Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 42

Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞÚ ERT FEITUR! ROP! EN NÚNA? ÞETTA ER FLOTTUR HÓLL! EN ÉG ÞARF AÐ HUGSA MÁLIÐ! ROSALEGA GETUR MAÐUR SÉÐ LANGT HÉRNA UPPI... ÉG SÉ ALLA LEIÐ HEIM TIL MÍN ÞAÐ VÆRI GAMAN AÐ KOMA HINGAÐ AÐ KVÖLDI TIL OG NJÓTA ÚTSÝNINSINS MEÐ VINUM SÍNUM... HIKK HIKK HIKK ÉG HELD (HIKK)... AÐ (HIKK) ÉG (HIKK) SÉ MEÐ (HIKK) ÉG ER MEÐ (HIKK) HVAÐ ERTU MEÐ? FÉKKSTU NÝJA MYNDA- SÖGU?... EÐA PENING? NEI (HIKK)... ÉG ER MEÐ (HIKK)! ÉG Á VIÐ (HIKK)... ÞETTA ER GAMAN! ÞARNA ER HAFNAR- STJÓRINN! BIDDU HANN UM LÍNU! HEYRÐU, FÉLAGI... GETUR ÞÚ NOKKUÐ FUNDIÐ HANA LÍNU FYRIR OKKUR? EF ÞÚ SETUR HANN UPP AÐ EYRANU HEYRIR ÞÚ Í HAFINU! NEI! HANN SAGÐI AÐ ALLIR ÞJÓNUSTU- FULLTRÚARNIR VÆRU UPPTEKNIR VINUR MINN, HALLI, VAR AÐ SENDA MÉR PÓST... HANN VERÐUR Í BÆNUM UM HELGINA HVER ER HALLI? HANN VAR MEÐ MÉR Í SKÓLA. HANN EIGNAÐIST MIKINN PENING ÞEGAR NETVÆÐINGIN BYRJAÐI... HANN VILL BORÐA MEÐ OKKUR Á CHEZ LA LA NIÐRI Í BÆ VORUM VIÐ EKKI AÐ LESA GREIN UM ÞENNAN STAÐ UM DAGINN? JÚ! MAÐUR BORGAR 5.000 kr. FYRIR PYLSU Á ÞESSUM STAÐ! ÉG SÉ AÐ NARNA LEMARR BÝR Í HÚSI SEM SÆMIR ALVÖRU KVIKMYNDA- STJÖRNU... EN ÉG VERÐ AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ HVAÐ HÚN HEFUR AÐ FELA! dagbók|velvakandi Hvað ætla stjórnvöld að gera? ÞAÐ sagði mér eitt sinn kona sem flutti utan af landi til Reykjavíkur, ung að árum, snemma á síðustu öld og fór í vist eins og það var kallað þá. Kaupið sem hún fékk fyrir árið dugði fyrir skóm handa henni og ef til vill fyrir efni í kjól eða kápu. Samt vann þessi stúlka myrkranna á milli en þegar hún veiktist og fór á sjúkrahús var henni strax sagt upp starfinu. Nú er öldin önnur, bullandi góðæri, aldrei meiri kaupmáttur, líka fyrir hina lægstlaunuðu, flestir að kaupa hús og nýja jeppa og fara í utanlandsferðir þannig að það virð- ist vera nóg til að bíta og brenna. Mikið vildi ég að þetta væri raunin, vissulega hafa margir það gott og eru á ofurlaunum en það eru bara stór hópur fólks í samfélaginu sem er alls ekki á háum launum. Stjórn- málamenn segja okkur við hátíðleg tækifæri að velsæld sé mikil en ég segi að þetta sé að stórum hluta þjóðsaga. Ég kalla það ekki velsæld að kaupa húsnæði og bíla, allt á lán- um. Margir eru svo illa staddir að þeir þurfa að leita reglulega til hjálpastofnana. Ekki bætir úr að nú eru vextir af húsnæðislánum að hækka og leigumarkaðurinn er svo dýr að fólk hefur hvorki efni á að leigja sér húsnæði né að kaupa. Þá eru langir biðlistar eftir félagslegu húsnæði. Því spyr ég hvað ætla stjórnvöld að gera? Sigrún Reynisdóttir. . Blekkingar í Bónus! LAUGARDAGINN 18. þ.m. keypti ég ýmsa matvöru í Bónus í Njarðvík eins og oft áður. Ég tók sérstaklega eftir því að bláber, sem ekki höfðu fengist lengi voru komin aftur. Þar sem bláberin voru í kælinum var hvergi að finna aðra merkingu sem benti til verðs nema á hillunni var spjald með tölunni 136 sem átti greinilega ekki við þyngd öskjunnar sem á stóð 125 gr. Það hlaut því að vera verðið á öskjunni (því varla gat það verið kílóverðið)! Ég setti 2 öskj- ur í grindina. Þegar heim var komið fór ég að skoða kvittunina. Þá stóð þar tvisvar „D Bláber 125 gr 298 kr.’’ Ég vek athygli á þessu vegna þess að fólk hefur verið að kvarta undan misræmi á hillumerkingum og verði á kassa, eins og komið hefur fram í blöðum að undanförnu, en í þessu tilfelli er ekki annað að sjá en að í Bónus í Njarðvík sé beinlínis beitt villandi merkingum og því þá ekki í öðrum verslunum Bónuss? Eins má benda á að verðkannanir milli verslana eru mikilvægar en þegar gæðamatið vantar vilja þær verða lítils virði. Þannig hafa lengi fengist uppþornaðar óætar appels- ínur í Bónus í Njarvík á 77 kr. kg en ágætar appelsínur á 98 kr. í Sam- kaupum skammt frá, hvað segir þessi verðmunur?. Neytandi í Reykjanesbæ. Giftingarhringur fannst GIFTINGAHRINGUR fannst í ruslaporti við veitingastaðinn Einar Ben. v/Ingólfstorg 18. nóvember sl. Uppýsingar gefur Sergei, sími 899 1992. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is TJÁNING er nauðsynleg, en sumar aðferðir eru þó ekki viðurkenndar af samfélaginu. Kannski kjarni málsins hér, eða í það minnsta undirstrikun á boðskapnum. Götuskilti með skilaboðum FRÉTTIR JÓLA- og tækifæriskort Skógrækt- arfélags Íslands er komið út. Á kortinu er mynd af málverki lista- mannsins Ágústs Bjarnasonar sem heitir „Haustlauf“. Sérstök hvatning er á kortinu þar sem fram kemur að fyrir hvert selt kort gróðursetji félagið eitt tré. Kortin eru seld tíu saman í búnti með umslagi. Hægt er að nálgast kortin á skrifstofu Skógrækt- arfélags Íslands, í Skúlatúni 6, 2. hæð. Einnig er hægt að panta kort- in í síma 551-8150 eða með tölvu- pósti til skog@skog.is. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu félagsins – www.skog.is Jólakort Skógrækt- arfélags Íslands SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykjavík- ur stendur fyrir jólamarkaði í gamla hlaðna salnum á Elliða- vatnsbæ í Heiðmörk. Jólamarkaðurinn verður opnaður laugardaginn 24. nóvember og verður opinn alla laugardaga og sunnudaga fram að jólum, kl. 11-18. Í fréttatilkynningu segir að þar verði seldir munir eftir íslenska hönnuði, handverks- og listiðn- aðarfólk. Einnig verður boðið upp á greinar og skreytingar úr efni skógarins. Vöfflukaffi og kakó verður á boðstólum og jólasveinar kíkja í heimsókn þegar nær dregur jólum. Alla dagana verður barna- stund í útirjóðrunum við bæinn þar sem Náttúruskólinn tekur á móti börnunum og kveikir eld og stund- um koma ástsælir barnabókarithöf- undar í heimsókn og lesa fyrir börn- in. Jólatré verða til sölu á hlaðinu við Elliðavatnsbæinn. Ekið er af Suðurlandsveginum inn Heiðmerkurveginn hjá Rauð- hólum (408 Heiðmörk), síðan eftir bugðóttum malarvegi, yfir litla brú, beygt til hægri eftir brúna og upp að Elliðavatnsbænum. Jólamarkaður á Elliðavatni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.