Fréttablaðið - 09.04.2009, Síða 4
4 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
BETRA START MEÐ
EXIDE-RAFGEYMUM
15%
afsláttur
Upplýsingar í síma 515 1100
Sendið pantanir á pontun@olis.is
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval rafgeyma frá Exide, ýmsar
stærðir og gerðir fyrir bíla, báta og önnur tæki. Gæðafram-
leiðsla sem reynst hefur afar vel við íslenskar aðstæður.
ÍTALÍA, AP Eftirskjálftar héldu
áfram að skelfa íbúa hamfara-
svæðisins á Mið-Ítalíu, þar sem
harður jarðskjálfti aðfaranótt
mánudags varð að minnsta kosti
260 manns að bana. Tugþúsund-
ir hírast í neyðartjöldum í svölu
fjallavorlofti Abruzzo-héraðs, fólk
sem annaðhvort hefur misst heim-
ili sín eða þorir ekki að dvelja í
húsi sínum af ótta við að það
hrynji í næsta eftirskjálfta. Bene-
dikt XVI páfi sagðist vilja heim-
sækja fólkið eins fljótt og auðið
er.
Skrifstofa Páfagarðs upplýsti að
páfi myndi fara á vettvang strax
eftir páska; hann vildi ekki valda
truflun á björgunarstarfi sem enn
þá stendur yfir.
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, varðist gagnrýni
í gær eftir að hann hafði látið
svo ummælt að fólk sem hefur
þurft að flýja heimili sín af völd-
um hamfaranna ætti að reyna að
njóta þess að gista í tjaldi eins og
um tjaldútilegu væri að ræða, og
það ætti að nota tækifærið og fara
á ströndina. Að beiðni stjórnvalda
hafa hótel á Adríahafsströndinni
verið rýmd fyrir flóttafólkið.
Berlusconi sagði sig hafa ætlað
að hughreysta fólk með þessum
orðum sínum; reyna að benda á
björtu hliðarnar þegar tilveran
virtist grimm. Ummælin lét hann
falla í heimsókn í einar tjaldbúð-
irnar á jarðskjálftasvæðinu. Frá
því skjálftinn reið yfir hefur hann
farið daglega í slíkar heimsóknir
og flogið yfir svæðið í þyrlu til að
glöggva sig frekar á ástandinu.
Í viðbrögðum við gagnrýni á
orð sín sagði hann: „Ég vil ekki
að andrúmsloft svartsýni, nei-
kvæðni, sjúkdóma og dauða“
hafi yfirhöndina meðal fólks sem
hefur um sárt að binda eftir ham-
farirnar.
Hann upplýsti annars að nú væri
staðfestur fjöldi látinna kominn í
260 og þar af væru 16 börn. Ekki
hefði enn tekist að bera kennsl á
níu lík. Fimmtán manna væri enn
saknað. Leit héldi áfram.
- aa
Á VETTVANGI Silvio Berlusconi, með
hjálm slökkviliðsmanns, kynnir sér stöðu
björgunarstarfsins í L‘Aquila, héraðshöf-
uðborg Abruzzo-héraðs. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Alls hafa 260 lík fundist við leit í rústum húsa á hamfarasvæðinu í Abruzzo-fjallahéraðinu á Mið-Ítalíu:
Hughreystingarorð Berlusconis gagnrýnd
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
14°
18°
22°
18°
12°
18°
20°
20°
12°
12°
19°
14°
16°
26°
12°
19°
19°
9°
FÖSTUDAGURINN LANGI
8-15 m/s hvassast
SA og A til.
LAUGARDAGUR
3-10 m/s hvassast
austast.
6
6
6
8
8
1
3
32
-2
3
4
8
10
8
3
2
1
6
5
5
6
4
9
1
-2-4
2 5
-1
-4-4
PÁSKAVEÐRIÐ
Almennt má segja að
norðlægar áttir hafi
undirtökin í veðrinu
næstu daga. Það
þýðir að búast má við
vægu frosti á norður-
helmingi landsins, en
mildara veðri sunnan
til. Í dag verður væta
suðaustan til og stöku
él á Vestfjörðum.
