Fréttablaðið - 09.04.2009, Qupperneq 8
8 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
PEKING, AP Hugo Chavez, forseti
Venesúela, segir að tveggja daga
opinber heimsókn hans til Peking
í vikunni sé hluti af undirbúningi
nýrrar heimsskipunar (e. new
world order).
Forsetinn,
sem er eindreg-
inn gagnrýnis-
maður Banda-
ríkjastjórnar,
fundaði með Hu
Jianto, forseta
Kína og leið-
toga kommún-
istaflokksins,
á miðvikudag.
Chavez hélt því fram við frétta-
menn að völd heimsins væru að
snúast frá Bandaríkjunum og yfir
til landa á borð við Íran, Japan
og Kína. „Heimsveldi Bandaríkj-
anna er hrunið,“ sagði Chavez. - kg
Mjódd Hverafold Salavegur Glerártorg Grindavík Höfn Reykjanesbær
Skírdagur 12 - 18 12 - 18 12 - 18 12 - 18 12 - 18 12 - 18 10 - 18
Föstud. langi Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað
Laugardagur 10 - 18 10 - 18 10 - 21 10 - 18 10 - 18 10 - 18 10 - 18
Páskadagur Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað
Annar í páskum 12 - 18 12 - 18 12 - 18 12 - 18 12 - 18 12 - 18 12 - 18
www.netto.is
Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær
Opnunartími yfi r páska
Opið í dag frá 12 - 18
SPARNAÐUR
1. Hvað eru aðildarríki Sam-
einuðu þjóðanna mörg?
2. Hver tekur við embætti for-
sætisráðherra Danmerkur?
3. Hver hefur tekið við þjálfun
norska kvennaliðsins Levanger?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
SLYS Harður árekstur tveggja
bíla varð við austari útkeyrsluna
til móts við Hveragerði laust
eftir klukkan 13.00 í gærdag.
Ökumennirnir, sem voru einir
í bílunum, voru báðir fluttir á
sjúkrahús í Reykjavík. Báðir
voru með meðvitund og ekki
taldir alvarlega slasaðir.
Lögreglan á Selfossi segir
um að ræða fólksbíl og sendibíl
sem rákust saman, en þeir komu
úr gagnstæðum áttum. Tildrög
slyssins lágu ekki fyrir í gær.
Suðurlandsvegi var lokað í um
eina og hálfa klukkustund vegna
árekstursins. - kg
Suðurlandsvegi lokað:
Tveir bílar ultu
eftir árekstur
ÁREKSTUR Ökumenn bílanna voru fluttir
á sjúkrahús í Reykjavík. MYND/VILHJÁLMUR ROE
Forseti Venesúela:
Boðar nýja
heimsskipan
CHAVEZ
STJÓRNMÁL Aðild að Evrópusam-
bandinu og upptaka evru er lykilat-
riði í ábyrgri efnahagsstjórn, segir
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar. Samfylkingin
kynnti í gær leiðir jafnaðarmanna
í efnahags-, atvinnu- og velferðar-
málum undir heitinu Skal gert.
Fjöldi sérfræðinga aðstoðaði við
samningu ritsins.
Jóhanna og Dagur B. Eggerts-
son varaformaður kynntu stefn-
una í Norræna húsinu í gær. Dagur
sagði staðsetninguna táknræna;
það hefði sýnt sig að norræna mód-
elið væri það sem gagnaðist fólki
best. Flokkurinn hefur tekið saman
tillögur um velferðarmál og kallar
Velferðarbrú.
Jóhanna segir fjóra meginþætti
vera í velferðartillögunum. Með
greiðslujöfnun verði greiðslu-
byrði verðtryggðra lána 10 til 20
prósent lægri og greiðslubyrði
gengistryggðra lána 40 til 50 pró-
sent lægri. Vaxtabætur hækki um
allt að 55 prósent og endurgreiðsla
vaxta og verðbóta hækki um 2 millj-
arða með þeirri breytingu. Þessi
tvö mál lágu fyrir þinginu í gær.
Að auki sagði Jóhanna að komið
verði á fót möguleika á að frysta
allar afborganir af lánum í þrjú ár
og greiða bara vexti og verðbætur.
Þá sé komið á fót greiðsluaðlögum
þar sem skuldir séu afskrifaðar
eða aðlagaðar greiðslugetu. Flokk-
urinn vill skapa sex þúsund störf,
þar af 2.000 í orkufrekum iðnaði.
Bæði lögðu þau ríka áherslu á
Evrópusambandsaðild. Taka eigi
upp evruna og fá aðstoð frá seðla-
banka Evrópu þar til hægt sé að
skipta gjaldmiðlinum út. Dagur
sagði Evrópumál ekki bara vera
fyrir Evrópusinna, heldur alla þá
sem vilja kröftugt atvinnulíf og
undirstöðu fyrir velferð til fram-
tíðar.
Jóhanna sló út af borðinu hug-
myndir um tvöfalda atkvæða-
greiðslu og sagði ekki hægt að taka
afstöðu fyrr en fyrir lægi hvaða
samningar hefðu náðst. Jóhanna
vill sækja um aðild að sambandinu
fljótlega eftir kosningar. Jóhanna
sagðist trúa því að hún og Stein-
grímur J. Sigfússon gætu samið um
þessi mál eins og önnur í stjórnar-
samstarfinu undanfarið.
Jóhanna vonar að Samfylkingin
verði leiðandi í næstu ríkisstjórn í
samstarfi við Vinstrihreyfinguna
grænt framboð.
kolbeinn@frettabladid.is
Evrópusambandið
undirstaða velferðar
Samfylkingin vill bráðaaðgerðir í atvinnumálum og skapa forsendur fyrir af-
námi gjaldeyrishafta. Taka eigi upp evru og fá stuðning seðlabanka Evrópu við
krónuna fram að því. Hækka á vaxtabætur og auka möguleika á frystingu lána.
STEFNAN KYNNT Formaður og varaformaður Samfylkingarinnar kynntu stefnu
Samfylkingarinnar í efnahags-, atvinnu- og velferðarmálum í Norræna húsinu í gær.
Staðurinn var táknrænn því norrænt velferðarsamfélag var boðorð dagsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MOSKVA, AP Hætt hefur verið við
að breyta litnum á hinum rauðu
stjörnum Sovéttímans sem prýða
herflugvélar Rússlands. Rúss-
neska þingið samþykkti í gær
að hætta við breytinguna, en í
desember var ákveðið að endur-
mála stjörnurnar í fánalitum
Rússlands; rauðum, hvítum og
bláum. - kg
Rússneskar herflugvélar:
Stjörnurnar
áfram rauðar
VEISTU SVARIÐ?