Fréttablaðið - 09.04.2009, Side 34
22 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Barnastjarnan Dakota
Fanning er orðin fimmtán
ára og farin að leita sér
að öðruvísi hlutverkum
en áður. Það nýjasta er í
spennumyndinni Push sem
er komin á hvíta tjaldið.
Flestar barnastjörnur ná aldrei að
fylgja frægðinni eftir á fullorð-
insárunum og falla smám saman
í gleymskunnar dá. Gott dæmi er
Macaulay Culkin, sem sló í gegn í
Home Alone-myndunum en hefur
ekki borið sitt barr síðan. Haley
Joel Osment, strákurinn sem sá
látna fólkið í The Sixth Sense og
lék í Artificial Intelligence, er orð-
inn 21 árs og hefur ekki sést í fjöl-
mörg ár og ferill Shirley Temple
fjaraði út undir lok fjórða áratug-
arins eftir nokkur ár á toppnum.
Nú er komið að Dakota Fanning að
losa sig við þennan barnastjörnu-
stimpil sem hefur verið svo mörg-
um óþægur ljár í þúfu.
Hún fæddist í Georgíu í Banda-
ríkjunum árið 1994 og hóf leikferil
sinn fimm ára í auglýsingageiran-
um. Fyrsta alvöru hlutverkið var í
læknaþáttunum ER og í framhald-
inu fékk hún gestahlutverk í þátt-
um á borð við CSI, The Practice,
Spin City og Ally McBeal. Næst
var komið að hennar stærsta
hlutverki til þessa, sem dóttir
Sean Penn í I Am Sam. Hún var
tilnefnd til Screen Actors Guild-
verðlaunanna sem besta leikkon-
an í aukahlutverki og varð þar
með yngsta manneskjan til að fá
slíka tilnefningu, átta ára gömul.
Fanning var orðin stjarna í Holly-
wood og tilboðin streymdu til
hennar. Næst fékk hún hlutverk
Allie í spennuþáttaröðinni Taken
sem Steven Spielberg framleiddi
og fleiri bíómyndir fylgdu síðan í
kjölfarið, þar á meðal Sweet Home
Alabama og Uptown Girls. Fer-
ill hennar hélt áfram að vaxa og
næstu myndir hennar voru Man
in Fire þar sem hún lék á móti
Denzel Washington og Hide and
Seek með Robert De Niro í aðal-
hlutverki. Stórmyndin War of the
Worlds í leikstjórn Spielbergs með
stjörnunni Tom Cruise var síðan
næst á dagskrá og sýndi Fanning
þar enn og aftur hvað í hana er
spunnið.
Gaman verður að sjá hvernig
Fanning reiðir af nú þegar full-
orðinsárin nálgast. Næsta mynd
hennar á eftir Push er framhaldið
af hinni vinsælu Twilight, þar sem
hún fær gott tækifæri til að sýna
á sér nýjar hliðar, sem henni veit-
ir ekki af. Sumar barnastjörnur
hafa vissulega náð langt, saman-
ber Jodie Foster, og Fanning gæti
auðveldlega fylgt í fótspor hennar.
Til þess þarf hún þó að sanna sig
alveg upp á nýtt og sýna að hún er
ekki lengur þessi litla, sæta stelpa
sem öllum finnst svo mikið krútt,
heldur fullvaxta leikkona sem ber
að taka alvarlega.
freyr@frettabladid.is
Barnastjarnan
fullorðnast hratt
Mikil eftirvænting ríkir í
Hollywood eftir ævintýra-
myndinni Where the Wild
Things Are. Hún er byggð á
samnefndri skáldsögu Maur-
ice Sendak og fjallar um Max,
sem er sendur upp í herbergi
eftir að hafa hegðað sér illa.
Þar gleymir hann sér í eigin
fantasíuheimi þar sem hann
kynnist risavöxnum loðnum
dýrum. Á meðal þeirra sem
ljá dýrunum raddir sínar
eru James Gandolfini úr
Sopranos, Forest Whitaker,
Catherine O´Hara og Paul
Dano.
