Fréttablaðið - 09.04.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Í dag er fimmtudagurinn 9. apríl,
99. dagur ársins.
6.17 13.29 20.43
5.56 13.14 20.34
Langþráð páskafrí byrjaði í dag, fyrstu frídagarnir síðan um jól.
Undanfarnir þrír mánuðir hafa
verið ansi langir og lítið uppörv-
andi, enda landið á hausnum. Ekki
nóg með að kreppan bæti utan á sig
jafnt og þétt eins og snjóbolti sem
rúllar stjórnlaus niður brekku,
heldur hefur meira að segja veðr-
ið verið leiðinlegt og hríðarbyljir
og frost gert sitt til að draga mór-
alinn niður. Ég er viss um að ef
við byggjum einhvers staðar þar
sem sólin skín allan daginn væri
ekki nándar nærri eins nöturlegt
að eiga við ástandið.
MIKIÐ óskaplega er kreppan leið-
inleg en ég velti mér nú samt upp
úr henni gegndarlaust. Hún er
orðin hluti af mér eins og ljótur
fílapensill í eyra sem ég get ekki
látið í friði og kroppa endalaust
ofan af. Þetta gengur ekki lengur.
EN nú eru páskarnir fram undan
og nóg komið af voli. Það er frí.
Þótt hinn séríslenski frasi „þetta
reddast“ hafi kannski átt sinn hlut
í að við stöndum í þeim sporum
sem við stöndum í núna, ætla ég
samt að láta kreppuna lönd og leið
næstu fimm daga. Ég ætla að leyfa
mér að láta eins og þetta reddist
allt saman. Það er frí, allt lokað
hvort sem er og hvorki hægt að
stressa sig á einu né neinu.
ÞAÐ getur nefnilega falist ákveð-
ið frelsi í því þegar utanaðkomandi
aðstæður, sem maður hefur ekki
stjórn á sjálfur, taka völdin. Það
skapast ákveðin fríhelgi eða tóma-
rúm sem maður ber enga ábyrgð á
og getur þá leyft sér að vera kæru-
laus. Eins og þegar tölvukerfið
hrynur í vinnunni og maður verð-
ur bara að fara í kaffi með hinum
meðan tölvugúrúarnir gera við.
Eða þegar rafmagnið fer og ekk-
ert er hægt að gera nema bíða eftir
að það komi á aftur. Það á að njóta
svona stolinna stunda.
NÚ er frí, allt lokað, allar við-
ræður liggja niðri, engin vafa-
söm bankaviðskipti eiga sér stað
í nokkra daga, ekkert að gerast
á Alþingi, allir farnir heim og
kreppusnjóboltinn stoppar rétt á
meðan. Næstu fimm daga þurf-
um við ekki einu sinni að kveikja
á útvarpinu og komumst vel upp
með að hlusta ekki á kosningaáróð-
ur flokkanna. Við erum í fríi. Við
eigum skilið þessa smá stund til
að gleyma okkur og slappa aðeins
af áður en við setjum undir okkur
hausinn, og kroppum aftur ofan af
fílapenslinum ljóta.
Njótum
friðhelgi
Dúnúlpa
með harðri skel
Stærðir:
Verð: 36.000,-
Drífa ehf, Suðurhraun 12 C, 210 Garðabær, Sími 555 7400, Fax. 555 7401, icewear@icewear.is, www.icewear.is
REYKJAVÍK:
Handprjónasambandið,
The Viking,
The Viking,
Islandia,
Icefin,
UTAN REYKJAVÍKUR:
Bláa Lónið
The Viking,
Gullfosskaffi,
Geysir Shops,
íslensk hönnun
h
ö
n
n
u
n
:
w
w
w
.s
ki
ss
a
.n
e
t
ICEWEAR flíkur fást á eftirtöldum stöðum:
Vatnsheldir saumar
GÆSA-
DÚNN
70/30