Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 32

Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Sennilega var það árið 1977 sem hópi fólks var úthlutað lóð í Seljahverfinu. Lóðin var kölluð Til- raunareitur 1. Lóðarhafarnir áttu sjálfir að skipuleggja byggð á lóðinni í samvinnu við arkitekt og skipulags- yfirvöld. Og svo auðvitað félagsráð- gjafa frá borginni sem vann með hópnum að því að lægja öldur og koma í veg fyrir átök. Lóðarhafarnir voru á ýmsum aldri. Sumir ný- skriðnir úr skóla. Aðrir ráðsettir á seinni hluta starfsævinnar. Hug- myndir manna um húsagerð, stærð húsa, umfang sameignar, hvort byggja ætti úr steypu eða timbri voru nánast jafnmargar og lóðarhaf- arnir. Eftir á að hyggja er ótrúlegt hve vel tókst til. Þarna reis 13 húsa hverfi þar sem við bjuggum í rúm 15 ár. Yndislegt hverfi þar sem sam- gangur milli húsa var mikill og vin- átta varð til sem efldist og varir enn. Það er gæfa að eiga góða granna. Í næsta húsi bjuggu Hjörtur og Didda með börnin sín tvö þau Rikka og Þurí. Hlýtt heimili þar sem alltaf var gott að koma. Krakkarnir mynd- arlegir, Didda einstök og svo hann Hjörtur. Þar fór óvenjulegur maður. Hægur, jákvæður og greiðvikinn með afbrigðum. Hjörtur var stoltur af sínu. Hann hreykti sér af því að hafa náð í Diddu. Var ánægður með krakkana sína. Þótti húsið sitt flott og hest- arnir miklir gæðingar. Hann var mikill Skagfirðingur og fékk sér- stakan glampa í augun þegar sögur voru sagðar úr Skagafirði. Oftast voru það sögur um gleði, söng og vín. Svo var í honum kaupmannseðli. Hann langaði til að hagnast í við- skiptum. Fór stundum á uppboð og keypti hluti. Oftast á frábæru verði. Ekki er víst að hagnaðurinn hafi alltaf skilað sér í hús því okkur grun- ar að gjafmildi kaupmannsins hafi dregið úr gróðanum. Í hverfinu okkar myndaðist sá sið- ur að nágrannarnir litu inn hjá okk- ur undir miðnætti á Þorláksmessu. Kveikt var á kertum, smakkað á jólakökunum, opnaður konfektkassi og dreypt á rauðvíni. Slakað á eftir jólaundirbúninginn, vináttan ræktuð og hlegið svolítið. Þessar stundir hafa verið okkur ómetanlegar og vinirnir af tilraunareitnum hafa haldið áfram að líta til okkar á Þor- láksmessukvöldi þótt við höfum flust í annan borgarhluta. Hjörtur hefur alltaf mætt. Í fyrra mætti hann veik- ur. Honum var brugðið, en samt vongóður og hress. Næstu mánuði fengum við bara góðar fréttir af Hirti. Þar til í haust. Þá var ljóst hvert stefndi. Stundirnar með Hirti á Landspítalanum og síðar á líkn- ardeildinni í Kópavogi munum við geyma í hjarta okkar. Fárveikur hélt hann reisn sinni og jafnaðargeði og gerði síðustu samverustundirnar að notalegum vinafundi. Það verður einu kertinu færra þessa Þorláksmessu. Hjartar granna er sárt saknað. Megi minn- ingin um góðan dreng hjálpa Diddu og fjölskyldunni að takast á við sáran missi. Gestur Jónsson og Margrét Geirsdóttir. Eins og það er sárt að horfa á eftir góðum manni þá er gott að hann fékk sína hvíld þar sem hann var bú- inn að berjast svo hetjulega við erfið veikindi. Við kynntumst Hirti fyrir rúmum 14 árum, þegar Þuríður og Gísli hófu Hjörtur Þór Gunnarsson ✝ Hjörtur ÞórGunnarsson fæddist á Sauð- árkróki 16. sept- ember 1946. Hann lést á líknardeild Landspítala í Kópa- vogi 1. nóvember síðastliðinn og var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju 12. nóvember. sambúð. Í gegnum ár- in höfum við kynnst