Morgunblaðið - 20.11.2007, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FORVARNADAG-
URINN árlegi er þýð-
ingarmikill dagur fyrir
okkur öll til að minna á
mikilvægi forvarna.
Akureyrarbær hefur
sett sér forvarnastefnu
sem fjölskylduvænt
samfélag og öflugar
forvarnir styrkja þá ímynd enn frek-
ar. En megininnihald forvarnastefn-
unnar er mannauður og efling heil-
brigðs samfélags.
Miklar og góðar rann-
sóknir liggja að baki hér
á landi í forvarnamálum
sem sjálfsagt er fyrir
bæði foreldra og að-
standendur að nýta til
að læra af og byggja
uppeldishlutverk okkar
á því. Það er á stundum
flókið hlutverk að vera
foreldri á Íslandi í dag,
vinnuálag er mikið,
kröfur um samfélags-
lega þátttöku miklar og
oft reynir þá á að setja
fjölskylduna í þann forgang sem
henni ber. En allar rannsóknir sýna
fram á að mikilvægasta forvörnin fel-
Forvarnir hefjast heima
Hvetja á börn til að
taka þátt í skipu-
lögðu æskulýðs- og
íþróttastarfi, segir
Sigrún Björk Jak-
obsdóttir
Sigrún Björk
Jakobsdóttir .
» Allar rannsóknirsýna fram á að mik-
ilvægasta forvörnin fel-
ist m.a. í þeim tíma sem
foreldrar og unglingar
eyði saman.
ist m.a. í þeim tíma sem foreldrar og
unglingar eyði saman. Sá tími þarf
ekki að vera með stífri uppeldismið-
aðri dagskrá – öðru nær – jafn góður
árangur næst með því einfaldlega að
,,chilla saman“. Því forvarnastarf
hefst heima.
Annað áhersluatriði er að hvetja
börn til að taka þátt í skipulögðu
Í DAG eru 18 ár liðin frá því að
samningur Sameinuðu þjóðanna
um réttindi barnsins
var lagður fyrir alls-
herjarþing Samein-
uðu þjóðanna. Sam-
kvæmt samningnum,
sem í daglegu tali er
nefndur Barnasátt-
málinn, fellur ein-
staklingur yngri en 18
ára undir skilgrein-
inguna barn og því
má segja að sáttmál-
inn hafi nú slitið
barnsskónum. Hann
er orðinn fullorðinn.
Þetta eru tímamót
sem ber að veita athygli. Barna-
sáttmálinn er fyrir margra hluta
sakir bæði merkilegur og mik-
ilvægur. Fyrir það fyrsta gengur
hann mun lengra en fyrri alþjóð-
legar yfirlýsingar um réttarstöðu
barna. Tekið er tillit til þess að
börn skuli njóta sérstakrar um-
hyggju og verndar en einnig er
lögð áhersla á að börn séu sjálf-
stæðir einstaklingar með réttindi
og skyldur sem hæfa þroska og
aldri hvers og eins.
Í öðru lagi voru réttindi barna í
fyrsta sinn leidd í alþjóðalög með
Barnasáttmálanum. Ríki heims
hafa skuldbundið sig til að tryggja
börnum innan sinnar lögsögu þau
réttindi sem kveðið er á um í sátt-
málanum, en auk þess hvílir á
þeim upplýsingaskylda til Barna-
réttarnefndar Sameinuðu þjóð-
anna um framkvæmd sáttmálans.
Í þriðja lagi hefur
Barnasáttmálinn verið
fullgiltur af fleiri ríkj-
um en nokkur annar
mannréttindasáttmáli
sögunnar. Öll ríki
heims hafa fullgilt
Barnasáttmálann utan
Bandaríkjanna og
Sómalíu, sem bæði
hafa þó skrifað undir
hann.
Áhrif á íslensk lög
Á Íslandi öðlaðist
Barnasáttmálinn
formlega gildi 27. nóvember 1992.
Það blandast engum hugur um að
margt hefur áunnist í réttinda-
málum íslenskra barna á þeim ár-
um sem síðan hafa liðið. Of langt
mál væri að telja upp allar þær úr-
bætur sem gerðar hafa verið á ís-
lenskum rétti og stjórnsýslu í því
tilliti en þó verður ekki hjá því
komist að nefna að árið 1995 var í
fyrsta sinn sett ákvæði í íslensku
stjórnarskrána þar sem börn eru
nefnd sérstaklega. Er þar kveðið á
um að þeim skuli tryggð sú vernd
og umönnun sem velferð þeirra
krefst.
