Morgunblaðið - 20.11.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 27
hjá ykkur, hver minning er dýrmæt
sem perla.
Þú byggðir, af miklum dugnaði,
æskuheimili okkar stórfjölskyldunn-
ar og lagðir hart að þér til að fjöl-
skyldunni liði sem best – þannig varst
þú afi, umhugað um aðra – alltaf svo
örlátur og hafðir mikinn metnað í að
veita vel.
Fyrir okkur varstu ekki bara afi,
heldur hetjan okkar sem aldrei brást.
Við litum alltaf á þig sem pabba okk-
ar og þannig vildir þú líka hafa það.
Þú elskaðir barnabörnin þín öll
sem eitt, hvert á sinn máta, en það
var okkur mikil gæfa að fá að alast
svona mikið upp hjá ykkur.
Samverustundir okkar með þér og
ömmu í ykkar starfi eru okkur dýr-
mæt reynsla, minningarnar ógleym-
anlegar.
Okkur fannst svo mikilvægt að
eiga þig og ömmu sem voruð alltaf
samstiga, ykkur tókst svo vel að
vinna saman í einu og öllu og voruð
okkur góð fyrirmynd. Við vitum að
aðskilnaður ykkar ömmu er óendan-
lega sár og við munum gera allt sem í
okkar valdi stendur til þess að styðja
ömmu í hennar djúpu sorg.
Elsku afi hafðu þökk fyrir allt og
allt og við kveðjum þig með bæninni
okkar, þangað til við hittumst aftur:
Láttu ljósið þitt,
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
sonur Guðs, Jesú mæti.
Þínar alltaf,
Halla Jóhanna og Berglind.
Elsku afi (langafi).
Okkur langar að skrifa nokkur orð
til þín, en við erum svo litlir að
mamma og pabbi ætla að hjálpa okk-
ur.
Takk, elsku afi, fyrir að vera alltaf
svona góður við okkur, skemmtilegur
og hlýr. Alltaf varst þú strax mættur
til okkar ef eitthvað var að gerast og
við eigum svo dýrmætar myndir af
þér og ömmu þegar þið haldið á okk-
ur nýfæddum uppi á spítala eða ný-
skírðum í fanginu á ykkur. Alltaf vor-
uð þið amma fyrst til að mæta í
afmælin okkar.
Við vitum að þér þótti voða vænt
um okkur, straukst kinnarnar okkar
alltaf svo mjúkt og fallega. Okkur
þykir voða vænt um þig, elsku afi, og
erum búnir að vera voða leiðir yfir
veikindunum þínum. Í bænunum
okkar biðjum við góðan Guð og engl-
ana fallegu að passa þig og ömmu,
elsku afi okkar.
Litlu „Hrafnarnir“ þínir;
Hafþór Hrafn og
Kristján Hrafn.
Í dag, 20. nóv. kveð ég stóra bróður
minn Jóhann Sigurð Eymundsson.
Hanni, eins og allir kölluðu hann,
var einn af frumbyggjum Kópavogs
og byggði sér og fjölskyldu sinni
glæsihús að Víghólastíg 16. Á þessum
árum var baráttan hörð en með dugn-
aði og samheldni ykkar Döddu klár-
uðuð þið að byggja húsið ykkar upp á
þrjár hæðir en ekki reyndist tími til
að byggja bílskúrinn. Þú fékkst í
vöggugjöf einstaka hæfileika sem
nýttust þér vel í lífsbaráttunni. Á þín-
um yngri árum vestur á Patreksfirði
þar sem þú fæddist, varst þú mikið í
sundi. Stoltur sagði pabbi mér frá því
þegar hann hét á þig að ef þú ynnir
sundmótið gæfi hann þér hýruna sem
hann vann sér inn með spilamennsku
á ballinu nóttina fyrir mótið og þú
vannst mótið. Þú lærðir húsasmíði
ásamt því að læra á harmónikku og
varst með eindæmum handlaginn og
útsjónarsamur.
Á mínum barnsárum í Kópavogin-
um varst þú mér sem faðir og Dadda
sem móðir. Heimilið ykkar stóð mér
alltaf opið og í ferðirnar sem þið fóruð
í fékk ég að koma með. Til dæmis
þegar við fórum vestur á Patró til
ömmu og þú skiptir um gluggana í
litla húsinu hennar og Mansi frændi
hjálpaði þér. Þó að 22 ár væru á milli
okkar kom það ekki í veg fyrir að ég
gæti gert eitthvað fyrir þig og mikið
var ég hreykin þegar þú baðst mig
um að kaupa fyrir þig barnavagn og
myndavél árið sem Elfa Dís fæddist,
þá var ég í millilandasiglingum.
Alltaf spilaðir þú í öllum sam-
kvæmum í fjölskyldunni og eftir glas
af góðu þegar þið bræður, Alfreð á
munnhörpuna og Ingi á gítarinn, tók-
uð ykkur til og Dadda leiddi sönginn
þá var nú gaman.
