Morgunblaðið - 20.11.2007, Síða 25
Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri.
æskulýðs- og íþróttastarfi. Mörg
sveitarfélög, m.a. Akureyrarbær hafa
gert sér grein fyrir mikilvægi þessa
og hafa lagt áherslu á að koma til
móts við foreldra með niðurgreiðslu
tómstundagjalda. Við foreldrar verð-
um einnig að styðja unglinga í því að
taka meðvitaða ákvörðun um að snið-
ganga áfengi eins lengi og nokkur
kostur er, því hvert ár skiptir máli.
Eitt af því mikilvægasta í upppeldi
barnanna okkar er að styrkja sjálfs-
mynd og sjálfsvitund þeirra og gera
þau að sterkum einstaklingum sem
hafna vímugjöfum, – einstaklingum
sem þora að segja nei og bera virð-
ingu fyrir sjálfum sér eða sjálfri sér.
Forvarnir eru flókið viðfangsefni og
enginn einn getur náð árangri á eigin
spýtur en saman getum við unnið
þrekvirki. Hver og einn skiptir máli.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 25
Á SÍÐASTA ári birtist í Morg-
unblaðinu viðtal eftir Agnesi
Bragadóttur undir yfirskriftinni
,,Eru með kverkatak á íslensku
þjóðinni“ þar sem ég segi að tíma-
bært sé að íslenska
þjóðin kynnist því
hvernig vinnubrögð-
um Baugsmenn beita
til þess að ná sínu
fram. Ég undrast
ekki að fólk þori ekki
að koma fram undir
nafni, það gæti átt
von á því að fá á sig
dóm.
Í framhaldi af um-
ræðu undanfarinna
daga tel ég mig knú-
inn til að segja frá
þeirri málsmeðferð
sem ég fékk eftir að
ég kom fram ,,undir nafni“ og lét
yfirvöld á Íslandi vita hvernig
Bónus-feðgar, með Tryggva Jóns-
son í broddi fylkingar, misnotuðu
Baug, sem þá var almennings-
hlutafélag, í eigin þágu. Í kjölfar
ákvörðunar minnar fór fljótlega að
gæta mikils persónulegs níðs
gagnvart mér og mínu fólki í
Baugsmiðlum og augljóst í hvert
stefndi.
Bónusfeðgar, ásamt Gesti Jóns-
syni, lögmanni, réðust ítrekað að
Jóni H. B. Snorrasyni, yfirmanni
efnahagsbrotadeildar, fyrir að ég
skyldi ekki ákærður. Þetta er lík-
lega eina dæmið í íslenskri rétt-
arsögu, þar sem verjandi eins
ákærðra heimtar að annar sé líka
ákærður. Síðan var settur rík-
issaksóknari beittur óeðlilegum
þrýstingi í því skyni að ég yrði
ákærður. Hið sorglega er að
ákæruvaldið lét undan þeim of-
sóknum sem Baugsmenn og lög-
menn þeirra háðu af ótta við þau
völd sem þeir beita með fjöl-
miðlum sínum til að koma höggi á
starfsheiður og æru manna.
Viltu breyta fyrri framburði
þínum í Baugsmálinu?
Í Baugsmálinu, þessu alvarlega
máli um auðgunarbrot og fleira,
var ég allan tímann yfirheyrður
sem vitni, eða þar til 22. febrúar
2006. Þá var ég beðinn um að
koma í skýrslutöku og var ég þá
spurður einnar spurningar. Viltu
breyta fyrri framburði þínum? Eða
viltu staðfesta hann? Mér var
hugsað til þeirra mörg hundruð
blaðsíðna, sem eftir mér höfðu
verið skráðar við rannsókn Baugs-
málsins, og svaraði: „Að sjálfsögðu
stend ég við framburð minn, enda
er hann réttur og allt satt, sem
þar kemur fram.“
Í framhaldi var ég ákærður og
síðar dæmdur. Ég fékk sama dóm
og Jón Ásgeir. En Tryggvi Jóns-
son fékk reyndar þyngri dóm.
Þrátt fyrir dómana yfir þeim Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva
Jónssyni mætti halda að Íslend-
ingar og flestir fjölmiðlar telji enn
að Baugsmálið sé tilbúningur
óvildarmanna Baugs.
