Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 49

Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 49 Ekki er öllum kunnugt um aðHáskóli Íslands á eitt merk-asta listasafn landsins: Listasafn Háskóla Íslands. Það á uppruna sinn í einkasafni og var stofnað árið 1980 með rausnarlegri listaverkagjöf hjónanna Sverris Sig- urðssonar og Ingibjargar Guð- mundsdóttur. Eflaust hafa þó marg- ir tekið eftir listaverkunum sem eru hluti umræddrar safneignar og prýða opinbert rými Háskóla Ís- lands hér og þar – anddyri, sal- arkynni, kaffistofur og stjórnsýslu- skrifstofur – enda um stóran vinnustað að ræða sem fjöldi fólks á leið um daglega.    Í samtali sem undirrituð átti viðAuði Ólafsdóttur, lektor við HÍ og safnstjóra Listasafns HÍ, benti hún á að sérstöðu safnsins mætti m.a. rekja til sérhæfingar þess, einkum í verkum afstraktkynslóð- arinnar svonefndu. Meginuppi- staðan í safninu er verk eftir Þor- vald Skúlason, Þorvaldssafn, sem telur um 200 málverk og á annað þúsund teikningar og skissur. Hér er raunar um að ræða stærsta safn verka þessa mikilvæga listamanns. Þá segir Auður mikla viðurkenn- ingu fólgna í því að safnið hafi feng- ið að gjöf þriðjung verkanna úr erfðabúi listmálarans Guðmundu Andrésdóttur, alls 80 verk, á móti Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur sem fengu einnig þriðj- ung hvort. Þá á safnið fjölmörg lyk- ilverk eftir aðra afstraktlistamenn, svo sem Hörð Ágústsson, og um 400 verk eftir ýmsa samtímalistamenn.    Ljóst er að hér er um geysilegaverðmætt og mikilvægt lista- safn að ræða – safn sem varðveitir hluta þjóðararfsins. Ekki þarf ann- að en að líta til fyrirmyndarinnar – listasafna stórra bandarískra há- skóla á borð við Harvard og Yale – til að átta sig á gildi slíkra safna. Listasöfn þessara skóla eru einfald- lega meðal þeirra virtustu og verð- mætustu í heiminum. Þau eru í há- vegum höfð innan og utan þessara skólastofnana og teljast þýðing- armikill hluti af hinu akademíska starfi, ekki síst rannsóknastarfi á sviði lista- og menningarsögu. Söfn- in leggja áherslu á virka samræðu við samfélagið og hafa yfir að ráða sérstakri aðstöðu og glæsilegum sýningarsölum sem eru vettvangur fyrir metnaðarfull sýningarverk- efni, ráðstefnur, fyrirlestra og margháttaða fræðslustarfsemi.    Hvernig er húsnæðismálumListasafns Háskóla Íslands háttað? Listasafnið er skilgreint sem þjónustu- og rannsókn- arstofnun (með sérstökum styrkt- arsjóði til rannsókna á íslenskri myndlist) og í stofnskrá frá 1980 er kveðið á um aðgengi almennings að verkunum með bráðabirgða- upphengingu verka og geymsluað- stöðu fyrir þann hluta safnsins sem ekki er sýnilegur almenningi hverju sinni. Safnið er nú varðveitt í Odda þar sem verk úr eigu safnsins eru til sýnis á öllum hæðum. En til að listaverkunum, gef-endum þeirra og safninu sé sýndur viðeigandi sómi og því verði gert kleift að sinna hlutverki sínu sem best þarfnast það augljóslega aðseturs til frambúðar. Sérhannað sýningarrými og rannsókn- araðstaða myndi, líkt og Auður bendir á, einnig fela í sér viðurkenn- ingu á Listasafni Háskóla Íslands sem fullgildri rannsóknarmiðstöð í íslenskri myndlist. Slík miðstöð myndi skapa spennandi möguleika til samræðu við aðrar rannsókn- arstofnanir á menningarsviðinu, ekki síst á háskólasvæðinu, auk þess að skapa sérhæfðan vettvang fyrir samfélagstengda starfsemi.    Það vekur spurningar að nú, 27árum og nokkrum nýbygg- ingum eftir stofnun Listasafns Há- skóla Íslands, skuli enn skorta slíka aðstöðu. Senn líður að vígslu nýs Háskólatorgs en þar verður ekki sýningarsalur eða aðsetur fyrir Listasafn Háskóla Íslands – sem stingur óneitanlega í stúf við nýleg- ar yfirlýsingar Háskólans í Reykja- vík um að gert sé ráð fyrir sér- stökum sýningarsal fyrir myndlist í fyrirhuguðum nýbyggingum skól- ans við Öskjuhlíð. Hefur Háskóli Ís- lands sofnað á verðinum? Aðspurð um þetta segir Auður að hún hafi ásamt bæði fyrrverandi og núverandi stjórn listasafnsins lagt fram tillögur til úrbóta, sem hingað til hafi ekki hlotið hljómgrunn með- al yfirvalda HÍ, en það kunni þó að breytast senn. Skilningur sé fyrir hendi. Hún bendir á að listaverka- eign skólans, líkt og hún birtist á veggjum hans, veki jafnan athygli og hún tengist