Af mörgu er að taka og minning-
arnar hrannast upp en ekki treysti ég
mér til að skrifa um lífshlaup þitt, það
er svo mikið sem hægt er að segja um
þig. Kímnin var alltaf til staðar og þú
varst meinstríðinn. Hvað þú gast
strítt henni mömmu þegar þú hringd-
ir og breyttir röddinni, þóttist vera
Lauga frænka og talaðir við hana um
heima og geima og sú gamla beit allt-
af á og hvað við hlógum mikið að
þessu (en ekki mamma). Þrjóskur
varstu með eindæmum og vorum við
oft ósammála, Ingi bróðir sagði við
mig að við værum svo þrjóskir, ég og
þú, að það væri leitun að öðru eins,
börnin okkar geta staðfest það. Tal-
andi um börn þá varst þú alveg ótrú-
lega barngóður, og fengu mín börn að
njóta samveru þinnar og glaðværðar.
Þið Dadda náðuð þeim einstaka ár-
angri að eiga 60 ára hjúskaparafmæli
í ágúst síðastliðnum, þið voruð ótrú-
lega samrýnd og höfðingjar heim að
sækja. Hjón sem aðrir mættu taka til
fyrirmyndar. Í laginu Brúnaljósin
Brúnu, þar sem Jenni Jóns samdi lag
og texta, segir í einu erindinu:
Bjartar vonir þínar vaka og þrá
um vorsins fögru drauma lönd,
og vin, sem þú gafst hjarta þitt og hönd.
Elsku Dadda, Sigga, Helga, Ey-
mundur, Viðar, Elfa Dís og fjölskyld-
ur, guð gefi ykkur styrk í ykkar
miklu sorg. Við Ragnhildur og fjöl-
skyldur okkar sendum ykkur innileg-
ar samúðarkveðjur við fráfall fjöl-
skylduföður og leiðtoga.
Hvíl þú í friði, kæri bróðir.
Kristinn (Kiddi).
Meira: mbl.is/minningar
Elsku Jóhann mágur.
Það er skammt stórra högga á milli
þegar maðurinn með ljáinn fer af
stað. Nú þú, kæri mágur, og Halli
bróðir fyrir einni viku. Ég man eins
og gerst hafi í gær þó liðin séu 62 ár
þegar Dadda systir mín kom með
draumaprinsinn sinn og kynnti fyrir
fjölskyldunni. Þetta var stór viðburð-
ur í lífi okkar hinna í fjölskyldunni því
hún var sú fyrsta af 9 systkina hóp
sem það gerði. Ég var mjög montin af
þessum mági mínum sem spilaði svo
vel á harmónikku að undrun sætti.
Ég velti því oft fyrir mér þá, hvernig
hann færi að því að spila með engar
nótur án þess að horfa á takkana og
sló aldrei feilnótu. Mér fannst hann
snillingur.
Það var eins og þú kæri mágur og
Dadda systir hafið verið valin hvort
fyrir annað svo samstiga voruð þið í
gegnum lífið. Og glaðværðina skorti
ekki þar sem þið voruð annars vegar
enda laðaðist fólk að ykkur hvar sem
þið fóruð.
Vegir Guðs eru órannsakanlegir.
Eða var það kannski engin tilviljun,
kæri mágur, að þú og Halli bróðir
gerðust báðir smiðir og unnuð mikið
saman, giftuð ykkur samtímis, það
var systkinabrúðkaup. Og verðið síð-
an samferða yfir móðuna miklu.
Vertu blessaður, elsku mágur.
Far þú í friði friður, Guðs þig
blessi.
Kristín Karlsdóttir.
Karl Alvarsson.
Kæri svili, nú þegar þú ert allur
minnist maður fyrri tíma, þegar ég
kom inn í þessa fjölskyldu nítján ára
að aldri. Mér þótti vænt um hvað allir
tóku mér, þessum feimna unga
manni, vel. Gott var til þín og Döddu
að leita ef einhvers þurfti með. Þegar
við Kristín vildum reisa okkur þak
yfir höfuð. Þá átti lóðin sem við áttum
kost á að kosta 2000 kr. sem var mik-
ið fé þá enda vikulaun mín þá 700 kr.
Þá nutum við hjálpsemi ykkar og vin-
áttu.Við nutum þess einnig að þú
varst trésmiður. Ef þín og Kristjáns
svila okkar hefði ekki notið við hefði
húsbyggingin ekki tekist. Þakka þér
fyrir það, þakka þér og Döddu fyrir
vináttuna, þakka þér fyrir fallegu
lögin þín.
Góða ferð, kæri svili
Góður Guð styrki fjölskyldu þína í
sorg sinni.
Alvar Óskarsson.
