Fréttablaðið - 09.04.2009, Qupperneq 2
2 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
Fréttablaðið kemur næst út á
laugardag og síðan ekki fyrr
en á þriðjudag. Afgreiðsla
blaðsins er lokuð þangað til
á þriðjudag. Þjónustuver er
opið frá 10 til 22 alla daga
nema páskadag, en þá er lokað
klukkan 18.
Útgáfa Fréttablaðsins:
Kemur næst
út á laugardag
íslenskur ríkisborgari
www.okkarsjodir.is
70,8% þjóðarinnar vilja að lífeyrissjóðirnir hafi heimild
til að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara sem greitt
hafa í sjóðina.
Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 19.000
manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir
eru okkar eign!
Velferð aldraðra
gengur fyrir!
Jón Benjamín, býstu við að
fólk kveiki á Álperunni?
„Ég vona að fólk álasi mér ekki fyrir
uppátækið, heldur verði þetta frekar
til að upplýsa það fyrir kosningar.“
Peðið, leikfélag Grand Rokks, frumsýnir á
föstudag verkið Álperan eftir Jón Benja-
mín Einarsson trésmið. Þetta er áttunda
verkið sem Jón semur fyrir leikfélagið.
FJÁRMÁL Stjórnvöld, Samtök fjár-
málafyrirtækja og skilanefnd
SPRON hafa undirritað samkomu-
lag sem tryggir greiðslujöfnun
myntkörfulána af húsnæði, til sam-
ræmis við sambærilegar aðgerðir
vegna verðtryggðra lána. Mark-
miðið er að lækka greiðslubyrði
lántakenda án þess að skuldir verði
afskrifaðar úr bankakerfinu eða að
verulegur kostnaður falli á stjórn-
völd.
Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra segir lausnina koma í stað-
inn fyrir skuldaafskriftir. „Þetta er
svar við þeirri umræðu, til dæmis
um 20 prósent niðurfellingarleið.
Að mati ríkisstjórnarinnar er þetta
ábyrg leið þar sem hún bæði kemur
til móts við þarfir lántaka og hefur
þann augljósa kost að hún stefnir
ekki nýja íslenska fjármálakerfinu
í hættu“, segir viðskiptaráðherra.
„Ef við grípum til vanhugsaðra
aðgerða eins
og að afskrifa
mikið af eignum
þeirra, þá verð-
ur endurreisn-
in mjög enda-
sleppt.“ Gylfi
segir að afstaða
ríkisstjórnar-
innar um flata
niðurfellingu
á skuldum sé
óbreytt, hún komi ekki til greina.
Samkvæmt samkomulaginu
skulu fjármálastofnanir bjóða þeim
sem tóku myntkörfulán til húsnæð-
iskaupa greiðslujöfnun sem tekur
mið af þróun tekna og atvinnustigs
í stað gengisþróunar gjaldmiðla.
Þetta er sambærilegt úrræði og var
kynnt í nóvember fyrir lántakendur
verðtryggðra lána, og telja stjórn-
völd að sanngirni sé gætt á milli
lántakaenda eins og kostur er.
Samkomulagið er háð samþykkt
samkeppnisyfirvalda. Gylfi telur
ekki ástæðu til að halda að Sam-
keppniseftirlitið hafi eitthvað við
samkomulagið að athuga enda
tryggi leiðin neytendum lágmarks-
réttindi án þess að útiloka að fjár-
málafyrirtækin bjóði aðrar leiðir,
þessari til viðbótar. „Það verður
áfram samkeppni um viðskiptavini,
óháð þessu samkomulagi, sem við
auðvitað viljum.“
Samkomulagið snertir ekki á
öðrum myntkörfulánum, eins og
lánum vegna bifreiðakaupa. „Við
horfum fyrst og fremst á íbúðalán.
Það er forgangsatriði og algjör-
lega óþolandi að fjölskylda óttist
að hafa ekki þak yfir höfuðið. Við
munum af öllum mætti tryggja að
sem fæstir lendi í slíkum vandræð-
um,“ segir Gylfi.
Samkomulagið gildir til ársins
2012, en þá telur Gylfi að efnahags-
lífið verði tekið að hjarna verulega
við. Tilmæli ríkisstjórnarinnar
um frystingu myntkörfulána falla
úr gildi, við undirritun samkomu-
lagsins.
svavar@frettabladid.is
Greiðslujöfnun lána
í stað niðurfellingar
Samkomulag hefur náðst um greiðslujöfnun myntkörfulána. Leiðin kemur í
stað afskrifta skulda, sem viðskiptaráðherra segir að hefði sett nýtt fjármála-
kerfi í hættu. Leiðin er til viðbótar öðrum úrræðum sem lög leyfa.
