Fréttablaðið - 09.04.2009, Blaðsíða 13
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur setti sér metnaðarfull markmið fyrir heimilin
og atvinnulífi ð fyrir 60 dögum. Öfl ug verkstjórn hefur skilað því að nær öll verkefnin
hafa verið afgreidd. Höldum áfram. Kjósum vinnu, velferð og verkstjórn Jóhönnu.
I. Aðgerðir í þágu heimila
Velferðarvakt stofnuð í samráði við hags-
munaaðila.
Greiðsluaðlögun innleidd, greiðslujöfnun
gengistryggðra lána og frestun nauðungar-
uppboða í allt að sex mánuði meðan reynt er
að tryggja búsetuöryggi til frambúðar. Gjald-
þrotalögum breytt til að bæta stöðu skuldara.
Tryggt að fólk sem skuldar fasteignalán í
ríkis bönkunum njóti sömu greiðsluvanda-
úrræða og Íbúðalánasjóður veitir.
Langtímaáætlun gerð um hvernig skulda-
vanda heimilanna verði frekar mætt. Staða
mismunandi tekju- og aldurshópa metin,
tillögur um fj ármögnun, mat á kostnaði ríkis-
sjóðs og áhrifum á fj ármálastöðugleika.
Nýting hluta séreignarsparnaðar til að mæta
brýnum fj árhagsvanda heimiluð.
II. Aðgerðir í þágu atvinnulífs
Verkefni sem eru þjóðhagslega arðbær og
krefj ast mikillar vinnuafl sþátttöku sett í
forgang. Lögð fram tímasett áætlun um opin-
berar framkvæmdir og útboð á árinu.
[Áætlun í vinnslu]
Heimildir Íbúðalánasjóðs til lána vegna við-
halds íbúðarhúsnæðis rýmkaðar.
Virðisaukaskattur vegna vinnu við slík verk-
efni verði að fullu endurgreiddur.
Ráðist í sértæk átaksverkefni og öfl ugar
vinnu markaðsaðgerðir til að vinna gegn
atvinnuleysi.
Leitað verður leiða til þess að örva fj árfest-
ingu innlendra og erlendra aðila og sköpun
nýrra starfa á almennum vinnumarkaði.
Lánareglur LÍN geri atvinnulausum kleift
að auka þekkingu sína og færni í stað þess að
þiggja atvinnuleysisbætur.
[Úthlutunarreglur í endurskoðun]
Ný lög um Byggðastofnun til að efl a útlána-
getu. [Í vinnslu]
Áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna
metið svo jafnrétti verði leiðarljós við endur-
reisnina.
III. Aðgerðir til að byggja upp fjármála -
kerfi ð og greiða úr vanda fyrirtækja
Fjármálastofnanir greiði úr vanda lífvæn-
legra fyrirtækja á grundvelli gegnsærra og
alþjóðlega viðurkenndra reglna. Gætt skal
sanngirni og jafnræðis og sérstaklega hugað
að virkri samkeppni.
Verðmati nýju bankanna lokið sem fyrst
samhliða endurfj ármögnun. Eyða þarf
óvissu sem hamlar starfseminni, svo sem
með samningum við kröfuhafa, innlenda
og erlenda, þ.m.t. vegna innstæðna.
Nýju bönkunum sett útlánamarkmið fyrir
árið til að örva hagkerfi ð. [Í vinnslu]
IV. Endurreisn efnahagslífsins
Framvinda efnahagsáætlunarinnar unnin
með fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Markvissra leiða leitað til að lækka vexti eins
fl jótt og kostur er. Tímasett áætlun gerð um
rýmkun hafta. [Áætlun í vinnslu]
Ábyrg stefna í ríkisfj ármálum með varðstöðu
um velferðarkerfi ð og grunnþjónustuna
um leið og unnið er markvisst að jafnvægi
útgjalda og tekna.
V. Aukið lýðræði, jöfnuður og upplýsingar
Víðtækt samráð við sveitarfélög, aðila vinnu-
markaðarins og almenning í landinu.
Nýjar siðareglur í Stjórnarráðinu. Ráðherra
og æðstu embættismenn opinbera fj árhags-
legar skuldbindingar og hagsmunatengsl.
Eftirlaunalögin afnumin. Alþingismenn og
ráðherrar falla undir almennar reglur um líf-
eyriskjör opinberra starfsmanna.
Setning nýrra laga um skipan hæstaréttar-
og héraðsdómara undirbúin.
Lög um ráðherraábyrgð endurskoðuð.
Unnið að breytingum á stjórnarskrá:
a) Auðlindir í þjóðareign. [Nú rætt á þingi]
b) Ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur.
[Nú rætt á þingi]
c) Stjórnarskrá breytt með sérstakri þjóðar-
atkvæðagreiðslu. [Nú rætt á þingi]
Stjórnlagaþing. [Nú rætt á þingi]
Persónukjör gert mögulegt í alþingis-
kosningum. [Nú rætt á þingi]
VI. Endurskipulagning í stjórnsýslu
Skipulagi stjórnkerfi sins breytt til að tryggja
markvissari framkvæmd efnahagsaðgerða
stjórnvalda og endurnýja traust á fj ármála-
kerfi landsins.
Ný yfi rstjórn Seðlabanka Íslands með einum
faglegum seðlabankastjóra og peningastefnu-
ráði. Endurskoðun á peningamálastefnu
hafi n.
Ný yfi rstjórn Fjármálaeftirlitsins og breyt-
ingar á yfi rstjórn einstakra ráðuneyta.
Erlendir sérfræðingar til liðs við FME.
Könnun á rýmri lagaheimildum til kyrrsetn-
ingar eigna til verndar þjóðarhagsmunum.
VII. Alþjóðasamningar og Evrópusamstarf
Yfi rlit um lántökur og heildarskuldbindingar
þjóðarbúsins kynnt almenningi.
Alþjóðlegir sérfræðingar ráðnir til aðstoð-
ar við samninga um skuldir þjóðarbúsins,
samninga vegna innstæðutrygginga, sam-
skipti við erlenda kröfuhafa og endurreisn
bankanna.
Evrópunefnd skili skýrslu um mat á stöðu
og horfum Íslands gagnvart samstarfi við
Evrópu þjóðir og framtíðarhorfur í gjald-
miðilsmálum.
[Verður kynnt um miðjan mánuðinn]
www.xs.is
Við látum verkin tala