Morgunblaðið - 20.11.2007, Page 17

Morgunblaðið - 20.11.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 17 SUÐURNES Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Safnari Pétur Rafnsson (t.v.) afhenti Örlygi Kristfinnssyni viðurkenn- inguna á uppskeruhátíð norðlenskra ferðaþjónustuaðila. Eftir Örn Þórarinsson Siglufjörður | Örlygur Kristfinns- son, safnstjóri og frumkvöðull á Siglufirði, var heiðraður sérstak- lega á uppskeruhátíð norðlensks ferðaþjónustufólks, fyrir störf sín að málum, minjavernd og fyrir fag- lega uppbyggingu Síldarminja- safnsins í Siglufirði. Það voru Ferðamálasamtök Ís- lands sem veittu Örlygi þessa við- urkenningu og afhenti Pétur Rafnsson, formaður samtakanna, honum fallegan minjagrip úr steini í hófi sem haldið var í lok uppske- ruhátíðarinnar. Pétur rakti að nokkru uppbyggingu Síldarminja- safnsins við þetta tækifæri, allt frá því fyrsta hús safnsins var tekið í notkun árið 1994 og fram á þennan dag. Einnig þær viðurkenningar sem safnið hefur hlotið á undan- förnum árum. Hann sagði að þarna hefði Örlygur verið í fararbroddi allt frá upphafi. Safnið væri mik- ilvægur hluti í norðlenskri ferða- þjónustu og hefði stuðlað að auk- inni sókn ferðaþjónustunnar á þessu svæði. Heiðruð af Markaðsskrifstofu ,,Mér finnst að þetta sé ein af stóru stundum lífsins. Líkt og á Bessastöðum árið 2000 og í Aþenu 2004 þegar ég tók á móti Evrópu- verðlaunum safna og svo hér í dag. En kærar þakkir fyrir þetta, líka frá Síldarminjasafninu, safninu okkar allra,“ sagði Örlygur þegar hann þakkaði fyrir viðurkenn- inguna. Það var ljóst að Örlygur var hrærður við þetta tækifæri. Á uppskeruhátíðinni voru tveir einstaklingar heiðraðir af Mark- aðsskrifstofu Norðurlands sem Ferðamálasamtökin á Norðurlandi standa að. Það voru Knútur Karls- son, fyrrverandi forstöðumaður á Akureyri, fyrir ýmis frumkvöðla- störf á sviði ferðamála á Norður- landi, meðal annars þróun kynn- ingarmála, forystu í ferðamálasamtökum og við upp- byggingu Markaðsskrifstofu ferða- mála á Norðurlandi. Einnig Sigurbjörg Árnadóttir, hugmyndasmiður á Akureyri, fyrir áhugaverða nýjung í ferðaþjónustu tengda strandmenningarverkefni og einnig fyrir forystuhlutverk í vitamálum tengdum ferðamálum. Eyða degi saman Þetta var í þriðja skipti sem ferðaþjónustufólk á Norðurlandi hittist í lok ferðatímabils og eyðir einum degi saman. Nú var farið um Eyjafjörð, meðal annars til Greni- víkur og Hríseyjar og ýmsir staðir tengdir ferðaþjónustu og matvæla- framleiðslu heimsóttir. ,,Finnst að þetta sé ein af stóru stundum lífsins“ Í HNOTSKURN »Síldarminjasafn Íslands áSiglufirði er stærsta sjó- minja- og iðnaðarsafn lands- ins. » Í þremur ólíkum húsumkynnast gestir síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins. »Síldarminjasafnið hefurhlotið margvíslegar við- urkenningar. Það hlaut Ís- lensku safnaverðlaunin árið 2000 er þau voru veitt í fyrsta sinn og Evrópuverðlaun safna 2004, Michletti-verðlaunin. Ferðamálasamtök Íslands heiðra Ör- lyg Kristfinnsson Reykjanesbær | „Þetta er raun- verulega inngangur að sögu varn- arliðsins sem ég hef lengi unnið að,“ segir Friðþór Eydal, fulltrúi hjá Flugmálastjórninni á Keflavík- urflugvelli, um bók sem hann er að ganga frá og kemur út á næstu vik- um. Friðþór fékk hæsta styrkinn við úthlutun menningarráðs Reykjanesbæjar á almennum menn- ingarstyrkjum. Friðþór var lengi upplýsinga- fulltrúi hjá varnarliðinu á Keflavík- urflugvelli og grúskaði mikið í sög- unni. Segir að það hafi nýst sér í starfinu. Hann hefur skrifað og gef- ið út tvær bækur um tengt efni. Bókin sem hann er að skrifa núna fjallar um Keflavíkurstöðina frá því hún varð til og til ársins 1951 að varnarliðið kom og mun heita „Frá heimsstyrjöld til herverndar“. Frið- þór eru búinn að afla sér mikils efn- is og hyggst