Leikstjóri og handritshöf-
undur myndarinnar er Spike
Jonze, sem hefur áður sent
frá sér hinar áhugaverðu en
undarlegu Being John Mal-
kovich og Adaptation. Einn-
ig hefur hann leikstýrt fjölda
tónlistarmyndbanda, meðal
annars fyrir Björk og Beastie
Boys. „Mig langaði til að taka
söguþráðinn eins alvarlega og
krakkar taka ímyndunarafl
sitt. Ég vildi ekki búa til of
mikla fantasíu,“ sagði Jonze
í viðtali við Empire. „Í bók-
inni eru persónurnar mjúkar
og góðlegar en samt hættu-
legar. Ég vildi halda í það
sem gerði þær svona heill-
andi í bókinni en samt láta
þeim líða eins og þær ættu
heima í þessu umhverfi og að
þær hefðu andlit og augu sem
hæfðu flóknu handritinu.“
Where the Wild Things Are
er væntanleg í bíó vestanhafs
16. október.
Risavaxin dýr í fantasíuheimi
WHERE THE WILD THINGS ARE Þessi ævintýramynd sem margir bíða eftir
með mikilli eftirvæntingu kemur í bíó vestanhafs 16. október.
DAKOTA FANNING Barnastjarnan er orðin fimmtán ára gömul. Hún sló í gegn sem
dóttir Sean Penn í myndinni I Am Sam. NORDICPHOTOS/GETTY
Franklín og fjársjóðurinn
Margir krakkar muna eftir skjald-
bökunni Franklín sem skemmt
hefur krökkum á sjónvarpsskjám
landsins síðustu tólf ár. Nú er komin
bíómynd um Franklín og ævintýri
hans.
Einkunn á Imdb.com: 5,4/10
Dragonball Evolution
Ævintýra- og spennumynd byggð
á japanskri teiknimyndasögu um
hetjuna Goku, öflugan stríðsmann
sem verndar jörðina frá þrjótum
og svikahröppum sem vilja ráða
yfir jörðinni og stjórna dularfull-
um hlutum.
Einkunn á Imdb.com: 3,1/10
I Love You Man
Peter Klaven þarf að finna svara-
mann fyrir brúðkaupið sitt að kröfu
unnustunnar Zooey. Hann finn-
ur Sydney Fife sem hann vingast
samstundis við. En eftir því sem
vinátta mannanna tveggja dýpkar
fer að hrikta í stoðum sambandsins
við Zooey. Aðalhlutverk: Paul Rudd
og Jason Segel.
Einkunn á Imdb.com: 8/10
Push
Tveir ungir Bandaríkjamenn með
sérstaka hæfileika reyna að hafa
uppi á stúlku í Hong Kong áður
en skuggaleg samtök ná í skottið á
henni.
Einkunn á Imdb.com: 6,5 af 10
Fjölbreyttar frumsýningar
I LOVE YOU MAN
> VORKENNIR UNGSTIRNUM
Leikkonan Julia Roberts finnur til
með þeim ungu stjörnum sem eru í
sviðsljósi fjölmiðla allan sólarhring-
inn. „Þetta er miklu erfiðara líf fyrir
ungar leikkonur í Hollywood í
dag. Ég er svo fegin að þurfa
ekki að glíma við þetta,“
sagði Roberts.
Dakota Fanning (I Am Sam)
Haley Joel Osment (The Sixth
Sense)
Macaulay Culkin (Home Alone)
Christian Bale (Empire of the Sun)
Jodie Foster (Taxi Driver)
Tatum O´Neal (Paper Moon)
Ron Howard (The Andy Griffith
Show)
Judy Garland (The Wizard of Oz)
Shirley Temple (The Little Princ-
ess)
Natalie Wood (Miracle on 34th
Street)
Mickey Rooney (Huckleberry Finn)
FRÆGAR
BARNASTJÖRNUR
Sálin á faraldsfæti um páskana: