Fréttablaðið - 09.04.2009, Page 24
4 föstudagur 9. apríl
Föstudagur leitaði til
málsmetandi álitsgjafa í
leitinni að besta sjón-
varpsmanni landsins.
Margir komust á blað
en það var Logi Berg-
mann Eiðsson sem
fékk langflestu stigin
sem besti sjónvarps-
maður Íslands.
Viðtal: Indiana Ása Hreinsdóttir
Ljósmyndir af Loga: Stefán Karls-
son
Þ
etta er frábært og
g leður mitt l i t la
hjarta,“ segir Logi
Bergmann Eiðsson
þegar honum eru til-
kynnt úrslitin í valinu á besta sjón-
varpsmanni landsins. Álitsgjöfum
Föstudags þykir Logi standa sig
frábærlega sem fréttalesari sem
og spjallþáttastjórnandi Loga í
beinni og segja hann trúverðugan
fréttalesara og skemmtilega kæru-
leysislegan spjallþáttakóng.
„Ætli ég virki ekki kæruleysis-
legur þar sem ég er kærulaus. Upp
að vissu marki allavega. Svona
þáttur eins og Logi í beinni þarf
að vera léttur og skemmtilegur,
á föstudagskvöldum má láta allt
flakka og hafa gaman. Sérstak-
lega núna þegar allt er farið til
helvítis,“ segir hann og bætir við
að maður verði að hafa gaman af
því sem maður geri. „Það er um
að gera að fíflast aðeins og reyna
að vera fyndinn. Þótt það takist
ekki alltaf,“ segir hann hlæjandi.
Logi, sem hefur verið í sjónvarpi
í átján ár, segist ekki eiga erfitt
með að breyta um gír, úr fréttum
yfir í léttmetið. „Einhvern tímann
hafði ég áhyggjur af þessu en ég
er búinn að vera það lengi í sjón-
varpi að mér finnst ekkert erfitt
að svissa um,“ segir hann kátur
og bætir við að ef einhverjir eigi
í vandræðum geti þeir athugað
hvort hálsbindið sé á sínum stað.
„Ég er þessi kæruleysislegi þegar
ég er ekki með bindi en þegar ég
er með bindi er ég að lesa fréttir,“
segir hann hlæjandi.
Logi í beinni er farinn í sumar-
frí en mun rata aftur á skjáinn í
haust. „Áhorfstölur síðustu þátta
hafa verið ótrúlegar svo ég vona að
við séum að gera eitthvað rétt. Við
komum aftur fersk í haust enda
eigum við nóg inni ennþá.“ Spurð-
ur hvort honum þyki skemmtilegt
að sigra einhvern einn sjónvarps-
mann fremur en annan nefn-
ir hann Sigmar Guðmundsson í
Kastljósinu. „Á milli okkar Simma
hefur alltaf verið rígur. Það er bara
skemmtilegt enda erum við góðir
vinir. Ég er mjög kátur með þetta
enda hef ég gaman að vinnunni
og það sést kannski.“
1. SÆTI
LOGI BERGMANN
„Stuðbolti, góður sem fréttamað-
ur og þáttastjórnandi. Skapar auð-
veldlega skemmtilegt og létt and-
rúmsloft með húmorinn að leið-
arljósi.“
„Skemmtilega vitlaus og klikk-
aður á skemmtilegan máta.“
„Ótrúlega eðlilegur og afslapp-
aður, fær fólk til að opna sig og
kann að koma fólki á óvart með
skemmtilegum innskotum í formi
spurninga eða myndbrots. Frábær
húmor.“
„Einn sá besti í dag. Algjör-
lega á réttri hillu í spjallþættin-
um sínum. Passlega kærulaus og
léttur.“
„Spjallkallinn Logi. Þessi kæru-
leysistækni hans svínvirkar og
þættirnir hafa gengið vel upp.“
„Flottur. Hefur margar hliðar
sem sjónvarpsmaður. Smellpass-
ar í fréttirnar og fer svo úr frétta-
gallanum og beint í settið á Loga í
beinni. Þátturinn er algjör snilld.“
„Bara góður í Loga í beinni, svo
skemmtilega gleyminn og klúð-
urslegur eitthvað að þú getur ekki
annað en farið í gott skap. Logi og
tíkin Skotta eru skothelt par á
föstudagskvöldum.“
2.-3. SÆTI
SÖLVI TRYGGVASON
„Einn af fremstu sjónvarpsmönn-
um okkar. Skýr, eldklár og mynd-
arlegur. Góður fréttamaður og
ávallt vel til fara. Gaman að sjá
hann á SkjáEinum.“
„Var frábær í Íslandi í dag og
hefur glætt SkjáEinn miklu lífi
m e ð n ý j u m
þáttum sínum
þar.“
„Klárlega
flottasti sjón-
varpsmaður-
inn. Nær að
halda manni
v i ð s k j á i n n
allan þáttinn,
kemur með beittar spurningar án
þess að gagga á viðmælanda sinn.