Að ýmsu er þó enn að hyggja og
vert að minna á að í stjórnarsátt-
mála núverandi ríkisstjórnar er
Barnasáttmálans sérstaklega get-
ið. Þar kemur fram að „mótuð
[skuli] heildstæð aðgerðaáætlun í
málefnum barna og ungmenna er
byggist meðal annars á rétti
þeirra eins og hann er skil-
greindur í barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna“.
Við hjá Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna á Íslandi fögnum afmæli
Barnasáttmálans með málþingi í
Norræna húsinu í dag frá kl. 14 til
16.30. Um leið kynnum við nýút-
komið rit um Barnasáttmálann á
íslensku. Með þessu viljum við efla
þekkingu og umræður um sáttmál-
ann og réttindi íslenskra barna og
hvetjum því sem flesta til að
mæta.
Fyrir hönd Barnahjálparinnar
óska ég Íslendingum öllum, en þó
sérstaklega börnunum, til ham-
ingju með daginn.
Barnasáttmálinn
„fullorðinn“ í dag
Einar Benediktsson
fjallar um réttindi barna » Í dag eru 18 ár liðinfrá því að samningur
Sameinuðu þjóðanna
um réttindi barnsins
var lagður fyrir
allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna.
Einar Benediktsson
Höfundur er stjórnarformaður UNI-
CEF á Íslandi.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
frá kr. 38.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Kanarí 2., 9. eða
16. janúar. Njóttu lífsins á þessum vinsæla
áfangastað við góðan aðbúnað í 1 viku eða lengur.
Bjóðum nú takmarkaðan fjölda íbúða á mörgum af
okkar vinsælustu gististöðum á frábæru sértilboði,
m.a. Los Tilos, Roque Nublo, Jardin Atlantico og
Dorotea. Góðar íbúðir og frábær staðsetning.
Ath. takmarkaður fjöldi íbúða á þessu einstaka
tilboðsverði.
Kanaríveisla
í janúar
Frábær sértilboð á góðri gistingu!
2. janúar
9. janúar
16. janúar
Mjög takmarkaður fjöldi íbúða í boði!
Verð kr. 38.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og tvö börn í íbúð á
Dorotea, Roque Nublo, Los Tilos eða Jardin Atlantico í
viku. Gisting á Liberty, Parque Sol og Dunas
Esplendido kr. 4.000 aukalega. Aukavika kr. 12.000.
Verð kr. 48.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Roque Nublo, Los
Tilos, Dorotea eða Jardin Atlantico í viku. Gisting á
Liberty, Parque Sol og Dunas Esplendido kr. 4.000
aukalega. Aukavika kr. 12.000.
DÓMS- og kirkjumálaráðherra
hefur mælt fyrir frumvarpi til
breytinga á almennum hegning-
arlögum, þar sem lagt
er til að lögfest verði
nýmæli og gerðar mik-
ilvægar breytingar á
ákvæðum laganna um
mansal, upptöku
eigna, skipulagða
brotastarfsemi og pen-
ingaþvætti. Þá er lagt
til að gerðar verði
ákveðnar breytingar á
gildandi ákvæðum um
hryðjuverk. Í fjöl-
miðlum hefur sér-
staklega verið rætt um
5. gr. frumvarpsins,
þar sem lagt er til að opinberri
hvatningu til að fremja hryðjuverk
verði sérstaklega lýst sem refsi-
verðu broti. Fram hefur komið að
þetta frumvarpsákvæði „þrengi að
tjáningarfrelsi manna“ og að á
skorti að dómsmálaráðherra hafi
nægilega látið „framkvæma grein-
ingu á þeirri hættu“ sem verið sé að
sporna við með þessu ákvæði.
Nauðsynlegt er í ljósi þessa að
varpa nokkru ljósi á bakgrunn þess-
arar frumvarpstillögu og helstu
röksemdir.
Að tilstuðlan dómsmálaráðherra
var refsiréttarnefnd fengið það
verkefni að leggja mat
á hvort og þá hvaða
breytingar á refsilög-
um þyrfti að gera til að
hægt væri meðal ann-
ars að fullgilda Evr-
ópuráðssamning um
varnir gegn hryðju-
verkum frá 3. maí
2005. Samkvæmt 5. gr.
samningsins skulu að-
ildarríki gera nauðsyn-
legar breytingar á inn-
lendum refsilögum til
að gera opinbera
hvatningu til hryðju-
verka refsiverða. Greining á þeirri
hættu fyrir allsherjarreglu og al-
mannaöryggi, sem kann að stafa af
slíkri háttsemi, hefur því farið fram
á sameiginlegum vettvangi tæplega
fimmtíu evrópskra lýðræðisríkja,
þar sem Ísland hefur verið virkur
þátttakandi um áratugaskeið.
