Fréttablaðið - 09.04.2009, Blaðsíða 6
6 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
EINSTAKT TÆKIFÆRI FYRIR 11 ÁRA BÖRN
CISV hefur verið starfandi á Íslandi í tæp 30 ár og sent yfi r 1.000
þátttakendur út um allan heim.
Örfá pláss eru laus í sumarbúðir fyirr 11 ára gömul börn til Kanada -
British Colombia - 1 pláss fyrir stelpu Kórea - Seoul - 1 pláss fyrir
stelpu Noregur - Trondheim - 1 pláss fyrir strák á Akureyri og nágrenni
Mexikó - Mexikó City - 1 pláss fyrir stelpu
Sumarbúðirnar eru í 4 vikur og í þeim eru 12 hópar frá jafnmörgum
löndum. Hver hópur samanstendur af tveimur stelpum, tveim strákum
og fararstjóra.
Í sumarbúðunum er mikið um leiki, þau kynnast menningu og siðum
ólíkra þjóða og svo er farið í vettvangsferðir á áhugaverðar slóðir í
kringum búðirnar.
Nánari upplýsingar má fi nna á heimasíðu félagsins www.cisv.org,
á netfanginu cisv@cisv.is eða í síma 861 1122 (Ásta).
... í nýjum umbúðum
Sama góða CONDIS bragðið ...
Fischer í stjórnarforystu
Jan Fischer, sem fram til þessa hefur
verið forstjóri hagstofu Tékklands,
hefur verið valinn til að fara fyrir
bráðabirgðaríkisstjórn sem halda
mun um stjórnartaumana fram að
kosningum í október. Hann tekur við
af Mirek Topolanek níunda maí næst-
komandi. Stjórn Topolaneks tapaði
vantraustsatkvæðagreiðslu á þingi
fyrir skemmstu.
TÉKKLAND
Horfðir þú á eldhúsdagsumræð-
urnar á Alþingi?
Já 23,2%
Nei 76,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Vilt þú að aflaheimildir verði
innkallaðar og kvótakerfið lagt
af?
Segðu þína skoðun á visir.is
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra og for-
maður Sjálfstæðisflokksins, segist
hafa samþykkt að taka við 30 millj-
óna króna styrk frá FL-Group og
25 milljóna króna styrk frá Lands-
bankanum. Hann segist einn bera
ábyrgð á þeirri ákvörðun.
Sjálfstæðisflokkurinn þáði
styrkina nokkrum dögum áður en
lög um fjárreiður stjórnmálaflokk-
anna tóku gildi en þar segir að
framlög frá lögaðilum og einstakl-
ingum megi að hámarki vera 300
þúsund krónur, en markmiðið með
því er að draga úr hættu á hags-
munaárekstrum og tryggja gagn-
sæi í fjármálum stjórnmálaflokk-
anna. Styrkirnir voru afrakstur
söfnunarátaks til að rétta af fjár-
reiður flokksins.
Geir, sem var fyrsti flutnings-
maður frumvarpsins sem tók
gildi 1. janúar 2007, segist hafa
samþykkt styrkinn frá FL-Group
í þeirri trú að um væri að ræða
styrk frá mörgum sem fyrirtæk-
ið ætlaði að koma til skila. Geir
skýrir ekki framlagið frá Lands-
bankanum en ný forysta flokksins
hefur ákveðið að báðir styrkirnir
skuli endurgreiddir, eins og kemur
fram í tilkynningu sem send var
frá flokknum seint í gærdag.
Þar segist formaðurinn
Bjarni Benediktsson harma að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi veitt
styrkjunum viðtöku. „Það stang-
ast gróflega á við þau gildi sem
ég vil að Sjálfstæðisflokkurinn
starfi eftir“, segir hann. Hann
hefur kallað eftir því að bókhald
flokksins frá árinu 2006 verði
opnað. Hann skorar á aðra stjórn-
málaflokka að gera hið sama, í
þeim tilgangi „að eyða öllum vafa
um óeðlileg framlög í aðdraganda
lagasetningarinnar um fjármál
stjórnmálaflokka.“
Spurð um styrki sem veitt var
viðtaka á tímabilinu frá samþykkt
laganna fram að gildistöku þeirra,
segir Drífa Snædal, framkvæmda-
stýra Vinstri grænna, að flokkur-
inn hafi tekið við einnar milljón
króna styrk frá Samvinnutrygg-
ingum á tímabilinu. Það hafi enn
fremur verið eini styrkurinn sem
flokkurinn tók við á árinu sem var
hærri en hálf milljón.
Þáverandi og núverandi fram-
kvæmdastjóri Frjálslynda flokks-
ins eru sammála um að afar ólík-
legt sé að háir styrkir hafi verið
veittir flokknum á tímabilinu.
Heildarstyrkir til flokksins árið
2006 námu alls 3,6 milljónum.
Ekki fengust upplýsingar um
málið frá Samfylkingu og Fram-
sóknarflokki þrátt fyrir umleitan-
ir. svavar@frettabladid.is
stigur@frettabladid.is
Geir axlar ábyrgð á
tugmilljóna styrkjum
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að endurgreiða styrki frá FL-Group og Landsbank-
anum að upphæð 55 milljónir króna. Nýr formaður harmar að flokkur hans
hafi tekið við fénu, sem var afrakstur söfnunarátaks flokksins.
STJÓRNMÁL „Ef þetta er rétt er þetta
með ólíkindum,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra um
þrjátíu milljóna styrk FL Group
til Sjálfstæðisflokksins í desem-
ber 2006.
