Morgunblaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jóhann Ey-mundsson fædd-
ist á Vatneyri við
Patreksfjörð 3.
september 1927.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 12. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Margrét Jóhanns-
dóttir, f. í Fjörðum
12.3. 1905, d. 30.5.
1988 og Eymundur
Austmann Frið-
laugsson, f. á Pat-
reksfirði 20.7. 1907, d. 2.6. 1988.
Jóhann var elstur fjögurra
bræðra, hinir eru: Alfreð, f. 1929,
maki Unnur Ólafsdóttir, Ingi-
mundur, f. 1935, maki Elínborg
Guðmundsdóttir, og Kristinn, f.
1949, maki Ragnhildur Magnús-
dóttir.
Hinn 23. ágúst 1947 gekk Jó-
hann að eiga Þórhöllu Karls-
dóttur, f. í Reykjavík 28.12. 1926.
Foreldrar hennar voru Guðrún
Sigríður Þorsteinsdóttir, f. á Orm-
stöðum í Grímsneshreppi 12.9.
1898, d. 10.7. 1970, og Karl Har-
aldur Óskar Þórhallason, f. í
Reykjavík 25.2. 1896, d. 11.3. 1974.
Börn Jóhanns og Þórhöllu eru: 1)
Margrét Austmann, f. 30.12. 1946,
d. 2.3. 1974, maki Ómar Péturs-
son, f. 25.8. 1946. Dætur þeirra: a)
Helena, f. 12.9. 1966, maki Rick-
ard Anderson, börn þeirra Pierre
og Patricia Margrét. b) Sigrún, f.
12.9. 1966, maki Christer Sand-
gren, börn þeirra Símon og
Thelma Margrét. 2) Sigríður Aust-
Fannar og Erik Þór. b) Margrét
Ýr Austmann 24.1. 1998. c) Viðar
Örn Austmann 2.8. 2000. 6) Elfa
Dís Austmann, f. 8.11. 1964, maki
Páll Blöndal 15.4. 1955, börn
þeirra Viktor Blöndal, f. 12.5.
1988, og Selma Blöndal, f. 24.10.
1992.
Ungur að árum flutti Jóhann frá
Patreksfirði suður til Reykjavíkur
með foreldum sínum. Hann nam
trésmíðar, útskrifaðist sem húsa-
smíðameistari og starfaði alla tíð
við það að einhverju leyti. Jóhann
og Dadda, kona hans, hófu ung
sambúð og giftu sig árið 1947. Jó-
hann byggði æskuheimili fjöl-
skyldunnar á Víghólastíg 16 auk
margra annarra húsa. Hann var
tónlistarmenntaður og spilaði á
harmonikku við hin ýmsu tilefni.
Þar má nefna skemmtanahald í
Breiðfirðingabúð, Gúttó í Hafnar-
firði og Bjarkarlundi, ásamt
mörgum öðrum stöðum. Honum til
halds og trausts voru þeir Jenni
Jóns og Ágúst Pétursson en saman
mynduðu þeir hljómsveitina
Hljómatríóið sem naut mikilla vin-
sælda meðal þjóðarinnar. Eftir Jó-
hann liggja nokkur dægurlög og
ber þar hæst lagið „Útþrá“. Árið
1954 fluttust þau hjónakorn í
Kópavoginn og voru þau meðal
þeirra fyrstu sem byggðu þar.
Stóran hluta starfsævinnar störf-
uðu þau saman að verslunar-
rekstri og ráku þau m.a. Stjörnu-
kaffi, Tjarnarbarinn, Verslunina
Drífu, Matvöruhornið og Árbæjar-
kjör. Eftir að verslunarrekstri
lauk snéru þau sér að áhugamál-
unum sem voru samverustundir
með fjölskyldunni, dvöl í sumar-
bústaðnum í Systralundi og ferða-
lög til Spánar með ættingjum og
vinum.
Útför Jóhanns fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
mann, f. 10.10. 1948,
maki Þórarinn
Magnússon, f. 9.11.
1945. Dóttir hennar
Halla Jóhanna, f.