GYLFI MAGNÚSSON
DÆMI A
Dollari, pund, svissneskur franki,
japanskt jen og evra.
Upphafleg lánsupphæð 2005:
6.826.000
Höfuðstóll 28. febrúar: 12.358.000
Hækkun á höfuðstól: 81,0%
Fyrsta greiðsla: 37.600
Greiðsla 1. feb. 2009: 59.200
Hækkun greiðslubyrði: 57,4%
Greiðsla samkvæmt
samkomulaginu: 48.000
Lækkun á greiðslubyrði: -18,9%
DÆMI UM GREIÐSLUJÖFNUN LÁNA
■ Greiðslujöfnunin tryggir að skuldari veit ætíð hversu há næsta greiðsla
lánsins er, ólíkt því sem gerist þegar miðað er við gengi á hverjum tíma.
■ Mismunur á því sem hefði átt að greiða og því sem í raun og veru er
greitt færist aftan við lánstímann og leggst þannig við höfuðstól lánsins.
■ Greiðslan tekur breytingum í samræmi við greiðslujöfnunarvísitölu sem
kynnt var í nóvemer 2008. Með þessum hætti birtast sveiflur á gengi ekki
lengur beint í greiðslubyrði í hverjum mánuði, heldur í lengd lánstímans.
DÆMI B
Svissneskur franki og japanskt jen.
Upphafleg lánsupphæð 2005:
6.826.000
Höfuðstóll 28. febrúar: 13.747.354
Hækkun á höfuðstól: 101,5%
Fyrsta greiðsla: 31.182
Greiðsla 1. feb. 2009: 66.769
Hækkun greiðslubyrði: 114,1%
Greiðsla samkvæmt
samkomulaginu: 50.772
Lækkun á greiðslubyrði: -23,9%
TÓMSTUNDIR „Við horfum björtum
augum til sumarsins með þessar
tölur fyrir framan okkur,“ segir
Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður
Sundlaugarinnar í Laugardal. Alls
heimsóttu 41.526 fleiri gestir laug-
ina fyrstu þrjá mánuði ársins en
sömu mánuði á síðasta ári, sem er
um 33 prósenta aukning milli ára.
Gestum fjölgaði í öllum sundlaugum
Reykjavíkur á sama tíma.
Langmest fjölgaði heimsóknum
í Laugardalslaugina, enda stærsta
laugin með rýmsta afgreiðslutím-
ann. Tæpir 60.000 gestir heimsóttu
laugina í mars á þessu ári, en gest-
ir voru tæplega 51.000 í sama mán-
uði í fyrra.
Logi segist himinlifandi yfir þess-
um aðsóknartölum. „Við erum mjög
ánægð með þetta. Starfsfólkið finn-
ur vel fyrir þessari fjölgun, því
það er umferð í laugina allan dag-
inn,“ segir Logi. Hann bætir við að
gjaldskráin í laugarnar hafi ekkert
hækkað á þessu ári. Sú ákvörðun
gæti haft sitt að segja því fólk sæki
í auknum mæli í ódýra afþreyingu.
Hann segir starfsfólk laugarinn-
ar verða vart við fjölgun innlendra
sem og erlendra gesta.
Tæplega 13.000 fleiri gestir sóttu
Árbæjarlaug fyrstu þrjá mánuði
ársins en á sama tíma í fyrra. Gest-
um í Grafarvogslaug fjölgaði um
rúmlega 11.000, rúmlega 9.000 fleiri
heimsóttu Breiðholtslaug og ríflega
5.000 fleiri gestir lögðu leið sína í
Sundhöllina.
-kg
Þriðjungsfjölgun gesta í sundlaugar það sem af er ári:
Horfa björtum augum til sumarsins
GOTT Í SUNDI Hressir krakkar skemmtu sér í Laugardalslauginni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UPPLÝSINGATÆKNI Póst- og fjar-
skiptastofnun (PFS) ítrekar mikil-
vægi þess að nota viðurkenndar
veiruvarnir í tölvur og að stýri-
kerfi og önnur forrit séu alltaf
með nýjustu uppfærslum.
Í tilkynningu PFS kemur fram
að undanfarið hafi borið á svoköll-
uðum Trójuhestum sem fylgist
með tölvunotkun. „Um er að ræða
sérstakar tegundir sem dreifa
sér í gegnum Veraldarvefinn og
virðast miða að því að komast yfir
viðkvæmar persónuupplýsingar,“
segir PFS og bendir á að veirur,
njósnahugbúnaður, upplýsinga-
stuldur og fjársvik á Netinu verði
sífellt þróaðri. - óká
Póst- og fjarskiptastofnun:
Varar við Tróju-
hestum netsins
PÁSKAFRÍ Veðurspá páskahelg-
arinnar lofar góðu fyrir þá sem
hyggjast njóta útivistar. Ríkjandi
verða hægar norðlægar áttir með
smá snjókomu fyrir norðan og
vestan. Smá snjókoma gæti verið
á stöku stað.