Styrkurinn var greiddur fjór-
um dögum áður en lög tóku gildi á
Alþingi sem takmörkuðu fjárstuðn-
ing við stjórnmálaflokka við 300
þúsund krónur. Stjórnmálaflokk-
arnir unnu saman að þeim lögum,
og leiddu þau til þess að fjárfram-
lög hins opinbera til flokkanna
voru hækkuð.
„Ég hafði satt best að segja ekki
hugmyndaflug til að láta mér detta
í hug að þá færu einhverjir flokkar
þannig að, að þeir sæktu sér millj-
ónatugi til fyrirtækja á laun rétt
fyrir áramót og þægju svo eftir
áramótin hækkaðan ríkisstyrk,“
segir Steingrímur.
„Mér finnst þetta alveg ofboðs-
legt, ég verð bara að segja það eins
og er,“ segir hann. „Mér finnst
þetta nánast svik við það sam-
starf sem við áttum um að taka
nú loksins til í þessu kerfi, koma
þessum hlutum upp á yfirborðið
og höggva á þessi óheilsusamlegu
tengsl sem allir vissu að áður voru
milli sérstaklega tiltekinna stjórn-
málaflokka og atvinnulífsins. Mér
finnst þetta eiginlega óverjandi í
alla staði.“
Steingrímur segir að eðlileg-
ast væri ef Sjálfstæðisflokkurinn
endurgreiddi styrkinn og upplýsti
um aðra sambærilega. Það ættu
aðrir flokkar einnig að gera.
- bþs, sh
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins óverjandi í alla staði:
Sjálfstæðismenn sviku hina flokkana
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Fjár-
málaráðherra furðar sig á styrkjum til
Sjálfstæðisflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardótt-
ir, formaður Samfylkingarinnar,
mun beita sér fyrir því að leynd
verði létt af fjárstyrkjum til Sam-
fylkingarinnar, ríki einhver leynd
yfir þeim. Svo geti verið að í ein-
hverjum tilfellum hafi aðilar veitt
styrki með leynd í huga, en leitað
verði til þeirra og óskað eftir að
leyndinni verði aflétt.
„Ég tel að það eigi að birta slíka
styrki og það eigi að vera gegn-
sæi í því og Samfylkingin eigi að
vera sjálfri sér samkvæm í því. En
það má vera, og ég þarf að kanna
það, að á því séu einhverjir ann-
markar sem lúta að því að áður en
lögin voru samþykkt hafi styrkirn-
ir verið veittir undir því fororði
að nöfn styrktaraðila yrðu ekki
birt.“ Sé svo verði aðilar beðnir að
aflétta trúnaði.
Jóhanna segir 30 milljón króna
styrk FL-group ótrúlega háan.
„Þetta sýnir það hvað var mikil-
vægt að fara út í það sem ég hef
barist fyrir í 10 til 12 ár á þingi að
hafa opið og gegnsætt bókhald hjá
flokkunum. Sem betur fer komst
það í gegn árið 2007 þannig að
þetta ætti ekki að geta komið fyrir
aftur. En þetta sýnir að það hefði
fyrir löngu átt að vera búið að opna
bókhald flokkanna.“ - kóp
Jóhanna segir styrk FL-group til Sjálfstæðisflokksins ótrúlega háan:
Vill létta leynd af styrkjum
OPIÐ BÓKHALD Jóhanna mun beita sér
fyrir því að leynd verði létt af styrkveit-
endum Samfylkingarinnar, sé svo að
einhverjir hafi óskað eftir leynd.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég hafði satt best að segja
ekki hugmyndaflug til að
láta mér detta í hug að þá færu
einhverjir flokkar þannig að, að
þeir sæktu sér milljónatugi til
fyrirtækja á laun.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Þetta sýnir það hvað var
mikilvægt að fara út í það
sem ég hef barist fyrir í 10 til 12
ár á þingi að hafa opið og gegn-
sætt bókhald hjá flokkunum
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
FRAMKVÆMDASTJÓRASKIPTI Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa vitað af styrknum. Andri Óttarsson
framkvæmdastjóri varð ekki við beiðni Fréttablaðsins um viðtal.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KENÍA, AP Bandarísk áhöfn gáma-
flutningaskips dönsku Maersk-
útgerðarinnar yfirbugaði í gær
sómalska sjóræningja sem áður
höfðu náð skipinu á sitt vald, úti
fyrir Horni Afríku, að sögn emb-
ættismanns í bandaríska varnar-
málaráðuneytinu. Ástandið mun
þó enn eldfimt því sjóræningjarn-
ir höfðu skipstjóra skipsins með
sér frá borði sem gísl. Unnið var
að lausn hans í gærkvöldi. - aa/óká
Maersk-skip undan A-Afríku:
Áhöfn yfirbug-
aði sjóræningja
SKIPIÐ Maersk Arun, systurskip Maersk
Alabama, sem nú er aftur á valdi áhafn-
arinnar eftir að sjóræningjar tóku það.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Þjófur í gæsluvarðhald
Héraðsdómur hefur úrskurðað
þrítugan karlmann í þriggja vikna
gæsluvarðhald. Maðurinn er grunaður
um fjölda innbrota á höfuðborgar-
svæðinu. Hann var handtekinn í gær-
morgun grunaður um að hafa notað
stolinn pallbíl til að brjóta sér leið
inn í þrjár verslanir á höfuðborgar-
svæðinu. Þá er hann grunaður um
að koma við sögu í nokkrum fjölda
annarra innbrota.
LÖGREGLUMÁL
KJÖRKASSINN