Síðan er bara svo gaman að horfa
á hann.“
„Með húmor. Yfirvegaður og
geðþekkur. Dettur ekki í þá gryfju
líkt og margir aðrir myndarmenn
að vera með folatakta og smjörva-
bros.“
2.-3. SÆTI
ÞÓRA ARNÓRSDÓTTIR
„Glæsi leg og
eldklár. Kona
sem vex stöðugt
í starfi. Pottþétt
fyrsta sæti!“
„Sú e ina í
Kastljósi sem er
alltaf fagleg og
kurteis við við-
mælendur sína.
Hefur skemmtilegt prakkarablik í
augum og kallar fram hjá manni
vellíðan.“
„Kemur mér sífellt á óvart. Nýtur
sín í Kastljósinu. Tungumálasnill-
ingur, virkilega sjarmerandi. Flott
kona sem vinnur á.“
„Afar viðkunnanleg og sjarmer-
andi. Gáfurnar leka af henni og
hún er laus við hroka.“
4.-6. SÆTI
EGILL HELGASON
„Frábær sjón-
varpsmaður.
Ávallt gaman
að horfa á þætt-
ina hjá honum
og vel staðið að
þeim. Skeleggur
og eldklár.“
„Hefur verið
í s ínu besta
formi í vetur, bæði í Kiljunni og
Silfrinu.“
„Krútt með krullur, eins sjálf-
sagður hlutur á sunnudögum og
eggið og beikonið. Er hann sjálfur.
Kveikir í manni áhuga á íslensk-
um bókmenntum. Snillingur.“
4.-6. SÆTI
RAGNHILDUR STEINUNN
„Alltaf gaman
a ð h o r f a á
skvísuna í sjón-
varpinu, virk-
ar alltaf mjög
örugg.“
„Tekur sjálfa
sig ekki of há-
tíðlega og er
alltaf tilbúin að
stökkva út í djúpu laugina. Hefur
náð góðum tökum á starfinu á
stuttum tíma en ég mæli með
henni einni sem stjórnanda svo
einhverjar aukapersónur skemmi
ekki fyrir henni.“
„Rosa flott stelpa sem lífsgleð-
in geislar af. Falleg kona og nýtur
sín vel á skjánum.“
4.-6. SÆTI
SIGMAR GUÐMUNDSSON
„Frábær blanda af fréttaspyrli og
dagskrárgerðarmanni. Grunnurinn
SKEMMTILEGAST AÐ VINNA SI
Vinsæll „Ætli ég virki ekki
kæruleysislegur þar sem ég
er kærulaus. Upp að vissu
marki allavega,“ segir Logi.
Á milli okkar Simma hefur alltaf verið rígur. Það er bara
skemmtilegt enda erum við góðir vinir. Ég er mjög kátur með
þetta enda hef ég gaman að vinnunni og það sést kannski.