Morgunblaðið - 21.11.2007, Side 39

Morgunblaðið - 21.11.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 39 IANA Laugavegi Afgreiðslustarf Verslunin IANA, Laugavegi, óskar eftir starfs- fólki í 60% starf. Umsækjandi þarf að vera þjónustulundaður, samviskusamur, reyklaus og sýna frumkvæði. IANA er barnafataverslun frá Ítalíu sem selur litrík barnaföt og skó. Umsóknir skulu sendar ásamt ferilsskrá á iana@simnet.is                            !"   !"  !"  # !   $  %    ##    &$ '          " &         #!  ( &'      "     ##            &'  )         (*         #      ##  &'      " '       ##         +   #             $  " ' $ " &' "   ! $ " !     &     (       !"   #$$ %&"   '  &'      "  ! (     (   # "     +      (" ! !   " &' ! #     $  &    ( '&  # $ ()  '* ) ,'    ---  .# .  ---    /     (     %      '  $       %  .,  (" 010 2 ' "  343 5111 Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Hollvinasamtaka Bifrastar Aðalfundur Hollvinasamtaka Bifrastar verður haldinn miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 20:30 í sal Kornhlöðunnar – Lækjarbrekku, Bankastræti 2 í Reykjavík. WWW.BIFROST.IS Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum samtakanna. 2. Breytingar á félagslögum. 3. Önnur mál. Stjórn Hollvinasamtaka Bifrastar Olnbogabörn skólasamfélagsins ADHD-samtökin halda fræðslufund í Safnaðarheimili Háteigskirkju fimmtudag 22. nóvember kl. 20. Fyrirlesari er Arnar Þorsteinsson námsráðgjafi í Ölduselsskóla Allir velkomnir. Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Heiðarvegur 61, 218-3817, þingl. eig. Jón Eysteinn Ágústsson, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, Íbúðalánasjóður, Tryggingamiðstöðin hf og Vestmannaeyjabær, miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 14:30. Kirkjuvegur 66, 218-4428, þingl. eig. Sigríður Kristinsdóttir, gerðar- beiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 14:00. Skólavegur 45, 218-4616, þingl. eig. Svitlana Balinska, gerðarbeið- endur Íbúðalánasjóður, Tryggingamiðstöðin hf og Vestmannaeyjabær, miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 13:30. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 20. nóvember 2007. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrifstofu embættisins að Heiðarvegi 15, Vestmanna- eyjum, miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 15:00: Eva VE-51 (skipaskrárnúmer 6707), 50% eignarhl. gþ., þingl. eig. Guðlaugur Valgeirsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 20. nóvember 2007. BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Hestháls 14. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðar númer 14 við Hestháls. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að lóð verði skipt í tvær lóðir. Ný lóð verður skilgreind á suðurhluta núverandi lóðar, að Krókhálsi, og verður kvöð á milli lóða að Hesthálsi 14, 15 og Krókhálsi 7 nýtt sem aðkoma að nýrri lóð. Einnig verður aðkoma frá Hesthálsi. Núgildandi skipulagsskilmálar um Hálsahverfi gilda áfram óbreyttir um nýja lóð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 21. nóvember 2007 til og með 4. janúar 2008. Einnig má sjá tillög- una á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 4. janúar 2008. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 21. nóvember 2007 Skipulagsstjóri Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Raðauglýsingar 569 1100  Davíð Bjarnason mannfræðingur varði doktorsritgerð sína „An Island of Constant Connection – an ant- hropologist explores mobile net- works“ eða „Eyjan sítengda – mann- fræðingur á ferð um farsímanetið“ við félagsvísindadeild Háskóla Ís- lands 2. nóvember sl. Hvernig mótaðist hugmyndin um sítengda einstaklinga, flækta í net alltumlykjandi þráðlausra tenginga? Síðan farsímar og net þeim tengd komu fyrst fram hafa hugmyndir fólks um hvað felst í því að vera tengdur tekið stórvægilegum breyt- ingum. Í upphafi þótti nokkurt undur að fá tengingu á þennan framandi