Fréttablaðið - 09.04.2009, Qupperneq 46
34 9. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. steintegund, 6. ólæti, 8. aur, 9. pili,
11. horfði, 12. gerviefni, 14. veldis, 16.
skóli, 17. ennþá, 18. í viðbót, 20. átt,
21. tútta.
LÓÐRÉTT
1. kast, 3. frá, 4. forviða, 5. knæpa,
7. reina, 10. mánuður, 13. gerast, 15.
sníkjur, 16. skraf, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kalk, 6. at, 8. for, 9. rim,
11. sá, 12. plast, 14. ríkis, 16. ma, 17.
enn, 18. auk, 20. na, 21. snuð.
LÓÐRÉTT: 1. varp, 3. af, 4. lostinn, 5.
krá, 7. tilraun, 10. maí, 13. ske, 15.
snap, 16. mas, 19. ku.
„Ég er búinn að ráða í annað aðal-
hlutverkið í Grafarþögn. Ilmur
Kristjánsdóttir verður konan sem
sætir heimilisofbeldi í sögunni,“
segir Baltasar Kormákur.
Baltasar er með mörg járn í eld-
inum en nú er hafinn undirbún-
ingur á Grafarþögn sem byggir á
einni bestu bók Arnaldar Indriða-
sonar. Fyrirhugað er að myndin
fari í tökur í haust. Grafarþögn
verður dýrasta íslenska myndin
sem Baltasar hefur gert – tvöfalt
umfangsmeiri en gengur og ger-
ist á íslenskan mælikvarða. Kostn-
aðaráætlun liggur ekki fyrir en
þetta er að sögn Baltasars „lang-
stærsta mynd sem ég hef gert hér
á Íslandi. Þetta er stríðsáraperíóða
sem þarf að smíða og við erum, ég
og Atli Geir Grétarsson sem sér
um leikmyndina, þegar byrjaðir
að leita að tökustöðum“. Arnald-
ur skrifar handrit í samvinnu við
Baltasar og er sú vinna vel á veg
komin en Baltasar hefur reyndar
þann háttinn á að handritsskrif
standa allt þar til búið er að ganga
frá myndinni.
Grafarþögn er líklega myrkasta
bók Arnaldar. Hún gerist á tveim-
ur tímaplönum en mannabein finn-
ast í grunni nýbyggingar í Graf-
arholti sem leiðir lögregluteymið
Erlend, Elínborgu og Sigurð Óla
á vit vægast sagt skuggalegrar
fortíðar. Byggðin hefur þanist út
þannig að Baltasar segir að færa
verði leikmyndina til samræmis
við það.
Baltasar gerir ráð fyrir því að
lögregluþríeykið verði í höndum
hinna sömu og voru í hinni mjög
svo vel heppnuðu Mýri: Ingvars
E. Sigurðssonar, Ólafíu Hrann-
ar Jónsdóttur og Björns Hlyns
Haraldssonar. Að sama skapi má
reikna með að Ágústa Eva Erlends-
dóttir leiki dóttur Erlends. Ilmur
leikur svo konuna sem sætir miklu
heimilisofbeldi en Baltasar á eftir
að finna hrottann úr fortíðinni.
„Ég er að prófa í karlahlutverkið
núna. Svo er ég að leita að fatlaðri
stelpu sem getur leikið. Og strák
líka. Já, nú stendur yfir leit í þessi
hlutverk,“ segir Baltasar.
„Ég er þakklát Balta að sjá í
gegnum þessa kómíkkassa sem
ég hef kannski verið sett í,“ segir
Ilmur, sem er ein þekktasta gam-
anleikkona þjóðarinnar. Þetta
hlutverk er hins vegar myrkt og
dramatískt. Ilmur trúir því að hún
hafi hæfileikana í þetta. „Þetta er
geðveikt hlutverk og ég hlakka til
að takast á við það. Maður leitar í
skuggahliðar sjálfs sín og annarra.
Reynir að læra af því og setja sig
svo í þessi spor. Ég ætla samt ekk-
ert að fara að búa í bragga eða neitt
svoleiðis,“ segir Ilmur aðspurð
hvernig leikarar vinni hlutverk
sem þetta.
jakob@frettabladid.is
BALTASAR KORMÁKUR: LEITAR ÓMENNIS OG FATLAÐRAR STELPU
Ilmur Kristjáns í Grafarþögn
ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR Leikur annað aðalhlutverkið í Grafarþögn, dramatískt hlut-
verk konu sem sætir heimilisofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég fæ mér ristað brauð með
osti eða sultu og Ab-mjólk.
