Morgunblaðið - 22.10.2007, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GÓÐA KVÖLDIÐ, ÉG HEITI
ARMANDÓ OG VERÐ ÞJÓNNINN
YKKAR Í KVÖLDI
ÆJÆJÆJÆ!!
ÞESSI SKYRTA!
ARMANDO,
ERU SÉRRÉTTIR
Í KVÖLD?
VONT!
VONT!
JÓN,
HNEPPTU
JAKK-
ANUM
ÉG GERÐI
MYNDASÖGU...
LESTU HANA OG
HLÆÐU!
MÉR
FINNST
HÚN EKKI
FYNDIN...
ÉG SAGÐI
ÞÉR AÐ
HLÆJA!
HE HE HE HE HE HE ÞETTA ER VANDAMÁLIÐ
VIÐ MYNDASÖGUR Í DAG...
MAÐUR HLÆR EKKI AÐ ÞEIM
HÆ,
KALVIN
ÞÚ
ÆTTIR AÐ
LABBA
FYRIR
FRAMAN
VALTARA!
MIKIÐ GETUR ÞÚ VERIÐ
LEIÐINLEGUR! HVER ÞARF Á
ÞÉR AÐ HALDA?!? ÞÚ GETUR
BARA STAÐIÐ ÞARNA EINN Í
DAG OG VERIÐ Í FÝLU!
ÞAÐ ER MIKLU
BETRA AÐ
DREIFA VONDA
SKAPINU
MIKIÐ ERT
ÞÚ SKEMMTI-
LEGUR Í DAG!
HVAÐ ER
EIGINLEGA AÐ?
ÞETTA SVERÐ VAR Í EIGU
FRANSKS RIDDARA SEM VAR
KALLAÐUR „HEPPNI PIERRE“
AF
HVERJU ER
SVERÐIÐ TIL
SÖLU?
EINN DAGINN VAR HANN
EKKI SVO HEPPINN
VAR ÞAÐ
EITTHVAÐ
SEM ÉG
SAGÐI?
LALLI,
INTERNETIÐ
ER DOTTIÐ
ÚT!
GETUR
ÞETTA EKKI
BEÐIÐ? ÉG
ER AÐ
HORFA Á
ÞÁTT
ÉG ER Í MIÐJU SAMTALI
VIÐ GULLU Á SKYPE! ÉG
VERÐ AÐ KOMAST
AFTUR Á NETIÐ!
PRÓFAÐU
BARA AÐ
ENDURRÆSA
MÓDEMIÐ
ÉG ER ENGINN
TÖLVUSNILLINGUR
SJÁLFUR
ÞÚ ERT BETRI Í
ÞESSU EN ÉG. EF ÞÚ
VILT AÐ ÉG REYNI ÞÁ
GERI ÉG ÞAÐ
PASSAÐU ÞIG BARA AÐ
KLÚÐRA EKKI NEINU!
ERTU VISS
UM AÐ ÞÚ
VILJIR EKKI
GERA ÞETTA?
ÉG HELD AÐ ÉG HAFI
STUNGIÐ LJÓSMYNDARANA AF
HEY! RÓLEGUR! VERTU ÁNÆGÐUR
AÐ ÞÚ ERT EKKI Á BLÆJUBÍL!
LOKSINS ER ÉG KOMINN
AFTUR! M.J. ÆTTI AÐ VERA
BÚIN Í SÍMANUM NÚNA
dagbók|velvakandi
Vídeó með fyrirlestri um kyn-
líf fyrir unglinga og fullorðna
LAUGARDAGSMORGUNN, ég er
að vafra um á netinu og dett inn á
fyrirlestur um kynlíf á youtube.com
sem heitir „The Secret Behind
True Love: Love v. Lust“ og er
brotinn niður í tólf vídeó.
Eftir að hafa verið límd við tölv-
una í dágóðan tíma – (hvert vídeó
um 8 mínútur margfaldað með 12
gera …) var mín hugsun. Vá, ég
vildi að ég hefði fengið þennan fyr-
irlestur þegar ég var 18, 17, 16, 15,
ok. 14 ára!
