Fréttablaðið - 09.04.2009, Síða 22
2 föstudagur 9. apríl
núna
✽ á harðaspretti
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Stefán Karlsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
ÞORBJÖRG MARINÓSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR
Ég ætla norður á Sauðárkrók með fjölskyldunni, elda humarsúpu, fara á
skíði, snjósleða, skrifa og kíkja á djammið þar. Gott að hlaða batteríin í
náttúrunni, borða góðan mat og kaupa sér sokka í Kaupfélaginu. Tala nú
ekki um að kíkja á hestbak hjá Ragnheiði frænku.
helgin
MÍN
FLOTT PAR Það geislaði af Joel
Madden og Nicole Richie þegar þau
mættu saman á My House í Los
Angeles á dögunum í fjáröflunar-
hanastél fyrir UNICEF. Parið á von
á öðru barni sínu í ágúst, en saman
eiga þau dótturina Harlow Winter
Kate Madden, eins árs.
É g sýndi lampann á Kjarvalsstöðum í fyrra, en þá var hann ekki alveg tilbúinn. Núna
er ég búin að þróa hann yfir í söluvænlegt
form,“ segir Kristín Birna Bjarnadóttir vöru-
hönnuður um lampann Illuminant eða Ljós-
gjafa sem var lokaverkefni hennar úr Lista-
háskólanum í fyrravor. Lampinn gefur ævin-
týralega birtu á óvenjulegan máta og hefur
vakið mikla athygli og birst af honum
myndir í hönnunartímaritinu Dezeen og
á tæknisíðunni divice.com.
„Hugmyndin kviknaði í kúrs þar sem
við áttum að hanna rómantísk ljós og þá
datt ég inn á þessi endurskinsefni sem ég
nota í lampaskerminn. Þetta er sama efni og
er á appelsínugulu keilunum sem eru notað-
ar við alla vegavinnu, en þá lýsa bílarnir beint
á efnið sem endurkastar birtunni. Yfirskrift-
in á hönnuninni er „what goes around comes
around“ því mér varð hugsað til þess hvern-
ig fólk endurspeglast í hegðun sinni og gjörð-
um og ég trúi því að maður uppskeri eins og
maður sáir,“ útskýrir Kristín. Hún hannaði
lampann þannig að díóðuljós á gólfinu lýsir
upp undir skerminn og dreifir þannig birtunni.
„Lampaskermurinn hangir neðan úr loftinu á
girni og neðan úr honum hanga 2 mm lengjur
úr sama endurskinsefni og skermurinn. Hægt
er að skipta um lit á ljósinu á gólfinu með lit-
uðum glerplötum sem eru settar ofan á það
og eru til rauðar, fjólubláar, bláar og brúnar
plötur,“ segir Kristín.
Hún segir lampann ekki kominn í verslan-
ir en draumurinn sé að koma honum í fram-
leiðslu. Þangað til geta áhugasamir haft sam-
band við Kristínu á kristinbirna.com. - ag
Kristín Birna Bjarnadóttir vöruhönnuður:
VEKUR ATHYGLI FYRIR
HÖNNUN Á LAMPA
Ævintýralegt Hægt er að
breyta stemningunni með því
að setja litaðar glerplötur ofan
á ljósið á gólfinu sem lýsir upp
undir skerminn.
Í helli Mörgum þykir
lampi Kristínar minna
á marglyttu en þessi
mynd var tekin í
Maríuhelli í Heið-
mörk af eiginmanni
Kristínar, Karli
Bergmanni Páls-
syni.
þetta
HELST
„Ég byrjaði að hlaupa reglulega árið 2003 og
skellti mér þá í hlaupahópinn TKS,“ segir
veðurfréttakonan Soffía Sveinsdóttir sem
hefur meðal annars hlaupið nokkur tíu
kílómetra hlaup og þrisvar sinnum hálft
maraþon. Soffía ætlar að taka þátt í Lauga-
vegsmaraþoninu í sumar sem eru einir 55 km
en markmið hennar er að komast heil í mark.
„Ég set stefnuna á að klára, það er afrek út
af fyrir sig, en annars vonast ég til að vera
um átta klukkutíma með hlaupið,“ segir
hún og bætir við að svona langhlaupum
fylgi mikil ánægja. „Það er frábær til-
finning að ljúka áfanga og svo er félags-
skapurinn í hlaupunum góður,“ segir
Soffía og viðurkennir að langhlaup
geti orðið að fíkn. „Löngu hlaupi fylg-
ir mikil líkamleg og andleg vellíðan og
ég mæli með hlaupi og hreyfingu fyrir
alla. Þegar álagið er mikið er ekkert
betra en að komast út að hlaupa til að
hlaða batteríin því með hreyfingu end-
urnærist maður og getur hreinsað hug-
ann, hugsað og fundið lausnir á vanda-
málum.“ -iáh
Soffía Sveinsdóttir ætlar í Laugavegsmaraþonið:
Hlaupandi
veðurfréttakona
Vinsæl Hönnun Kristínar
Birnu hefur meðal annars
sést í hönnunartímaritinu
Dezeen og á tæknisíðunni
divice.com.
Listamessa á morgun
„Við erum fjórar saman með sýn-
inguna í Kling og Bang og ákváð-
um í rauninni að nýta rýmið sem
vinnustofu,“ segir listakonan Rakel
McMahon um sýninguna Opið - til
eru hræ. „Sýningin er í raun vinnu-
ferli þar sem áhorfandinn fær að
sjá hvernig myndlistarmað-
urinn vinnur. Við vildum líka
nýta rýmið til hins ítrasta
og brjóta bilið milli listgreina
svo við höfum haldið „open-
mic“ og stuttmyndakvöld,“ útskýrir
Rakel. „Á föstudaginn langa ætlum
við að vera með opið frá 12 til mið-
nættis og vera með uppgjörninga.
Þá verður haldin listamessa þar
sem listin verður tilbeðin en ekki
Kristur,“ bætir hún við.
Kimikvöld á Sódómu
Eftir vel heppnað Kimikvöld á Sóm-
dóma Reykjavík fyrir tveimur vikum
hefur verið ákveðið að endurtaka
leikinn í kvöld. Fram koma hljóm-
sveitirnar Kimono og Sudden
Weather Change, The Bent Mous-
tache frá Hollandi og Retro Stef-
son. Kimono eru nú á fullu að
vinna í nýju efni fyrir væntanlega
plötu, en þeir gáfu síðast út plötu
fyrir tveimur árum. Þeir leggja mikið
upp úr tónleikaflutningi og heyrst
hefur að þeir séu með heljarinnar
„ljósashow“ til að gera upplifunina
sem eftirminnilegasta.
Öflug „Löngu hlaupi
fylgir mikil líkamleg
og andleg vellíðan,“
segir Soffía.
Auglýsingasími
– Mest lesið