Á morgun og hinn
verða él nyrðra og
eystra. Á páskadag
verður úrkomulítið þó
helst suðaustan til og
á Vestfjörðum.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
SKOÐANAKÖNNUN Fylgi Sjálfstæð-
isflokksins dalar talsvert sam-
kvæmt nýrri skoðanakönn-
un Fréttablaðsins. Flokkurinn
mælist með 24,8 prósenta fylgi
nú, en 29,1 prósents fylgi í könn-
un sem gerð var fyrir tveimur
vikum. Munurinn er 4,3 prósent.
Yrðu niðurstöður þingkosninga
í samræmi við könnunina næðu
sextán frambjóðendur Sjálfstæð-
isflokks kjöri, en flokkurinn er
með 25 þingmenn í dag. Flokkur-
inn var með 36,6 prósenta fylgi í
síðustu kosningum, og mælist því
langt undir kjörfylgi.
Vinstri græn bæta við sig fylgi
milli kannana. Flokkurinn mælist
með 28,1 prósents fylgi nú, en
25,8 prósent sögðust styðja flokk-
inn fyrir tveimur vikum. Kjör-
fylgi flokksins var 14,3 prósent.
VG fengi miðað við þetta nítján
þingmenn kjörna, en er með níu
í dag.
Samfylkingin eykur fylgi sitt
lítillega, og nýtur samkvæmt
könnuninni fylgis 33,3 pró-
senta landsmanna. Fyrir tveim-
ur vikum mældist fylgi flokks-
ins 31,7 prósent. Samfylkingin er
talsvert yfir kjörfylgi, sem var
26,8 prósent. Flokkurinn fengi 22
þingmenn yrðu þetta niðurstöður
kosninga en er með 18 í dag.
Ríkisstjórnarflokkarnir eru
samanlagt með 61,4 prósent fylgi
og 41 þingmann af 63. Meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Samfylking-
ar sem myndaður var eftir síð-
ustu kosningar var með 63,4 pró-
senta fylgi og 43 þingmenn.
Framsóknarflokkurinn fengi 9,9
prósent atkvæða yrðu niðurstöð-
ur kosninga í samræmi við könn-
un Fréttablaðsins. Fyrir tveimur
vikum mældist fylgi flokksins 7,5
prósent. Flokkurinn er enn undir
kjörfylgi, sem var 11,7 prósent.
Flokkurinn næði sex mönnum á
þing yrðu þetta niðurstöður kosn-
inga, en er með sjö í dag.
Aðrir flokkar myndu ekki ná
manni á þing.
Frjálslyndi flokkurinn dalar
enn, og mælist með fylgi eins pró-
sents landsmanna. Borgarahreyf-
ingin fengi 1,7 prósent atkvæða
samkvæmt könnuninni og Lýð-
ræðishreyfingin fengi eitt prósent
atkvæða.
Hringt var í 800 manns þriðjudag-
inn 7. apríl, og skiptust svarendur
jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir
búsetu. Spurt var; Hvaða lista mynd-
ir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga
nú? Þeir sem voru óákveðnir voru
spurðir; Hvaða lista er líklegast að
þú myndir kjósa? Þeir sem enn voru
óákveðnir voru spurðir; Er líklegra
að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn eða einhvern annan flokk? Alls
tóku 77,1 prósent afstöðu til spurn-
ingarinnar. brjann@frettabladid.is
GENGIÐ 08.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,3746
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,63 127,23
186,43 187,33
167,71 168,65
22,505 22,637
18,829 18,939
15,396 15,486
1,2661 1,2735
188,85 189,97
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
40
35
30
25
20
15
10
5
%
Fylgi stjórnmálaflokkanna
Samkvæmt könnunum Fréttablaðsins frá kosningum 2007 til 7. apríl 2009.
8,0
36,6
26,8
14,3
11,7
7,3
36,0
40,2
32,6
14,2
5,9
19,2
22,1
12,3
21,7
26,9
33
12
. m
aí
20
07
15
. m
aí
20
07
29
. s
ep
t.
