Fréttablaðið - 09.04.2009, Blaðsíða 36
24 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> SUMARBRÚÐKAUP
Paris Hilton hefur í hyggju að ganga
í það heilaga með kærasta sínum
Dough Reinhardt. Hótelerfinginn
sem er 27 ára hefur verið með Rein-
hardt frá því í febrúar og þau eru
ekki trúlofuð, en Paris er sögð
vilja giftast honum í sumar.
Slúðurblöð vestanhafs herma
að þau muni líklega gifta sig á
Bahamaeyjum í ágúst því þau
langi í sumarbrúðkaup á fal-
legum stað.
Slúðurmiðlar í Bandaríkjun-
um hafa tekið skilnaði Linds-
ay Lohan og Samönthu Ron-
son fegins hendi enda virðist
sjaldan eða aldrei vera logn-
molla í kringum leikkonuna
ungu. Lesbíurnar skildu að
skiptum eftir að fjölskylda
plötusnúðarins neitaði að
bjóða Lohan í veislu á
sínum vegum. Í kjölfar-
ið fór orðrómur á kreik
þess efnis að Ronson
hefði sótt um nálgunar-
bann og hefði lofað fjöl-
skyldu sinni að hitta Lindsay
aldrei aftur. Ronson hefur nú
borið þessar fréttir til baka,
að minnsta kosti nálgunar-
bannið, og segir það fjarri
lagi. „Samantha álítur sig
ekki í hættu og finnst þess-
ar fréttir fáránlegar,“ var
haft eftir nánum vini Ronson
í bandarískum fjölmiðlum í
gær. „Hún hafði ekkert með
þetta að gera,“ bætir heimild-
armaðurinn við.
Lindsay er hins vegar í
sárum og líkir þessu mold-
viðri við senur úr kvikmynd-
inni Mean Girls en Lohan sló
eftirminnilega í gegn í þeirri
ágætu mynd. Þar lenti per-
sóna Lindsay einmitt í því
að standa ein og yfirgefin á
erfiðum tímamótum. „Allir
vinir mínir hafa yfirgefið
mig þegar ég þarf einmitt á
þeim að halda,“ sagði Lohan í
samtali við US Weekly. „Ég er
bara 22 ára stelpa sem varð
ástfangin. Núna er ég í sárum
og þessar aðstæður eru fárán-
legar,“ bætti Lindsay við.
Michael Lohan, pabbi Linds-
ay, er því væntanlega sá eini
sem hoppar hæð sína af kæti
yfir þessu öllu því honum
leist ekkert á samband dótt-
ur sinnar og Samönthu. „Guði
sé lof að þessu er lokið,“ var
það eina sem hann gat sagt til
að hugga stelpuna sína í miðri
ástarsorginni.
Farsinn í kringum Lohan heldur áfram
HÆTTAR SAMAN Samantha Ron-
son og Lindsay Lohan eru hættar
saman en búast má við fjörlegum
fréttum af þeim sambandsslitum
næstu daga.
Pinetop Perkins, 95 ára,
hlaut góðar viðtökur á Blús-
hátíð á þriðjudagskvöld. KK
segir mikla stemningu hafa
ríkt á tónleikunum, sem
fram fóru á Hilton Nordica
hótelinu.
„Það var einhver galdur í loftinu
og alveg ofboðslega gaman. Fólk
var bara að farast að þurfa að sitja
og geta ekki dansað,“ segir Kristj-
án Kristjánsson, eða KK, sem
var meðal þeirra sem komu fram
á Blúshátíð á þriðjudagskvöld-
ið. Aðalgestur tónleikanna var
Grammy-verðlaunahafinn Pine-
top Perkins og segir KK hann hafa
komið einstaklega vel fyrir. „Pine-
top var alúðlegur og skemmtileg-
ur. Ég hitti hann fyrir fimmtán
árum, þegar ég spilaði með honum
á Hressó. Hann var miklu fjörugri
þá, enda orðinn 95 ára gamall núna.
Pinetop hafði ekki mikið úthald, en
spilaði fimm eða sex lög og gerði
það mjög vel. Hann var svolítið
til hlés og sagði ekki mikið en var
mjög kátur ef maður spurði hvort
maður mætti taka mynd af honum,
það fannst honum skemmtilegt,“
útskýrir KK.
Aðspurður segir hann umboðs-
mann Perkins fylgja honum hvert
fótmál. „Willie Smith og umboðs-
maðurinn hans, sem er kona um
sextugt, fylgja honum og hugsa
voðalega vel um hann. Pinetop spil-
ar ennþá á hverju einasta kvöldi á
klúbbi í Austin í Texas þar sem
hann býr, en svo þegar honum leið-
ist vill hann fara að túra, enda elsk-
ar hann að ferðast. Honum finnst
bara verst að mega ekki reykja um
borð í flugvélinni,“ segir KK og
brosir. alma@frettabladid.is
Pinetop Perkins sló í gegn á blúshátíð
MÆTT Á SVÆÐIÐ Pinetop Perkins mætti á tónleikana á Hilton Nordica hótelið í fylgd
Willie Smith og umboðskonu sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GÓÐ STEMNING KK segir einhvern gald-
ur hafa verið í loftinu.
SPILAR Á HVERJU KVÖLDI Pinetop Perk-
ins, 95 ára, spilar á hverju kvöldi í Austin
í Texas auk þess að túra.
VW Passat – 2001 1.8
Með 12% AO
afslætti: 63.680
VW Passat – 2001 1.8
Atlantsolía - Lónsbraut 2 220 Hafnarfirði - Sími 591 3100 - atlantsolia@atlantsolia.is
VARAHLUTIR
26% sparnaður!
Sæktu um ókeypis dælulykil,
www.atlantsolia.is
Mismunur 26%
eða 22.054 kr.
Sími: 567 6020
Atlantsolía hefur samið við AB-varahluti Bíldshöfða 18.
Þannig njóta dælulyklahafar Atlantsolíu 12% afsláttar
af varahlutum.
Með 15% N1
afslætti: 85.734
Verðkönnun gerð af Atlantsolíu.
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
6
4
5