Morgunblaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 31 Elsku Andrea, megi ljós og friður vera með þér á þessari erfiðu stundu. Sæunn, Nikulás Marel og Máni Snær. Komið er að kveðjustund, svo ótímabærri og óvæntri. Það er þyngra en tárum taki þegar fólki í blóma lífsins er kippt svo snögglega á brott. Marta var ímynd hraustleik- ans, einnig í erfiðum veikindum. Hún lagði snemma grunn að hreysti og heilbrigði með íþróttaiðkun og góðu líferni. Marta kom inn í gönguhópinn okk- ar er við sumarið 2005 gengum Laugaveginn (á hálendinu). Það var einstaklega ánægjulegt fyrir okkur að fá hana í hópinn, svo hressa, káta og hláturmilda. Þar var gleðin við völd er við nutum útiveru, hreyfingar og dásamlegrar náttúru. Árið eftir, er við gengum Kjöl, var Marta að ljúka meðferð eftir að hafa greinst með brjóstakrabbamein. Hún lét það ekki aftra sér í að fara með og ekki var möguleiki að sjá annað en þar færi fullfrísk kona. At- gervið það sama og fyrr, jafnt lík- amlegt og andlegt. Þjóðin fylgdist svo stolt með henni nú í sumarbyrjun er hún gekk yfir Grænlandsjökul ásamt fólki víðs veg- ar að úr heiminum, til að vekja at- hygli á nauðsyn þess að konur fari í brjóstaskoðun og styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini. Hún hafði rétt lokið þeirri göngu er hún í júní gekk með okkur á Sveinstind og í Skæl- inga og fór létt með. Það var svo í lok ágúst að við fórum í ógleymanlega ferð á Hornstrandir. Þar var hún meðal fremstu göngumanna, þeirra er lögðu lengsta leið að baki fótgang- andi. Að þetta yrði síðasta ferðin hennar gat ekki hvarflað að neinum. Það er okkur fengur að hafa fengið að kynnast þessari hugrökku dugn- aðarkonu, sem lét boðaföllin ekki buga sig. Við þökkum henni sam- fylgdina og kveðjum hana með sökn- uði. Dótturinni ungu, öllum ættingjum og vinum Mörtu, sem nú eiga um sárt að binda, biðjum við Guðs blessunar. Blessuð sé minning Mörtu Guð- mundsdóttur. Gönguhópur ISI. Marta, kær vinkona mín, er fallin frá langt fyrir aldur fram. Vinskapur okkar Mörtu einkenndist af ein- lægni, virðingu, hreinskilni og ekki síst gleði. Það er alveg ótrúlegt að þetta hafi farið svona. Ég skil þetta ekki. Kona í blóma lífsins hrifin í burtu frá elskulegri dóttur sinni og fjölskyldu. Er okkur ætlað að skilja svona lagað? Marta var ein besta vinkona mín, þótt hún væri 10 árum yngri en ég. Við náðum ótrúlega vel saman. Það besta við vináttu okkar var að við vissum svo vel hvers virði hún var. Mér fannst svo gott að vita alltaf hvar ég hafði hana og hún mig. Við vorum hreinskilnar og ósparar á að láta vita hversu mikið okkur þótti vænt hvorri um aðra.Við gátum talað um allt milli himins og jarðar og hlegið endalaust. Ég á eftir að sakna þess að hún hringi eða sendi sms og segi; „Hæ skvís, ertu ekki spræk!“ Minningar hrannast upp. Ferð á listasafn, leiksýningu, bæjarrölt, kaffihús og ógleymanlega fyrirlestra. Kúr í sófanum á náttbuxunum, tal- andi út í eitt. Kæra vinkona. Gangan á jökulinn var engin tilviljun. Ásetningur þinn að fara strax, en bíða ekki með það, eins og til stóð. Var þetta allt ákveðið fyrirfram? Þar sýndir þú elsku Marta mín hvers þú varst megnug. Gangan var eitt af þínum markmið- um sem þú afgreiddir með þvílíikum glans. Minningin um ykkur Andreu standandi fyrir utan húsið mitt bros- andi út að eyrum, svo fallegar á leið- inni út á flugvöll til að fara til Spánar. Geislandi af gleði og tilhlökkun. Spjallið á sjúkrahúsinu þegar þú varst komin úr aðgerðinni og hafðir áhyggjur ef allt færi á versta veg. Kvíðin fyrir að yfirgefa Andreu þína og óskin svo sterk um að hún myndi aldrei gleyma þér. Ég gæti haldið endalaust áfram en minningarnar eru geymdar og gleymast aldrei Elsku Marta mín, allir sem kynnt- ust þér munu aldrei gleyma þér. Andrea á eftir að ylja sér yfir minn- ingum um þig og ykkar sérstaka samband. Við Eyfi eigum eftir að sakna þín