Stundum appelsínu, ef ég á
hana til.“
Krummi Björgvinsson tónlistarmaður
„Við verðum á frekar lélegu meðalhóteli, Cosmos
heitir það og var byggt fyrir Ólympíuleikana 1980.
Við höfum aldrei þurft að fara í lægsta klassa en
nú er kreppa og allt það og menn verða að sníða sér
stakk eftir vexti. Cosmos er samt ekki verra en hótel-
ið í Úkraínu þar sem vatnið var brúnt,“ segir Jónatan
Garðarsson, liðsstjóri íslenska Eurovision-hópsins.
Hafi einhver gert sér þá mynd að keppni í þessari
lagakeppni væri notalegt ferðalag til evrópskrar
stórborgar þá skjátlast hinum sama hrapallega,
því þetta er erfiðisvinna og verður síst auðveldari í
Moskvu.
Sökum tímamismunar hefjast undankeppnirnar
klukkan tíu að kvöldi og standa til hálfeitt um nótt-
ina. „Allt sem heitir evrópskur sjónvarpstími lýtur
að lítilli sjoppu rétt fyrir utan London sem heitir
Greenwich,“ segir Jónatan, sem er öllu vanur enda
eldri en tvævetra þegar kemur að Eurovision. „Síðast
var keppnin búin klukkan tólf og þá þurfti að skipu-
leggja blaðamannafundi en sú vinna stóð til klukk-
an sex eða sjö um morguninn,“ segir Jónatan, sem
sér því fram á að ná tveggja til fjögurra tíma svefni
á hverjum degi. „Ég hef annars náð að koma mér upp
þeirri tækni að geta sofnað nánast hvar sem er í tíu
mínútur og það heldur mér gangandi, þetta er svo-
kallaður powernap eða ofurlúr,“ útskýrir Jónatan.
Íslensku ferðalangarnir ættu að búa sig undir
fremur sérkennilegan mat því venjuleg rússnesk
matargerðarlist er ekki í neinum sérstökum gæða-
flokki. „Sko, þú getur fengið besta mat í heimi í
Moskvu en þá þarftu líka að borga ríflega fyrir. Mat-
urinn þarna er alveg sér á parti, hann er kannski
ekkert vondur en við Íslendingar erum ekki vanir
honum. Það er þarna nýlendubúð rétt hjá og fólk
getur því gripið með sér ávexti og annað slíkt.“ - fgg
Lítill lúxus á Eurovision í ár
NÆR VONANDI FJÖGURRA TÍMA SVEFNI Jónatan Garðarsson
býst við að sofa lítið í Moskvu enda geri tímamismunurinn það
að verkum að keppnin hefjist seint um kvöldið og ljúki um
nóttina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Árshátíð Þjóðleikhússins var haldin
um helgina og þar var vitaskuld
áberandi stórleikarinn Gunnar
Eyjólfsson. Hinni öldnu kempu
var þó nóg boðið þegar borð-
félagar hans fóru að
tala galgopalega um
meinta eiturlyfja-
neyslu innan stétt-
arinnar, svo mjög
að hann yfirgaf
samkvæmið í
fússi og taldi
þetta ekki
neitt til að
hafa í flimt-
ingum.
Draumalandið var frumsýnt í
Háskólabíói fyrir troðfullu húsi.
Fullyrða má að ekki hefði farið
vel um fólk á borð við Valgerði
Sverrisdóttur, Geir Haarde, Friðrik
Sophusson eða Halldór Ásgrímsson
í sætum sínum – og væntanlega
krossleggja bæði framsóknar- og
sjálfstæðismenn fingur og vona að
sem fæstir sjái myndina fyrir kosn-
ingar. Einn var þó sá maður sem
lét sér fátt um tilfinningarótið sem
myndin kallaði fram en sá er Jakob
Björnsson, fyrrverandi orkumála-
stjóri. Hann var meðal viðmælenda
í myndinni, mætti á frumsýninguna
og gott betur: Í frumsýningarpartýið
líka sem haldið var á B5.