14.3. 1967, maki
Ágúst Skúlason, syn-
ir þeirra Hafþór
Hrafn og Kristján
Hrafn. Börn Sigríðar
og Þórarins, Magnús
Gunnlaugur, f. 22.11.
1976, maki Árný
Marinósdóttir, sonur
þeirra óskírður, og
Tinna Ósk, f. 30.4.
1983. 3) Helga Austmann, f. 18.4.
1952, maki Guðlaugur H. Sigur-
geirsson, f. 21.2. 1948. Börn henn-
ar a) Berglind, f. 29.6. 1968, maki
Svavar Egilsson, börn þeirra
Helga Dís, Sigurbjörg Halla og Jó-
hann Egill. b) Jóhann Albert, f.
31.7. 1974, maki Jóhanna Kristín
Steinsdóttir, sonur þeirra Fannar
Smári. c) Edda Hrund, f. 8.2. 1979.
d) Þórhalla, f. 1.6. 1982, maki
Björn Ólafur Ingvarsson. Sonur
hennar Högni Snær. 4) Eymundur
Austmann, f. 26.4. 1957, maki Em-
ilía Sveinbjörnsdóttir, f. 24.9.
1958. Sonur hans Elías, f. 6.9.
1975, maki Ragnheiður Ingibjörg
Elmarsdóttir. Sonur hans, Adam
Freyr. Börn þeirra Alexandra og
Elmar Blær. Börn Eymundar og
Emilíu eru Hrafnhildur, f. 13.9.
1981, maki Ólafur Páll Snorrason,
og Jóhann, f. 17.8. 1988. 5) Viðar
Austmann, f. 23.2. 1961. Börn
hans: a) Erna Rán, f. 28.7. 1978,
maki Ingólfur Tómasson, synir
þeirra Tómas Nökkvi, Kristján
Hinsta kveðja til eiginmanns míns.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta,
þá helstu tryggð og vináttunnar ljós.
Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsdóttir.)
Þín að eilífu,
Þórhalla (Dadda).
Elsku pabbi.
Það er skrýtin tilfinningin að
vakna í dag og þú ert ekki til staðar í
Stigahlíðinni með henni mömmu. Ég
hef verið að líta inn hjá henni frá því
þú kvaddir okkur og er ég alltaf jafn
hissa þegar ég kem við, það vantar
þig. Það myndast tómarúm sem ekki
er hægt að fylla í nema með þér.
Skömmu eftir andlát þitt leit ég yf-
ir hópinn sem var samankominn og
hugsaði, nei hann pabbi er ekki dá-
inn. Hann lifir í okkur sem eftir erum.
Þarna vorum við samankomin þau
sem þér þótti vænst um. Ég fylltist
þakklæti að sjá mömmu og okkur
systkinin ásamt afkomendum okkar
votta þér virðingu. Löngun okkar að
vera hjá þér. Fyrir mér var þetta full-
vissa um að þér hafði tekist í lífinu
það sem okkur er hugsanlega ætlað:
Að vera farvegur og leiðarljós fyrir
þá sem á eftir koma.
Það er indælt að finna hversu stór-
an þátt þú hefur haft á mótun lífs
míns. Eins og flestir feður eru þá
varst þú fyrirmynd fyrir mig sem ég
er ákaflega stoltur af. Hvernig þú
leiddir mig áfram en slepptir mér
samt er það veganesti sem ég bý að
um ókomna tíð. Í kröppum dansi lífs-
ins á leið minni til andlegs þroska
komstu oft og leiddir mig af rangri
braut. Að horfa til baka og sjá hversu
vel þér tókst til, með blíðum en
ákveðnum hætti, að hafa áhrif á líf
mitt, ákvarðanir og gjörðir. Ást þín
og kærleikur skein í gegn, þér var svo
sannarlega ekki sama um drenginn.
Það var eins og þú værir alltaf rétt
handan við hornið, tilbúinn að grípa í
taumana ef mér fataðist flugið.
Leyfðir mér að reyna og læra af mis-
tökunum. Þannig er góður faðir og
frábær fyrirmynd. Og veistu pabbi,
ég nota sömu aðferðina á börnin mín.
