Morgunblaðið - 20.10.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 43
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skvettuball verður í fé-
lagsheimilinu Gullsmára 13, kl. 20-23. Miðaverð 500 kr.
Veitingar verða seldar. Þorvaldur Halldórsson leikur fyrir
dansi.
Opið hús í félagsheimilinu Gullsmára kl. 14.
Dagskrá: Upplestur o.fl., kaffiveitingar og harmonikku-
eikur.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú
ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Virka daga kl. 9-16.30 eru m.a.
opnar vinnustofur, spilasalur o.fl. Á föstudaginn kl. 10.30
er fjölbreytt leikfimi (frítt) í íþróttahúsi ÍR við Skógarsel,
kaffi. Miðvikudaginn 31. október er leikhúsferð í Þjóðleik-
húsið að degi til, upplýsingar á staðnum og í síma 575-
7720.
Hæðargarður 31 | Laugardagsganga kl. 10. Ferð í Ljós-
myndasafn Rvk á mánudag. Müllersæfingar þriðjudags-
morgna. World Class þrisvar í viku. Vínarhljómleikar 5. jan.
2008, miðar eru enn til. Kór Breiðagerðisskóla nk.
fimmtudag. Listasmiðjan alltaf opin. Ókeypis tölvu-
fræðsla. Sími 568-3132.
Kirkjustarf
Grundarfjarðarkirkja | Hátíðarmessa kl. 11 í tilefni af út-
gáfu nýrrar Biblíuþýðingar. Kirkjukaffi í umsjá fermingar-
barna að messu lokinni.
Hafnarkirkja, Höfn í Hornafirði | Sunnudagaskóli næsta
sunnudag kl. 11.
80ára afmæli. Áttræðurer í dag, 20. október
Hjálmar Hjálmarsson Bjargi,
Bakkafirði. Hjálmar stundaði
útgerð og sjómennsku í 60 ár.
Var einn af stofnendum salt-
fiskverkunar Útvers á Bakka-
firði, matsmaður í saltfiski og
skreið. Sat um árabil í sóknar-
nefnd, hreppsnefnd og var
fulltrúi á þingi Fiskifélagsins
um árabil.
dagbók
Í dag er laugardagur 20. október, 293. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)
Samtökin Heilaheill standa í dagfyrir Slagdeginum. ÞórirSteingrímsson er formaðurHeilaheilla og segir frá: „Slag-
daginn höldum við til að vekja athygli á
áhættuþáttum slags, og minna um leið á
að mönnum eru ekki allar bjargir bann-
aðar þó þeir hafi fengið slag,“ segir Þór-
ir.
Slag (e. stroke) er samheiti yfir heila-
áverka sem hljótast af súrefnisþurrð
vegna blæðingar eða blóðtappa: „Afleið-
ingarnar geta verið margþættar, og eru
í raun engir tveir áverkar af völdum
slags eins. Hins vegar er slag alltaf al-
varlegt, og mikilvægt að fólk hugi að
forvörnum og leiti sér strax læknis-
aðstoðar ef það verður vart við ein-
kenni,“ segir Þórir, og nefnir að meðal
einkenna slags séu höfuðverkur, svimi,
ógleði, jafnvægisleysi og dofi.
Á Slagdeginum munu fulltrúar Heila-
heilla vera með bækistöðvar í Kringl-
unni, Smáralind og Glerártorgi á Akur-
eyri þar sem hægt verður að fá nánari
upplýsingar: „Við verðum með lækna
og hjúkrunarfræðinga á staðnum sem
bjóða almenningi upp á áhættumat, þar
sem þættir á borð við blóðþrýsting, syk-
urmagn í blóði og blóðfitu eru mæld til
að leggja mat á líkurnar á slagi. Þættir
á borð við streitu, reykingar, óhóflega
neyslu áfengis, og hvað þá notkun fíkni-
efna, eru meðal lífsstílsþátta sem geta
stórlega aukið líkurnar á slagi.“
Á hverju ári fá um 700 manns slag á
Íslandi, eða nærri tveir á dag: „Með
heilbrigðu líferni, reglulegri hreyfingu
og skynsömu mataræði er hægt að
draga stórlega úr líkunum á því að fá
heilablóðfall, og bæta um leið til muna
möguleika sína á að ná góðum bata ef
maður fengi slag,“ bætir Þórir við.
