Fréttablaðið - 09.04.2009, Síða 12
12 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 25 Velta: 84 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
219 +0,02% 642+0,22%
MESTA HÆKKUN
MAREL +3,90%
MESTA LÆKKUN
EIMSKIP -20,00%
BAKKAVÖR -3,20%
ÖSSUR -0,67%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,21 -3,20% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,80 -20,00% ... Føroya Banki 126,50 +0,00% ... Icelandair Group
5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 42,60 +3,90% ... Össur 89,50
-0,67%
Vextir svonefndra jöklabréfa eru
ekki nema að litlu marki tengdir
stýrivöxtum Seðlabankans, að
mati seðlabankastjóra. Bankinn
lækkaði stýrivexti í gær.
Stýrivextir Seðlabankans voru lækkað-
ir um 1,5 prósentustig, í 15,5 prósent,
á aukavaxtaákvörðunardegi í gær. For-
maður peningastefnunefndarinnar,
Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri
kynnti ákvörðunina ásamt Arnóri Sig-
hvatssyni aðstoðarseðlabankastjóra og
Þórarni G. Péturssyni aðalhagfræð-
ingi.
Mat peningastefnunefndarinnar er
að tæplega níu prósenta veiking á gengi
krónunnar, sem orðið hafi frá síðustu
vaxtaákvörðun, sé ekki til komin vegna
vaxtaákvörðunarinnar. „Lækkun krón-
unnar virðist mega rekja til tímabund-
inna þátta, til dæmis tiltölulega mik-
illa árstíðabundinna vaxtagreiðslna af
krónuskuldabréfum og innstæðum í eigu
erlendra aðila. Þótt afgangur hafi verið á
vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd
ríkir enn mikil óvissa um viðskiptajöfn-
uðinn í heild. Að auki eru vísbendingar
um að farið hafi verið í kringum gjald-
eyrishöftin.“
Fram kom í máli seðlabankastjór-
anna að áhrif stýrivaxta á vaxtagreiðsl-
ur vegna jöklabréfa og þar með veikingu
krónunnar hafi verið ofmetin. Þannig
segir Svein Harald að vextir bréfanna
séu ekki nema að litlum hluta tengdir
stýrivöxtum. Arnór segir erfitt að meta
áhrifin, enda ólíkir vextir á bréfunum.
Minni vaxtagreiðslur verði hins vegar
næstu tvo mánuði en verið hafi í mars.
Nánari greiningu á áhrifum jöklabréfa
verður svo að finna í þjóðhagsspá Seðla-
bankans í maí.
Arnór segir ákvarðanir peningastefnu-
nefndar snúast um trúverðug skref og
sýna þurfi bankanum dálitla þolinmæði.
„Við endurmetum aðstæður eftir hverja
vaxtaákvörðun og ef þróunin er með
þeim hætti sem allt bendir til, að vaxta-
ákvarðanirnar hafi ekki neikvæð áhrif,
þá er það vegvísir að næstu ákvörðun,“
segir hann, en áréttar um leið að engu
sé hægt að lofa þar um. „Þær ráðast af
þróun efnahagsmála, stöðugleika geng-
isins og að verðbólga haldi áfram að
hjaðna. En það er rétt að eftir því sem
verðbólga hjaðnar hraðar og gengið
styrkist meira, þeim mun hraðar getum
við lækkað vextina.“
Svein Harald leggur jafnframt áherslu
á að horfa þurfi til fleiri þátta sem skýr-
ist á næstu mánuðum. „Þeir snúa að
endurskipulagningu fjármálakerfisins,
áætlun um aðlögun ríkisútgjalda til miðl-
ungslangs tíma og því að fá skýrari mynd
af skuldastöðu ríkisins.“
Vaxtamunur milli krónunnar og helstu
gjaldmiðla ætti, að sögn nefndarinnar,
að gefa svigrúm til áframhaldandi hæg-
fara slökunar peningalegs aðhalds. Þá sé
verðbólguþrýstingur enn á undanhaldi,
sem og væntingar fyrirtækja um verð-
bólgu. Í máli Þórarins G. Péturssonar
kom þó fram að alþjóðlega hafi horfur
versnað. Þannig spái OECD 12 prósenta
samdrætti í milliríkjaverslun á þessu
ári, en meiri samdráttur hafi ekki áður
verið mældur.
olikr@frettabladid.is
SEÐLABANKASTJÓRARNIR Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Svein Harald Øygard
seðlabankastjóri við kynningu á vaxtaákvörðun peninganefndar Seðlabanka Íslands í gærmorgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vextir jöklabréfa lítið
tengdir stýrivöxtum
EFNAHAGSMÁL Viðskiptaráð
Íslands telur nægt svigrúm
til frekari lækkunar stýri-
vaxta.
Í áliti ráðsins er bent á
að verðbólga hafi hjaðnað
skarpt, húsnæðisverð fari
lækkandi, hagvísar bendi til
mikils samdráttar, atvinnu-
leysi aukist hratt og launa-
þrýstingur sé lítill. „Eini
óvissuþátturinn hvað varð-
ar verðbólguþróun virðist
því vera gengi krónunnar.“
Viðskiptaráð segir háum
vöxtum væntanlega ætlað
að draga úr hvata til að fara
á svig við gjaldeyrishöftin. „Hér er þó um tvíeggja
sverð að ræða enda leiða hærri stýrivextir til auk-
inna vaxtagreiðslna úr landi og þar með aukins
þrýstings á gengi krónunnar.“ Í ljósi þess að gjald-
eyrishöft eigi ekki að vera hér varanleg lausn segir
Viðskiptaráð að stjórnvöld ættu, í samvinnu við
Seðlabankann, að leggja á það þunga áherslu að móta
trúverðuga áætlun um hvernig sköpuð verði skilyrði
til að aflétta höftunum.
- óká
Svigrúm er til meiri
lækkunar stýrivaxta
FINNUR ODDSSON Finnur
er framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs Íslands.
Þú vilt vita hvar þú stendur. Hvernig landið liggur. Vöxtur treystir undirstöður
þínar, tryggir þér góða yfirsýn á fjármálin og færir þér hagstæð kjör.
Kynntu þér málið á www.kaupthing.is eða í síma 444 7000.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
55
13
0
3/
09
Þú vilt góða yfirsýn.
Þess vegna er Vöxtur fyrir þig.
Vöxtur er Vildarþjónusta Kaupþings
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
55
13
0
4/
09