Fréttablaðið - 09.04.2009, Page 36

Fréttablaðið - 09.04.2009, Page 36
24 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is > SUMARBRÚÐKAUP Paris Hilton hefur í hyggju að ganga í það heilaga með kærasta sínum Dough Reinhardt. Hótelerfinginn sem er 27 ára hefur verið með Rein- hardt frá því í febrúar og þau eru ekki trúlofuð, en Paris er sögð vilja giftast honum í sumar. Slúðurblöð vestanhafs herma að þau muni líklega gifta sig á Bahamaeyjum í ágúst því þau langi í sumarbrúðkaup á fal- legum stað. Slúðurmiðlar í Bandaríkjun- um hafa tekið skilnaði Linds- ay Lohan og Samönthu Ron- son fegins hendi enda virðist sjaldan eða aldrei vera logn- molla í kringum leikkonuna ungu. Lesbíurnar skildu að skiptum eftir að fjölskylda plötusnúðarins neitaði að bjóða Lohan í veislu á sínum vegum. Í kjölfar- ið fór orðrómur á kreik þess efnis að Ronson hefði sótt um nálgunar- bann og hefði lofað fjöl- skyldu sinni að hitta Lindsay aldrei aftur. Ronson hefur nú borið þessar fréttir til baka, að minnsta kosti nálgunar- bannið, og segir það fjarri lagi. „Samantha álítur sig ekki í hættu og finnst þess- ar fréttir fáránlegar,“ var haft eftir nánum vini Ronson í bandarískum fjölmiðlum í gær. „Hún hafði ekkert með þetta að gera,“ bætir heimild- armaðurinn við. Lindsay er hins vegar í sárum og líkir þessu mold- viðri við senur úr kvikmynd- inni Mean Girls en Lohan sló eftirminnilega í gegn í þeirri ágætu mynd. Þar lenti per- sóna Lindsay einmitt í því að standa ein og yfirgefin á erfiðum tímamótum. „Allir vinir mínir hafa yfirgefið mig þegar ég þarf einmitt á þeim að halda,“ sagði Lohan í samtali við US Weekly. „Ég er bara 22 ára stelpa sem varð ástfangin. Núna er ég í sárum og þessar aðstæður eru fárán- legar,“ bætti Lindsay við. Michael Lohan, pabbi Linds- ay, er því væntanlega sá eini sem hoppar hæð sína af kæti yfir þessu öllu því honum leist ekkert á samband dótt- ur sinnar og Samönthu. „Guði sé lof að þessu er lokið,“ var það eina sem hann gat sagt til að hugga stelpuna sína í miðri ástarsorginni. Farsinn í kringum Lohan heldur áfram HÆTTAR SAMAN Samantha Ron- son og Lindsay Lohan eru hættar saman en búast má við fjörlegum fréttum af þeim sambandsslitum næstu daga. Pinetop Perkins, 95 ára, hlaut góðar viðtökur á Blús- hátíð á þriðjudagskvöld. KK segir mikla stemningu hafa ríkt á tónleikunum, sem fram fóru á Hilton Nordica hótelinu. „Það var einhver galdur í loftinu og alveg ofboðslega gaman. Fólk var bara að farast að þurfa að sitja og geta ekki dansað,“ segir Kristj- án Kristjánsson, eða KK, sem var meðal þeirra sem komu fram á Blúshátíð á þriðjudagskvöld- ið. Aðalgestur tónleikanna var Grammy-verðlaunahafinn Pine- top Perkins og segir KK hann hafa komið einstaklega vel fyrir. „Pine- top var alúðlegur og skemmtileg- ur. Ég hitti hann fyrir fimmtán árum, þegar ég spilaði með honum á Hressó. Hann var miklu fjörugri þá, enda orðinn 95 ára gamall núna. Pinetop hafði ekki mikið úthald, en spilaði fimm eða sex lög og gerði það mjög vel. Hann var svolítið til hlés og sagði ekki mikið en var mjög kátur ef maður spurði hvort maður mætti taka mynd af honum, það fannst honum skemmtilegt,“ útskýrir KK. Aðspurður segir hann umboðs- mann Perkins fylgja honum hvert fótmál. „Willie Smith og umboðs- maðurinn hans, sem er kona um sextugt, fylgja honum og hugsa voðalega vel um hann. Pinetop spil- ar ennþá á hverju einasta kvöldi á klúbbi í Austin í Texas þar sem hann býr, en svo þegar honum leið- ist vill hann fara að túra, enda elsk- ar hann að ferðast. Honum finnst bara verst að mega ekki reykja um borð í flugvélinni,“ segir KK og brosir. alma@frettabladid.is Pinetop Perkins sló í gegn á blúshátíð MÆTT Á SVÆÐIÐ Pinetop Perkins mætti á tónleikana á Hilton Nordica hótelið í fylgd Willie Smith og umboðskonu sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GÓÐ STEMNING KK segir einhvern gald- ur hafa verið í loftinu. SPILAR Á HVERJU KVÖLDI Pinetop Perk- ins, 95 ára, spilar á hverju kvöldi í Austin í Texas auk þess að túra. VW Passat – 2001 1.8 Með 12% AO afslætti: 63.680 VW Passat – 2001 1.8 Atlantsolía - Lónsbraut 2 220 Hafnarfirði - Sími 591 3100 - atlantsolia@atlantsolia.is VARAHLUTIR 26% sparnaður! Sæktu um ókeypis dælulykil, www.atlantsolia.is Mismunur 26% eða 22.054 kr. Sími: 567 6020 Atlantsolía hefur samið við AB-varahluti Bíldshöfða 18. Þannig njóta dælulyklahafar Atlantsolíu 12% afsláttar af varahlutum. Með 15% N1 afslætti: 85.734 Verðkönnun gerð af Atlantsolíu. P IP A R • S ÍA • 9 0 6 4 5

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.