Þessi fyrirlestur um kynlíf er
fluttur af ungu fólki á háskólaaldri
sem langar að leiða ungt fólk af
villigötum og ranghugmyndum um
sambönd og kynlíf. Þetta er allt
frábærlega vel gert hjá þeim og
það sést greinilega á unga fólkinu í
salnum að það hefur mikinn áhuga
á efninu og þarna kemur flóð af
upplýsingum sem það hefði ekki
haft hugmynd um að spyrja um
fyrr en það yrði líklega um seinan
að fara vel með sjálfan sig.
Þetta myndband snýst nefnilega
ekki bara um kynlíf, heldur um
virðingu fyrir sjálfum sér og fólkinu
í kringum sig, hvort sem maður
þekkir það eða ekki. Þetta er
vitundarvakning í formi kynlífs-
fræðslu, eitthvað sem hefur alltaf
vantað í kynlífsfræðsluna í grunn-
skólunum. Sú fræðsla sem ég fékk
sat allavega ekki eftir í mér – ann-
að en hvað hún var vandræðaleg.
Unga fólkið þarf snemma að
skilja það af hverju það er mik-
ilvægt að fara vel með sjálfan sig
og hvað það leiðir af sér.
Ég hefði a.m.k. lagt mig meira
fram við að halda heiðri mínum og
bera virðingu fyrir náunganum ef
ég hefði fengið að sitja þennan
fyrirlestur á mínu fyrsta ung-
lingsári.
Trúmálin koma við sögu í þátt-
unum en þau eru samt ekki aðal-
boðskapurinn, heldur að hafa trú á
sjálfum sér að geta lifað lífinu á
heiðarlegan hátt fyrir sjálfan sig.
Ef þú ferð ekki vel með þig ger-
ir það enginn annar, nema kannski
í formi vorkunnar og ef þú hefur
ekki lifað lífinu eins og dýrlingur
þá er samt alveg hægt að snúa við
blaðinu og bara byrja að bera virð-
ingu fyrir sjálfum sér. Þá fer fólk
að byrja að bera virðingu fyrir
þér.
Ég skrifa þetta í von um að ein-
hverjir vilji taka þetta verkefni að
sér – að fræða ungmenni landsins
um þetta efni.
Guðbjörg Marta.
Hrákadalla á Laugardalsvöll!
ÞAÐ var nánast hneisa að sjá Eið
Smára hrækja og spýta út úr sér í
nærmynd á fótboltaleiknum sl.
sunnudag, maður átti nánast vona
á slummunni inní stofu! Eiður ætti
að kaupa sér hrákadall og eitt
stykki þjón til að hlaupa á eftir sér
út um víðan völl, eða láta af svona
sóðaskap.
Guðrún Björnsdóttir
Grenigrund 32, Selfossi.
Slys í Hyrnunni í
Borgarnesi 19 ágúst sl.
ÉG varð fyrir slysi í Hyrnunni
Borgarnesi 19. ágúst sl., rann í
gubbi og þarf að hafa uppi á konu
sem varð vitni að slysinu eða öðr-
um sem sáu þetta gerast.
Konan var með barn sem hafði
kastað upp og var að bíða eftir
starfsfólki til að þrífa, en mér láð-
ist að fá hjá henni nafn og síma-
númer. Vinsamlegast hafið sam-
band við Soffíu í síma 867 2331.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
NÚ mun veturinn senn ganga í garð og hver að verða síðastur að njóta
haustlitanna áður en laufið fýkur af trjánum. Á milli trjánna má sjá glitta í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardalnum.
Haust í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Sörlaskjól - Einbýli
Til sölu fallegt einbýlishús,
242,6 fm á þremur hæðum, þar
af 30 fm bílskúr. Möguleiki á að
vera með tvær íbúðir í húsinu.
Húsið er vel skipulagt og eru
herbergin rúmgóð, gott ris með
svölum. Frábær staðsetning. Fallegur garður. Húsið er í mjög
góðu ástandi að utan sem innan. Verð 77,5 millj.
M
bl
9
25
46
1