þessum rólega og góða manni. Hann hafði fjölskyldu sína alltaf í fyrirrúmi og var alltaf til taks fyrir alla. Það var okkur ljóst hvað honum þótti vænt um Þuríði og dætur henn- ar Selmu og Sunnu. Andlit hans lýstist upp þegar hann hitti þær og hlýjan streymdi frá honum. Hann hafði lag á því að láta öllum líða vel í kringum sig. Hjörtur var vinnusamur maður og hafði gott orð á sér í vinnu sinni í Verslunarskól- anum og síðar í Háskóla Reykjavík- ur. Allir virtust hafa þekkt Hjört húsvörð og báru honum góðar sögur. Elsku Þuríður og fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiða tíma. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Megi hann hvíla í friði. Fjölskyldan í Vesturbergi 13. Góður drengur er genginn. Hjörtur var vinnufélagi okkar í Verzlunarskóla Íslands um árabil, hann var vinsæll maður, velviljaður, ósérhlífinn og með afar góða nær- veru. Síðar varð Háskólinn í Reykjavík vinnustaður hans en tengsl hans við okkur héldust og var hann duglegur að rækta vináttuna. Fyrir það erum við þakklátar. Við minnumst ótal samverustunda með Diddu og Hirti, hún var alltaf eins og klettur við hlið hans og voru þau hrókar alls fagnaðar hvar sem þau komu. Hjörtur var alltaf með hugann við fjölskylduna, hagi hennar og allra samferðamanna sinna. Hann sinnti sínu og sínum af kostgæfni með bros á vör enda var glaðlyndið honum eðl- islægt. Elsku Didda, Rikki og Þuríður. Ykkar er missirinn mestur. Megi guð gefa ykkur öllum styrk. Hrafnhildur og Steinunn. Hjörtur tók mér sem vini frá fyrsta degi þegar ég hóf störf í Verzlunarskólanum fyrir hartnær 20 árum. Hann var vinur allra og allir voru vinir hans. Honum var ekkert óviðkomandi, hvort svo sem það snerist um húsnæðið eða nemendur, stjórn skólans eða persónulegt líf okkar samstarfsmanna hans. Hirti hæfa einkunnarorðin gamansamur, ósérhlífinn, glaðvær, þjónustulund- aður, skapgóður, duglegur, útsjón- arsamur og síðast en ekki síst af- skiptasamur, sem ég mun ætíð þakka honum fyrir! Leiðir skildi um hríð en lágu síðan saman aftur fyrir um 10 árum við undirbúning og stofnun Háskólans í Reykjavík. Það var eins og við manninn mælt að Hjörtur tók mér eins og við hefðum kvaðst kvöldinu áður. Hjörtur tók ekki einungis virk- an þátt í undirbúningi byggingar Háskólans í Reykjavík heldur einnig í undirbúningi skólans sem mennta- stofnunar. Hann var oft kallaður vararektor eftir að starfsemi skólans hófst haustið 1998. Starf hans á sl. tæplega 10 árum fyrir Háskólann í Reykjavík og starfsmenn hans er ákaflega mikils virði og samt ómet- anlegt. Enn hittumst við Hjörtur fyrir ríf- lega þremur árum og hann var sama festan og fyrr í starfi Háskólans í Reykjavík – kletturinn sem þoldi allt, bæði í stormi og stillu. En nú er hann fallinn í valinn fyrir illvígum sjúkdómi og leiðir okkar munu því miður ekki liggja saman aftur. Það er skarð fyrir skildi. Ég vil óska þess að Kristín og börn þeirra Hjartar nái að sættast við sorgina vegna þeirra mikla miss- is. Þorlákur Karlsson. Góður drengur er fallinn frá, langt um aldur fram, öllum harmdauði. Hjörtur Þór Gunnarsson var vin- ur í raun, einlægur, velviljaður og hjálpsamur. Það vita þeir sem honum kynntust og þeir eru ófáir. Við þökkum innilega samferðina og margar gleðistundir sem við átt- um á löngu árabili, hér heima og í ferðum utanlands. Við vorum hluti af „Leirubakka- liðinu“ svokallaða sem hóf búskap