Fréttablaðið - 14.04.2009, Side 12
12 14. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Nýsköp
MENNTUN | NÝSKÖPUN | HEILSA | ORKA | LÍFSGÆÐI | SAMGÖNGUR
www.asbru.is
FRÉTTASKÝRING: Eignarhald þingmanna í hlutafélögum
STJÓRNMÁL Fimmtán alþingis-
menn áttu að öllu leyti eða að hluta
minnst sautján fyrirtæki í árslok
2007. Þetta kemur fram í skýrslu
sem Creditinfo Ísland vann fyrir
Fréttablaðið.
Tölur um eignarhald þingmanna í
fyrirtækjum vann Creditinfo meðal
annars úr ársreikningaskrá. Ekki
liggja enn fyrir upplýsingar um
eignarhaldið eins og það var um
síðustu áramót þar sem ársreikn-
ingum fyrir árið 2008 hefur í lang-
flestum tilvikum ekki verið skil-
að. Upplýsingar um eignarhald eru
þannig alls ekki tæmandi, ekki síst
þegar einnig er litið til þess að félög
upplýsa ekki alltaf um eignarhald í
ársreikningum og sum skila þeim
jafnvel aldrei inn.
„Niðurstöður sýna það helst
að flestir þingmanna með eignar-
tengsl í fyrirtækjum eru þing-
menn Sjálfstæðisflokksins en tíu af
26 þingmönnum þeirra áttu eigna-
hlut í fyrirtækjum hinn 31. desem-
ber 2007. Af sautján þingmönnum
Samfylkingar áttu þrír eignarhald
í fyrirtækjum, einn af níu þing-
mönnum Vinstri hreyfingarinnar
– græns framboðs en enginn af
þingmönnum Framsóknarflokks,“
segir í skýrslu Creditinfo, sem seg-
ist ekki skilgreina nánar flokks-
stöðu þeirra þingmanna sem eftir
standa til að afhjúpa ekki hvaða
einstaklinga sé um að ræða. Af
þessum óskilgreinda hópi – sem í
eru þingmenn Frjálslynda flokks-
ins auk utanflokkamannsins Krist-
ins H. Gunnarssonar – áttu þrír í
fyrirtækjum.
Einnig var kannað í hluta-
félagaskrá nú í byrjun apríl hvernig
alþingismenn tengjast hlutafélögum
sem stjórnarmenn, framkvæmda-
stjórar og svo framvegis. Hluta-
félagaskrá er uppfærð daglega og
eru upplýsingar úr henni því nýjar.
Í ljós kom að alþingismenn tengjast
nú minnst 55 félögum.
„Nær helmingur þingmanna á
Alþingi er skráður í hlutafélaga-
skrá sem stjórnarmaður, prókúru-
hafi, framkvæmdastjóri, endur-
skoðandi, meðstjórnandi eða
varamaður í stjórn. Af 63 þing-
mönnum eru 30 þingmenn tengdir
félögum með fyrrgreindum hætti,“
segir í Creditinfo-skýrslunni.
Flestir þingmannanna tengjast
fyrirtækjum með stjórnarsetu. „Í
dag sitja 20 þingmenn í stjórnum
50 fyrirtækja en í janúar 2008 sátu
26 þingmenn í stjórnum 69 fyrir-
tækja,“ segir í skýrslunni. „Sautján
af 26 þingmönnum Sjálfstæðis-
flokks eru skráðir í stjórn, með pró-
kúru, skráðir framkvæmdastjórar,
endurskoðendur eða varamenn. Af
sautján mönnum Samfylkingar-
innar eru sjö tengdir fyrirtækjum,
þrír þingmenn Vinstri hreyfing-
arinnar – græns framboðs, fjórir
þingmenn Framsóknarflokksins og
þrír þingmenn Frjálslynda flokks-
ins.“
Tekið skal fram að ekki var litið
til maka þingmanna eða annarra
náinna fjölskyldumeðlima í athug-
un Creditinfo. Við skoðun á kross-
eignatengslum þingmanna, það er
eignarhluta í fyrirtækjum í gegnum
önnur félög, var enn fremur aðeins
skoðað einn lið áfram frá viðkom-
andi félagi. Creditinfo segir hægt
að skoða þetta betur en að það hafi
ekki verið gert nú og upplýsingar
um krosseignatengslin því ekki
tæmandi. Athugunin leiddi fram
að félag eins þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins átti í sjö öðrum félögum
og að félag í eigu eins þingmanns
Samfylkingar átti í fimm öðrum
félögum.
