Fréttablaðið - 14.04.2009, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. apríl 2009 11
Baráttan gegn atvinnuleysinu
er í fullum gangi
Árangur næstu ríkisstjórnar verður fyrst og fremst metinn af baráttunni gegn atvinnuleysinu.
Kraftmikil atvinnusköpun karla og kvenna um allt land er lykillinn að skjótri endurreisn og
bættum lífskjörum. Til að svo geti orðið verður að tryggja atvinnulífinu stöðugleika og efna-
hagslegt umhverfi eins og það gerist best í Evrópu.
Við höfum þegar kynnt aðgerðir sem munu skapa 6.000 störf um allt land í
byggingariðnaði, sprotafyrirtækjum og víðar á næstu misserum.
Við ætlum að endurreisa fjármálakerfið, tryggja lægri vexti og stöðugt gengi til að
koma atvinnulífinu aftur á hreyfingu og skapa fleiri en 20.000 störf á næstu árum.
Við viljum ráðast í mannaflsfrekar framkvæmdir, efla nýsköpun og ferðaþjónustu
um allt land og nýta auðlindir í sátt við umhverfið.
Við viljum hefja samningaviðræður við ESB og tryggja
blómlegt atvinnulíf á grunni trausts gjaldmiðils – evrunnar.
Samfylkingin ætlar að koma öllum vinnufúsum höndum
karla jafnt sem kvenna til starfa. Þannig verður kreppan stutt.
www.xs.is
FJÁRMÁL Hagsmunasamtök heimilanna (HH)
mótmæla harðlega þeirri ákvörðun stjórn-
valda og fjármálafyrirtækja að sniðganga
með öllu sanngjarnar og hóflegar tillögur
samtakanna um leiðréttingu gengis- og verð-
tryggðra fasteignalána. Innan samtakanna
hefur hópur fólks komið sér saman um að
undirbúa málsókn til varnar heimilunum.
Samtökin hafa lagt til að lánveitendur og
lántakendur skipti með sér þeim kostnaði
sem til hefur fallið vegna efnahagskrepp-
unnar. Með samkomulagi um greiðslujöfn-
un í stað niðurfellingar skulda, hafi ábyrgð
lánastofnana í raun verið að engu gerð og
„svik þeirra við heimili landsmanna sam-
þykkt af ríkisstjórninni.“
HH líta á þennan gjörning sem stríðs-
yfirlýsingu lánastofnana og stjórnvalda
gegn heimilum. Úrræðin séu lausnir fyrir
lánastofnanir, ekki lántakendur. Komi lána-
stofnanir ekki til móts við heimilin í land-
inu með því að létta á skuldabyrði þeirra og
heildargreiðslubyrði, þá sjá samtökin ekki
að það þjóni nokkrum tilgangi að fólk haldi
áfram að borga af skuldum sínum. Samtökin
spyrja: Hve marga þarf, sem hætta að
greiða, til að opna augu fjármálafyrirtækja
fyrir því að þau þurfa líka að færa fórnir?
- shá
Hagsmunasamtök heimilanna gagnrýna greiðslujöfnunarleið stjórnvalda vegna fasteignalána:
Hyggja á málsókn til varnar heimilum
BREIÐHOLT Viðskiptaráðherra kynnti fyrir helgi
greiðslujöfnunarleið fyrir myntkörfulán sem útilokar
niðurfellingu lána.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MADRÍD, AP Hópur innan aðskiln-
aðarhreyfingar Baska, ETA,
lagði á ráðin um að myrða Juan
Carlos Spánar-
kóng með því
að gera árás á
þyrlu eða flug-
vél kóngsins.
Þetta upplýsti
Alfredo Perez
Rubalcaba,
innanríkisráð-
herra Spánar,
á blaðamanna-
fundi fyrir
skömmu.
Samkvæmt
spænska blaðinu El Correo fann
franska hryðjuverkalögreglan
geisladiska, á leynistað ETA í
Frakklandi, sem innihéldu upp-
lýsingar um fyrirhugaða árás.
Samkvæmt blaðinu átti líka að
gera árás á fólk innan ríkis-
stjórnarinnar. Ekkert varð þó úr
árásunum.
Í gær lýsti ETA því yfir að ný
stjórn í Baskahéraðinu væri aðal-
skotmark hreyfingarinnar. - kh
Aðskilnaðarhreyfing Baska:
ETA skipulagði
árás á kónginn
VARSJÁ, AP Að minnsta kosti 21
lét lífið og 20 slösuðust þegar
athvarf fyrir heimilislausa varð
eldi að bráð í bænum Kamien
Pomorski í norðvesturhluta Pól-
lands í fyrrinótt. Eldurinn braust
út um klukkan eitt um nóttina
meðan íbúar voru í fastasvefni.
Eldsupptök eru enn ókunn.
Hátt í áttatíu manns voru
skráðir til heimilis í athvarfinu,
en þar voru einnig einhverjir
gestir. Húsið varð alelda á
skömmum tíma. Brunastigar
náðu aðeins upp á fyrstu hæð
og slösuðust margir þegar þeir
stukku út um glugga á efri hæð-
unum. Nokkur börn björguðust
þegar þeim var kastað út um
glugga og þeir sem fyrir neðan
stóðu gripu þau. Forseti Póllands
hefur lýst yfir þriggja daga
þjóðar sorg. - kh
Þjóðarsorg í Póllandi:
21 lést í elds-
voða í Póllandi
Ók á staur í Sandgerði
Umferðaróhapp varð á Sandgerðis-
vegi í fyrradag. Ökumaður sofnaði
undir stýri, fór yfir á öfugan vegar-
helming og hafnaði á ljósastaur.
Engin slys urðu og bifreiðin er ekki
mikið skemmd. Þá varð umferðar-
óhapp á Suðurstrandarvegi, rétt við
Ísólfsskála, þar sem bifreið valt á hlið-
ina eftir að ökumaðurinn hafði misst
stjórn á henni í lausamöl. Enginn
slasaðist.
Líkamsárás á Suðureyri
Lögreglan á Ísafirði fékk tilkynningu
um líkamsárás í fyrrinótt. Karlmaður
gekk í skrokk á konu en að sögn
lögreglu voru áverkarnir minniháttar.
Konan, sem er á þrítugsaldri, hefur
ekki lagt fram kæru.
LÖGREGLUFRÉTTIR
JUAN CARLOS
SPÁNARKONUNGUR
NÁTTÚRA Tvö hæstu fjöllin í
Vestmannaeyjum hafa lækkað
um fimm metra. Þetta hafa
nýjustu mælingar Landmæl-
inga Íslands leitt í ljós og kemur
það fram á nýju korti stofnunar-
innar. Kortið er gert í tengslum
við útgáfu árbókar Ferða félags
Íslands um Vestmannaeyjar
sem kemur út í næsta mánuði.
Suðurlandið.is segir frá þessu.
Samkvæmt vefnum Heimaslóð
er Heimaklettur hæsti tindur
Vestmannaeyja, 283 metrar á
hæð, og Blátindur sá næsthæsti,
273 metrar. Eftir lækkunina er
Heima klettur 278 metra hár og
Blátindur 268 metrar. - shá
Vestmannaeyjar:
Hæstu fjöllin
lækka töluvert