Fréttablaðið - 09.04.2009, Page 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
BRJÓSTAHALDARAR komu fram á sjónarsviðið í lok nítj-
ándu aldar. Þeim var ætlað að leysa korselettin af hólmi og
eru nú orðnir sjálfsagður klæðnaður kvenna í flestum hlutum
heimsins.
„Móðir mín prjónaði lopapeysuna á
mig en bolurinn er frá hljómsveit-
inni Reykjavík. Buxurnar eru hins
vegar Birkis-buxur frá Bandaríkj-
unum en þær eru svo ódýrar úti
og mamma kaupir þær af og til á
mig. Þær eru rosalega þægilegar
með mörgum vösum,“ segir Berg-
ur Thomas Anderson, bassaleikari
hljómsveitarinnar Sudden Weather
Change, og brosir.
Bergur lýsir fatastíl sínum sem
frekar afslöppuðum og skemmti-
legum. „Ég er oftast í gallabux-
um, hljómsveitarbol og skyrtu.
Gaman er að styrkja vinaböndin
við aðra í bransanum og kaupa af
þeim hljómsveitarboli og annað
slíkt. Þessa dagana er ég annars
yfirleitt í lopapeysu, enda hentar
hún við flestar íslenskar aðstæð-
ur,“ segir hann og viðurkennir að
hann hafi gaman af að finna sér ný
föt. „Mér finnst gaman að grúska
í Kolaportinu og á svoleiðis stöð-
um þar sem finna má öðruvísi föt
sem eru í raun einstök. Til dæmis
skyrtur og peysur í sérstökum,
gömlum sniðum og æpandi litum
en líka föt í dempaðri jarðarlitum.
Við í hljómsveitinni höfum allir
gaman af sniðugum fatnaði,“ segir
Bergur og bætir við: „Við erum
allir á sömu nótunum í fleiri en
einum skilningi þar sem við klæð-
um okkur svipað og reynum jú að
spila í takt. Við til dæmis girðum
allir buxurnar ofan í sokkana en
þá hefur maður góða yfirsýn yfir
það sem er fyrir neðan mann.“
Sudden Weather Change spilar á
tónleikum á Sódómu í kvöld ásamt
hljómsveitunum Kimono og Bent
Moustache frá Hollandi. „Þetta er
á vegum Kimi Records og miðinn
kostar einungis 800 krónur. Ef fólk
greiðir hins vegar 1.500 krónur
þá fær það líka plötu úr vörulista
Kimi sem er frekar gott. Á morgun
fljúgum við síðan til Ísafjarðar og
spilum á tónlistarhátíðinni Aldrei
fór ég suður. Ég kom frá Snæfells-
nesi í fyrradag og skelli mér svo á
Vestfirðina á morgun og á svona
ferðum kemur lopapeysan sér vel,“
segir Bergur kátur.
hrefna@frettabladid.is
Oftast bara í lopanum
Þægilegur fatnaður með smá skemmtilegheitum hentar hljómsveitargaurum vel og er Bergur Thomas
Anderson, bassaleikari hljómsveitarinnar Sudden Weather Change, þar engin undantekning.
Bergur Thomas klæðist þægilegum og á stundum skrautlegum fatnaði sem hentar vel þegar ferðast er um landið og spilað á
rokktónleikum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
!""# $%
&!''(%#)*+
,
-. /00-#0*
,
-. Meirapróf
Upplýsingar og innritun
í síma 5670300
NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 15. APRÍL
Auglýsingasími
– Mest lesið