og kórstjóri Lenka
Mátéova. Kyrrðar- og bænastund þriðju-
dag kl. 12.
KRÝSUVÍKURKIRKJA | Haustmessa 21.
okt. kl. 14, á 150 ára afmælisári. Sæta-
ferð frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 13. Prest-
ur sr. Gunnþór Þ. Ingason. Kantor Guð-
mundur Sigurðsson. Forsöngvari Þóra
Björnsdóttir. Biblía í nýrri þýðingu borin
inn og færð á altari í upphafi messu. Alt-
aristaflan, „Upprisa“, tekin ofan í lok
messu. Messsukaffi í Sveinshúsi eftir
messu. Málverkasýning: „Siglingin mín“.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landa-
koti kl. 14, sr. Bragi Skúlason, organisti
Ingunn Hildur Hauksdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Nýrri biblíuþýðingu fagnað.
Dr. Gunnlaugur A Jónsson prófessor pre-
dikar, sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.
Organisti Jón Stefánsson og kór Lang-
holtskirkju syngur. Barnastarfið hefst í
kirkjunni en síðan fara börnin í safn-
aðarheimilið með Rut og Steinunni.
Kaffisopi.
LAUGARNESKIRKJA: | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11, nýrri Biblíuþýðingu veitt
viðtaka. Kór Laugarneskirkju syngur und-
ir stjórn Gunnars Gunnarssonar org-
anista. Sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt
Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara og
hópi sjálfboðaliða. Messukaffi að messu
lokinni.
LÁGAFELLSKIRKJA: | Kvöldguðsþjónusta
„Taize“ í Lágafellskirkju kl. 20. Nýja Bibl-
íuútgáfan afhent söfnuðinum. Óhefð-
bundið form, söngur og tónlist. Hjörleifur
Valsson fiðluleikari, kirkjukórinn og org-
anisti sjá um tónlistarflutning. Ungt fólk
aðstoðar við helgihaldið. Sunnudagaskóli
kl. 13.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Guðsþjónusta
og sunnudagakóli í Salaskóla kl. 11. Þor-
valdur Halldórsson leiðir safnaðarsöng.
Sýnd verður stutt kynningarmynd um
verkefnið Jól í skókassa. Sr. Helgi Hró-
bjartsson kristinboði predikar. Guð-
mundur Karl Brynjarsson sóknarprestur
þjónar.
MÖÐRUVALLAKIRKJA | Guðsþjónusta
verður fyrir allt prestakallið í Möðruvalla-
kirkju 21. október kl. 14. Beðið verður
fyrir fermingarbörnunum með nafni og
þau fá afhenta hina nýju Biblíu. Messu-
kaffi í Leikhúsinu á eftir.
NESKIRKJA: | Messa og barnastarf kl.
11. Nýja Biblíuútgáfan tekin í notkun
með viðhöfn. Félagar úr kór Neskirkju
leiða safnaðarsöng, organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jóns-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin
byrja uppi í kirkju en fara síðan í safn-
aðarheimilið. Kaffi og spjall á Torginu.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): |
Sunnudagskóli 21. október kl. 11. Um-
sjón hafa Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir,
Dagmar Kunákova og Jenný Þórkatla
Magnúsdóttir.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: | Messa
21. október kl. 11. Stúlknakórinn Hekla
syngur og verðandi fermingarbörn að-
stoða. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: | Samvera aldr-
aðra kl. 14. Séra Pétur sér um talið en
tónlistin verður í höndum organistans
Kára Allanssonar og býður söfnuðurinn
upp á kaffi og tertu á eftir.
REYNISKIRKJA í Mýrdal | Guðsþjónusta
21. október kl. 14. Organisti er Kristín
Björnsdóttir. Almennur safnaðarsöngur.
Kirkjuskólinn í Mýrdal í Víkurskóla næsta
laugardag kl. 11.15.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: | Messa
verður 21. okt. kl. 14.
SALT kristið samfélag | Háaleitisbraut
58-60, 3. hæð. Samkoma kl. 17, „Varð-
veitum orð Guðs“. Ræðumaður er Har-
aldur Jóhannsson. Lofgjörð og fyrirbæn.
Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11. Fagn-
að nýrri biblíuþýðingu. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra. El-
ísabet Herbertsdóttir og Vilhjálmur E.
Eggertsson lesa ritningarlestra. Barna-
samkoma kl. 11.15. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimili eftir athöfnina.
SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl.