Að vita af þér og mömmu var mér
ómetanlegt þegar ég var að reyna
mig í lífinu. Þú stóðst svo sannarlega
með mér þegar gaf á. Elsku pabbi ég
finn fyrir þér í mér, ég finn fyrir þér í
börnunum mínum. Ég elska þig að ei-
lífu – takk fyrir allt.
Þinn sonur,
Viðar.
Elsku pabbi.
Þegar við nú kveðjum þig í dag
kemur upp í hugann fjöldi góðra
minninga, en eitt atvik langar mig að
rifja upp frá því í sumar er leið. Eins
og fram hefur komið er pabbi fæddur
á Patreksfirði og er sannur Vestfirð-
ingur. Þaðan á hann margar góðar
minningar frá æskuárunum. Á ferða-
lagi okkar Tóta um Vestfirði í sumar
dvöldum við á Patró og hringdum þá í
pabba til þess að láta hann vísa okkur
veginn um þorpið og finna æsku-
heimili hans. Þegar pabbi svaraði
símanum og vissi hvar við vorum
stödd, lifnaði hann allur við og varð
sem unglingurinn sem hafði búið þar
áður fyrr. „Sigga, keyrðu upp á Urð-
arveg og í enda þeirrar götu sjáið þið
lítið tvílyft bárujárnshús. Þetta er
gamla húsið okkar,“ sagði hann með
hrifningu í röddinni. „Upp í risinu
sjáið þið lítinn glugga, þetta er gamla
herbergið mitt, þarna sat ég nú við
skrifborðið og las og skrifaði. Ef þið
keyrið aðeins neðar og að næstu
gatnamótum, sjáið þið húsið sem
Kristján Davíðsson frændi okkar átti
heima í. Og eruð þið búin að fara í
kirkjugarðinn að leiði afa og ömmu
(Sighvats og Kristjönu)? Þið munið
að krossa yfir leiðið þeirra frá mér og
mömmu þinni“.
Já, þessar minningar og ótal fleiri
koma upp í hugann þegar við kveðj-
um pabba í dag. Í huga hans var hann
ekki á leiðinni í burtu frá mömmu og
okkur öllum. Hann hafði alltaf trú á
að ná sér af þeim sjúkdómi sem
hrjáði hann.
Pabbi, þakka þér fyrir leiðsögnina í
gegnum lífið, þú varst góður pabbi og
pabbi allra barnanna í fjölskyldunni.
Elsku mamma, missir þinn og okk-
ar allra er mikill, megi Guð styðja þig
í sorginni.
Þín dóttir,
Sigríður Austmann.
Nú stöðvar ekkert tregatárin,
og tungu vart má hræra.
Þakka þér afi, öll góðu árin,
sem ótal minningar færa.
Já, vinskap þinn svo mikils ég met,
og minningar áfram lifa.
Mót áföllum lífsins svo lítið get,
en langar þó þetta að skrifa.
Margt er í minninganna heimi,
mun þar ljósið þitt skína.
Englar hjá Guði þig geymi,
við geymum svo minninguna þína.
(Höf. ók.)
Elsku afi okkar. Við þökkum þér
allt sem þú hefur gert fyrir okkur.
Sérstaklega þökkum við umhyggjuna
og kærleikann sem þú og amma
sýnduð okkur þegar við misstum
elsku mömmu okkar. Það er djúp
sorg sem fylgir því að kveðja þig
elsku afi en gott að vita að þið
mamma hafið sameinast aftur.
Guð blessi þig elsku afi okkar.
Þínar,
Helena og Sigrún.
Tengdafaðir minn Jóhann Ey-
mundsson er fallinn frá áttræður að
aldri.
Ég mun ætíð minnast Jóhanns
með þakklæti og virðingu. Þakklæti
fyrir öll þau ár sem ég hef átt þess
kost að þekkja hann og hans góðu
konu og fjölskyldu. Og með virðingu
fyrir þeim mannkostum og þeirri
heilsteyptu persónu sem hann hafði
að geyma.