í vélstjórablokk í Leirubakka 18 í lok 7. áratugar síðustu aldar. Þetta var samheldinn hópur sem hjálpaðist að en virti þó mörk hvers og eins. Síðar fluttust þessar fjöl- skyldur hver í sína áttina en tengslin hafa haldist fram á þennan dag, mis- mikil þó eins og gengur. Stundum gat liðið nokkur tími á milli þess að við hittumst en tilfinningin var samt eins og við hefðum sést í gær. Hjörtur var sá í þessu litla sam- félagi okkar sem gæddi það lífi og drift, hann lét sér annt um fólk og fylgdist vel með og er þá á engan hallað. Börnin löðuðust að honum eins og við hin fullorðnu. En nú er komið að leiðarlokum. Við söknum góðs vinar og biðjum honum Guðs blessunar. Diddu, Rikka, Þuríði, barnabörn- um og fjölskyldunni allri sendum við innilegar samúðarkveðjur. Sólrún og Sigurður. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta söknuðurinn laugar tár á kinn. Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta dökkur skuggi fyllir huga minn (Hákon Aðalsteinsson) Á lífsins göngu erum við stundum svo lánsöm að kynnast fólki sem gott er að umgangast, fólki sem verður vinir okkar og umvefur okkur með vináttu sinni í kærleika og gleði. Þannig minnumst við Hjartar sem við kveðjum hér í dag. Það var á haustdögum 1998 að við Hjörtur kynntumst er ég hóf störf við Við- skiptaháskólann í Reykjavík. Hann var þá húsvörður í Versló en kom yf- ir götuna til að hefja störf í VHR. Á fyrsta degi óskaði hann eftir því að með okkur tækist jafn gott samstarf og hann ætti við konurnar í Versló. Mikill frumkvöðlahugur var í öllum og framundan var geysilega skemmtilegur tími. Samstarf okkar Hjartar var mikið og við urðum vin- ir. Svo góðir vinir að nemendur kusu okkur „Par ársins“ á árshátíð sinni eitt árið. Viðskiptaháskólinn í Reykjavík gekk í gegnum breytingar. Nýtt nafn var tekið upp, Háskólinn í Reykjavík, og skólinn stækkaði. En eitt breyttist ekki. Hjörtur annaðist hús og eignir skólans, glaður og reif- ur á hverju sem gekk. Ég þakka samstarfið í „skólanum okkar“. Ég þakka allar samveru- stundir á gleðistundum en þar var hann hrókur alls fagnaðar. Ég þakka stuðninginn sem hann veitti mér og fjölskyldu minni fyrir ári með bjartsýni sinni. Og síðast en ekki síst þakka ég vináttu hans, vin- áttu sem aldrei bar skugga á. Við Sigurgeir sendum Diddu, börnum og barnabörnum Hjartar innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau og varðveita. Þóra Guðnadóttir. Þrátt fyrir þá vitneskju að lífið hafi upphaf og endi og enginn viti hver er næstur í röðinni kemur það alltaf jafnmikið á óvart þegar sam- ferðafólk kveður fyrir aldur fram. Ég kynntist Hirti þegar ég hóf störf hjá Háskólanum í Reykjavík en Hjörtur var umsjónarmaður eigna skólans. Sumarið 2005 gekk mikið á í rekstri skólans, samruni Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands var veruleikinn, nýjar deildir og námsleiðir urðu til. Í mörgu var að snúast, skólinn var að stækka, allt kennsluhúsnæði þurfti að vera klárt fyrir haustið. Þá þurfti skólinn sann- anlega á Hirti að halda, það var þá sem ég kynntist þeim manni sem hann hafði að geyma. Hjörtur vann öll sín störf af kost- gæfni, hann vann óeigingjarnt starf nótt sem dag ef á þurfti að halda í þágu skólans og nemenda hans. Hjörtur var starfsmaður sem auð- velt var að biðja, oftast þurfti þó ekkert að biðja hann, hann sá og vissi hvað þurfti að gera, hann lagði alúð í sín