Auðunn Blöndal sjónvarps-
stjarna ætlar að verja páskunum
í Bandaríkjunum, nánar tiltekið
í borg lastanna og spilavítanna,
Atlantic City. Þetta er sannkölluð
drauma-stráka-ferð en Auddi fer
ásamt góðum hópi pókerfélaga
sem gerðu garðinn frægan á póker-
móti í Portúgal fyrir ekki svo löngu.
Þeirra á meðal eru sjálfur landsliðs-
fyrirliðinn Egill „Störe” Einarsson en
þetta er hans fyrsta ferð til
Bandaríkjanna. Annar
góður sem fer er Ofur-
Hugi Halldórsson sem
gerði garðinn frægan
í Strákunum með
ýmsum atriðum sem
sverja sig í ætt við
Jackass-hópinn.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er hugmynd að lógói nýja
turnsins sem á að byggja á svæð-
inu þar sem Tvíburaturn-
arnir stóðu,“ segir Oscar
Bjarnason en New York
Times birti í gær tillögur
nokkurra grafískra hönn-
uða, sem eru í sérstöku
uppáhaldi hjá blaðinu, að
vörumerki 1 World Trade
Center. Þar til nýlega átti
háhýsið, sem verður það
hæsta í New York-borg, að
heita Freedom Tower en
fallið hefur verið frá þeirri
nafngift. Nú þegar heitið
er ljóst er næsta skref að
hanna merki þess. „Þeir
hjá blaðinu vilja hafa opna
umræðu og koma henni
almennilega á flug. Ég hef áður
gert svona hönnunartillögur fyrir
New York Times, þá fyrir merk-
ingar á leigubíla borgarinnar árið
2007. Ég veit ekki almennilega
hvernig þeir höfðu uppi á mér
en mér skildist á hönnunarstjóra
blaðsins að hann hefði upphaf-
lega fundið síðuna mína á Netinu,
skoðað verk mín þar, orðið hrif-
inn og fylgst með síðan,“ segir
Oscar. Um gríðarlegan heiður
er að ræða fyrir hann enda New
York Times eitt virtasta blað
heims.
Oscar vinn-
ur sem grafísk-
ur hönnuður hjá
auglýsingastof-
unni Fíton en sem
dæmi um verk hans má nefna lógó
N1, Nesti, VR, Iceland Express og
flugfélagsins Sterling. „Þeir voru
ánægðir með tillögu mína að leigu-
bílamerkingunum í hittifyrra og
eru að endurtaka leikinn.“ Í New
York Times segir Oscar um hönn-
un sína að hann hafi haft bygging-
una sjálfa í fyrirrúmi. Hann telur
bygginguna, eða þær teikningar
sem fyrir liggja að henni, fallega,
en útlit hennar hefur verið nokkuð
umdeilt eins og búast mátti við.
Í uppáhaldi hjá New York Times
HEFUR ÁÐUR HANNAÐ HUGMYND FYRIR
BLAÐIÐ Oscar Bjarnason var beðinn
um að hanna hugmynd fyrir New York
Times árið 2007 að leigubílamerkingum.
Hönnunarstjóri blaðsins hafði séð verk
hans. MYND/JÓNATAN GRÉTARSSON
Einstakt tækifæri
fyrir 14 ára unglinga
CISV hefur verið starfandi á Íslandi í tæp 30 ár og sent yfi r 1.000 þátttakendur
út um allan heim. Við vorum að fá aukaúthlutnun í unglingabúðir fyrir 14 ára í
Kólombíu. Eigum laust pláss fyrir eina stelpu.
Unglingabúðirnar eru í 3 vikur og í þeim eru 10 hópar frá jafnmörgum löndum.
Hver hópur samanstendur af tveimur stelpum, tveim strákum og fararstjóra.
Einnig höfum við fengið beiðni frá Þýskalandi um unglingaskipti fyrir 14 ára. Um
er að ræða 6-8 manna hóp sem fer í tvær vikur til S-Þýskalands og dvelur inn á
heimilum jafnaldra sinnar þar. Síðan dvelur allur hópurinn á Íslandi í tvær vikur.
Íslenskur og þýskur fararstjóri sjá um skipulagningu ásamt foreldrum og börnum.
Eigum ennþá laus pláss fyrir kyn.
Nánari upplýsingar má fi nna á heimasíðu félagsins www.cisv.org
á netfanginu cisv@cisv.is eða í síma 861 1122 (Ásta).
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 Þau eru 192 talsins.
2 Lars Lökke Rasmussen.
3 Ágúst Þór Jóhannsson.