Fréttablaðið - 09.04.2009, Page 37
FIMMTUDAGUR 9. apríl 2009
með ánægju
Heimsborg
Finnst þér gaman að versla, borða indverskt, kíkja á söfn
eða bara týnast í iðandi mannlífi? London er málið, heillin.
Vorin eru líka einstaklega spennandi tími í London. Með
hækkandi hitastigi lifnar borgin við og nóg um að vera
fyrir alla. Bókaðu spennandi vorferð til London á
www.icelandexpress.is
Ljúfa
London!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
9
0
7
0
Tónleikar með
Express ferðum
Beyoncé
02-höllinni, 25.–26. maí
Verð á mann í tvíbýli:
66.900 kr.
Britney Spears
02-höllinni, 12.–14. júní
Verð á mann í tvíbýli:
76.900 kr.
Það er skylda
að heimsækja Tate
Modern nýlistasafnið.
Þar eru alltaf fram-
sæknar og umtaðalar
sýningar í boði.
Áhugafólki um
prinsa, drottningar,
gamla kónga, kastala
og menn með stórar
loðnar húfur finnst
alveg eðalgaman
í London!
GATWICK EXPRESS
Það tekur aðeins 25 mín.
að skutlast niður í bæ
25 mín.
Nánar á www.expressferdir.is
og í síma 5 900 100
Eitthvað fyrir alla!
GLÆSILEG Á FRUMSÝNINGU Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit
Moussaieff heilsuðu upp á leikstjórann Andra Snæ Magnason og framleiðandann
Sigurð Gísla Pálmason fyrir frumsýningu Draumalandsins. Dorrit klæddist lopapeysu
sem Bergþóra Guðnadóttir í Farmer‘s Market hannaði sérstaklega fyrir hana. Þegar
Martha Stewart heimsótti forsetahjónin í fyrra hreifst hún svo af peysunni að Berg-
þóra varð að hanna eina slíka handa henni líka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kvikmyndin Draumalandið
var frumsýnd fyrir troð-
fullu Háskólabíói á þriðju-
dagskvöld. Frumsýningar-
gestir virtust hæstánæðir
með myndina.
Gestir á frumsýningu Drauma-
landsins á þriðjudagskvöld höfðu
á orði að langt væri síðan bekk-
urinn í Háskólabíói hefði verið
svona þétt setinn. Sigurður Gísli
Pálmason, framleiðandi myndar-
innar, hélt ræðu áður en myndin
var sýnd. Í öllum spenningnum
gleymdi hann að tilkynna gestum
hvar halda ætti frumsýningar-
partíið og þurfti að hrópa hljóð-
nemalaus yfir salinn. Veislan var
haldin á B5 og þar var skálað fram
eftir kvöldi.
Draumalandinu
var vel fagnað
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi
formaður Samfylkingarinnar, mætti
ásamt Hjörleifi Sveinbjörnssyni eigin-
manni sínum.
Stefán Baldursson og Þórunn Sig-
urðardóttir láta sig sjaldnast vanta á
viðburði sem þennan.
Bóksalinn og rokksöngvarinn Óttarr
Proppé var á hraðferð inn í sal.
Enska ungstirnið Jamie Way-lett
var handtekinn af lögreglunni
í London eftir að átta pokar af
kannabisefnum fundust í bíl hans.
Breskir fjölmiðlar greindu frá
þessu í gær. Fyrir þá sem kveikja
ekki alveg á nafninu Waylett þá
hefur hann leikið eineltispúkann
Vincent Crabbe í öllum Harry Pot-
ter-kvikmyndunum.
Lögreglan í London vildi ekki
staðfesta að Waylett hefði verið
handtekinn en greindi frá því að
hún hefði handtekið tvo nítján ára
pilta, grunaða um eiturlyfjaneyslu.
Þegar hún rannsakaði heimili ann-
ars þeirra kom í ljós töluvert magn
kannabisplantna auk búnaðar til
að stunda ræktun. Mennirnir voru
látnir lausir gegn tryggingu þar til
í júní, sem bendir til þess að lög-
reglan ætli sér að rannsaka málið
enn frekar.
Harry Potter-
stjarna handtekin
ALLT Í HASSI Leikarinn Jamie Waylett
var handtekinn af lögreglunni í London
með átta poka af kannabisefnum.
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, dóttir
Ólafs Ragnars Grímssonar, og
Karl Pétur Jónsson, eiginmaður
hennar, voru
meðal
gesta.