Fréttablaðið - 09.04.2009, Blaðsíða 40
9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI KR tekur á móti
Grindavík á heimavelli í kvöld í
þriðja leik liðanna um Íslands-
meistaratitil karla. Staðan er jöfn
í einvíginu, 1-1, eftir að bæði lið
unnu á heimavelli í fyrstu tveim-
ur leikjunum.
Hlynur Bæringsson, þjálfari og
leikmaður Snæfells, þekkir vel
til beggja liða en hans lið tapaði
í undanúrslitum fyrir Grindavík.
Fréttablaðið leitaði hans álits fyrir
leik kvöldsins.
„Ég var búinn að spá því að þetta
einvígi færi 3-1,“ sagði Hlynur.
„Ég held til dæmis að ef Grindavík
ætlar að vinna titilinn verði liðið
helst að vinna í kvöld og svo fjórða
leikinn á heimavelli. Þeir verða að
taka einn leik á heimavelli KR og
mér finnst ekki líklegt að þeir geri
það í fimmta leiknum.“
Hann segir þó að KR sé sigur-
stranglegri aðilinn í leiknum í
kvöld. „KR er með fáránlega sterkt
lið, sérstaklega á heimavelli. Það
er mjög erfitt fyrir hvaða íslenskt
lið sem er að ætla að vinna þarna.
Ef Grindavík ætlar að takast að
vinna KR á útivelli þurfa margir
leikmenn liðsins að eiga sinn allra
besta leik á tímabilinu.“
Hlynur segir að báðir leikirn-
ir til þessa í rimmu liðanna hafi
verið mikil skemmtun enda mjög
hraðir og fjörugir. „Bæði lið kunna
að skjóta og hlaupa. Ég tel að þetta
gæti ráðist á því hvort liðið stend-
ur sig betur í sóknum sem það þarf
að stilla upp á hálfum velli.“
Sem fyrr segir telur Hlynur
að KR sé sigurstranglegra liðið í
kvöld og að það sé því í kjörstöðu.
„Ef þú ert með besta liðið þarftu
ekki að gera neitt sérstakt til að
vinna. Það eru öll hin liðin sem
þurfa eitthvað sérstakt. Ég tel að
Grindvíkingar þurfi að hitta á
góðan leik í langskotum eins og
þeir geta vissulega gert. Og ef
þeim tekst líka að halda þeim Jóni
Arnóri og Jakobi sæmilega niðri
eiga þeir ágætan möguleika.“
En þótt þeir tveir séu hvað mest
áberandi í liði KR telur Hlynur að
miðherjinn Fannar Ólafsson gegni
algjöru lykilhlutverki.
„Þeir þurfa að passa sig að lenda
ekki í villuvandræðum og þá sér-
staklega Fannar. Hann heldur
ákveðnu jafnvægi í liðinu og þeir
sem koma inn fyrir hann eru oftar
en ekki skyttur. KR á nóg af skytt-
um. Fannar er hins vegar mjög
mikilvægur í vörn og fráköstum.
Ef hann spilar vel held ég að KR
vinni í kvöld.“
eirikur@frettabladid.is
Grindavík þarf að
sýna sitt allra besta
Í kvöld fer fram þriðji leikur KR og Grindavíkur í
einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitil karla. Hlyn-
ur Bæringsson spáir í spilin fyrir Fréttablaðið.
TEKIÐ Á ÞVÍ Ljóst er að þeir Brenton Birmingham og Jón Arnór Stefánsson munu oft
eigast við á vellinum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Liðið sem kemst í 2-1 verður meistari
KR og Grindavík leika í kvöld þriðja leik sinn í úrslita-
einvígi sínu um Íslandsmeistaratitil Iceland Express-
deildar karla. Mikilvægi leiks kvöldsins er mjög mikið,
ekki síst ef hann er settur í samhengi við þróun
mála í lokaúrslitunum undanfarinn rúma áratug.
Frá því að úrslitakeppnin tók núverandi mynd árið
1997 hefur það lið sem hefur unnið þriðja leikinn í
stöðunni 1-1 alltaf orðið meistari. Þetta hefur gerst í
sex skipti, þar af fjögur ár í röð frá 2004 til 2007. Von
tapliðsins í kvöld liggur í því að rifja upp árin 1991,
1992 og 1994. Þá þurfti einnig að vinna þrjá leiki og í
öll þessi þrjú skipti lentu verðandi meistarar 1-2 undir.
Ekkert hlé á góðum myndum!
Skráning á póstlistann margborgar sig
www.graenaljosid.is
Fumsýnd 3. apríl í
Háskólabíói
SAM ROCKWELL &
ANJELICA HUSTON
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
VITA er lífið
Skráðu þig í netklúbbinn – VITA.is
Mallorca í vor
á einstöku tilboðsverði!
VITA er ný ferðaskrifstofa
í eigu Icelandair Group.
GROUP
Dagskrá fyrir Gott fólk 60+
Fararstjóri: Rebekka Kristjánsdóttir
Skemmtanastjóri: Bjarney Lea Guðmundsdóttir
Dvöl á Mallorca sameinar allt sem fólk yfir sextugt
sækist eftir á sólarstað. Við bjóðum farþegum að
velja á milli ýmissa úrvalsgististaða á Playa de Palma.
Í boði eru skoðunarferðir með fararstjóra og að
auki verður farið í leikfimi, mini-golf, gönguferðir
og haldin spilakvöld og kvöldvökur.
Heilsurækt
Félagsvist/mini-golf
Ganga/stafaganga
Skemmtikvöld
3.–27. maí í 24 nætur
Hotel Cosmopolitan
Verð frá 98.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í tvíbýli með hálfu fæði. Verð m.v. 5.000 kr.
afslátt til félaga í Gott fólk 60+
* Verð án Vildarpunkta en með klúbbafslætti: 108.900 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
56
77
0
4.
20
09
hálft fæði