Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUKIÐ frelsi hefur allajafna í för með sér
aukið val og auknu vali fylgir oftar en ekki
valkvíði – óttinn við að velja ekki rétt, sem
getur lamað fólk svo að
það velur ekki neitt.
Þjóðviljinn sálugi
fjallaði forðum mikið um
slíkt og þvílíkt ólán að
hafa úr of miklu að velja,
þá ósvinnu að til væru
tugir tegunda af klósett-
pappír, hundruð teg-
unda af morgunkorni og
þúsundir tegunda kexi þegar fólk þyrfti
augljóslega ekki nema eina tegund af
hverju.
Það má svo sem til sanns vegar færa, en
hængurinn kemur í ljós þegar kemur að því
að ákveða hvaða tegund. Á ríkið að gera
það? Hugsanlega eitthvert einkafyrirtæki?
Kannski bara neytandinn, er ekki best að
hann velji að nota bara eina tegund – og þá
eru við komin í hring, er það ekki?
Prófessorinn Barry Schwartz hefur mikl-
ar áhyggur af valkvíða, að nútímamaðurinn
eyði of miklum tíma í að velja og sé með sí-
felldar áhyggjur af að hafa ekki valið rétt.
Það er ágætispæling út af fyrir sig, en bítur
í skottið á sér eins og hver sér í hendi sér.
Eins og Schwartz rekur söguna þyrmdi
yfir hann eitt sinn þegar hann ætlaði að
kaupa sér gallabuxur og komst að því að
gallabuxur eru ekki bara gallabuxur heldur
þarf að taka alls kyns ákvarðanir, eins og
hvort þær eigi að vera með rennilás eða
hnöppum, hvernig þær eigi að vera á litinn,
hvaða áferð eigi að vera á þeim og svo má
lengi telja. Úr því spratt þessi bók.
Jamm, það er úr miklu að velja, kannski
of miklu, en það er nú bara svo og því verð-
ur ekki breytt. Sættu þig við það, góði,
langar mann helst að segja við prófessorinn
og sér eiginlega eftir því að hafa valið að
lesa bókina hans.
Valkvíðinn
mikli
The Paradox of Choice: Why More Is Less eftir
Barry Schwartz. Harper Collins gefur út.
Árni Matthíasson
BÆKUR» METSÖLULISTAR»
1. Stone Cold – David Baldacci
2. Creation in Death – J. D. Robb
3. The Chase – Clive Cussler
4. Protect and Defend
– Vince Flynn
5. Rhett Butler’s People
– Donald McCaig
6. Book of the Dead
– Patricia Cornwell
7. Home to Holly Springs
– Jan Karon
8. Playing for Pizza
– John Grisham
9. World Without End
– Ken Follett
10. A Thousand Splendid
Suns – Khaled Hosseini
New York Times
1. Sepulchre – Kate Mosse
2. A Thousand Splendid
Suns – Khaled Hosseini
3. A Spot of Bother
– Mark Haddon
4. The Kite Runner – Khaled
Hosseini
5. The Uncommon Reader –
Alan Bennett
6. Faces – Martina Cole
7. One Good Turn – Kate Atkinson
8. Atonement – Ian McEwan
9. This Year it Will be
Different – Maeve Binchy
10. Crossfire – Andy McNab
Waterstone’s
1. Sword of God – Chris Kuzneski
2. Anybody Out There?
– Marian Keyes
3. Cross – James Patterson
4. Wintersmith – Terry Pratchett
5. Treasure of Khan –
Clive Cussler
6. The Woods – Harlan Coben
7. The Naming of the Dead
– Ian Rankin
8. Stardust – Neil Gaiman
9. 1080 Recipes – Simone Ortega
10. Die For Me – Karen Rose
Eymundsson
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
LÖTUM manni eru allir dagar
jafnheilagir segir máltækið og lík-
lega er þetta eitt af örfáum mál-
tækjum sem
höfð eru um
leti þar sem
þessi mannlegi
löstur er ekki
beinlínis for-
dæmdur. Let-
ingjar, slæp-
ingjar, slórarar
og viðlíka
ómenni hafa
frá örófi alda verði talin baggar á
samfélaginu – jafnvel hættuleg
því. Það er því kannski engin furða
að ein af dauðasyndunum sjö er
leti. Sértu latur brennurðu í hel-
víti. Svo einfalt er það.