og heimsókna þinna, en söknuðurinn er samt mestur hjá elsku Andreu, mömmu og pabba þín- um og fjölskyldu þinni allri. Minn- ingin um stórkostlega konu sem setti sér markmið og vann að því að ná þeim af mikilli ákveðni. Við Eyfi og krakkarnir okkar sendum fjölskyldu þinni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur. Takk, elsku Marta mín fyrir að koma inn í líf mitt. Kæra vinkona, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð geymi þig og minn- ingu þína. Þín vinkona, Sigrún. Á lífsleiðinni kynnumst við fullt af fólki. Einhverra hluta vegna hafas- umir meiri áhrif á mann en aðrir. Marta var ein þeirra. Ég kynntist Mörtu um það leyti sem ég útskrif- aðist úr Kennaraháskólanum, vetur- inn 2002-2003. Þá var hún nýlega flutt aftur til Íslands. Við vorum báð- ar að hefja stöf sem umsjónarkenn- arar við Grunnskólann í Grindavík. Hún kom að máli við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á að kenna á móti henni 1. bekk. Ég þurfti ekki að hugsaði mig lengi um og ákvað að láta slag standa. Það var eitthvað í fari hennar sem heillaði mig. Ég vissi það ekki þá en veit nú að samstarf okkar var mesta gjöf sem mér hefur verið gefin í kennslunni. Marta hugs- aði kennsluna á svo sérstakan hátt, á þann hátt sem mér hefði aldrei sjálfri dottið í hug. Hún hafði allt sem prýða mátti góðan kennara. Hún var ákveð- in, blíð, skemmtileg og uppfull af hugmyndum. Algjör fjársjóður. Meðan á samstarfi okkar stóð hlustaði ég, meðtók og lærði og mun ég búa að þeirri reynslu það sem eftir er. Ég verð henni ævinlega þakklát fyrir það. Eftir að ég flutti frá Grindavík héldum við alltaf sam- bandi. Við hringdum hvor í aðra, spjölluðum og fengum ráð og hug- myndir í tengslum við kennsluna.. Ég kveð Mörtu með söknuði og bið góðan Guð að varðveita hana. Elsku Andrea Björt og aðrir að- standendur. Megi guð vera með ykk- ur og styrkja á þessum erfiðu tímum. Hjördís Dögg Grímarsdóttir. Ég trúi þessu ekki. Af hverju get- ur lífið verið svona ósanngjarnt? Hver er tilgangurinn? Ég og Marta kynntumst fyrir um 17 árum þegar kærastarnir okkar spiluðu saman fótbolta í KR og urð- um við strax góðar vinkonur. Marta var ótrúleg kona, traust og alltaf gat maður leitað til hennar með alla hluti. Í nokkur ár bjó Marta erlendis og þá misstum við aðeins þráðinn en aldrei alveg. Við vissum af hvor ann- arri og hvað var að gerast í lífi okkar. Marta gekk í gegnum erfiðan skilnað og dáðist ég að henni hvað hún var alltaf ótrúlega sterk, alveg sama hvað gekk á. Flutti hún í yndislega íbúð með skottunni sinni og byrjaði að kenna í Grindavík. En þá kom áfallið, Marta greindist með brjósta- krabba og ég gleymi því aldrei þegar ég hringdi í hana og talaði við hana fljótlega eftir að hún greindist. Ég hálf kjökrandi í símanum en hún sallaróleg og upplýsti mig um allt. Baráttan hennar var ótrúleg og var ég viss um að hún mundi vinna þetta stríð, ef ekki hún hver þá? Í maí og júní sl. gekk Marta á Grænlandsjök- ul. Var ótrúlegt að fylgjast með henni, ég fór inn á síðuna hennar á hverjum degi. Auðvitað kláraði hún það dæmi með stæl. Ég var ekkert smá stolt af henni. Ég heyrði síðast í henni um miðjan október og þá vor- um við að tala um að við þyrftum að fara að hittast. Aldrei hvarflaði að mér að næst þegar við hittumst þá væri hún að berjast fyrir lífi sínu. Ég veit að hún barðist eins og ljón en hún varð að láta undan, krabbinn var of skæður. Ég votta fjölskyldu Mörtu mína dýpstu samúð og elsku Andrea Björt, þú verður að vera sterk og dugleg, mamma þín er ekkert smá stolt af þér og hún heldur verndarhendi yfir þér og leiðir þig áfram í lífinu. Ég veit að hún fylgist með þér og passar upp á þig. Hafdís Ebba Guðjónsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Mörtu Guðmundu Guðmundsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum. Átta sveitir spila í 1. deildinni. Í annarri deild spiluðu 17 sveitir og þar er keppikeflið að ná öðru af tveimur efstu sætunum sem gefa rétt til keppni í fyrstu deild að ári. Sveit Málningar var í nokkrum sérflokki, hlaut 373 stig eða um 19,5 stig í leik. Með þeim upp í fyrstu deild fer sveit Sölufélags garðyrkjumanna sem var með 244 stig. Næstu sveitir voru sveit Spari- sjóðsins í Keflavík, sveit Guðlaugs Sveinssonar og sveit Örva í fimmta sæti. Björgvin Már Sigurðsson stjórn- aði keppninni en Hrafnhildur Skúladóttir afhenti verðlaun í móts- lok. