Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Jarðskjálftafræðingar Veðurstofunnarfóru yfir mælingar á smáum skjálftum
sem fundust á og við Selfoss í gærkvöldi, en
almennt telja þeir ekki ástæðu til að ætla að
hrinan sé fyrirboði um stærri skjálfta. Ekki
skemmdust hlutir þótt ljóskúplar losnuðu
og myndir í hillum dyttu.
„ÞETTA var mestmegnis hávaði og miklar drunur
og það skalf svolítið,“ segir Ólafur Þórarinsson,
bóndi á Laugardælum, um jarðskjálftana við Sel-
foss í gær. Töluverð jarðskjálftahrina reið yfir í
gærkvöldi í kjölfar skjálfta upp á 3,5 stig en hann
átti upptök tæplega tvo kílómetra norðan við Sel-
foss. Annar skjálfti af svipaðri stærð varð á sama
stað sjö mínútum síðar og síðan fylgdu fjölmargir í
kjölfarið langt fram eftir kvöldi í gær.
„Við vorum einmitt að mjólka kýrnar þegar
skjálftarnir komu rétt fyrir klukkan 19. Kýrnar
rétt litu upp en héldu síðan áfram að jórtra,“ segir
Ólafur. „Þær voru frekar rólegar yfir þessu.“ Ólaf-
ur segist ekki hafa orðið var við að tæknibúnaður í
fjósinu hafi skemmst. Þaðan af síður hreyfðust
munir í hillum.
„Ég upplifði þetta sem miklar drunur og maður
kippti sér ekkert upp við þetta.“
Á lögreglustöðinni skalf duglega innandyra á
milli klukkan 21:30 og 22, þótt vaktmönnum þar
væri lítt brugðið. Varðstjóri kvaðst heldur ekki
hafa fengið tilkynningar um skemmdir eða meiðsl
á fólki. Þó munu einhver börn sem voru ein heima
hafa orðið hrædd en brugðist rétt við samkvæmt
frásögn útvarpsins í gærkvöldi.
Ekkert í líkingu við skjálftana árið 2000
Á bænum Halakoti var svipaða sögu að segja og
á nágrannabænum Laugardælum. „Ég bjó á Sel-
fossi þegar skjálftarnir árið 2000 urðu en skjálft-
arnir í dag voru ekkert í líkingu við það,“ sagði
Svanhvít Kristjánsdóttir, ábúandi á bænum Hala-
koti. Steinhús hennar á Selfossi fór illa í Suður-
landsskjálftanum 2000. „Þetta voru miklar drunur
í dag og við urðum greinilega vör við skjálftana en
það glamraði hins vegar ekkert í skápum eða neitt
þvílíkt.“
Skepnum á bænum brá ekki við skjálftana að
sögn Svanhvítar. Hún var stödd í bíl sínum þegar
skjálftinn upp 3,5 á Richter reið yfir en eftir-
skjálftana upplifði hún á jörðu, þótt ekki væru
miklir.
„Kýrnar rétt litu upp og
héldu síðan áfram að jórtra“
Fólk upplifði miklar drunur vegna Selfossskjálftanna í gær en ekki mikinn hristing
FÉLAG vélstjóra og málmtækni-
manna, VM, hélt í gærkvöldi upp-
lýsingafund með pólskum félögum
sínum þar sem farið var yfir ýmis
réttindamál. Fundurinn fór allur
fram á pólsku en hátt á þriðja
hundrað pólskir félagsmenn starfa í
málm- og véltækniiðnaði hérlendis.
Á fundinum var farið yfir grund-
vallaratriði kjarasamninga og þann
rétt sem félagsmenn eiga hjá félag-
inu. Fram kemur að nokkuð hafi
borið á því að erlendir iðnaðarmenn
hafi ekki fengið greitt sem slíkir og
það hafi grafið undan stöðu iðn-
aðarmanna. Segir að markmið VM
sé að ná tengslum við þennan hóp
félagsmanna til þess að vita hvaða
upplýsingar vantar og á hvaða svið-
um er verið að brjóta á þeim kjara-
samninga. Þá voru kynnt námskeið
á pólsku á fundinum um réttindi á
vinnumarkaði hér. Morgunblaðið/Ómar
VM fundar
með pólskum
félags-
mönnum
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
TVEIR sextán ára gamlir piltar
sitja nú í gæsluvarðhaldi í Hegning-
arhúsinu við Skólavörðustíg, þessu
aldargamla fangelsi sem rekið er á
undanþágu. Báðir eiga þeir langan
feril afbrota að baki og barnavernd-
aryfirvöld treysta sér ekki til að
vista þá. „Það er hart að barna-
verndaryfirvöld geti ekki tekið við
erfiðum unglingum, eða erfiðum
börnum öllu heldur, því þetta teljast
börn samkvæmt lögunum,“ segir
Erlendur S. Baldursson, afbrota-
fræðingur hjá Fangelsismálastofn-
un.
Samkvæmt samningi Fangels-
ismálastofnunar og Barnavernd-
arstofu er mögulegt að vista unga
afbrotamenn, þ.e. yngri en 18 ára,
sem hafa hlotið dóm eða verið úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald á þeim
meðferðarheimilum sem rekin eru á
vegum Barnaverndarstofu. Ef ung-
lingar eru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald og í einangrun vegna rann-
sóknarhagsmuna eða þeir eru
líklegir til að reyna strok er hægt að
vista þá á svokallaðri lokaðri deild.