sérstöðu Háskóla Ís- lands, æðstu menntastofnunar þjóð- arinnar, hvað snertir það hlutverk hans að leggja rækt við íslenska menningu, sögu og tungu. Háskóli Íslands sé eini staðurinn í heiminum þar sem hægt sé að leggja stund á akademískt nám í íslenskri mynd- listarsögu – í hinu nýtilkomna list- fræðinámi sem byggt hefur verið upp á undanförnum árum í sam- vinnu HÍ og Listaháskóla Íslands. Oft hefur verið rætt um skilnings- og þekkingarleysi á myndlist í ís- lensku samfélagi. Auður telur að listfræðinámið, sem státar af mikl- um fjölda nemenda, eða á annað hundrað, feli í sér margvísleg tæki- færi til þekkingarsköpunar. Slíkt nám myndi græða mjög á öflugri rannsóknarmiðstöð og sérstakri sýningaraðstöðu í tengslum við Listasafn Háskóla Íslands. Listrænt sóknarfæri í HÍ AF LISTUM Anna Jóa »Hér er um geysilegaverðmætt og mik- ilvægt listasafn að ræða – safn sem varðveitir hluta þjóðararfsins. [...] Til að listaverkunum sé sýndur viðeigandi sómi þurfa þau augljóslega aðsetur til frambúðar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stór gjöf Vilhjálmur Lúðvíksson, Áslaug Sverrisdóttir, dóttir Sverris Sigurðssonar listaverkasafnara, Gunnar Harðarson prófessor, Ingibjörg Hilmarsdóttir, barnabarn Sverris, Páll Skúlason fyrrum háskólarektor, Auður Ólafsdóttir, forstöðumaður Listasafns HÍ, og Margrét S. Björnsdóttir virða fyrir sér hluta gjafarinnar úr dánarbúi Sverris Sigurðssonar er hún barst HÍ árið 2003. annajoa@simnet.is MYNDIN SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG GAGNRÝN-ENDUR HAFA SAGT AÐ SÉ EIN AF BESTU HROLLVEKJUM SEM ÞEIR HAFI SÉÐ! SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI HVAR MYNDIR ÞÚ FELA ÞIG Í 30 DAGA... !? / AKUREYRI/ KRINGLUNNI WEDDING DAZE kl. 8 - 10 B.i. 10 ára MR.WOODCOCK kl. 8 B.i. 12 ára MICHAEL CLAYTON kl. 10 B.i. 7 ára / KEFLAVÍK AMERICAN GANGSTER kl. 9 B.i. 16 ára MICHAEL CLAYTON kl. 10:30 B.i. 7 ára BALLS OF FURY kl. 8:30 B.i. 16 ára / SELFOSSI SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS ÞEGAR Á BJÁTAR MÁ TREYSTA Á ÞAÐ AÐ SANNAR HETJUR GEFAST EKKI UPP! 600 kr.M iðaverð SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Á SELFOSSI BALLS OF FURY SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI eeee „MÖGNUГ C.P. USA,TODAY eeee HJ. - MBLA.T.H STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA eeee H.J. MBL. eeee KVIKMYNDIR.IS eeee V.J.V. - TOPP5.IS SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI eee S.V. - MBL. eeee KVIKMYNDIR.IS SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í KEFLAVÍK JASON BIGGS ISLA FISHER SÝND Á AKUREYRI AMERICAN GANGSTER kl. 8 B.i. 16 ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ THE GOLDEN AGE kl. 6 B.i. 12 ára 30 DAYS OF NIGHT kl. 8 B.i. 16 ára AMERICAN GANGSTER kl. 6D - 9D B.i. 16 ára DIGITAL 30 DAYS OF NIGHT kl. 10 B.i. 16 ára FORELDRAR kl. 6 - 8 B.i. 7 ára Baráttusaga Margrét J. Benedictsson helgaði líf sitt jafnréttisbáráttu kvenna. Saga hennar má ekki gleymast. M bl 93 65 09 Fyrsti vestur-íslenski feministinn Þættir úr baráttusögu Margrétar J. Benedictsson Björn Jónsson holar@simnet.is FREGNIR herma að banda- ríski leikarinn Owen Wilson og bandaríska leik- og söngkonan Jessica Simpson eigi í ástarsam- bandi. Sést hefur til þeirra á nokkrum stefnu- mótum síðan þau unnu saman í tón- listarmyndbandi við nýtt lag meist- ara Willie Nelson, en talið er að þau hafi fyrst kynnst við þá vinnu. Með- al annars hefur sést til þeirra á Huntley hótelinu í Santa Monica og á Waverly Inn í New York. „Jessica snerti hönd Owens sem virtist heilla hana upp úr skónum enda fékk hann hana til þess að hlæja mikið. Það fór varla á milli mála að þau voru á rómantísku stefnumóti,“ sagði sjónarvottur í samtali við bandaríska tímaritið US Weekly. Eins og frægt er orðið reyndi Wilson að svipta sig lífi í ágúst í kjölfar þess að upp úr sambandi hans og leikkonunnar Kate Hudson slitnaði. Fregnir hafa hins vegar borist af því að Hudson hafi áhuga á því að endurnýja kynni sín við Wilson. Hjónaband Simpson við tónlistar- manninn Nick Lachey vakti ekki síður mikla athygli, enda var raun- veruleikaþáttur gerður um sam- bandið. Owen Wilson Wilson og Simpson saman?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.