Heilaheill hafa starfað frá árinu 1994
og eru samtök sjúklinga, aðstandenda
og fagaðila. „Við beitum okkur m.a. fyr-
ir bættum meðferðarúrræðum og
vinnum að stofnun sjóðs sem styður
fjölskyldur, og þó sérstaklega börn sem
hafa þurft að láta af sérnámi vegna
þeirra áhrifa sem slag getur haft á
heimilislífið,“ segir Þórir.
Á síðunni www.heilaheill.is má finna
nánari upplýsingar.
Heilsa | Heilaheill í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi í dag kl. 13 til 16
Áfall er ekki endirinn
Þórir Stein-
grímsson fæddist í
Reykjavík 1946 og
ólst upp í Hrúta-
firði. Hann lauk
leiklistarnámi frá
LR og Þjóðleikhús-
inu, og útskrifaðist
frá Lögregluskól-
anum 1984. Hann
var leikari við Þjóðleikhúsið og LA, en
hefur haft lögreglustörf að aðalstarfi
frá 1980 og er nú rannsóknarlög-
reglumaður. Hann hefur verið for-
maður Heilaheilla frá 1995 og er jafn-
framt formaður Félags íslenskra
rannsóknarlögreglumanna. Þórir er í
sambúð með Margréti Guðlaugu Sig-
urðardóttur aðst.frkvstj. og eiga þau
einn son.
Tónlist
Hitt húsið | Off-Venue, Airwa-
ves í Hinu húsinu kl. 20-23.
Fram koma hljómsveitirnar:
Narfur, Levenova, Doddi, Ten
Steps Away o.fl.
Ketilhúsið, Listagili | Svava
Bernharðsdóttir víóluleikari og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari halda tónleika kl.
16. Þær flytja verk eftir: Þorkel
Sigurbjörnsson, Mist Þorkels-
dóttur, Áskel Másson, Kjartan
Ólafsson, Hilmar Þórðarson og
Jón Þórarinsson. Aðgangseyrir
er 2.000 kr., fyrir félaga 1.500
kr. og fyrir eldri borgara 1.250
kr.
Vesturbæjarskóli | Söng- og
tónlistarkona Hannan El-
Shemouty frá Kaíró heldur tón-
leika í Vélasalnum í Vest-
mannaeyjum í dag kl. 14. Dag-
skráin byggist á þjóðlögum úr
ýmsum áttum. Tónlistarmenn-
irnir Hilmar Örn Agnarsson á
orgel og Steingrímur Guð-
mundsson á slagverk, leika
með, kynnir er Kári Bjarnason.
Myndlist
Gallerí list | Skipholti 50a.
Kristín Tryggvadóttir opnar
málverkasýninguna Mótun, í
dag kl. 13-17. Kristín hefur að-
allega fengist við olíu- og akríl-
málun. Hún er félagi í SÍM. Sýn-
ingin er áttunda einkasýning
Kristínar, hún stendur til 30.
október.
Listasafn Kópavogs, Gerð-
arsafn | Sýning á kínverskum
fornminjum og fágætum list-
munum. Um helgina er boðið
upp á leiðsögn um sýninguna.
Sýningin kemur frá borgar-
listasafninu í Wuhan í Hubei-
héraði. Alls eru sýndir 107 grip-
ir, margir hverjir ævafornir.
Mokka-kaffi | Pétur Geir Ósk-
arsson sýnir svarthvítar ljós-
myndir teknar í Úkraínu 2007.
Myndirnar eru teknar í Krasnyi
Luch, kolanámubæ í Luhansk-
héraði og nágrannabyggðum.
Pétur vill veita innsýn í raun-
veruleika og menningu sem
kann að koma Íslendingum fyrir
sjónir sem ókunn, framandi og
jafnvel fátækleg.
