Fréttablaðið - 09.04.2009, Síða 26
6 föstudagur 9. apríl
tíðin
✽ í páskafríi
SÖNGVASEIÐUR María finnur sig ekki í klaustrinu
og er því send í vist til ekkjumannsins Von Trapp til að
gæta sjö hávaðasamra barna hans, þar sem hún vinnur
hug þeirra með ást, hlýju og söng sínum. Ekki missa af
einum þekktasta söngleik allra tíma í Borgarleikhúsinu.
Á MÓTI SÓL Það er sama hvar á landinu þú verður
um páskana, þú getur skvett úr klaufunum hvar sem er.
Á móti sól gleður ballþyrsta Íslendinga á Selfossi, Húsa-
vík, Egilsstöðum og Akureyri á páskatúr sínum um landið.
Taktu til sparigallann og pússaðu dansskóna!
ENGLAMYNDIN FYRIR OFAN
RÚMIÐ MITT SEM ÉG KEYPTI
Á MARKAÐI Í DANMÖRKU.
STRÆTÓBAUKURINN Sparibaukur
heimilisins kemur sér vel.
HNÍFASAFN EIGINMANNSINS
Hann vinnur skeptin öll í höndunum.
70S-SPEGILLINN MINN Einhver diskó-
stemning yfir honum.
BÓKIN OG SPILIN eiga heima á náttborðinu hjá mér
og ósjaldan áður en ég fer að sofa dreg ég nokkur spil
til að taka stöðuna á næstu dögum og vikum.
INGIBJÖRG REYNISDÓTTIR
leikkona
ELDGAMLA KAFFIKANNAN
hennar ömmu heitinnar úr Kjósinni.
KAFFIVÉLIN var brúðargjöf.
FARTÖLVAN
KLUKKUSTRENGIRNIR
sem litla systir mín saum-
aði fyrir bæði börnin mín
þegar þau fæddust.
ORKUSTEINALAMPANN fékk ég í
afmælisgjöf frá æskuvinkonum mínum
árið 2006 og síðan þá hefur allt verið
upp á við. Þrælvirkar.
„Bókin kom í búðir á þriðjudaginn og þetta var bókstaflega fyrsta eintakið
sem Hanna Birna fékk,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri bókarinnar
Reykjavík barnanna sem hún vann í samstarfi við mágkonu sína Lóu Auð-
unsdóttur. „Við ákváðum að fara út í þetta því það eru til svona bækur í öllum
borgum sem við höfum ferðast til. Hanna Birna segist fagna
bókinni því hún er í samræmi við fjölskyldustefnu Reykja-
víkurborgar og það er gaman að sjá hana verða að veru-
leika því þetta er búin að vera mikil vinna í tvö ár,“ út-
skýrir Þórey.
„Reykjavík barnanna er aðallega fyrir fólk sem býr í
borginni og vill fá nýjar hugmyndir um hvað er hægt að
gera með börnunum sínum, en bókin er líka á ensku svo
hún hentar einnig fyrir fólk sem er að koma hingað
í helgarferðir,“ bætir hún við. Auk þess er öll
þjónusta í Reykjavík sem viðkemur börnum
kortlögð í bókinni, svo sem söfn, veitinga-
staðir og ýmiss konar tómstundaiðja. - ag
Þórey Vilhjálmsdóttir og Lóa Auðunsdóttir:
Gáfu borgarstjóra bók
Barnvæn Ragnheiður Ríkharðsdóttir dóttir Þóreyjar og Mía Pálína Gunnarsdóttir
dóttir Lóu afhentu Hönnu Birnu borgarstjóra fyrsta eintakið af bókinni.
Náið samstarf Þórey Vilhjálmsdóttir vann
bókina í samstarfi við mágkonu sína, Lóu
Auðunsdóttur.
HVAR ER BEST AÐ FÁ SÉR MORGUNMAT? Hong Kong
Football Club, morgunverðarhlaðborð sem segir sex!
BESTA KAFFIÐ? Ég drekk ekki kaffi en sem morgundrykk-
ur er mangó-smoothie á Mix bestur, og hollastur.
FÍNT ÚT AÐ BORÐA? Zuma, því þar er besta sushi sem
ég hef smakkað og Aqua upp á útsýnið og þjónustuna að
gera.
UPPÁHALDSVERSLUNIN? Nine West - skófíkill.
Wanchai computer market er líka ómissandi.
BEST VIÐ BORGINA? Fjölbreytileikinn. Hér
er allt til alls, Hong Kong er stórborg með
sveitasælu í 15 mínútna fjarlægð. Hér eru
óteljandi möguleikar til útivistar, skemmt-
ana, fólk frá öllum heimshornum og matar-
úrval eftir því.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ? Sjávarrétta-
staðurinn í Clearwater Bay Country Park eftir
göngu upp á Sharp Peak.
HONG KONG
Rebekka Kristín Garðarsdóttir, útgáfustjóri AsianInvestor
BORGIN
mín
TOPP
10