Þegar ég lít yfir þessi liðnu ár er
mér ofarlega í huga sú mikla lífsgleði,
gáski og glettni sem ég upplifði þegar
fundum okkar bar saman. Þar var
hann hrókur alls fagnaðar hvort sem
var á heimili þeirra hjóna, í sumarbú-
staðnum eða annars staðar þar sem
fjölskyldan kom saman. Á slíkum
stundum skorti aldrei umræðuefnin.
Jóhann var lærður smiður en
stundaði einnig ýmsa aðra starfsemi
og atvinnurekstur. Mér eru minnis-
stæð þau ár sem þau hjónin ráku
verslun. Þá var fastur liður í jólaund-
irbúningi minnar fjölskyldu að fara til
Jóa og Döddu og gera þar jólainn-
kaupin.
Þau hjónin ferðuðust talsvert er-
lendis og á fimmtugsafmæli konu
minnar sóttum við þau heim á þeirra
heimaslóðum erlendis, þ.e. á Beni-
dorm. Þá var glatt á hjalla og margt
skrafað.
Nú er Jóhann ekki lengur meðal
okkar hér á jörð en minningin lifir um
góðan dreng og glaðar stundir og
þannig mun ég ætíð geyma hann í
mínum huga.
Ég votta eftirlifandi eiginkonu,
börnum og fjölskyldunni allri mína
dýpstu samúð.
Þórarinn Magnússon.
Elsku afi minn, það er ennþá svo
óraunverulegt að þú sért farinn og ég
velti því fyrir mér hvað það er sem
tekur við. Ég vona svo innilega að
Maddý hafi tekið vel á móti þér. Ég
og Högni fórum með bænirnar í
fyrrakvöld og þegar ég bað Guð um
að passa þig sagði Högni að það
þyrfti ekki því að þú værir komin til
hans. Það eru svo margar góðar
stundir sem við höfum átt saman og
þú varst alltaf svo góður og skemmti-
legur afi.
Minningarnar eru góðar og það er
svo skrítið hvað litlar stundir sem
manni fannst kannski ekki merkileg-
ar þá, eru þær stundir sem ég hugsa
mikið um þessa dagana. Eins og þeg-
ar þú kenndir mér að flauta með
grasi, ég hef örugglega ekki verið
mikið eldri en 8 ára þegar við fórum í
göngutúr uppí bústað og settumst í
laut og æfðum okkur að flauta og
þegar þú réðst mig og Eddu í „vinnu“
við að hjálpa þér að smíða viðbygg-
inguna við bústaðinn og þú rakst okk-
ur nokkrum sinnum á dag því við vor-
um ekkert í vinnunni.
Sem barn man ég eftir því að það
var skemmtilegast að fara í sund með
afa og þegar við fórum saman til
Benidorm minnist ég þess hvað það
var gaman að leika í sjónum með afa,
þú hentir mér af vindsænginni og
stríddir stundum svo mikið að maður
var alveg að drukkna. Þú gafst þér
alltaf tíma fyrir okkur barnabörnin,
sýndir okkur galdrabrögð og sagðir
okkur sögum og vísur. Vísurnar gat
ég aldrei munað en þá sagðir þú mér
þær bara aftur og aftur. Mér finnst
svo gott að Högni hafi fengið að
kynnast afa sínum. Ég elska þig, afi,
og ég á eftir að sakna þín óendanlega
mikið.
Með sínum dauða hann deyddi
dauðann og sigur vann,
makt hans og afli eyddi,
ekkert mig skaða kann.
Þó leggist lík í jörðu,
lifir mín sála frí;
hún mætir aldrei hörðu
himneskri sælu í.
(Hallgrímur Pétursson)
Þórhalla.
Elsku afi minn Ofboðslega þykir
mér nú vænt um þig. Og ennþá trúi
ég ekki að svona sé staðan orðin,
þetta gerðist allt svo ótrúlega hratt.