Kvikmyndir
Laugarásbíó | Rope yoga-stöðin
osk.is býður frítt í Laugarásbíó,
23. okt. kl. 17.30, á kvikmyndina
Peaceful Warrior með leikar-
anum Nick Nolte, eftir sögu
Dans Millman sem hefur verið
þýdd á 33 tungumál. Miðar fást
á www.osk.is. Eftir sýningu
verður kynning á nýju nám-
skeiði, „Ert þú leikstjórinn í þínu
lífi?“
Fyrirlestrar og fundir
Hugarfar |Félag fólks með
heilaskaða, aðstandenda þess
og aðrir áhugasamir verða með
fræðslu- og félagsfund í sal
Örykjabandalagsins í Hátúni
10a, 9. hæð. þriðjudaginn 23.
okt. kl. 20. Fyrirlesari kemur frá
Hjálpartækjabankanum.
101 gallery | Aðalfundur Holl-
vinasamtaka RÚV verður í
fundasal Reykjavíkurakademíu,
Hringbraut 121, 31. október kl.
20. Fundarefni: Venjuleg aðal-
fundarstörf, kosning formanns.
Aðalumræðuefni: Framtíð sam-
takanna. G. Pétur Matthíasson,
fyrrverandi sjónvarpsfrétta-
maður, talar um stöðu RÚV.
Askja – Náttúrufræðihús HÍ,
stofa 132 | Leó Kristjánsson
vísindamaður við HÍ flytur er-
indi í fyrirlestraröðinni Undur
veraldar (http:undur.hi.is) á veg-
um raunvísindadeildar. Silfur-
berg fannst fyrst á 17. öld á Ís-
landi. Það hefur gegnt
fjölbreyttu hlutverki í vísinda-
uppgötvunum. Erindið hefst kl.
14.
Draumakaffi | Varmársamtökin
standa fyrir opnum umræðu-
fundi um starf samtakanna á
Draumakaffi í Mosfellsbæ 21.
október kl. 20. Farið verður yfir
helstu mál og sagt frá því sem
er á döfinni hjá samtökunum.
Opin umræða og fyrirspurnir.
Sjá nánar á www.varmarsam-
tokin.blog.is
Fréttir og tilkynningar
Kolaportið | Vörur frá þrotabúi
verslunarinnar Hjörtur Nielsen
verða til sölu í Kolaportinu um
helgina. Kristall og postulín til
sölu með 50-85% afslætti.
Sveinssafn, Krýsuvík | Eftir
haustmessu í Krýsuvíkurkirkju
21. október kl. 14 verður messu-
kaffi í Sveinssafni þar sem sýn-
ingin Siglingin mín verður skoð-
uð. Verkin eru eftir Svein
Björnsson og er fjórða sýning
Sveinssafns í Krýsuvík. Aðgang-
ur ókeypis.
Leiklist
Borgarleikhúsið | Belgíska
Kongó: Rósar og Rósalind, föð-
uramma hans sem dvelur á elli-
heimili í höfuðborginni, hafa
ekki talast við í sjö ár vegna
ósættis í tengslum við íbúð sem
Rósalind leigði barnabarnabarni
sínu, dóttur Rósars.
Dagur vonar: Lára býr með 3
stálpuðum börnum sínum eftir
fráfall mannsins síns, Öldu sem
er geðveik, Reyni hinum jarð-
bundna og Herði sem gælir við
listamannsdrauma. Inn á heim-
ilið kemur elskhugi Láru, Gunn-
ar, atvinnulaus alkóhólisti, sem
setur fjölskylduna í uppnám.
Skemmtanir
Styrkur |Haldið verður upp á
20 ára afmæli Styrks, samtaka
krabbameinssjúklinga og að-
standenda þeirra, í sal Ráðgjaf-
arþjónustu Krabbameinsfélags-
ins í Skógarhlíð 8, 1. hæð, í dag
kl. 17-19. Boðið verður upp á
léttar veitingar.
