Fréttablaðið - 09.04.2009, Blaðsíða 18
9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
GUÐNI ÁGÚSTSSON, FYRRVER-
ANDI RÁÐHERRA OG FORMAÐUR
FRAMSÓKNARFLOKKSINS, ER
SEXTUGUR.
„Ég beiti svipunni hóflega
fast þegar þið farið af leið.“
Þessi fleygu orð mælti Guðni
Ágústsson, þá fráfarandi
landbúnaðarráðherra, við arf-
taka sinn, Einar K. Guðfinns-
son, við lyklaskiptin í ráðu-
neytinu árið 2007.
timamot@frettabladid.is
„Ég geri ráð fyrir að lesturinn sjálfur sé um fimm tímar en
svo eru yndislegir tónlistarmenn með mér. Elísabet Waage
leikur á hörpu og Matthías Nardeau á óbó,“ segir Ragnheiður
Steindórsdóttir, leikkona og bæjarlistarmaður á Seltjarnar-
nesi, en hún ætlar að lesa alla Passíusálma Hallgríms Pét-
urssonar í Seltjarnarneskirkju á föstudaginn langa.
„Ég held að ég sé fyrsta konan til að lesa sálmana opinber-
lega en konur hafa áður lesið þá í útvarpi. Hins vegar liðu
30 ár frá því Sigurbjörn Einarsson, þá dósent við guðfræði-
deild háskólans og síðar biskup Íslands, las sálmana fyrst
árið 1944 þar til kona las þá í fyrsta sinn árið 1974. Það var
Valbjörg Kristmundsdóttir, systir Steins Steinarrs. Hún kom
frá Akranesi og las þá inn á stálþráð.“
Ragnheiður hefur áður lesið hluta Passíusálmanna opin-
berlega. „Við vorum til dæmis fjögur sem lásum Passíusálm-
ana í Hallgrímskirkju árið 2007 og þá fór ég á námskeið um
sálmana hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sá fróðleik-
ur hefur nýst mér afskaplega vel í að undirbúa mig fyrir
verkið en síðan auðvitað les ég bara og les til að æfa mig,“
segir hún ánægð og bætir við: „Það er upplifun að kynnast
Passíusálmunum. Skáldið er á köflum mjög harðort í garð
veraldlegra og geistlegra yfirvalda og sendir þeim tóninn.
En síðan er líka trúnaðartraust í sálmunum til frelsarans og
djúpt þakklæti fyrir að vera laus undan refsivendi drottins
vegna þeirrar fórnar sem Jesús færði okkur öllum. Þetta er
svo innilegt, fallegt og djúpt.“ Gestum er frjálst að koma og
fara að vild á meðan á lestri stendur. „Æskilegt er að hafa
með sér Passíusálmabækur til að fylgjast með en sálmarnir
eru til á mörgum heimilum,“ segir Ragnheiður og brosir.
Frá því Ragnheiður las sálmana árið 2007 hefur hana
langað til að takast á við að lesa þá í heild sinni. „Ég nefndi
þetta við prestinn á Seltjarnarnesi, við góðar undirtektir,
og stuttu síðar var ég útnefnd bæjarlistarmaður. Þá fannst
mér kjörið að hafa þetta sem mitt stóra verkefni í ár. Ég hef
búið á Seltjarnarnesi í nokkur ár og kann óskaplega vel við
mig. Kirkjan er falleg, góður hljómburður í henni og yndis-
legt að vera þar. Því kom ekki annar staður til greina. Þetta
er líka í fyrsta skipti sem Passíusálmarnir eru fluttir þar í
heild sinni á föstudaginn langa,“ útskýrir hún áhugasöm og
bætir við einlæg: „Passíusálmarnir eru fjársjóður sem við
verðum að færa frá kynslóð til kynslóðar og mér finnst ég
vera hlekkur í þeirri keðju.“ hrefna@frettabladid.is
RAGNHEIÐUR STEINDÓRSDÓTTIR: LES
PASSÍUSÁLMANA Á FÖSTUDAGINN LANGA
Djúp upplifun
BREYSKLEIKI MANNSINS Ragnheiður segir Passíusálmana snerta sig
djúpt enda hafi Hallgrímur Pétursson verið mikið skáld og listamaður.
Við viljum koma á framfæri innilegu þakk-
læti til allra þeirra sem sýndu okkur samúð
og stuðning við fráfall sonar okkar,
Kristins Guðbjartssonar.
María Baldursdóttir Guðbjartur J. Sigurðsson
og systkini hins látna.