Ákæru vísað frá dómi
Í fyrri dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur 3. maí 2007 mál nr. S-514/
2006 segir orðrétt:
„Þegar hins vegar er
litið til umfangs fyrri
lögreglurannsóknar,
þar sem ákærði hafði
stöðu vitnis, verður
ekki hjá því komist að
líta á þessa einu
skýrslu sem mála-
myndaskýrslu sem
ekki breytir þeirri
staðreynd að hann hafi
haft stöðu vitnis alla
rannsókn málsins þótt
hann væri í raun að
tjá sig um atriði er
hefðu getað leitt til
ákæru á hendur honum. Með vísun
til framangreinds er það niðurstaða
dómsins að ákærði Jón Gerald Sul-
lenberger hafi ekki notið þeirra
réttinda sakbornings við lög-
reglurannsókn málsins sem nefnd
lagaákvæð áskilja. Ákæra á hendur
honum verður því ekki reist á lög-
reglurannsókninni og verður ákær-
unni vísað frá dómi hvað ákærða
varðar.“ Tel ég þetta vera rétta
niðurstöðu eins og allir löglærðir
menn sem að þessu máli hafa kom-
ið.
Hver eru síðan skilaboð
Hæstaréttar Íslands?
Hann kveður upp dóm 1. júní
2007 nr. 254/2007 þar sem hann
sendir málið til baka í héraðsdóm
og skipar að ég skuli dæmdur þar
sem ég hafi staðfest fyrri fram-
burð minn hjá lögreglu eins og
fram hefur komið og bæri að
leggja dóm á framburð minn fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem
ég staðfesti fyrri framburð minn.
Sem sagt, allt sem ég sagði um
brotlega viðskiptahætti Baugs-
manna sem var rétt og satt og fyr-
ir það ber að dæma mig! Ég átti
því að ljúga og bera fyrir mig
minnisleysi líkt og ýmis vitni
Baugsmanna, þar á meðal núver-
andi alþingiskona sem starfaði fyr-
ir Baug, Jón Ásgeir og fjölskylda
ásamt öðrum vitnum Baugsmanna.
Hver eru skilaboðin frá Hæsta-
rétti? Jú, það ber að gera lítið úr
öllu Baugsmálinu og fá sendiboð-
ann dæmdan sem glæpamann og
skúrk málsins. Sagan geymir
vissulega mörg dæmi um að boð-
berar válegra tíðinda séu látnir
gjalda þess að flytja tíðindin. Ég
hélt að það væri unnt að treysta á
réttsýni íslenskra dómstóla, en svo
virðist ekki vera.
Þeir brugðust mér augljóslega í
þessu máli og þar með öllum sem
segja sannleikann undir nafni. Það
er refsivert að mati Hæstaréttar
Íslands. Fyrir það skal refsað –
um það gaf rétturinn héraðsdómi
fyrirmæli.
Ef starfsfólk fyrirtækja Baugs-
manna, heildsalar á Íslandi eða
aðrir þeir sem vitneskju hafa um
misferli sem fram fer innan veggja
Baugs eða þeirra fyrirtækja og tjá
sig um það, eiga þeir aðilar á
hættu að verða ákærðir og dæmd-
ir fyrir það. Ef það eru skilaboð
dómstóla er íslenska þjóðin í mikl-
um vanda.
Ég hvet íslensku þjóðina til að
vakna, losa sig undan takinu og
tala hiklaust undir nafni. Koma
fram og segja sannleikann um
Bónus, Baug og hvað annað, sem
grefur undan sjálfsvirðingu þjóð-
arinnar.
Sannleikurinn skal
alltaf vera sagna bestur
Jón Gerald Sullenberger
skrifar um Baugsmálið »Ég hvet íslenskuþjóðina til að vakna,
losa sig undan takinu og
tala hiklaust undir
nafni.
Jón Gerald
Sullenberger
Höfundur er framkvæmdastjóri
Nordica, Inc.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
SIGLINGASTOFNUN
Stefnumótun í samgöngum
Samgönguráð efnir til fjórða fundar í fundaröð sinni um
stefnumótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er:
Samgöngur og umhverfi
• Vegagerð og umhverfi.
Matthildur Bára Stefánsdóttir deildarstjóri hjá Vegagerðinni.
• Losun gróðurhúsalofttegunda frá skipum.
Jón Bernódusson skipaverkfræðingur hjá Siglingastofnun.
• Græn framtíð flugsins.
Sveinn V. Ólafsson verkfræðingur hjá Flugmálastjórn.
• Umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 21. nóvember 2007
kl. 15 - 17 á Grand Hótel Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og
öllum er heimill aðgangur. Væntanlegir þátttakendur eru
vinsamlegast beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is
eigi síðar en klukkan 12:00 þann 20. nóvember 2007.
Samgönguráð
Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin
Samgönguráðuneytið
Bónus-
vinningur
43
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
Fá›u flér
mi›a fyrir
kl. 17
á morgun
e›a taktu
séns á
a› missa
af flessu
!
LANG
STÆRSTI
BÓNUS-
VINNINGUR
ÍSLANDS-
SÖGUNNAR?
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
0
8
6
7
Potturinn stefnir í 50 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í 200
milljónir og nú er komin upp sú skemmtilega staða að þú getur
hugsanlega unnið bónuspott upp á heilar 43 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, nældu þér í áskrift.