Breiðfirðingabúð | Faxafeni 14,
2. hæð. Átthagafélag Stranda-
manna heldur haustball í kvöld
kl. 22-2. Hljómsveitin Klassík
leikur fyrir dansi.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ |
Afmælishátíð: Hrafnista í
Reykjavík 50 ára og Hrafnista í
Hafnarfirði 30 ára. Afmælis-
hátíð Hrafnistuheimilanna verð-
ur haldin 21. október kl. 14, í
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Fólk úr röðum heimilismanna
sjá um fjölbreytt atriði. Sýndir
verða munir frá vinnustofum.
Allir velkomnir.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félags-
vist verður í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, sunnudaginn 21.
október kl. 14. Annar dagur í
þriggja daga keppni.
Morgunblaðið
birtir til kynn-
ingar um af-
mæli, brúðkaup,
ættarmót og
fleira lesendum
sínum að kostn-
aðarlausu. Til-
kynningar þurfa
að berast með
tveggja daga
fyrirvara virka
daga.
Samþykki
afmælisbarns
þarf að fylgja
afmælistilkynn-
ingum og/ eða
nafn ábyrgðar-
manns og síma-
númer.
FRÉTTIR
VERKEFNI sem kallast ,,Jól í
skókassa“ er verkefni sem unnið
er af 10 ungmennum úr KFUM
og KFUK og felst í því að fá
börn jafnt sem fullorðna til að
setja nokkrar gjafir í skókassa.
Kassanum er síðan útdeilt til
þurfandi barna í Úkraínu. Mark-
mið verkefnisins er að mæta
þörfum fólks og sýna kærleika
Guðs í verki.
Í fréttatilkynningu segir m.a.
að á svæðunum þar sem skó-
kössunum er dreift er allt að
80% atvinnuleysi og fara kass-
arnir meðal annars á mun-
aðarleysingjaheimili, barnaspít-
ala og til barna einstæðra
foreldra.
Í fyrra voru 5.000 gjafir
sendar til Úkraínu
Þetta er í fjórða sinn sem
verkefnið er unnið. Það hófst
fyrir jólin 2004 og þá söfnuðust
500 skókassar en verkefnið óx
og urðu kassarnir 2.660 árið eft-
ir. Fyrir síðustu jól tvöfaldaðist
talan enn og um 5.000 gjafir
voru sendar úr landi. Margir
lögðu verkefninu lið og er það nú
orðinn fastur liður í starfi sumra
skóla og leikskóla auk deilda
KFUM og KFUK.
Tekið verður á móti skóköss-
um í aðalstöðvum KFUM og
KFUK, Holtavegi 28, alla virka
daga kl. 8-17. Síðasti skiladagur
í Reykjavík er laugardaginn 3.
nóvember kl. 11-16.
Þann dag fer fram kynning á
verkefninu, léttar veitingar
verða í boði og eru allir hjartan-
lega velkomnir.
„Það sem þarf að gera er að
finna tóman skókassa og pakka
honum inn í jólapappír. Athugið
að mikilvægt er að pakka lokinu
sérstaklega inn svo hægt sé að
opna pakkann. Ákveðið fyrir
hvaða aldurshóp gjöfin á að
vera, strák eða stelpu 2-4 ára,
5-9 ára, 10-14 ára, 15-18 ára og
merkið með viðeigandi merki-
miða á lokið. Setjið svo gjafir
eins og ritföng, föt, leikföng,
hreinlætisvörur og sælgæti í
skókassann. Best er að setja
einn hlut úr hverjum þessara
flokka í kassann. Setjið að lokum
300-500 kr. í umslag efst í kass-
ann fyrir kostnaði,“ segir í
fréttatilkynningu.
Kynningarmyndband um
verkefnið er að finna á heima-
síðu verkefnisins www.skokass-
ar.net.
Gleðileg jól Það ríkti mikil gleði hjá börnunum í Úkraínu þegar
þau fengu jólapakkana í hendur. Fleiri pakkar fara utan fyrir jólin.
Jól í skókassa til
þurfandi barna
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600