störf og var alltaf til reiðu. Framkoma hans einkenndist af glað- værð og jákvæði, hann tók hverri bón vel, hversu flókin og tímafrek sem hún var. Hjörtur hafði í raun miklu stærra hlutverk innan skólans en það að vera umsjónarmaður eigna, hann var allt í öllu. Hirti fannst gaman að gera sér glaðan dag með starfsmönnum, þess fengum við starfsmenn að njóta. Sumarið 2006 kom næsta törn, kennsluhúsnæði var tekið á leigu í Kringlunni 1. Þá þurfti enn og aftur að koma húsnæði í kennsluhæft ástand fyrir haustið. Hjörtur var þar í lykilhlutverki, það þurfti að redda mörgu, útvega iðnaðarmenn, hús- gögn og búnað, breyta og laga. Alltaf stóð Hjörtur vaktina. Það sumar lét Hjörtur verulega á sjá þannig að við starfsmenn tókum eftir því. Við töld- um okkur trú um að það stafaði af vinnuálagi og Hjörtur þyrfti að kom- ast í gott frí eftir törnina. Síðsumars kom í ljós að veikindi voru óumflýj- anleg, Hjörtur færði okkur þær fréttir að veikindin væru alvarleg. Þegar ég lét af störfum hjá Háskól- anum í Reykjavík kvaddi Hjörtur mig með sínum persónulega hætti þrátt fyrir að vera mikið veikur, fyr- ir það var ég honum þakklát. Ég hef fylgst með Hirti og veikindum hans síðan. Fyrir stuttu ræddi ég við hann í síma, þá talaði hann af raunsæi um veikindi sín og hversu alvarleg þau væru. Hann var þá samur við sig, sló á létta strengi og óskaði mér alls hins besta, þannig var Hjörtur, gat alltaf gefið af sér, jafnvel þegar hann stóð frammi fyrir síðustu ævidögunum. Ég votta fjölskyldu Hjartar sam- úð mína, minningin um góðan dreng mun lifa. Stella K. Víðisdóttir. Góður félagi og fyrrverandi sam- starfsmaður minn, Hjörtur Þór Gunnarsson, hefur nú yfirgefið jarð- vist okkar. Kynni okkar hófust er ég byrjaði að starfa við Verslunarskóla Íslands fyrir um það bil tuttugu ár- um. Starf hans við skólann var mjög viðamikið, það fól í sér viðhald á hús- næði skólans og einnig fjölbreytilegt samstarf við kennara og nemendur. Oft komu upp vandamál sem Hjört- ur leysti ætíð á sinn rólega og yf- irvegaða hátt, en hann var einstak- lega hlýr maður, brosmildur og kátur. Hann var mjög úrræðagóður og mikill fagmaður og leysti öll störf vel af hendi. Hjörtur var driffjöður í öllu fé- lagslífi meðal starfsmanna skólans og hrókur alls fagnaðar. Hann var mjög hjálpsamur maður og gerði öll- um greiða ef hann gat. Hann kunni einnig að njóta lífsins með góðum vinum og félögum í ferðalögum og á menningarviðburðum innanlands sem og erlendis. Í því voru Hjörtur og Kristín eiginkona hans mjög sam- hent. Eftir að Hjörtur hóf störf við Há- skólann í Reykjavík hélt hann góðu sambandi við sitt fyrra samstarfs- fólk og kom oft í heimsókn yfir í Versló þegar tækifæri gafst frá erli vinnudagsins. Hjörtur sá um breytingar og stækkun á Háskólanum í Reykjavík, þá kom vel í ljós hversu útsjónar- samur og nýtinn hann var. Hann var að ljúka við það verkefni þegar hann greindist með sjúkdóminn sem varð honum að falli og fóru þá í hönd erf- iðir tímar hjá honum og fjölskyldu hans. Lífsvilji Hjartar var mikill og hann var staðráðinn í að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. En lífið er ekki alltaf sanngjarnt. Ég er þakklátur fyrir góðu stundirnar sem ég hef átt með honum þessi ár. Hlýj- ar minningar um Hjört munu lifa í hjörtum okkar allra sem þekktu hann. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur sendum við Kristínu, Þurí, Rikka og fjölskyldum þeirra. Kristinn og fjölskylda. Hjörtur og Didda – alltaf saman, og svo mun verða áfram í huga okk- ar sem þekktum Hjört þó svo að Hjörtur sé nú farinn á vit ævintýr- anna í eilífðinni sem bíður okkar allra. Bernskuminningarnar eru oft þær litríkustu og sterkustu. Þar á Hjört- ur sinn stað. Börnin á Leirubakk- anum eiga góðar minningar um Hjört sem alltaf var hvers manns hugljúfi. Fyrsti leikfélagi minn var hann Rikki og í uppvextinum næstu árin kom Hjörtur oft við sögu því samfélagið Leirubakki 18 var sam- félag barna og foreldra sem enn þann dag í dag rækta vinatengsl sem urðu til fyrir lífstíð. Seinna þegar börnin á Leirubakkanum voru vaxin úr grasi og búin að stofna sínar eigin fjölskyldur var alltaf jafn gaman að hitta Hjört. Hann var ávallt léttur og í góðu skapi, brosandi og áhuga- samur um líf og tilveru barnanna á Leirubakkanum. Hjörtur var hlýr maður, það sýndi hann í orði og verki. Hann var sér- lega góður við hana ömmu mína sem bjó hjá okkur á Leirubakkanum og ég veit að hann var í miklu uppáhaldi hjá henni ekki síður en hjá mér og foreldrum mínum. Elsku Didda, Þurý, Rikki og barnabörn, góður drengur hefur kvatt allt of snemma, minning hans lifir. Ragnheiður K. Guðmundsdóttir. Það er þungbært að kveðja góðan vin og starfsfélaga í Verzlunarskól- anum til margra ára, Hjört Þór Gunnarsson, sem lést aðeins 61 árs að aldri. Ótal minningar skjóta upp kollinum á kveðjustund, sem eiga það allar sameiginlegt að vera góðar, enda var Hjörtur með skemmtilegri mönnum. Hann var hvers manns hugljúfi, alltaf í góðu skapi sem smitaði út frá sér og var ávallt reiðubúinn að hjálpa samferðafólk- inu. Greiðviknari mann var erfitt að finna og hafa ófáir vinir og ættingjar notið góðs af hjálpsemi hans og verksviti gegnum tíðina. Hjörtur var mikil félagsvera og naut þess að vera í góðum fé- lagsskap. Á sinn hógværa hátt gat hann verið hrókur alls fagnaðar hvort sem var á dansgólfinu, við matarborðið eða í gönguferðinni. Hann og Kristín kona hans kunnu að njóta lífsins, á skemmtunum, í ferða- lögum innan- og utanlands og í faðmi fjölskyldunnar. Og betri gestgjafar eru vandfundnir. Hjörtur hafði ótrúlega jákvæð áhrif á alla í kringum sig, lét sig alla varða og gætti þess að enginn væri útundan þegar hópur fólks kom saman. Það var gott að leita til hans, hann var ráðagóður og átti gott með að hlusta. Hjörtur var þannig gerður að það var alltaf gott að vera nálægt honum Hjörtur glímdi við óboðinn vágest síðasta árið. Hann tók veikindum sínum af æðruleysi og bjartsýni, ákveðinn í að hafa betur. Þegar ljóst var snemma í haust að baráttan væri töpuð lét hann ekki bugast, tók því sem að höndum bar með reisn og kvaddi umvafinn fólkinu sínu. Við hjónin minnumst Hjartar með þakklæti fyrir samfylgdina. Missir allra sem þekktu hann er mikill, fjöl- skyldunnar auðvitað mestur. Við biðjum góðan Guð að blessa Kristínu og fjölskylduna alla. Megi minning Hjartar ylja okkur öllum um ókomin ár. Gunnar Sigurðsson, Gerður Harpa Kjartansdóttir. Það eru margir sem kveðja góðan vin í dag. Ég er ein þeirra. Hjörtur var góður vinur og sérlegur vinur hvers og eins. Ég hef bara alltaf þekkt Hjört því hann bjó í stiga- ganginum í Leirubakkanum og var pabbi hans Rikka vinar míns. Hjört- ur var einn af þeim sem líta á börn sem fólk og var því félagi okkar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.