Morgunblaðið - 22.10.2007, Page 34
inlegan en þeim tókst það með þessum leik.
Maður horfir niður á leikborðið og eins og
áður sagði hleypur um ganga í leit að aðgang-
skortum eða fólki og undan skrímslum.
Reyndar hleypur maður svo mikið að maður
gæti í raun komist í gegnum hann allan án
þess að hleypa af skoti, ef það væri ekki fyrir
enda-kallanna í borðunum. Skrímslin eru hæg-
fara klessur sem koma aftur og aftur, sama
hversu maður drepur margar af þeim. Þetta
verður allt mjög leiðinlegt mjög fljótt og það
er erfitt að nenna að halda áfram með þessa
hörmung.
Grafíkin er skelfileg, ómerkileg og illa hönn-
uð, öll borð líta nánast eins út og geimverurnar
líkjast óræðum klessum sem breyta um lit
seinna meir í leiknum.
Hljóðið í leiknum hljómar eins og það hafi
verið fengið að láni úr 10 ára gömlum leik og
gerir lítið fyrir leikinn. Þetta er ómerkilegur
pakki sem hefði átt að svæfa í fæðingu.
ALIEN Syndrome er endurgerð á gömlum
leik sem var nokkuð vinsæll á árum áður. Mað-
ur hefði haldið að með nútímatækni hefðu
framleiðendurnir getað gert nokkuð skemmti-
legan leik úr frekar einföldum söguþræði en
útkoman er bæði ljót og það sem verra er
hundleiðinleg. Markmiðið í leiknum er að
skjóta vondar geimverur sem hafa tekið sér
bólfestu í geimstöð. Maður spilar sem ung
kona sem hleypur um ganga og dritar niður
hóp af óendanlegum skrímslum í tíma og
ótíma. Frekar einfalt allt saman og það þarf
mikið til þess að gera þannig leik mjög leið-
Úff!
TÖLVULEIKIR
PSP
Sega
Alien Syndrome Ómar Örn HaukssonAlien Syndrome Ómerkilegur.
34 MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SÍ
ÐU
ST
U
SÝ
N.
Verð aðeins300 kr.
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
DÓMSDAGUR
DJÖFULSINS!
FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR
EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS!
eee
Dóri DNA - DV
Frá gaurnum sem færði okkur The
40 Year Old Virgin og Knocked Up
Brjálæðislega fyndin mynd!!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR
ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
3 MEISTARAVERK FRUMSÝND
eeee
- Anna Sveinbjarnardóttir,
Morgunblaðiðð
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson,
Morgunblaðið
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
Bölvun eða blessun ?
Sofðu einu sinni hjá Chuck
og næsti maður sem þú
hittir er ást lífs þíns. KVIKMYND EFTIR ALEXANDR SOKUROV
KVIKMYND EFTIR FATIH AKIN
Toppmyndin á Íslandi í dag!
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU...
VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING ABOUT MARY"
Las Vegas er horfin...
Jörðin er næst!
Þriðji hlutinn í framtíðartryllinum
með Millu Jovovich í toppformi!
Fór beint á toppinn í USA!
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Resident Evil kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 3:45
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr.
Heartbreak Kid kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 6 - 8 B.i. 14 ára
The Kingdom kl. 6 - 10 B.i. 16 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Resident Evil kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
4 Months Enskur texti kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
The Edge of Heaven Enskur texti kl. 5:40 - 8 B.i. 12 ára
Alexandra Enskur texti kl. 6 B.i. 14 ára
Halloween kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Shoot´em Up kl. 10:20 B.i. 14 ára
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
- Dóri DNA, DV- T.S.K., Blaðið - H.J., MBL
- J.I.S., FILM.IS- LIB, Topp5.is
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ ÓVIN SEM
ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ DEYJA?
eee
- T.S.K., Blaðið
Hasar og adrenalín flæði
frá upphafi til enda
Ver
ð aðeins
600 kr.
ÉG verð að viðurkenna að þrátt
fyrir að margir vinir mínir séu
miklir hjólabrettamenn þá get ég
sjálfur ekki staðið á bretti í tvær
sekúndur án þess að fljúga á and-
litið. Mér hefur heldur ekki geng-
ið vel í tölvuleikjum sem snúast
um hjólabretti því þeir snúast yf-
irleitt um það að hitta á rétta
takka í ákveðinni röð til þess að
framkvæma ákveðin „trikk“ og
það hefur einhverra hluta vegna
alltaf vafist fyrir mér. Tony
Hawk-hjólabrettaserían hefur
verið nánast einráð á leikjamark-
aðinum undanfarin ár en nú hefur
Electronic Arts gefið út leikinn
Skate sem mun að öllum líkindum
jafna vinsældir Tonys Hawks, ef
ekki toppa þær. Það sem gerir
þennan leik svo góðan og
skemmtilegan fyrir viðvaninga
eins og mig er stjórnunin sem
nýtir stýripinnana tvo á fjarstýr-
ingunni. Maður notar þann hægri
til þess að framkvæma trikkin og
þann vinstri til þess að stýra.
Leikurinn er byggður upp eins
og flestir íþróttaleikir sem EA
gefur út. Maður ákveður útlit þess
sem maður vill vera og styrkir svo
orðspor sitt sem brettasnillingur
til að komast á toppinn. Einnig er
það takmark manns að koma sér í
brettablöð, keppa við aðrar þekkt-
ar brettakempur og taka þátt í
brettamótum. Það er engin pressa
á manni að klára þetta allt saman
innan ákveðins tíma, heldur getur
maður dúllað sér við að renna sér
um gríðarlega stóra borg þar sem
maður þarf að forðast gangandi
vegfarendur og ökutæki, allt þar
til maður treystir sér til að taka
þátt í keppnum og leysa aðrar
flóknari þrautir. Það eru helst
þessar síðastnefndu þrautir sem
reynast of flóknar á köflum og
draga þar með leikinn ofurlítið
niður. Allt annað er hins vegar
frábærlega vel gert. Sérstaklega
er hljóðvinnslan framúrskarandi
og niðurinn í hjólunum, sem
breytist eftir því hvernig yfirborð
götunnar er, er sérstaklega vel
unninn. Grafíkin er einnig góð,
hreyfingar raunverulegar og mið-
að við fyrsta leik í seríu (það vona
ég alla vega) hafa menn svo sann-
arlega hannað frábæran leik.
Á bretti skemmt’
ég mér tralalala
TÖLVULEIKIR
PS3
EA Games
Skate Ómar Örn Hauksson
Skate „Maður ákveður útlit þess sem maður vill vera og styrkir svo
orðspor sitt sem brettasnillingur til að komast á toppinn.“
TÖLVULEIKIR»
Eftir Ómar Örn Hauksson
mori@itn.is
TÖLVULEIKJAFRAMLEIÐANDINN
Naughty Dog, sem er hvað þekktastur fyrir
Crash Bandicoot-seríuna, vinnur nú hörðum
höndum að því að senda frá sér nýjan leik
sem á að sameina ævintýrahasarinn úr Tomb
Raider-leikjunum og testósterónið úr Pitt fall
og Indiana Jones-myndunum. Leikurinn
fjallar um Nathan Drake, þekktan heims-
hornaflakkara og ævintýramann sem á ættir
að rekja til Sir Francis Drake, sem var að-
allega þekktur hér á öldum áður sem mikill
leiðsögugarpur en átti sína dökku hlið sem
blóðþyrstur sjóræningi.
Drake yngri er mikið karlmenni sem leitar
að fjársjóðum víða um heim og þá sérstaklega
að fjársjóði forföður síns sem hann á að hafa
skilið eftir sig.
Þetta er fyrsti leikurinn sem framleiðend-
urnir hanna fyrir nýjustu leikjatölvurnar og
mikið hefur verið lagt í grafíkina og gervi-
greindina í leiknum og ef marka má yfirlýs-
ingar Naughty Dog eru menn þar á bæ sann-
færðir um að þeir hafi í höndunum leik sem á
að keyra Löru Croft- og Tomb Raider-leikina
í kaf. Af þeim myndbrotum og ljósmyndum
sem þegar hafa verið sýndar á netinu lítur
allt út fyrir að það geti vel orðið raunin.
Lara Croft
eignast verð-
ugan keppinaut
Lofar góðu „Drake yngri er mikið karlmenni
og leitar fjársjóða víða um heim.“