11, söngur, saga, ný mynd í möppu. Al-
menn guðsþjónusta kl. 14, sr. Bolli Pétur
Bollason prédikar. Kirkjukórinn leiðir
sönginn, organisti Jón Bjarnason. Ný
þýðing Biblíunnar afhent og tekin form-
lega í notkun. Kvöldmessa með Þorvaldi
kl. 20.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Guðsþjón-
usta kl. 11. Tekið verður á móti nýju út-
gáfu Biblíunnar og hökli sem Herder And-
ersson gefur Seltjarnarneskirkju. Eftir
guðsþjónustuna er boðið upp á kaffiveit-
ingar í safnaðarheimili kirkjunnar. Kamm-
erkór kirkjunnar syngur. Organisti er Frið-
rik Vignir.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa 21.
október kl. 11. Félagar úr Skálholts-
kórnum leiða sönginn.
STOKKSEYRARKIRKJA: | Guðsþjónusta
kl. 11.
TORFASTAÐAKIRKJA Biskupstungum|
Kvöldguðsþjónusta 21. október kl.
20.30. Félagar úr Skálholtskórnum leiða
sönginn. Stutt kyrrðar- og helgistund.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Smiðjuvegi
5. Samkoma kl. 11. Kennsla fyrir alla
aldurshópa. Baldvin Þór Baldvinsson
kennir, lofgjörð og fyrirbæn. Létt máltíð
að samkomu lokinni. Samkoma kl. 19,
Erna Eyjólfsdóttir prédikar, lofgjörð, fyr-
irbænir og samfélag í kaffisal á eftir.
VÍDALÍNSKIRKJA: | Messa kl. 11. Ný
Biblíuútgáfa afhent í söfnuðinum. Kirkju-
kórinn kynnir nýja og gamla sálma frá
ýmsum löndum undir stjórn Jóhanns
Baldvinssonar organista. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
æskulýðsleiðtoga. Hressing í safn-
aðarheimili.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: |
Hausthátíð kirkjunnar verður 21. okt.
Sunnudagaskólinn kl. 11, stund fyrir
börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 13,
Kór Víðistaðasóknar, Stúlknakór Víði-
staðakirkju, Sigurður Skagfjörð. Veit-
ingar, kynning á safnaðarstarfi og tón-
leikar í safnaðarsal á eftir.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Sunnudags-
kólinn 21. október kl. 11. Kór kirkunnar
leiðir söng undir stjórn Gunnhildar Höllu
Baldursdóttur organista. Meðhjálpari Ást-
ríður Helga Sigurðardóttir. Umsjón hafa
Hanna Vilhjálmsdóttir og María Rut Bald-
ursdóttir.
ÞORLÁKSKIRKJA: | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11, 21. okt. Nýr organisti
Hannes Baldursson boðinn velkominn.
Orð dagsins:
Brúðkaupsklæðin.
Morgunblaðið/Jim Smart
Árbæjarkirkja
(Matt. 22.)
FRÉTTIR
ATVINNA fyrir alla – Málþing um
atvinnumál í Ísafjarðarbæ verður
haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í
dag, laugardaginn 20. október, kl.
9.30-15.
Í fréttatilkynningu segir að mál-
þingi um atvinnumál sé ætlað að
varpa ljósi á ýmsa vaxtarbrodda í at-
vinnulífi Ísafjarðarbæjar, stöðugt
fjölbreyttari möguleika til menntun-
ar, umfangsmiklar samgöngubætur
sem framundan eru á svæðinu og þá
möguleika sem eru fyrir hendi til að
efla Ísafjarðarbæ sem miðstöð þekk-
ingar og þjónustu á Vestfjörðum. Ísa-
fjarðarbær stendur að málþinginu.
Fundarstjórar verða Birna Lárus-
dóttir, forseti bæjarstjórnar, og
Rannveig Þorvaldsdóttir, kennari við
Grunnskólann á Ísafirði og varabæj-
arfulltrúi.
Málþingið er öllum opið og eru íbú-
ar Ísafjarðarbæjar og allra norðan-
verðra Vestfjarða hvattir til að fjöl-
menna, hlusta á áhugaverð erindi og
taka þátt í umræðum. Boðið verður
upp á súpu og brauð í hádeginu.
Málþing um atvinnumál
í Ísafjarðarbæ HALDIÐ verður upp á 20 ára af-
mæli Styrks, samtaka krabba-
meinssjúklinga og aðstandenda
þeirra, í sal Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins í Skóg-
arhlíð 8, 1. hæð, í dag, laugar-
daginn 20. október, kl. 17-19.
Boðið verður upp á léttar veit-
ingar.
Styrkur er eitt af aðildarfé-
lögum Krabbameinsfélags Ís-
lands.
Tilgangur samtakanna er að
veita krabbameinssjúklingum og
aðstandendum þeirra stuðning
og efla samhjálp þeirra.
Að opna umræður um
krabbamein og minnka fordóma
gagnvart þessum sjúkdómum.
Að vinna að sameigin-
legum baráttumálum, t.d. með
því að bæta aðstöðu til endur-
hæfingar, bæði andlegrar og lík-
amlegrar.
20 ára afmæli Styrks