Ef ekki væri fyrir veikindin er ég viss
um að þú værir ennþá í fullu fjöri eins
og þér var einum lagið; alltaf grínast
og slá á létta strengi. Þú varst sterk-
ur karakter og ég bar alltaf rosalega
mikla virðingu fyrir þér. Orð fá ekki
lýst hversu mikið ég á eftir að sakna
þín, elsku afi minn. En ég veit að nú
líður þér betur og það er þá örlítil
huggun í þessari gríðarlegu sorg. Ég
veit líka að elsku amma mín á eftir að
sakna þín mikið en ég lofa þér því að
við munum öll passa vel upp á hana
og styðja hana gegnum þessa erfiðu
tíma. Hvíl í friði.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þín,
Tinna Ósk.
Með þessum orðum viljum við
minnast afa.
Það er svo óraunverulegt að hann
sé farinn frá okkur.
Við eigum ótal minningar um hann
sem verða ávallt vel geymdar í hjarta
okkar. Það sem stendur upp úr er
hversu ótrúlega hress og kátur hann
var alltaf. Hann gat komið öllum til að
hlæja hvenær sem var. Það var alltaf
svo gaman að koma í heimsókn því
maður átti alltaf von á skemmtilegum
bröndurum, töfrabrögðum, söng og
gleði.
Við kveðjum hann með miklum
söknuði og um leið þökkum við guði
fyrir að hafa átt svona yndislegan og
góðan afa.
Þó þú sért farinn, hef ég þinn anda,
yfir mér vakir þín sál, svo hlý í skýj-
unum, sé þig brosa til mín.
Við elskum þig, kæri afi!
Jóhann, Hrafnhildur, Óli Páll.
Langt úr fjarlægð, elsku afi minn,
ómar hinsta kveðja nú til þín.
En allt hið góða, er ég hlaut hjá þér,
ég allar stundir geymi í hjarta mér.
Ég man frá bernsku mildi og kærleik þinn,
man hve oft þú gladdir huga minn.
Og glæddir allt hið góða í minni sál,
að gleðja var þitt hjartans mál.
Og hvar um heim, sem liggur leiðin mín,
þá lýsa mér hin góðu áhrif þín.
Mér örlátur gafstu af elskuríkri lund,
og aldrei brást þín tryggð að hinstu stund.
Af heitu hjarta allt ég þakka þér,
þínar gjafir sem þú veittir mér.
Þín blessuð minning býr mér ætíð hjá,
sem björtum geislum strái veg minn á.
(Höf. ók.)
Elsku afi okkar, nú ert þú farinn
eftir hetjulega baráttu við þennan ill-
víga sjúkdóm.
Þú fórst alltof snemma frá okkur.
Við sem ætluðum að fá að hugsa
um þig í ellinni eftir allar þær gjafir
sem þú hefur gefið okkur í gegnum
lífið. Við vorum svo auðugar að eiga
yndislegan afa eins og þig og höfum
alltaf verið svo stoltar af þér, allir
höfðu eitthvað gott um þig að segja.
Þú varst þeim hæfileikum gæddur
að þú snertir fólk með hlýju þinni,
einlægni og glaðlegri nærveru.
Það var alltaf svo gott að leita til
þín og sama hversu illa okkur leið, þá
fékkstu okkur til brosa og horfa á
björtu hliðarnar, allt fram á þinn síð-
asta dag.
Þannig hafið þið amma kennt okk-
ur börnunum að fara í gegnum lífið
og sýnt okkur hversu mikils virði það
er að fjölskyldan standi saman.
Þið amma hafið kennt okkur svo
ótal margt gott í lífinu, svo mörg og
góð gildi, sem við berum áfram til
barnanna okkar, eins og að fara alltaf
með bænirnar okkar og fara aldrei
ósátt að sofa á kvöldin. Fyrirgefning-
in var í hávegum höfð hjá ykkur.
Þegar við vorum litlar elskuðum
við að vera hjá þér og ömmu uppi á
Víghólastíg, kúra hjá ykkur og hlusta
á sögur fyrir svefninn – hjá ykkur
upplifðum við alltaf svo mikið öryggi
og að vel væri um okkur hugsað.
Við elskuðum það svo heitt að vera
Jóhann
Eymundsson
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is