grip og hugmyndin um stöðugt sam- band var fjarstæðukennd; í dag þyk- ir stöðugt samband í gegnum far- síma sjálfsagt og nauðsynlegt í daglegu lífi. Rannsóknin rek- ur þau tengsl sem mótast hafa í kringum farsíma og farnet í gegn- um fólk og fyr- irbæri sem á einn eða annan hátt hafa komið við sögu í mótunarferlinu. Í fjölþættri vettvangsrannsókn er sjónum beint að fólki, frásögnum, gildum, orð- ræðu, skjölum, stefnumótun, hlutum, tæknikerfum og ferlum sem mótað hafa núverandi hugmyndir um far- símsamband og tengingar á Íslandi. Kenningaleg nálgun byggist á hugmyndum um vensl fólks og fyr- irbæra og greint er jafnhliða hið gagnmótandi samband milli sam- félags og tækni; fólksins og hlutanna sem það mótar; hlutanna og fólksins sem þeir móta. Í etnógrafíunni er ferðast á milli ólíkra staða á Íslandi, ólíkir gerendur eru eltir uppi í frá- sögn sem greinir frá síauknum teng- ingum og útbreiðslu samskiptakerfa; hvernig afskekkt og lítt tengd eyja umbreytist í eyjuna sítengdu. Fyrsti hluti rannsóknarinnar skoðar upphaf farsímatenginga á Íslandi, og greinir með hvaða hætti hugmyndir um sí- tengingu og hreyfanleika hafa náð fótfestu sem máttarstólpar daglegs lífs og hvaða áhrif þessar hugmyndir hafa á félagstengsl og heimsmynd. Annar hluti rannsóknarinnar skoðar nánar samsetningu og framleiðslu farsímasambands í gegnum starf- semi farsímafyrirtækis. Í þriðja hluta rannsóknarinnar er borið niður á nokkuð óvæntum stað, lítilli eyju norður við heimskautsbaug, Gríms- ey, sem hafði á þeim tíma sem rann- sóknin var gerð nýverið fengið GSM- samband. Í rannsókninni er lögð áhersla á að skoða hvernig samhengi tækninnar og notkun hennar verða til í ferli sem felur í sér marghliða tengslamyndun milli ólíkra sviða samfélags og menn- ingar. Sjónum er þannig ekki beint að tækninni sem slíkri, heldur er við- fangsefnið það mótunarferli sem tæknin fer í gegnum og myndar tengsl þar sem merking hennar, samhengi og notkun mótast, oft á óvæntan hátt. Kastljósinu er beint að innleiðingu og þróun farsíma- tækninnar á tilteknum stað, þ.e. Ís- landi, en um leið er tengsla að leita í hnattvæðingu tækninnar, flæði og árekstrum hugmynda og gilda. Líta má á menningarbundna merkingu hugmynda um sítengda einstaklinga sem sveigjanlega, óstöðuga og mót- sagnakennda. Sá skilningur sem við leggjum í farsímatækni getur þannig ekki verið aðskilinn frá stöðugri og hreyfanlegri mótun samhengis tækninnar. Davíð Bjarnason er fæddur 2. nóv- ember 1972. Hann lauk stúdents- prófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1992, BA-prófi í mannfræði árið 1996 og meist- araprófi í umhverfis- og auðlinda- fræði frá Dalhousie-háskóla í Kan- ada árið 1999. Davíð starfaði frá 1999-2004 sem yfirmaður við- skiptaþróunar hjá Landmati sem fékkst við þróun upplýsingakerfa fyrir farsíma. Samhliða doktorsnámi hefur Davíð verið stundakennari í mannfræði og umhverfisfræði við Háskóla Íslands. Doktor í mannfræði Davíð Bjarnason SAGNFRÆÐINGAFÉLAG Íslands heldur fyrirlestur í há- deginu á morgun, fimmtudag, en þar mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra flytja erindi sem hún nefnir: „Minn staður er hér þar sem Evrópa end- ar.“ Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélags- ins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminja- safnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill. Fyrirlestur Ingibjargar Sólrúnar er hluti af fyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins í haust sem ber heitið „Hvað er Evrópa?“. Mæting hefur verið góð á fundina í haust. Fyrr í haust fluttu sagnfræðingarnir Axel Kristinsson, Guðmundur Hálfdanarson og Sverrir Jakobsson fyrirlestra í þessari sömu fyrirlestraröð. Hægt er að nálgast fyrirlestrana á heimasíðu Sagnfræðinga- félagsins, http://www.sagnfraedingafelag.net. Utanríkisráðherra ræðir um Evrópu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Sagnfræðingafélag Íslands Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.