Tom Lutz, höfundur bókarinnar
Doing Nothing: A History of Loa-
fers, Loungers, Slackers, and
Bums in America, segir í formála
að hann hafi fengið hugmyndina að
bókinni þegar stálpaður sonur
hans flutti inn á hann, því í stað
þess að finna sér vinnu lagðist son-
urinn upp í sófa og einbeitti sér svo
af öllum sínum lífs og sálarkröftum
að því að horfa á sjónvarpið. „Hvað
er það eiginlega sem gerir menn
að letingjum?“ spurði Lutz sjálfan
sig. „Og hversu slæmur er þessi
löstur eiginlega?“
Bjórþambandi skýjaglópar
Doing Nothing er í raun hug-
myndafræðileg úttekt á letingj-
anum eins og hann birtist í banda-
rískri og evrópskri menningarsögu
– allt frá Henry David Thoreau
(1817-1862) til George W. Bush
Bandaríkjaforseta. Það kemur
kannski ekki á óvart að rithöf-
undar eru í miklum meirihluta
þeirra sem Lutz tæpir á í rann-
sókn sinni á letingjanum en eftir
þá er líka að finna mest allt sem
skrifað hefur verið um þennan
mikla löst. Einnig dregur Lutz
fram fjölmargar bækur og ritgerð-
ir sem heimspekingar og aðrir
hugsuðir hafa skrifað, letinni til
dýrðar. Að lokum færir höfund-
urinn nokkuð sterk rök fyrir því að
það hafi verið bölvuð letiblóð sem
færðu okkur 40 stunda vinnuvik-
una.
Hetjan er í raun slæpingi
Í stuttu máli má segja að inntak
bókarinnar sé að það séu órjúf-
anleg tengsl milli þess að ein-
staklingur sé afundinn samfélags-
legu normi og að hann sé talinn
latur. Og því telst það varla skrýtið
að skapandi listamenn séu yfirleitt
uppnefndir sem letingjar og
draumóramenn.
Byron lávarður, Keats, Irwin,
Stevenson, Melville, Wilde og
Kerouac voru allir slæpingjar ein-
hvern tímann á lífsleiðinni eins og
Lutz rekur samviskusamlega og
allir skrifuð þeir sögur sem veg-
sömuðu slæpingjann. Chaplin
skapaði slæpingja sem almenn-
ingur dáði og í dag fjalla margar af
vinsælustu költ-myndum kvik-
myndasögunnar um hetju sem er í
raun slæpingi. Ég læt mér nægja
að nefna Ferris Bueller’s Day Off.
Saga letingjans, segir Lutz, er
samofin vestrænni menningarsögu
og þó að leti sé í sjálfu sér ekkert
til að vera stoltur af, skal ekki van-
meta menningarlegt framlag þess-
arar dauðasyndar.
Forvitnilegar bækur: Doing Nothing
Sú meinlausa dauðasynd
Nútímahetja Í hugum margra er Grettir holdgervingur letiblóðsins .
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Wedding Daze kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
Wedding Daze kl. 3:40 - 5:50 - 8 LÚXUS
Balls of Fury kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Lions For Lambs kl. 10:15 B.i. 12 ára
Dark is Rising Síðustu sýn. kl. 3:45 B.i. 7 ára
Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 3:45 - 6
Wedding Daze kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
Rogue Assassin kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
La Vie en Rose kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Lions For Lambs kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
This is England kl. 6 - 8 - 10
Superbad kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 10:30 B.i. 14 ára
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Ve
rð a
ðeins
600 kr
.
Með íslensku tali
Gríðarstór
gamanmynd
með litlum
kúlum!
Stórkostleg ævintýra-
mynd í anda Eragon.
eeee
- H.J. Mbl.
eeee
- T.S.K., 24 Stundir
BÚÐU ÞIG UNDIR STRÍÐ
Sannkölluð stórmynd
með mögnuðum leikurum.
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU...
VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING ABOUT MARY"
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd
um ungan mann sem er sannfærður
um að hann muni aldrei verða
ástfanginn aftur!
MEÐ JASON BIGGS ÚR AMERICAN PIE MYNDUNUM
OG ISLA FISHER ÚR WEDDING CRASHERS
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
Vönduð frönsk stórmynd, sem er að fara sigurför
um heiminn, um litskrúðuga ævi Edith Piaf.
SVONA ER ENGLAND
HEPPNI CHUCK
ROUGE LEYNIMORÐINGI
ÁSTARSORG
MYRKRIÐ RÍS
BORÐTENNISBULL
LÍF RÓSARINNAR: SAGA EDITH PIAF
LJÓN FYRIR LÖMB
eeee
- V.J.V., Topp5.is
eeee
- Empire