Lokaða deildin er á Stuðlum, með-
ferðarheimili Barnaverndarstofu, en
hún skemmdist mikið í bruna í lok
ágúst og er enn óstarfhæf. Deildin
er nú í bráðabirgðaaðstöðu sem
rúmar þrjá unglinga en vonast er til
að viðgerðum á deildinni ljúki um
áramót. Um þessar mundir er einn
17 ára piltur sem dæmdur var í
fangelsi vistaður hjá Barnavernd-
arstofu.
Fangelsi er ekki fyrir börn
Götusmiðjan og SÁÁ hafa einnig
tekið við ungmennum skv. samningi
við Fangelsismálastofnun en til að
það sé mögulegt verður viðkomandi
að sýna samstarfsvilja.
Báðir eru síbrotamenn og annar
þeirra var úrskurðaður í gæslu-
varðhald vegna fólskulegrar árásar
á leigubílstjóra.
Erlendur S. Baldursson, afbrota-
fræðingur hjá Fangelsismálastofn-
un, telur að barnaverndaryf-
irvöldum eigi að bera skylda til að
taka við unglingum sem komast í
kast við lögin, jafnvel þó að um erfið
tilfelli sé að ræða. Þegar ungmennin
séu svo langt leidd í afbrotum að
þau hafi annaðhvort verið dæmd til
fangelsisrefsingar eða úrskurðuð í
gæsluvarðhald sé oft um svo erfið
tilfelli að ræða að Barnavernd-
arstofa treysti sér ekki til að taka á
móti þeim. Ungmennin hafi brennt
brýr að baki sér hjá Barnavernd-
arstofu t.d. með því að ráðast á
starfsfólk, strjúka, stela bílum
o.s.frv. „Mér finnst að Barnavernd-
arstofa ætti að geta tekið á svona
erfiðum málum en til þess skortir
hana væntanlega fé, eins og alla
aðra, eða mannskap,“ segir Erlend-
ur. Hann segir að þótt börn geti
framið alvarleg afbrot og verið
býsna harðsvíraðir afbrotamenn séu
þau þrátt fyrir allt börn. Börnin sem
eigi í þessum vanda eigi að vera á
meðferðarheimilum en ekki í fang-
elsum, fangelsi séu engir staðir fyrir
börn. „Fangelsi og þær reglur sem
gilda þar og það samfélag sem þar
er er ekki fyrir börn,“ segir hann.
Samstarf gengið vel
Að sögn Erlendar er ekki unnt að
vista áðurnefnda pilta annars staðar
en í Hegningarhúsinu, eins og nú er
ástatt í fangelsum landsins. Hegn-
ingarhúsið sé af ýmsum ástæðum
mun skárri kostur en Litla-Hraun,
sem er öryggisfangelsi, og Kvía-
bryggja, sem er opið fangelsi, komi
heldur ekki til greina. Annar pilt-
urinn dvaldi þar raunar um tíma en
var sendur til baka að eigin ósk.
Erlendur tekur fram að samstarf
Barnaverndarstofu og Fangels-
ismálastofnunar hafi gengið vel þeg-
ar á það hafi reynt.
Afbrotafræðingi hjá Fangelsismálastofnun finnst að Barnaverndarstofa ætti að geta tekið við
piltunum „En til þess skortir hana væntanlega fé, eins og alla aðra, eða mannskap,“ segir hann
Tveir 16 ára í Hegningarhúsinu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fangelsi Ekki við hæfi barna.
SEX umsóknir bárust um embætti
ríkissaksóknara en umsóknarfrestur
rann út á mánudag. Dómsmálaráð-
herra veitir embættið frá og með
næstu áramótum en þá lætur Bogi
Nilsson af störfum.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
Egill Stephensen, saksóknari við
embætti ríkissaksóknara, Guðjón
Ólafur Jónsson, hæstaréttarlögmað-
ur, Jón H. Snorrason, aðstoðarlög-
reglustjóri og saksóknari embættis
lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu, Ólafur Þór Hauksson,
sýslumaður á Akranesi, Sigríður J.
Friðjónsdóttir, saksóknari við emb-
ætti ríkissaksóknara, og Valtýr Sig-
urðsson, forstjóri Fangelsismála-
stofnunar ríkisins.
Sex um-
sóknir
bárust
Embætti ríkissak-
sóknara að losna
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði um helgina akstur
þriggja ungra pilta í Hafnarfirði.
Ábending barst um að piltarnir væru
að aka um bæinn og enginn þeirra
hefði ökuréttindi. Þegar lögregla
stöðvaði bifreiðina var undir stýri
fjórtán ára piltur með þrjá farþega.
Allir voru piltarnir færðir á lög-
reglustöð þar sem skýrslutaka fór
fram. Kom þá fram að þrír piltanna
hefðu skipst á að aka og voru öku-
mennirnir 12, 14 og 15 ára gamlir.
Þeir höfðu tekið bifreiðina í leyfis-
leysi og verið á ferðinni um bæinn í
um tvær klukkustundir áður en lög-
regla stöðvaði þá.
Eftir skýrslutökur þurftu piltarnir
að bíða á lögreglustöðinni þar til for-
eldrar þeirra sóttu þá.
12 ára á
stolnum bíl
Morgunblaðið/Sverrir