Elskuleg móðir okkar, amma og lang-
amma,
Sigríður Ágústsdóttir
frá Geiteyjarströnd, Mývatnssveit,
lést hinn 5. apríl á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og
afi,
Frans Magnússon,
sjómaður, Vesturgötu 111b, 300 Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 7. apríl.
Útför fer fram föstudaginn 17. apríl kl. 14.00 frá
Akraneskirkju. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Sjúkrahúsið á Akranesi eða
Krabbameinsfélag Íslands.
Elín Jónasdóttir
Valdís Hildur Fransdóttir Atli Þór Karlsson
Emelía Elín Fransdóttir Hafþór Hallmundsson
Maía Jósefsdóttir Ingólfur Guðbrandsson
Sína Sigríður Magnúsdóttir Axel Hilmarsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sjöfn Jóhannsdóttir
lést á Sólvangi í Hafnarfirði 6. apríl sl. Jarðarför henn-
ar fer fram föstudaginn 17. apríl frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 13.00.
Sonja Larsen Þórður Benediktsson
Jóhann Larsen Hildur Valgeirsdóttir
Edda Larsen Guðmundur Ásgeir Sölvason
Axel Birgir Knútsson Jóhanna Jónsdóttir
Hilmar Knútsson Jónína Ívarsdóttir
Gerða Knútsdóttir Krister Olsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Margrét Ögmundsdóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala miðvikudaginn
8. apríl. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn
17. apríl kl. 13.00.
Guðrún Jónsdóttir Oddur Þórðarsson
Jóna Jónsdóttir Pétur Eiríksson
Guðlaugur G. Jónsson Sigríður I. Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað-
ir, bróðir og afi,
Hörður Eiríksson,
fyrrverandi flugvélstjóri
Blönduhlíð 10, Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
31. mars síðastliðinn, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 13.00. Blóm
og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Hjartaheill.
Helga Steffensen
Björn Sverrir Harðarson
Helga Sigríður Harðardóttir Steffensen Guðmundur E.
Jónsson
Valdimar Harðarson Steffensen Guðrún Ægisdóttir
Baldur Þórir Harðarson Estíva Birna
Björnsdóttir
Eiríkur Bjartmar Harðarson
bróðir og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Kjartan Sveinsson,
Símaverkstjóri,
frá Vík í Mýrdal,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
6. apríl verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriðju-
daginn 14. apríl kl. 13:00. Blóm og kransar eru afþakk-
aðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknar-
og hjálparstofnanir.
Þórir Kjartansson Friðbjört Elísabet Jensdóttir
Sveinn Kjartansson Hólmfríður Böðvarsdóttir
Eyrún Kjartansdóttir Haukur Helgason
Sigrún Kjartansdóttir Þorbjörn Jónsson
börn, tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Jón Kristinsson
Lambey, Fljótshlíð,
lést á Kirkjuhvoli Hvolsvelli miðvikudaginn 1. apríl.
Útför hans fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í
Fljótshlíð laugardaginn 11. apríl kl. 13.00. Þeim sem
vildu minnast hans er bent á Dvalarheimilið Kirkjuhvol
á Hvolsvelli.
Guðbjörg Jónsdóttir Jón Þorvaldsson
Þórhildur Jónsdóttir
Kristjana Jónsdóttir Guðjón E. Ólafsson
Sveinbjörn Jónsson Jaana Rotinen
Kristinn Jónsson Guðbjörg Júlídóttir
Katrín Jónsdóttir Helmut Grimm
Þorsteinn Jónsson Ásta Brynjólfsdóttir
Sigrún Jónsdóttir Jón Valur Baldursson
Gunnar Rafn Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, pabbi okkar, tengda-
pabbi, afi og langafi,
Árni Elfar
lést hinn 5. apríl síðastliðinn á Hjúkrunar- og dvalar-
heimilinu Holtsbúð. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
F.h. aðstandenda,
Kristjana Magnúsdóttir.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Dvalarheimilinu Grund,
áður Álfheimum 3,
lést að morgni 5. apríl. Útför hennar fer fram frá
Langholtskirkju föstudaginn 17. apríl klukkan 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmann Sigurbjörnsson Kristín Aradóttir
Rósa Jónsdóttir Sigursveinn Sigurðsson
Hólmfríður Jónsdóttir
Guðjón Rögnvaldsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Ketill Leósson
Vættaborgum 88, Reykjavík,
lést á Líknardeildinni Kópavogi að morgni 5. apríl sl.
Hann verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardag-
inn 11. apríl kl. 13.30.
Rakel Gísladóttir, Benedikta Ketilsdóttir, Guðjón Egill
Guðjónsson
Ketill A. Ágústsson, Gabríel A.Guðjónsson, systkini hins
látna og fjölskyldur þeirra.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI