Fréttablaðið - 09.04.2009, Blaðsíða 10
10 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL Vinstri hreyfingin -
grænt framboð hefur lagt fram
greinargerð um hvernig skapa
megi 16.900-18.700 ný störf á
Íslandi á næstu árum. Af þeim eru
8.400-10.200 í ferðaþjónustu og
tengdum greinum, hefðbundnum
framleiðslugreinum og í nýsköpun
og sprotastarfsemi. 2.500 eru hjá
ríkinu, 2.000 eru umhverfistengd
sumarstörf fyrir námsmenn og
4.000 eru afleidd störf í þjónustu-
greinum.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, segir að möguleg
vaxtasvið atvinnulífsins hafi verið
kortlögð og greint hvað þyrfti til
svo störf gætu skapast. Ekki hafi
verið sett krónutala á pakkann
en horft til þess að ríkisútgjöld
yrðu í lágmarki. „Þetta kallar á
að Byggðastofnun, Nýsköpunar-
sjóður, Tækniþróunarsjóður og
atvinnuþróunarfélögin hafi bol-
magn til að sinna verkefnum en
það er líka mjög góð fjárfest-
ing.“ Þá komi til skattaívilnanir á
sumum sviðum.
Steingrímur segir vaxtarmögu-
leika í mörgum greinum sem fram
til þessa hafi verið vanræktar. Í
þeim efnum horfir hann til skipa-
iðnaðar, úrvinnsluiðnaðar, ullar-
og skinnaiðnaðar, húsgagnafram-
leiðslu og vatnsútflutnings svo
nokkuð sé nefnt. Fjölgun starfa
í þeim og fleiri greinum kalli
á nýjan hugsunarhátt og skýra
stefnu.
VG telur mögulegt að fjölga
störfum í ferðaþjónustu um allt
að 4.300. Það gerist með aukinni
markaðssetningu, bættri nýtingu
mannvirkja og áherslu á heilsu-
tengda ferðaþjónustu. Þá sé hægt
að skapa allt að 2.100 störf tengd
nýsköpun og sprotastarfsemi en
til þess þurfi stuðning sjóða og
skattaívilnanir.
Einnig er horft til fjölgunar
starfa hjá ríkinu, fyrst og fremst
með tilflutningi fjárveitinga í
mannaflsfrekar framkvæmdir og
með endurskipulagningu í heil-
brigðiskerfinu.
Steingrími mislíkar málflutn-
ingur pólitískra andstæðinga um
atvinnumál. „Það fer í taugarn-
ar á mér þegar stjórnmálaflokk-
ar koma fram og telja sig þess
umkomna að lofa störfum, að búa
til störf, eins og þeir ætli að fram-
leiða þau inni á skrifstofum eins
og barmmerki. Þetta gerist ekki
þannig.“ bjorn@frettabladid.is
ÞÝSKIR NASHYRNINGAR Nashyrnings-
kálfurinn Naruna, í forgrunni, horfir
út í heim í dýragarði í Hodenhagen í
Norður-Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vaxtarmöguleikar í
vanræktum greinum
VG telur mögulegt að skapa 16.900 - 18.700 ný störf á næstu árum. Steingrímur J.
Sigfússon segir að flokkurinn skapi ekki störf eða lofi þeim heldur leggi til leiðir
um hvernig fjölga megi störfum. Hann telur óvissu ríkja um álverið í Helguvík.
Steingrímur segir óskynsamlegt,
sem aldrei fyrr, að reisa ný álver
á Íslandi. „Og ég hef satt best að
segja afar litla trú á að af þessum
verkefnum verði, í öllu falli á Bakka.“
Spurður hvort hann telji jafnframt
að ekki verði af framkvæmdum í
Helguvík segist hann engu ætla að
spá. „En já, ég held að það sé áfram
mikil óvissa, bæði fjármögnun og
orkuöflunin. Það mál var í raun
frágengið og komið þangað sem
það var komið þegar við komum að
borðinu. Í tilviki Bakka er allt á bið
og maður skynjar andrúmsloftið í
kringum það mál þannig að það er
mjög vaxandi vantrú á að það yfir
höfuð verði.“
HELGUVÍK Í ÓVISSU OG EFAST UM BAKKA
HÁLENDIÐ VG
telur mikla
möguleika á
fjölgun starfa í
ferðaþjónustu.
Bæði með auk-
inni markaðs-
setningu Íslands
í útlöndum
og eins vegna
tíðari ferðalaga
Íslendinga um
eigið land.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TAÍLAND, AP Í kringum 100.000
manns söfnuðust saman á
götum Bangkok í gær til að sýna
stuðning sinn við kröfu um að
forsætisráðherrann, Abhisit Vej-
jajiva, víki úr embætti. Mótmæl-
endurnir fylktu liði að heimili
aðalráðgjafa konungsins, en þeir
saka hann um að hafa skipulagt
valdarán árið 2006, sem velti
þáverandi forsætisráðherra,
Thaksin Shinawatra, úr sessi.
Þessi fjöldamótmæli eru erf-
iðasti hjallinn sem hin fjögurra
mánaða gamla ríkisstjórn Abhis-
its hefur þurft að mæta, en hún
er fjórða ríkisstjórnin í landinu
síðan valdaránið var framið fyrir
þremur árum. - aa
Stjórnmál í Taílandi:
100.000 manns
mótmæla
HEITT Í HAMSI Mótmælendur í Bangkok
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
68 óku of hratt
Alls voru 68 ökumenn staðnir að
hraðakstri á þremur götum í Garðabæ
í gær. Þar voru ómerktar lögreglu-
bifreiðar sem eru með myndavéla-
búnað. Bifreiðarnar voru á Garðaflöt,
Ásabraut og Karlabraut í Garðabæ. Á
einni klukkustund eftir hádegi óku 66
prósent ökumanna of hratt eða yfir
afskiptahraða á Garðaflöt.
Hraðakstur á Ásabraut
Á Ásabraut í Garðabæ óku 53 prósent
ökumanna of hratt á einni klukku-
stund fyrir hádegi, en fjórtán prósent
ökumanna óku of hratt eða yfir
afskiptahraða á Karlabraut.
GARÐABÆR