Morgunblaðið - 20.10.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 49
ALLA vikuna hefur verið unnið
hörðum höndum að uppsetningu
sýningar í Listasafninu á Akureyri
og í dag kemur afraksturinn í ljós.
Sjónlistaverðlaunasýningin hefur
vikið og nú tekur við grasrót-
arsýning. Verk 5 ungra lista-
manna, sem allir eiga það sameig-
inlegt að hafa numið við Glasgow
School of Art, verða á sýningunni
sem ber titlana Taktföst tortíming
og Rhythm decay.
Tvítyngd sýning
„Sýningin hefur tvo titla þar
sem við sem sýnum erum ýmist
frá Íslandi eða enskumælandi
löndum,“ segir Baldvin Ringsted,
annar íslensku listamannanna sem
taka þátt í sýningunni, en auk
hans sýna Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir, Erica Eyres frá Kanada,
Lorna MacIntyre frá Skotlandi og
Englendingurinn Will Duke.
Að sögn Baldvins vísa titlarnir
tveir til texta sem sýningarstjór-
inn Francis McKee hefur skrifað í
tilefni sýningarinnar og ber á
frummálinu heitið The strange
vitality of wreckage, sem þýða
mætti sem Lífsmáttur eyðilegging-
arinnar. Francis er kennari við
skólann þar sem listamennirnir
ungu hafa verið við nám og hann
er einnig sýningarstjóri alþjóð-
legrar nýlistahátíðar í sömu borg.
„Hugmyndin að sýningunni
kviknaði á meðan við vorum í
námi í Glasgow,“ segir Jóna Hlíf.
„Við vildum kynna sjálf okkur og
unga listamenn á okkar aldri fyrir
Akureyringum og sóttumst eftir
því að fá að sýna í Listasafninu,
sem gekk eftir.“
Safnstjórinn Hannes Sigurðsson
segir það reyndar hafa verið auð-
sótt mál. „Sýningin fellur vel að
fjölbreyttri stefnu safnsins,“ segir
Hannes. „Í gegnum tíðina hafa
grasrótarsýningar verið algengar
og nú var einfaldlega kominn tími
á að varpa ljósinu á hana á ný.“
Sem dæmi um fjölbreytni í sýn-
ingarstefnu safnsins nefnir Hann-
es að í upphafi næsta árs verður
heilmikil sýning um Búdda undir
yfirskriftinni Búdda á Akureyri –
hvar annars staðar ætti hann að
vera? en á undan hafa til að
mynda farið sýningar á verkum
Spencers Tunick, Kenjunum eftir
Goya, Helga Þorgils, Jóns Óskars
og Louisu Matthíasdóttur, auk
sýningar á verkum þeirra sem til-
nefndir voru til Sjónlistaverð-
launanna í ár.
Nýir tímar í
íslenskri myndlist?
Á sýningunni sem opnuð verður
í dag eru verk unnin með ýmis
konar miðlum. Þar verða málverk,
innsetningar, hljóðverk og víd-
eóverk. „Við erum ólíkir listamenn
og það kemur bersýnilega í ljós á
sýningunni,“ segir Baldvin. „En
þótt við séum öll einstaklingar og
höfum hvert okkar ólíka hluti
fram að færa sést kannski líka að
við eigum eitthvað sameiginlegt.
Eitthvað sem er bundið okkar
kynslóð óháð landamærum og því
hvaðan við erum,“ bætir Jóna Hlíf
við.
Hannes tekur í sama streng:
„umbyltingar hafa reglulega verið
gerðar í íslenskri myndlist og ég
held að á þessari sýningu séu frá-
vik frá til dæmis minni kynslóð og
nýja málverkinu. Ef til vill er sýn-
ingin ábending um enn ein kyn-
slóðamót.“
Sýningin verður opnuð kl. 15.
Unglist í skjóli
eyðileggingar
Svona stór Úr myndbandsverki kanadísku listakonunnaar Ericu Eyres
sem sýnir í Listasafninu á Akureyri um helgina.
Unglistamenn Ísland - Skotland. Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Baldvin Rings-
ted og Lorna MacIntyre.
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
SÖNGKONAN Amy
Winehouse var hand-
tekin í Noregi í fyrra-
dag og þurfti hún að
gista á bak við lás og slá
eina nótt fyrir að hafa
haft kannabis í fórum
sínum. Winehouse var
sleppt í gærmorgun eft-
ir að hún greiddi 500
evrur í sekt (rúmar
40.000 kr.) að sögn yf-
irvalda.
Winehouse var ásamt
eiginmanni sínum,
Blake Fielder-Civil, auk
þriðja aðila handtekin á
hóteli í Björgvin eftir að
sjö grömm af kannabis fundust á
þeim. Að sögn lögreglu barst ábend-
ing um fíkniefnaneyslu
þrímenninganna.
Winehouse hélt tón-
leika í borginni í gær-
kvöld og í dag leikur
hún í Ósló. Í framhald-
inu fer hún til Hollands
þar sem Evrópu-
tónleikaferð hennar
heldur áfram. Hins
vegar er ekki gert ráð
fyrir að hún muni túra
um Bandaríkin fyrr en
á næsta ári þar sem
skipulagðri tónleikferð
hennar um landið var
frestað á síðustu
stundu í síðasta mánuði
þar sem hún var lögð inn til með-
ferðar við fíkn sinni.
Winehouse á bak við lás og slá
Amy Winehouse
www.jpv.is
Sýningar eru opnar virka daga kl. 11 - 17
og um helgar kl. 13 - 16 • sími 575 7700
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Handverkshefð í hönnun
Leiðsögn á hverjum sunnudegi
kl. 14 Boðið er upp á leiðsögn
fyrir hópa, s. 575 7700
Úr ríki náttúrunnar
Guðmunda S. Gunnarsdóttir
sýnir málverk og myndverk úr
rekaviði og steinum
Vissir þú af...
góðri aðstöðu fyrir veislur,
námskeið, fundi o.fl.
Nánar á www.gerduberg.is