Hafa verður einnig í huga að með
ofangreindri frumvarpsgrein er ver-
ið að mæla sérstaklega fyrir um
bann við opinberri hvatningu til
hryðjuverka. Hugtakið hryðjuverk í
þessu samhengi er skilgreint í 100.
gr. a. núgildandi hegningarlaga, en
með 3. gr. frumvarpsins eru lagðar
til efnisbreytingar á ákvæðinu. Op-
inber hvatning til hryðjuverka felur
í sér að maður hvetji á opinberum
vettvangi til þess að framin séu al-
varlegustu brot samkvæmt refsilög-
um. Þar undir falla meðal annars
manndráp, stórfelld líkamsárás,
frelsissvipting, röskun á umferð-
aröryggi á þann hátt að mannslífum
sé stefnt í hættu eða valdið sé miklu
fjárhagslegu tjóni, flugrán eða
sprenging eða útbreiðsla skaðlegra
lofttegunda. Til þess að um hryðju-
verk sé að ræða þurfa þessi brot
auk þess að vera framin í því skyni
að valda almenningi verulegum ótta
eða þvinga með ólögmætum hætti
íslensk eða erlend stjórnvöld eða al-
þjóðastofnun til að gera eitthvað
eða láta eitthvað ógert eða í því
skyni að veikja eða skaða stjórn-
skipun eða stjórnmálalegar, efna-
hagslegar eða þjóðfélagslegar und-
irstöður ríkis eða alþjóðastofnunar.
Löng hefð er fyrir því í evrópsk-
um lýðræðisríkjum að tjáning af
þessu tagi sé takmörkuð með refsi-
lögum. Beinlínis er gert ráð fyrir
þeirri heimild í 3. mgr. 73. gr.
stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 10.
gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Það er vafalaust að refsiákvæði af
þessu tagi fellur vel innan stjórn-
skipulegra heimilda Alþingis til að
mæla fyrir um takmarkanir á op-
inberri útbreiðslu tjáningar, sem
hefur það eitt að markmiði að
hvetja til alvarlegra refsiverðra
verka á borð við þau, sem hér eru
rædd.
Loks er ástæða til að vekja sér-
staka athygli á því, eins og skýrlega
er um fjallað í athugasemdum við
ofangreinda frumvarpsgrein, að op-
inber hvatning til hryðjuverka er í
dag þegar refsiverð samkvæmt
gildandi hegningarlögum. Í 121. gr.
laganna er að finna almennt bann
við opinberri hvatningu til að menn
fremji refsiverð verk, sem varðað
getur allt að tveggja ára fangelsi,
og tekur það ákvæði eins og staðan
er meðal annars til hryðjuverka
samkvæmt 100. gr. a sömu laga. Al-
þingi hefur því þegar ákveðið að op-
inber hvatning til hryðjuverka skuli
vera refsiverð að íslenskum refsi-
lögum. Ákvæði 5. gr. frumvarps
dómsmálaráðherra felur því ekki í
sér tillögu um lögfestingu nýmælis
á sviði refsilaga, heldur fyrst og
fremst afdráttarlausa áréttingu á
alvarlegu eðli hryðjuverka og þeirri
hættu sem að mati alþjóða-
samfélagsins kann að skapast þegar
opinberlega er hvatt til slíkra at-
hafna. Með frumvarpsgreininni er
því aðeins lagt til að sérrefsiákvæði
gildi um háttsemi af þessu tagi og
að heimilt sé að beita fangelsi allt
að þremur árum þegar maður hvet-
ur opinberlega til hryðjuverka.
Um opinbera hvatningu til hryðjuverka
Róbert R. Spanó skrifar um
tillögu að banni við opinberri
hvatningu til hryðjuverka
» Fjallað er um tillöguað banni við op-
inberri hvatningu til
hryðjuverka í nýlegu
frumvarpi dómsmála-
ráðherra til breytinga á
almennum hegning-
arlögum.
Róbert Spanó
Höfundur er prófessor við lagadeild
Háskóla Íslands og formaður refsi-
réttarnefndar.