Kær vinur minn Jóhann Austmann
Eymundsson hefur kvatt og haldið í
þá ferð, sem við eigum öll fyrir hönd-
um. Á hugann leita minningar síðustu
50 ára.
Mikill samgangur var á milli fjöl-
skyldna okkar og víst er að þau hjón
Jói og Dadda voru nánustu vinir mín-
ir og minnar fjölskyldu um langt
skeið. Þar blandaðist saman sameig-
inlegur atvinnurekstur og óteljandi
gleði- og ánægjustundir sem ylja um
hjartarætur á kveðjustund. Jói var
með afbrigðum skemmtilegur maður
og fjölhæfur. Spilaði á píanó og harm-
oniku eigin lög og annarra, þar sem
hann fékkst við tónsmíðar með góð-
um árangri. Hann var hrókur alls
fagnaðar á gleðistundum, léttur og
skemmtilegur og ávallt stutt í grínið.
Það voru unaðsstundir þegar þau
hjón tóku lagið á góðum stundum á
Vighólastígnum með góðum vinum.
Þá var sungið í kjallaranum og börn
og barnabörn á annarri og þriðju hæð
og allir voru vinir. Gleðin ríkti ávallt
og samkenndin með vinunum var í
fyrirrúmi, þótt ekki væri alltaf sléttur
sjór í kringum þau hjón. Móttökurn-
ar á heimili þeirra voru ávallt þannig
að öllum var tekið opnum örmum og
ávallt var rúm fyrir alla. Á kveðju-
stund er gott að eiga minninguna um
góðan mann, sem bar með sér þá eig-
inleika að gera líf mitt og vafalaust
annarra betra og sælla en annars
væri. Þegar ég heyri góðs manns get-
ið kemur mér ávallt Jói í hug.
Á kveðjustund vil ég votta mína
dýpstu samúð Döddu minni, Siggu,
Helgu, Eymundi og Viðari og fjöl-
skyldum þeirra, Guð geymi ykkur öll.
Bogga Sigfúsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
MAGGÝ LÁRENTSÍNUSDÓTTIR,
Skólastíg 23,
Stykkishólmi,
lést á Sankti Franciskusspítalanum í Stykkishólmi
mánudaginn 19. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágúst Bjartmars.
✝
Elskulegur faðir, sonur, bróðir og afi,
SVEINBJÖRN BJARKASON,
Fannarfelli 6,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 18. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Katrín og Lára Sveinbjörnsdætur,
Bjarki Elíasson,
Björk, Stefán og Þórunn María Bjarkabörn,
Árni Haukur og Þórdís Björnsbörn
og afabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
MARTEINN VIGFÚSSON,
Hafnarbyggð 35,
Vopnafirði,
lést á heimili sínu að kvöldi föstudagsins 16. nóvember.
Bergþóra Friðbjörnsdóttir,
Friðbjörn Marteinsson, Þórunn Björnsdóttir
og börn.
✝
Ástkær systir mín,
EDDA MAREN SIGURÐARDÓTTIR FORTIER,
4201 W. Iowa Avenue,
Tampa,
33616 Florida,
lést á sjúkrahúsi þann 4. nóvember sl.
Bálför hennar hefur farið fram.
Þeim sem myndu vilja minnast hennar er bent á
Tampa Firefighters Charity Fund Inc., 3116 N. Boulevard,
Tampa, 33603 Florida, en fjáröflun þeim til handa var eitt
af hugðarefnum hinnar látnu.
Sigrún Hlín Sigurðardóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR KR. ÁRNASON
skipstjóri,
lést að heimili sínu á Hrafnistu í Hafnarfirði
sunnudaginn 18. nóvember sl.
Útförin auglýst síðar.
Friðrik Sigurðsson, Margrét Hlíf Eydal,
Steinar Sigurðsson, Helga Sigurjónsdóttir,
Árni Þór Sigurðsson, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson, Ene Cordt Andersen,
Sigurður Páll Sigurðsson
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
KRISTINN G. ÓSKARSSON,
Álfhólsvegi 151,
Kópavogi,
lést af slysförum föstudaginn 16. nóvember.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Guðmunda Fanney Pálsdóttir
og fjölskylda.
✝
Okkar ástkæra
Áslaug Pétursdóttir,
Þinghólsbraut 18,
Kópavogi,
andaðist miðvikudaginn 14. nóvember á líknardeild
LSH, Kópavogi.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
22. nóvember kl. 13.00.
Jón Haukur Jóelsson,
Pétur Jónsson, Ásta Lorange,
Jón Haukur, Kristinn og Rakel.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR RÍKHARÐUR GUNNARSSON,
bifreiðasmiður og bílamálari,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, Reykjavík,
miðvikudaginn 14. nóvember.
Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknar-
stofnanir.
Katrín Gunnarsdóttir, Haynie F. Trotter,
Björg Gunnarsdóttir, Sigurður Gylfi Sigfússon,
afa- og langafabörn.