Morgunblaðið - 20.10.2007, Page 46
NÁMSKEIÐ
• Innritun stendur yfir á kvöldnámskeið
• Kennt utan venjulegs vinnutíma
• Einkatímar eða litlir hópar
• 7 vikna námskeið hefst 30. október
söngtækni • túlkun • tónfræði
Upplýsingar á skrifstofu
skólans í síma 552 7366
songskolinn@songskolinn.is
www.songskolinn.is
„Við verðum Queen Ís-
lands … og Óttar er
Freddy,“ … 51
»
reykjavíkreykjavík
Í HAFNARFIRÐI, fjarri skarkala höf-
uðborgarinnar, vinnur tónlistarmað-
urinn Eiríkur Fjalar hörðum höndum
að því að hljóðrita nýtt lag. Lagið samdi
hann sjálfur að þrábeiðni kunningja
síns, Þórhalls Sigurðssonar, „Ladda“,
og er stefnt að því að lagið komi út á
stórri jólaplötu sem til stendur að gefa
út á næstunni.
Í viðtali við Vefvarp mbl.is í gær
sagði Eiríkur að þrátt fyrir að hann
væri aftur kominn á fullt í tónlistina
hefði hann ekki mátt vera að því að taka
þátt í tónlistarhátíðinni Iceland Airwa-
ves sem fram fer í Reykjavík um þessar
mundir. Boðið hefði verið freistandi en
jólalagið gengi einfaldlega fyrir og það
tæki upp allan hans tíma. Já, það er
ekki einfalt mál að vera Eiríkur Fjalar.
En er það fjör?
Eiríkur Fjalar á jólaplötu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þúsundfjala smiður Eiríkur Fjalar í hljóðveri einu í Hafnarfirði í gær
þar sem hann tekur upp nýtt jólalag.
Eiríkur Fjalar í hljóðveri
VEFVARP mbl.is
Sena sá ástæðu
til að senda öllum
fjölmiðlum leið-
réttingu á frétt-
um DV og Frétta-
blaðsins þar sem
því var haldið
fram að Astrópía væri mest sótta
kvikmynd landsins. Hið rétta er að
Astrópía er tekjuhæsta kvikmynd
landsins en misræmið liggur í því
að hærra verð er rukkað inn á ís-
lenskar myndir en erlendar og því
getur íslensk mynd verið tekjuhæst
án þess að vera endilega mest sótt
af bíógestum. The Simpsons Movie
er enn mest sótta kvikmynd ársins
en hana hafa tæplega 56 þúsund
manns sótt. Astrópía er hins vegar
fimmta mest sótta mynd ársins með
aðsókn upp á 44 þúsund manns.
Tekjur og aðsókn fara
ekki alltaf saman
Tónlistar- og afþreying-
artímaritið Monitor á lof skilið fyrir
áhugavert viðtal við Mugison sem
birtist nú í síðasta blaði. Mugison er
með áhugaverðari tónlist-
armönnum landsins og sérstaklega
er gaman að lesa um viðhorf hans
til íslenskrar tónlistar sem honum
finnst fremur innihaldslítil um
þessar mundir. Umhugsunarefni á
Airwaves-helgi.
Eitraðar pillur
Popp-listamaðurinn Curver er
eins og allir vita með skransölu í
Listasafni Íslands og selur þar fjöl-
breytilegustu hluti. Nú eru sýning-
arlok á morgun og því allt á 100
krónur. Gjöf en ekki gjald!
Allt á að seljast
… á 100 kall
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
ÞAÐ hlýtur að heyra til tíðinda þegar nýtt ís-
lenskt óperuverk er frumflutt hér á landi en það
verður gert í næstu viku þegar Nemendaópera
Söngskólans í Reykjavík frumflytur óperuna
Skuggablóm í Salnum í Kópavogi. Höfundur
verksins er Helgi Rafn Ingvarsson sem er ef til
vill best þekktur fyrir að hafa tekið þátt í Idol-
keppninni um árið en hann stundar nú nám í tón-
smíðum við Listaháskóla Íslands. Við handrits-
gerð naut Helgi aðstoðar félaga síns Árna Krist-
jánssonar leiklistarnema.
Næsta skrefið
„Ég ætlaði upphaflega að verða leikari. Það
var svona grunnskóladraumurinn. En síðan
ákvað ég að fara að einbeita mér að tónlistinni,“
segir Helgi sem hefur stundað tónlistarnám í
einhverri mynd frá sjö ára aldri. Fyrst spilaði
hann með lúðrasveit, hóf síðan klassískt nám við
Söngskólann í Reykjavík og fór svo í Listahá-
skólann þar sem hann nemur nú tónsmíðar.
„Mér fannst því mjög lógískt að næsta skref
yrði óperan þar sem hún sambland af leiklist og
tónlist.“
Það var síðan í byrjun sumarsins sem leið sem
Kópavogsbær veitti Helga styrk til að skrifa óp-
eru. „Þetta var í rauninni sumarvinna mín,“ seg-
ir hann. Tuttugu og sjö nemendur við Söngskól-
ann í Reykjavík, fjórir hljóðfæraleikarar úr
Tónlistarlistarskóla Hafnarfjarðar ásamt Helga
Rafni sjálfum sjá um flutning á verkinu en æf-
ingar á því hófust í byrjun september. Stjórnandi
er Garðar Cortez eldri.
Fallegt og sorglegt
Það verður að teljast nokkuð óvenjulegt að
svo ungur maður skuli setjast niður og semja óp-
eru. Helgi kynntist óperunni og sögu hennar í
tónlistarnámi sínu og hann heillaðist og vildi
ólmur læra meira.
„Ég kann grunninn, það má segja það, en það
má alltaf læra meira,“ segir Helgi. Hann segist
hafa sótt ýmislegt í hefðina við gerð á sinni óp-
eru en aðallega í tengslum við form og uppröðun
þátta. „Og auðvitað verður maður fyrir ein-
hverjum áhrifum frá gömlu tónskáldunum en ég
hlustaði mikið á óperur eftir Verdi og eitthvað
eftir Mozart. Eitthvað fékk ég þaðan.“
Skuggablóm segir frá Tinnu sem á við geðræn
vandamál að stríða. Skuggablómin eru hennar
hugarsmíð og eru þær raddir sem hún heyrir og
þær sýnir sem hún sér en eru ekki raunveruleg.
Skuggablómin eru í raun að draga hana niður í
myrkrið. Hrafn er ástfangin af Tinnu og reynir
að draga hana upp úr myrkrinu. Sagan tvinnast
svo saman við aðra harmræna sögu af Þorvaldi,
besta vini Hrafns og hálfbróður Tinnu sem leitar
hefnda fyrir misbeitingu sem hann varð fyrir í
æsku.
Helgi segir að þrátt fyrir mikla dramatík og
myrkt umfjöllunarefni sé hið tónlega yfirbragð
óperunnar allt mjög fallegt og melódískt.
„Það er í raun hið sanna eðli allra í óperunni,
það eru bara sjúkdómar og raunveruleikinn sem
íþyngir þeim, en þau eru í eðli sínu mjög hreinir
og tærir persónuleikar. Ef að Tim Burton myndi
semja óperu þá væri hún líklega einhvern veginn
svona.“
Ópera í anda Tim Burton
Morgunblaðið/Golli
Helgi Rafn Höfundur óperunnar Skuggablóm sem nemendaópera Söngskólans í Reykjavík flytur.