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, fimmtud. 15.11. Spilað var á 11 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S Jón Lárusson – Guðjón Kristjánsson 279 Þorsteinn Sveinsson – Magnús Oddss. 245 Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 244 Árangur A-V Soffía Theodórsd. – Elín Guðmannsd. 246 Ragnar Björnss. – Jóhann Benediktss. 246 Eiríkur Eiríkss. – Skarphéðinn Lýðss. 244 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 16. nóvember var spilað á 17 borðum. Athygli vekur glæsileg skor Nönnu Eiríksdóttur og Kristínar Jó- hannsdóttur í A/V. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S: Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 372 Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónss. 353 Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 350 Magnús Oddsson – Óli Gíslason 342 A/V Nanna Eiríksd. – Kristín Jóhannsd. 400 Ólafur Ingvarss. – Þorsteinn Sveinss. 382 Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldss. 358 Sturlaugur Eyjólfss. – Jón Jóhannss. 354 Staðan í stigakeppninni er eftir- farandi. Ragnar Björnsson 193 Oliver Kristófersson 181 Rafn Kristjánsson 181 Óli Gíslason 168 Bjarnar Ingimarsson 140 ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur stuðning og styrk við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, sambýliskonu, ömmu og langömmu, JÓNÍNU BJÖRNSDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Ólafía Ingvarsdóttir, Matthías Matthíasson, Jón Ingvarsson, Sigríður Guðjónsdóttir, Ingunn Ingvarsdóttir, Sveinn Leósson, Jóhann Ingvarsson, Stefanía Stefánsdóttir, Björn Ingvarsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Kristrún Ingvarsdóttir, Haraldur Haraldsson, Lára Ingvarsdóttir, Ingvar Ingvarsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Jóna Þuríður Ingvarsdóttir, Bjarni Þór Jakobsson, Guðjón Ingvarsson, Steingrímur Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, Súluholti, Flóahreppi. Guðrún Hjörleifsdóttir og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður okkar, afa og langafa, ÓLAFS J. EINARSSONAR, áður Hofslundi 19, Garðabæ. Sjöfn Ólafsdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Inga Jóna Andrésdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN SEN fiðluleikari, Ölduslóð 39, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum sunnudaginn 4. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarfólki og öðru starfsfólki Vífilsstaða fyrir framúrskarandi umönnun. Björg J. Sen, Þóra Sen, Björn Vignir Jónsson, Oddný Sen, Jónas Sen, Jón H. H. Sen, Gunnur Sif Sigurgeirsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar Réttur pistill á netinu Þau mistök urðu við vinnslu pistils þeirra Auðar Jónsdóttur og Þór- arins Leifssonar, Föst í fréttaneti, í sunnudagsblaðinu að ein máls- grein datt út. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Pistillinn er leiðréttur í gagnasafni Morgunblaðsins á netinu. Rokk og rósir en ekki Gyllti kötturinn Þau leiðu mistök urðu í tískuþætti í laugardagsblaðinu að í mynda- texta var ranglega farið með nefn verslunar þar sem hattur og refur fengust. Sagt var að hvort tveggja fengist í Gyllta kettinum en hið rétta er að bæði refur og hattur fást í versluninni Rokk og rósir. Beðist er velvirðingar vegan þessa. LEIÐRÉTT Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.