20
07
30
. j
an
. 2
00
8
23
. f
eb
. 2
00
8
19
. a
pr
íl
20
08
21
. j
ún
í 2
00
8
25
. o
kt
. 2
00
8
22
. n
óv
. 2
00
8
22
. j
an
. 2
00
9
27
. f
eb
. 2
00
9
11
. m
ar
s 2
00
9
25
. m
ar
s 2
00
9
7.
ap
ríl
2
00
9
Ko
sn
in
ga
r
1,0
1,7
9,9
33,3
24,8
28,1
Ofurhlauprarinn Ágúst Kvaran lenti
í níunda sæti í sínum aldursflokki í
Sahara-maraþonhlaupinu en ekki því
19. eins og fram kom í blaðinu í gær.
LEIÐRÉTTING
Tekið skal fram að í dómsorði
Hæstaréttar varðandi sumarbústað
sem systrum hefur verið gert að rífa
í Grímsnesi segir ekki að þær hafi
byggt húsið vitandi að byggingaleyfi
sem þær höfðu fengið yrði fellt úr
gildi heldur sagði dómurinn einungis
að þeim hefði mátt vera það ljóst.
ÁRÉTTING
Ríkisstjórnin með
öruggan meirihluta
Stuðningur við ríkisstjórnarflokkana eykst samkvæmt könnun Fréttablaðsins
og er nú 61,4 prósent. Aðrir flokkar en fjórflokkarnir ná ekki manni á þing.
Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi. Frjálslyndir áfram í frjálsu falli.
VIÐSKIPTI Páll Benediktsson, tals-
maður skilanefndar Landsbankans,
vísar því á bug að nefndin hafi hótað
uppsögn fari stjórnarfrumvarp um
slitameðferð fjármálafyrirtækja
óbreytt í gegnum Alþingi líkt og
greint var frá í Markaðnum í gær.
Skilanefndirnar setja sig upp á
móti svokölluðu sólarlagsákvæði
í frumvarpinu en þar er gert ráð
fyrir sex mánaða hámarksstarfs-
tíma skilanefnda frá gildistöku
laganna. Þá verði slitastjórnir
settar yfir nefndirnar. Telur
skilanefnd Landsbankans að hún
missi við það umboð sitt til samn-
inga um eignir gamla bankans og
því farsælast að hún víki strax,
verði frumvarpið að lögum. - jab
Skilanefnd Landsbankans:
Segist ekki
hóta uppsögn
DANMÖRK, AP Dönsk samtök sem
berjast fyrir tjáningarfrelsi hafa
nú látið prenta 1.000 eintök af
þekktustu skopteikningunni af
Múhameð spámanni, sem birtist
í Jótlandspóstinum haustið 2005.
Hver mynd er nú til sölu fyrir
1.400 danskar krónur, andvirði
um 25.000 íslenskra.
Frá þessu greindi í gær Lars
Hedegaard, formaður samtak-
anna. Um er að ræða teikningu
sem sýnir skeggjaðan Múhameð
með túrban í formi sprengju með
logandi kveikiþræði. Hedegaard
segir tilganginn með útgáfunni nú
þann sama og fyrr; „við erum að
nýta okkur tjáningarfrelsið.“ - aa
Enn af Múhameðsteikningum:
Skopmynd fjöl-
földuð til sölu
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn á
Blönduósi fundu pakkningu sem
innihélt 400 grömm af marijú-
ana í bíl í fyrrakvöld. Er þetta
með stærri fíkniefnamálum sem
komið hafa upp á Blönduósi.
Pakkningin fannst þegar bíll
var stöðvaður við reglubundið
eftirlit í bænum. Mennirnir tveir,
sem í bílnum voru, þóttu grun-
samlegir. Því var leitað í bílnum.
Mennirnir, báðir á þrítugsaldri,
voru handteknir og færðir á lög-
reglustöð en sleppt eftir að annar
þeirra hafði viðurkennt að eiga
efnið. Ökumaðurinn er einnig tal-
inn hafa ekið undir áhrifum. - sh
Fíkniefnamál á Blönduósi:
Fundu 400
grömm af grasi
MARIJÚANA Marijúanapakkning fannst í
bíl á Blönduósi.
LANDSBANKINN Skilanefndir setja sig
upp á móti hámarksstarfstíma nefnd-
anna.