halda áfram með því að skrifa sögu varnarliðsins. Friðþór segir frá umsvifum breska og bandaríska hersins hér á landi, flugvallargerð Breta í Garð- inum og byggingu Keflavík- urflugvallar og starfseminni sem þar fór fram á þessum tíma. Hann segir að lítið hafi verið fjallað um margt af því sem hann tekur fyrir, að minnsta kosti hér á landi, þótt drepið hafi verið á sumt. Hann seg- ist reyna að skýra hvaða hlutverk flugvellirnir á Íslandi gegndu og áhrifum þeirra á styrjaldarrekst- urinn. Meðal annars kemur fram að Bretar fluttu skýli úr Kaldaðarnesi á Keflavíkurflugvöll til að nota fyr- ir öflugar kafbátaleitarvélar sem voru of stórar fyrir Reykjavík- urflugvöll en voru lykilatriði í orr- ustunni um Atlantshafið. Hann lýs- ir flugslysinu þegar Andrews, æðsti yfirmaður Bandaríkjahers, fórst í Fagradalsfjalli. Meðal atriða sem Friðþór telur að ekki hafi kom- ið fram hér á landi áður er frásögn af einu loftárásinni sem héðan var gerð á annað land á stríðsárunum. Sex milljónir til menningar Menningarráð Reykjanesbæjar úthlutaði samtals 6 milljónum króna til menningarverkefna úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar. Hæstu fjárhæðirnar eru vegna fastra samninga við menningar- félög. Þau eru Leikfélag Keflavík- ur, Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ, Tónlistarfélag Reykjanesbæjar, Kvennakór Suð- urnesja, Karlakór Keflavíkur, Suðsuðvestur gallerí, Harmonikku- félagið, Norræna félagið, Ljósop félag áhugaljósmyndara, Gallery Björg, Faxi málfundafélag og Gospelkórinn. Að þessu sinni bætt- ist við samningur við Leið- sögumenn Reykjaness ses. Friðþór Eydal fékk sem áður segir hæsta almenna menning- arstyrkinn. Af öðrum verkefnum sem styrkt voru nú má nefna kór- ana sem fengu sérstaka styrki til útgáfu geisladiska, tónleikahalds og þátttöku í kórahátíðum. Vignir Bergmann fékk styrk til útgáfu geisladisks, Guðmunur R. Lúðvíks- son til skráningar varða á Reykja- nesi, Sólveig D. Þórisdóttir vegna sýningarinnar „För hersins“, Rannveig L. Garðarsdóttir vegna söfnunar á munnlegum fróðleik og Kristlaug Sigurðardóttir vegna út- gáfu sögu á netinu. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Menning Fulltrúar menningarfélaga í Reykjanesbæ ásamt Björk Guðjóns- dóttur, formanni menningarráðs, og Árna Sigfússyni bæjarstjóra. Skrifar inngang að sögu varnarliðsins Reykjanesbær | Reykjanesbær hef- ur gert menningarsamning við Leið- sögumenn Reykjaness fyrir kom- andi ár. Leiðsögumenn eru þrettánda félagið sem bærinn gerir samstarfssamning við en samningn- um fylgir fastur árlegur styrkur, 150 þúsund kr. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Bergur Sig- urðsson, fulltrúi Leiðsögumanna Reykjaness, skrifuðu undir samn- inginn við athöfn sem haldin var vegna úthlutunar menningarverð- launa Reykjanesbæjar. Félagið tekur þátt í verkefnum sem varða menningar- og ferðamál í Reykjanesbæ. Leiðsögumenn munu hafa frumkvæði að því að efla og styrkja umræðu um sögu og náttúru bæjarfélagsins, að því er fram kem- ur í samningnum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Efla umræðu um sögu LANDIÐ LÍFIÐ SÆKIR FRAM Safn prédikana og ljóða eftir sr. Bolla Gústavsson. Myndskreytingar eftir Gústav Geir Bollason myndlistarmann. Sr. Bolli Gústavsson var sóknarprestur í Hrísey 1963-1966 og í Laufási frá árinu 1966-1991 er hann varð vígslubiskup að Hólum. Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands ritar inngang og Hjörtur Pálsson norrænufræðingur og guðfræðingur ritar grein um manninn og rithöfundinn sr. Bolla Gústavsson. Fæst í Kirkjuhúsinu og í bókaverslunum Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið - Laugavegi 31 - 101 Reykjavík Sími 552 1090 / 562 1581 - skalholtsutgafan@skalholtsutgafan.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.