„Miðlun upplýsinga sætir mikl-
um takmörkunum og hefur Per-
sónuvernd synjað Creditinfo að
miðla slíkum upplýsingum þrátt
fyrir að þær byggi á opinberum
gögnum sem ætlað er að tryggja
ákveðið gagnsæi,“ segir í skýrslu
Creditinfo.
Rakel Sveinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Creditinfo, segist telja að
allt sem stuðli að betra gagnsæi
sé öllum til góðs, bæði viðskipta-
umhverfinu og öðrum.
„Við erum að tala um upplýsing-
ar um eignarhald einstaklinga sem
við lesum úr opinberum gögnum en
megum ekki miðla. Við erum ekki
að óska eftir að gefa öllum leyfi til
að fletta upp eignarhaldi hjá hvaða
einstaklingi sem er. En þegar tekn-
ar eru ákvarðanir um viðskipti
gætu legið lögvarðir hagsmunir
í því fyrir einn aðila að vita hvað
annar á og hvað hann stendur fyrir
og hvaða félögum hann tengist,“
segir Rakel.
Átta af áðurnefndum 55 hluta-
félögum hafa enn ekki skilað árs-
reikningi fyrir árið 2007 til árs-
reikningaskrár. Rakel segir þetta
langt í frá einsdæmi. Allt að fimmt-
ungur skilaskyldra félaga á Íslandi
hafi enn ekki skilað inn ársreikn-
ingum 2007 nú tæpum átta mán-
uðum eftir að lokafrestur til þess
rann út í fyrrahaust.
„Ólíkt því sem er í löndunum í
kringum okkur er ákveðin lenska
hér að fyrirtæki eru alls ekki að
skila ársreikningum á réttum
tíma,“ segir Rakel sem kveður
þennan brest vera gríðarlegan galla
á íslensku viðskiptalífi. Ef fyrir-
tæki þurfi fyrirgreiðslu sé jafnvel
verið að byggja á úreltum gögnum.
Þetta sé ekki síst alvarlegt í augum
erlendra aðila sem séu vanir því að
eðlileg fyrirtæki í rekstri skili inn
ársreikningum á tilsettum tíma.
„Til þess að ávinna okkur traust
íslenskra fyrirtækja erlendis þarf
að veita upplýsingar um fyrirtækin
til útlanda. Að skýra út fyrir erlend-
um aðilum hvers vegna íslensku
fyrirtækin eru ekki búin að skila
inn ársreikningum þó að fresturinn
sé löngu liðinn er eiginlega ekki
vinnandi vegur,“ segir Rakel
Sveinsdóttir.
Þingmenn tengdir
minnst 55 félögum
Alþingismenn tengjast nú minnst 55 hlutafélögum. Sjálfstæðisþingmenn tengj-
ast 28 fyrirtækjum og þingmenn Samfylkingar níu. Þingmenn áttu í minnst
sautján fyrirtækjum í lok 2007 segir í skýrslu Creditinfo fyrir Fréttablaðið.
FRÉTTASKÝRING
GARÐAR ÖRN ÚLFARSSON
gar@frettabladid.is
Tengsl þingmanna, sundurliðuð miðað við mismunandi
hlutafélagaþátttöku. 3. apríl 2009.
Meðstjórnandi Prókúruhafi
Varamaður Stjórnarmaður
Endurskoðandi Formaður stjórnar
Framkvæmdastjóri