Skíðafólk ætti að fá kjörað-
stæður. Páskaopnun er í Bláfjöll-
um og víðs vegar fyrir norðan og
vestan. Á páskadag klukkan. 13
verður páskamessa í Bláfjöllum í
umsjón sr. Pálma Matthíassonar.
Í Oddskarði er auglýst páskafjör
frá fimmtudegi til mánudags svo
eitthvað sé nefnt. - shá
Allir á skíði um páskana:
Veður hagstætt
til útivistar
BLÁFJÖLL Þúsundir manna geta ekki
beðið eftir því að komast á skíði um
helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Bandaríski álrisinn
Alcoa, sem meðal annars rekur
álverið á Reyð-
arfirði, tapaði
497 milljónum
Bandaríkjadala,
jafnvirði rúmra
63 mil ljarða
íslenskra króna,
á fyrsta fjórð-
ungi ársins.
Fyrirtækið skil-
aði uppgjörinu í
fyrrakvöld en
það er líkt og fyrri ár það fyrsta
í uppgjörstíðinni vestan hafs sem
skilar sér í hús.
Þetta er annar fjórðungurinn
í röð sem Alcoa skilar tapi en
það hefur ekki gerst í fjórtán ár.
Alþjóðakreppan skýrir tapið að
nær öllu leyti en mjög hefur dreg-
ið úr eftirspurn eftir áli víða um
heim. Það hefur skilað sér í því að
álverð hafði ekki verið lægra um
áraraðir um síðustu aldamót.
Á sama tíma í fyrra hagnaðist
álrisinn um 303 milljónir dala.
Alcoa hefur unnið að hagræð-
ingu innan fyrirtækisins, meðal
annars lækkað laun, dregið úr
rekstrarkostnaði og selt eignir.
Þar á meðal er eignahlutur í ál-
og námafyrirtækinu Rio Tinto.
Bloomberg hefur eftir Klaus
Kleinfeld, forstjóri Alcoa, í gær,
að stefnt sé að því að hagræðing-
araðgerðir skili fyrirtækinu 400
milljónum dala á ári. - jab
ÁLVER ALCOA-FJARÐAÁLS Alcoa hefur
gripið til aðgerða í sparnaðarskyni, svo
sem launalækkunar og sölu eigna.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
KLAUS KLEINFELD
Taprekstur sem ekki hefur sést í 14 ár hjá Alcoa og nær yfir tvo ársfjórðunga:
Alcoa tapar hálfum milljarði dala
MENNING Snjókarlinn á Ráðhús-
torginu á Akureyri fékk andlits-
lyftingu í vikunni, en hlýindi und-
anfarinna daga fóru illa í hann.
Stúlkur í 4. flokki Þórs í fótbolta
flikkuðu upp á kallinn, með aðstoð
foreldra og starfsmanna bæjarins.
Nú stendur yfir páskaævintýri
á Akureyri og fjölbreytt dagskrá
í boði. Á morgun verður keppni
í samhliða svigi í Gilinu og hefst
hún klukkan 19.30. Á laugardaginn
verða listaverk unnin úr stórum
ísklumpum í Gilinu undir stjórn
Hallgríms Sigurðssonar og kollega
hans frá Friðriki V. Herlegheitin
hefjast klukkan 14. - kóp
Snjókarl fær andlitslyftingu:
Páskaævintýri
á Akureyri
SNJÓKARLINN Ekki vantar snjókarlinn á
Ráðhústorginu svarta pípuhattinn sem
ku vera nauðsynlegur slíkum fírum.
ALÞINGI Þingfundi var slitið í síð-
asta skipti fyrir páska í gær-
kvöldi en þá stóðu enn yfir
umræður um stjórnskipunarlög.
Ljóst er að málið verður tekið upp
að nýju eftir páska, en átta þing-
menn Sjálfstæðisflokks voru enn
á mælendaskrá þegar þingi var
slitið um kvöldmatarleytið.
Ástæða þess að fundi var slit-
ið á þessum tiltekna tíma er að
borgarafundur í Suðvesturkjör-
dæmi var að hefjast, en þinghaldi
hefur verið frestað undanfarna
daga vegna kostningaútsendingar
Rúv. - shá
Alþingismenn í páskafrí:
Koma saman
að loknu fríi
SPURNING DAGSINS