Fréttablaðið - 09.04.2009, Side 41
FIMMTUDAGUR 9. apríl 2009 29
Sendu persónuleg
skeyti með þinni
eigin mynd
Á hverjum degi taka eigendur stafrænna
myndavéla ótalmargar ljósmyndir. En hva ð
verður um þessar myndir? Hversu ma rgir
prenta þær út, deila þeim á Netinu eða nota
þær til þess að gleðja vini og ættingja í öðru en
tölvupósti. Nú geta þeir sem taka my ndir
notað myndirnar á skeyti og búið til varanleg
verðmæti úr stafrænum skrám. Skrám sem
annars búa við stöðuga hættu af diskhruni,
veirusýkingum, mannlegum mistökum og
úreldingu skjalasniða og brennanlegra diska.
Rétti uppi hendi sá lesandi sem enn hefur
aðgang að SCSI-drifum, ZIP-diskum o g
JAZ-diskum. Persónulegu skeytin mun u
vissulega aldrei koma í staðinn fyrir falleg
albúm með útprentuðum myndum en skeyti
með fallegri mynd á tvímælalaust erindi á
ísskápinn og jafnvel innrammað upp á vegg.
Ömmur, afar, gamlir frændur og aldraðar
frænkur sem sjaldan heimsækja veraldar-
vefinn eiga án efa eftir að gleðjast yfir fallegri
mynd af fjölskyldumeðlimum og hnyttnum
texta. Skarpir pennar geta leikið sér að því að
blanda saman mynd og texta og skapað með
því óvænt samhengi. Þar sem allt viðmótt
persónulegu skeytanna er á Netinu er þægilegt
að gera tilraunir með ólíkan texta eða jafnvel
líma inn texta úr öðrum skjölum í öðrum
forritum. „Byrði betri berat maður brautu
að… “. Hver gæti t.d. ekki hugsað sér að líma
inn nokkur vel valin kvæði úr Hávamálum í
heillaóskaskeyti til fimmtugs frænda. Einnig
má ímynda sér að listhneigðir skeytasend-
endur notfæri sér þessa nýju tækni til að senda
eigin myndskreytingar því það er vissulega
jafn auðvelt að senda inn innskönnuð listaverk
eða tölvuteikningar og ljósmyndir.
Ný vara frá Póstinum gefur
sendendum skeyta tækifæri
á að nota myndasafnið á
skemmtilegan og skapandi hátt.
Íslandspóstur hefur ákveðið
að fjölga stórlega hópi
frímerkjahönnuða með því
að bjóða frímerki sem
viðskiptavinir geta skreytt
með sínum eigin myndum.
Myndirnar geta verið af
viðskipta-
vinunum sjálfum, börnum
þeirra mökum, foreldrum,
ömmum og öfum, frændum
eða frænkum og jafnvel
gæludýrum þeirra og
bifreiðum. Hefðinni
samkvæmt hafa frímerki
verið gefin út í tilefni
heimsmeist aramóta
þjóðhátíða og annarra
stóratb urða en með
persónulegum frímerkjum
póstsins eru frímerki nú
gefin út í tilefni af endurfun-
dasamkomum gru nnskóla-
bekkja, sumarfagnaða og
saumaklúbba, í tilef ni a f
kórfeðalögum, brúðkaupum,
stórfmælum að ógleymdum
jólun um. Með nýjum
hönnuðum er víst að áherslu
r í frímerkjahönnun breytist
og frímerki birtist með
stöðum, hlutum og dýrum
sem áður hafa ekki fengið
sess á efra hægra horni
umslaga ogpóstkorta.
H
V
Í T
A
H
Ú
S
IÐ
/ S
Í A
–
0
9
–
0
3
1
5
Kæri viðtak
andi.
Nú getur þ
ú sent pers
ónulegri og
skemmtile
gri skeyti s
em þú getu
r
skreytt me
ð þínum ei
gin myndu
m. Það er u
pplagt að n
ota stafræn
u
myndirnar
til að gleð
ja vini og va
ndamenn m
eð áþreifan
lega góðri
kveðju.
Það eina se
m þú þarft
að gera er
að fara á w
ww.postur
.is, velja m
ynd,
skrifa skem
mtilegan te
xta og Póst
urinn afhen
dir skeytið
beint til við
takanda.
Kær kveðja
,
Pósturinn
www.postur.is
Meistaradeild Evrópu
Liverpool - Chelsea 1-3
1-0 Fernando Torres (6.), 1-1 Branislav Ivanovic
(39.), 1-2 Branislav Ivanovic (62.), 1-3 Didier
Drogba (67.).
Barcelona - Bayern München 4-0
1-0 Lionel Messi (9.), 2-0 Samuel Eto‘o (12.), 3-0
Lionel Messi (38.), 4-0 Thierry Henry (43.).
