Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 23
inn er mikilvægur og er
ætlað að tryggja þeim
hópi þjóðfélagsins rétt
sem síst getur borið
hönd fyrir höfuð sér.
Jólabókin í ár?
x x x
Víkverji hefur ekkikomist í jólabæk-
urnar að neinu gagni,
en var þó að hefjast
handa við lestur á
Minnisbók Sigurðar
Pálssonar. Bókin er
bráðskemmtileg og stóð
Víkverji sig að því að
hlæja upphátt að lýs-
ingum Sigurðar á raun-
um námsmannsins og prestssonarins
frá Skinnastöðum í Frakklandi. Þetta
var á þeim tíma, sem hvorki krít-
arkort né farsímar voru komnir til
sögunnar. Óratíma gat tekið að milli-
færa fé og leysa það út. Frásögn Sig-
urðar af því þegar hann reyndi að
opna bankabók í Toulouse er kostu-
leg. Það getur skipt miklu máli að
menn hafi húmor fyrir sjálfum sér og
það sannast í þessari skemmtilegu
bók.
x x x
Einhvern tímann sátu menn ogræddu málin og var spurt um
stöðu ljóðsins. „Gegnir Sigurður
Pálsson ekki þeirri stöðu?“ var spurt
á móti.
Víkverji er lönguhættur að reyna
að átta sig á kenjum
heilbrigðiskerfisins.
Hann hefur þó áttað sig
á því að það borgar sig
að veikjast eða slasast í
upphafi árs vegna þess
að gildi afsláttarkorta
miðast við almanaks-
árið. Einnig hefur vakið
furðu Víkverja að ekki
skuli komið til móts við
þá sem þurfa á gler-
augum að halda, ekki
einu sinni þegar börn
eiga í hlut. Tannlækn-
ingar barna eru greidd-
ar niður, hvort sem um
er að ræða eftirlit eða viðgerðir, og
það er sjálfsagt. En af hverju á það
sama ekki við um börn, sem þurfa á
gleraugum að halda. Með tannhirðu
er hægt að koma í veg fyrir tann-
skemmdir, en ekki er nokkur leið að
koma í veg fyrir þörfina fyrir gler-
augu. Það er hvorki hægt að bursta
augun, né viðhafa annað það viðhald,
sem skerpt gæti sjónina með sama
hætti og bægja má Karíusi og Bak-
tusi frá tönnunum.
x x x
Barnasáttmálinn er nú 18 ára ogþví er kannski við hæfi að bók
um hann kemur nú út á íslensku með
skírskotun til réttinda barna og ís-
lensks lagaumhverfis. Barnasáttmál-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Magnús Ólafsson frá Sveins-stöðum las umfjöllun um Jón-
as Hallgrímsson í Lesbók Morg-
unblaðsins:
Að því get ég aðeins vikið
í engan vil ég hnjóða.
Í lesbók Mogga las ég mikið
um listaskáldið góða.
Úttekt gerðu á liprum ljóðum
og lífsstíl þessa manns.
Birtu mynd af berum fljóðum
á bautarsteini hans.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrk-
ir um formann Framsóknarflokks-
ins:
Ærið glæstur ásýndar
af öðrum þar mun bera;
fremstur í liði Framsóknar
finnst mér Guðni vera.
Samið hefur verið um að bíl-
hræjum, sem safnað hefur verið
saman á Garðsstöðum í Ögursveit
við Djúp, skuli eytt, nema sextíu að
tölu. Þau fá að verða eftir. Um það
yrkir Auðunn Bragi Sveinsson:
Bílhræjunum brátt mun eytt,
– bundinn endi á vanhirðu.
Er það betra en ekki neitt;
– eftir verða sextíu!
Þegar Randver Þorlákssyni var
vikið úr Spaugstofunni orti Auðunn
Bragi:
Randvers bræður, beztu vinir,
bráðan sakna félagsmanns.
Og mér finnst þeir eitthvað linir
eftir snögglegt brotthvarf hans.
VÍSNAHORNIÐ
Af Guðna og
Lesbókinni
pebl@mbl.is
EFNABÆTING hveitis með fólín-
sýru til að freista þess að minnka
líkurnar á fæðingargöllum, til
dæmis klofnum hrygg, getur leitt
til alls konar annarra heilsufars-
vandamála, að sögn sérfræðinga,
að því er fram kemur á vefmiðli
BBC nýlega. Sér í lagi geti sýran
gegnsýrt lifur og farið óumbreytt
út í blóðið sem skaðað getur heils-
una.
Efnabæting af þessu tagi hefur
verið lögleidd í Bandríkjunum,
Kanada og í Chile þar sem hún
hefur vissulega dregið úr fæðing-
argöllum um allt að helming frá
því sem áður var þó enn séu menn
ekki algjörlega sammála um skað-
semi eða gagnsemi slíkrar efna-
bætingar í matvælum.
Varað við
fólínsýru
Morgunblaðið/Ásdís
Ófrísk Efnabæting hveitis með f́ól-
ínsýru er umdeild af sérfræðingum.
Fréttir á SMS
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-1
8
0
9
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
SkodaOctavia
SkodaOctavia TDI
Ímyndaðu þér
Afl og hagkvæmni
Það ríkir mikill friður og sátt á þeim heimilum sem
eiga Skoda Octavia TDI. Dísilvélin er í senn aflmikil
og eyðslugrönn, með aðeins 4,9 lítra eyðslu á
hverja hundrað kílómetra. Octavia TDI er fáanlegur
beinskiptur, sjálfskiptur og með sítengdu aldrifi.
• ESP stöðugleikakerfi og spólvörn
• aksturstölva
• tengi fyrir iPod
• sex hátalarar
• hanskahólf með kælibúnaði
• sex loftpúðar
• hraðastillir (cruise control)
• þokuljós í framstuðara
• armpúði milli framsæta
• hiti í sætum og speglum
• ISOFIX barnabílstólafestingar
• hæðarstillanleg framsæti
Álfelgur og heilsársdekk fylgja, takmarkað magn!
Það sem oftast er aukabúnaður er
staðalbúnaður í þessum glæsilega bíl.