Danska úrvalsdeildin
SönderjyskE - FC Kaupmannahöfn 1-2
Sölvi Geir Ottesen skoraði mark SönderjyskE.
Þýska úrvalsdeildin
Magdeburg - Nordhorn 35-29
Gummersbach - Stralsunder 41-20
Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir
Gummersbach.
Rhein-Neckar Löwen - Minden 28-20
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tíu mörk fyrir
Rhein-Neckar Löwen. Gylfi Gylfason skoraði tvö
mörk fyrir Minden en Ingimundur Ingimundarson
var ekki í leikmannahópi liðsins.
Dormagen - Flensburg 26-20
Alexander Petersson var ekki í leikmannahópi
Flensburg vegna meiðsla.
Hamburg - Lemgo 32-24
Vignir Svavarsson skoraði eitt mark fyrir Lemgo
en Logi Geirsson var ekki með vegna meiðsla.
Lengjubikar karla
Keflavík - Grindavík 1-3
0-1 Scott Ramsay (64.), 0-2 Gilles Ondo (67.), 0-3
Emil Símonars. (68.), 1-3 Sigurbergur Elíss. (83.).
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Chelsea og Barcelona eru
komin með annan fótinn í und-
anúrslit Meistaradeildar Evrópu
eftir örugga sigra í fyrri leikjum
liðanna í fjórðungsúrslitum keppn-
innar í gær.
Chelsea vann 3-1 sigur á Liver-
pool á Anfield og er því í sterkri
stöðu fyrir síðari leik liðanna sem
fer fram í Lundúnum. Barcelona
gerði sér lítið fyrir og hreinlega
slátraði Bayern München á heima-
velli sínum. Gestirnir voru heppnir
að fá ekki mun fleiri mörk á sig.
Þetta er fimmta árið í röð sem
Liverpool og Chelsea mætast í
Meistaradeildinni og er óhætt að
segja að leikurinn í gær hafi verið
einn af allra fjörugustu viðureign-
um liðanna á þessum tíma.
Heimamenn fengu draumabyrj-
un er Fernando Torres kom þeim
yfir eftir einungis fimm mínútna
leik. Leikmenn Chelsea létu þó
ekki heimamenn slá sig út af lag-
inu og byrjuðu að sækja stíft. Didi-
er Drogba fékk tvö dauðafæri en
það var varnarmaðurinn Bran-
islav Ivanovic sem reyndist hetja
gestanna.
Hann var í byrjunarliðinu í
fjarveru Jose Bosingwa sem á við
meiðsli að stríða og nýtti tæki-
færi sitt til fulls. Hann skoraði
tvö mörk, bæði með skalla eftir
hornspyrnu og Drogba innsiglaði
svo sigurinn eftir laglegan undir-
búning þeirra Michael Ballack og
Florent Malouda.
Miklu munaði að Michael Ess-
ien átti stórleik á miðjunni hjá
Chelsea og hélt Steven Gerrard í
skefjum eftir að Liverpool komst
yfir í leiknum. John Terry, fyrir-
liði Chelsea, fékk gult í leiknum og
verður því í banni í næsta leik.
„Við byrjuðum mjög vel í leikn-
um en eftir að við skoruðum hætt-
um við að spila vel og gáfum bolt-
ann mikið frá okkur. Við töpuðum
fyrir góðu liði sem spilaði vel. Við
vorum ekki að spila samkvæmt
okkar getu,“ sagði Rafael Benit-
ez, stjóri Liverpool. „Þeir eru líka
sterkir í loftinu og við fengum á
okkur tvö slík mörk.“
Barcelona niðurlægði Bæjara á
heimavelli sínum í gær með stór-
glæsilegum fyrri hálfleik. Lion-
el Messi skoraði tvívegis, Samuel
Eto‘o og Thierry Henry einu sinni
hvor. En mörkin hefðu getað verið
miklu fleiri.
Miðað við spilamennsku Þjóð-
verjanna í gær þurfa Börsungar
litlar áhyggjur að hafa af síðari
viðureign liðanna í München.
Pep Guardiola var vísað upp í
stúku í gær af Howard Webb dóm-
ara fyrir að mótmæla dómgæslu
þess enska í fyrri hálfleik.
eirikur@frettabladid.is
HETJUNNI FAGNAÐ Branislav Ivanovic er hér fagnað af samherjum sínum hjá Chel-
sea en hann skoraði tvívegis í 3-1 sigri liðsins gegn Liverpool í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ivanovic kláraði Liverpool á Anfield
Chelsea vann afar öflugan 3-1 útivallarsigur á Liverpool í fyrri leik liðanna í fjórðungsúrslitum Meistara-
deildar Evrópu. Á sama tíma vann Barcelona 4-0 stórsigur á Bayern München á heimavelli sínum.